Dagur - 22.10.1987, Síða 20
Bergur Lárusson: Fer á skósýningar tvisvar á ári.
Mynd: TLV
Skóverslun M.H. Lyngdal:
,,Við erum með skó fyrir
alla fjölskylduna"
- segir Bergur Lárusson
Skóverslun M.H. Lyngdal hf. í
Hafnarstræti 103 er ein af elstu
skóverslunum landsins. Versl-
unin hefur verið rekin síðan
1910 og það eru áreiðanlega
ekki margar búðirnar í Mið-
bænum sem eiga sér lengri
sögu. Verslunin hefur ekki
alltaf verið á þeim stað sem
hún er nú og hefur auk þess
skipt nokkrum sinnum um eig-
endur. Bergur Lárusson er
einn af núverandi eigendum
Lyngdal, en síðast urðu eig-
endaskipti árið 1970.
..Við verslum með skó. töskur.
veski. sokka og alls k\ ns smá\öru
tilheyrandi skóm. eins og skó-
áburð. innlegg og fleira." sagði
Bergur. í Lyngdal fást bæði er-
lendir skór og eins innlendir sem
framleiddir eru hjá Skógerðinni
Iðunn á Akureyri eða hinir \in-
sælu ACT skór. Eigendur L\ng-
dal hafa átt mikil og góð viðskipti
við Skógerðina í gegnum árin.“
Bergur sagði að farið væri á
skósýningar erlendis tvisvar á ári
og gerðar pantanir fyrir verslun-
ina. ..Við skiptum við ákveðin
fvrirtæki og höfum gert í gegnum
árin. Það má nefna vestur-þýsku
fyrirtækin Rode. Vestland,
Schieler. August Ganther,
Berkemann og Niko. Þjóðverjar
eru mjög framarlega í skógerð og
framleiða aðeins vandaða vöru.
Við kaupum skó af austurrísku
fyrirtæki. sem heitir Humanic. Þá
eigum við viðskipti við þrjú
dönsk fvrirtæki. Melgaard
Andersen. Lena sko og NKP.
Loks kaupum \ ið skó frá franskri
samsteypu. Eram. Töskurnar
kaupum við aðallega frá Líbanon
í gegnum breskt fyrirtæki."
- Er jöfn sala í skóm alltárið?
..Já. hún er nokkuð jöfn. Þó
eru janúar og febrúar oft frekar
daufir. Við erum með skó fyrir
alla fjölskylduna og verslunin
hefur orð á sér fyrir að vera með
góða vöru á góðu verði."
Skóverslun M.H. Lyngdal sér
versluninni Valberg í Ólafsfirði
fyrir skóm og einnig er mikið selt
í póstkröfu, til Austfjarða og
reyndar um allt land, meira að
segja til Reykjavíkur.
- Er gott að vera með verslun
í Miðbænunt?
„Já, að nokkru leyti, en það
hefur líka ákveðna ókosti. Það er
geysilega mikið um rúðubrot og
skemmdir á húsum og munum og
mér finnst það hafa aukist eftir
að göngugatan kom. Fólk safnast
saman í göngugötunni eftir
skemmtanir og það þekkja allir
framhaldið af því. Það er líka
óneitanlega erfitt með alla
aðdrætti hérna í göngugötunni og
erfitt að losa vörur. Mér sýnist
líka að í dag þurfi að vera næg
bílastæði við verslunarbyggingar.
Fólk vill geta farið út úr bílunum
og inn í verslunina." HJS
Skótískan:
„Þetta yirðist
vera erfitt dæmi"
— segir Baldur Baldursson
Baldur Baldursson og María
Arnfínnsdóttir eru eigendur
Skótískunnar að Skipagötu 5.
Þau vinna bæði í búðinni og
eru auk þess með stúlku sem
vinnur á morgnana. Það var
Baldur sem varð fyrir svörum
er blaðamaður Dags kom í
verslunina.
Sagði Baldur að búðin hefði
áður heitið Axel Ó. og var hún
þá útibú frá skóverslun með sama
heiti í Reykjavík. En búðin hét
Axel Ó. í aðeins 8 mánuði og
Baldur og María keyptu hana í
maí 1984 og þá var hún skírð
Skótískan.
Það er líklega óþarfi að segja
frá því með hvað þau Baldur og
María versla, en það eru að sjálf-
sögðu skór fyrir alla aldurshópa.
Ég spurði Baldur hvernig gengi
að reka skóverslun í Miðbænum
„Það gengur ágætlega, en þetta
virðist vera erfitt dæmi. Það
verður að gera rétt innkaup til að
þetta gangi upp. Maður verður
að vera nokkuð viss urn að varan
sem pöntuð er hitti í mark.“
Sagði Baldur að þau versluðu
ntikið í gegnum Axel Ó., en færu
einnig á sýningar erlendis. „Við
vorum að koma af sýningu í
Dusseldorf, sem haldin er á vorin
og haustin. Núna vorum við að
velja sumarskóna fyrir næsta
suntar. Línan fyrir næsta sumar
er frekar átakalítil. Það eru frek-
ar hefðbundin snið og grófir
skór. í vetur eru líka grófir skór í
brúnu, svörtu og bláu. Það eru
bæði leður- og rúskinnsskór.“
- Að lokum, er gott að vera
með verslun á þessum stað?
„Já, það er mjög gott. Þetta er
miðsvæðis og hér eru líka
skemmtilegir nágrannar." HJS
Baldur og María í Skótískunni.
Mynd: TLV
Hólabúðin:
„Þetta er
útfærð sjoppa"
segir Yngvi Loftsson
Yngvi Loftsson er góðkunnur
kaupmaður á Akureyri. í dag
rekur hann Hólabúðina við
Skipagötu og hafa umsvifín
eitthvað minnkað með árun-
um. Yngvi er sennilega þekkt-
astur fyrir Hafnarbúðina sem
hann rak í mörg ár en sú versl-
un var aflögð fyrir nokkrum
árum.
- Segðu mér fyrst Yngvi eilítið
frá Hafnarbúðinni.
„Já, Hafnarbúðin var stofnuð
af nokkrum mætum mönnum
árið 1947 en ég tók við starfi
framkvæmdastjóra 10 árum
síðar, eða 1957. Auðvitað er
mikil og löng saga á bak við
Hafnarbúðina en það er skemmst
frá því að segja að verslunin fór á
hausinn 1983 og 5-6 mánuðum
scinna stofnaði ég Hólabúðina."
- Er Hafnarbúðin upprisin?
„Nei, það er ekki hægt að segja
það. Hólabúðin er í hluta af því
Yngvi Loftsson.
Mynd: TLV
húsnæði sem Hafnarbúðin var í
en þetta eru ólíkar verslanir.
Hafnarbúðin var alhliða mat-
vöruverslun en aðalsöluvörurnar
í Hólabúðinni eru grænmeti og
ávextir. Ég hef ntinnkað mikið
við mig í landbúnaðarvörunum
þannig að þetta er kannski ekki
matvælaverslun lcngur heldur
útfærð sjoppa."
- En hvað með efni og tæki til
bruggunar?
„Jú, ég er með bjór- og vín-
gerðarefni, þaö er töluverð sala í
þeim vörullokki. Ég er líka nteð
síur, mæla, kol og alls kyns áhöld
til slíkrar iðju. Hólabúðin er eina
verslunin í bænum, að ég held,
sem býður upp á bjór- og vín-
gerðarefni og allt sem til þarf.
Þetta fékkst í stórmörkuðunum
en það er segin saga að slíkar
vörur þurfa að fást í sérverslun-
um. Fólk þarf að geta fengið leið-
beiningar og góðar ráðlegging-
ar."
- Jæja Yngvi, svo þú lætur
ekki deigan síga þrátt fyrir
undangengin skakkaföll?
„Nei, blessaður vertu, maður
verður að halda áfram. Annað
kemur ekki til greina." SS
VErsIanir í mi3bæ flkursyrar