Dagur - 17.11.1987, Blaðsíða 7

Dagur - 17.11.1987, Blaðsíða 7
v‘ Wt rtó^éítíb'éf'1 ðð7—H!)AGlí)R--7 Helgi Vilberg myndlistarmað- ur er skólastjóri Myndlistar- skólans á Akureyri og hefur fylgst vel með listalífinu í bænum. Hann var inntur eftir sögu myndlistar á Akureyri, helstu brautryðjendum, þró- uninni og stöðu mála í dag. Fyrst spurði ég hann þó ein- faldlega, hvað er myndlist? „Myndlist er fyrst og fremst sköpun, sprottin úr þeirri ósýni- legu jörð sem er vitund lista- mannsins, hugsun og tilfinning- ar.“ - Hvað getur þú sagt mér um sögu myndlistar á Akureyri og brautryðjendur? „Það verður ekki sagt að myndlistariðkun eigi sér viðburð- arríka sögu hér á Akureyri fram- an af þessari öld, enda voru aðstæður ekki ákjósanlegar. Hér vantaði þá örvun sem er listinni Iífsnauðsynleg. Það listmenntaða fólk sem hér settist að, fékk ekki það svigrúm sem því var nauð- synlegt til að þroska hæfileika sína. Þú spyrð um brautryðjendur og ég get nefnt að hér störfuðu menn eins og Haukur Stefáns- son, sem var húsamálari og list- málari, og Jónas Jakobsson myndhöggvari, sem allir full- orðnir Akureyringar kannast við. Þeir störfuðu hér um langt skeið og Haukur byggði stúdíó hérna uppi á Brekku. Síðan eru það menn sem koma hingað, Kristinn G. Jóhannsson, Aðalsteinn Vestmann og Einar Helgason.“ Haukur, Jónas og teiknikennararnir - En Myndlistarskólinn á Akur- eyri, hvenær kemur hann til sögunnar og hefur hann ekki veruleg áhrif á þróun mála? „Hann er stofnaður árið 1974, þannig að hér er um unga stofnun að ræða. Hann er auðvitað aðeins hluti af þróuninni, það eru mjög margháttaðar aðstæður sem móta myndlistina. Guðmundur Ármann kom hingað 1972 á vegum Mynd- listarfélags Akureyrar. Það var félag áhugafólks um myndlist, sem kom á fót námskeiðum í samvinnu við námsflokkana og síðar myndsmiðjunni. Síðan má alls ekki vanmeta það starf sem teiknikennararnir, Einar Helga- son og Aðalsteinn Vestmann hafa unnið. Einar var með námskeið í olíumálun fyrir ungt fólk uppi í Gagnfræðaskóla í fjöldamörg ár. Við sem erum starfandi hér núna höfum langflestir verið á þessum námskeiðum og notið leiðsagnar þessara manna. En upphafið má rekja til Hauks og Jónasar. M.a. lærði Kristinn G. hjá þeim í skóla sem þeir ráku.“ - Kemur þessi þróun fram í fjölgun nemenda við Myndlistar- skólann? „Já, vissulega hefur smám saman bæst við starfsemi skólans og nemendum fjölgað. Það sem ekki er síður mikilvægt er það að kennarar eru orðnir fleiri, stofn- unin laðar til sín sérmenntað fólk á þessu sviði." Myndlistarmaður þarf tvö heimili - Við hvernig aðstæður búa myndlistarmenn á Akureyri? „Það sem listamaður þarf er tími, efni, vinnuaðstaða og örvun. Ef vel á að vera þarf lista- maður að halda úti tveimur heim- ilum. Hann er kannski fjöl- skyldumaður og þarf húsnæði fyrir sig og fjölskyldu sína, en það sem meira er; hann þarf álíka húsnæði sem vinnuaðstöðu. Þetta er stórmál í raun og veru. Auðvitað væri gott ef hið opin- bera veitti listamönnum starfs- aðstöðu, en það er erfitt að tala um þetta og kannski erfitt fyrir marga að skilja það. Nú, hér á Akureyri hafa nokkrir myndlist- armenn fengið aðstöðu í Gamla Barnaskólanum. Menningar- málanefnd kynnti tillögur í sumar, þar sem fram kemur vilji til að bæta aðstöðuna með því að koma á fót vinnustofum og verk- stæðum sem hægt væri að leigja listamönnum. Það er auðvitað þakkarvert og lýsir framsýni þeirra sem þessum málum ráða hjá bænum. Með starfslaunum kaupir lista- maðurinn sér tíma. Listsköpun er vinna og það sem listamenn fara fram á er, að þeim séu sköpuð eðlileg starfsskilyrði. Það ætti að vera stefna stjórnmálamanna að leyfa sem flestum að njóta sín, „Listsköpun er vinna og það sem listamenn fara fram á er, að þeim séu sköp- uð eðlileg starfsskilyrði,“ segir Helgi Vilbcrg. Mynd: tlv heldur er þarna rekstur líka. Það er grundvallarmunur á þessu.“ - Segðu mér aðeins frá hug- myndum ykkar um starfslaun. „Já, það hefur verið talað um að bæta starfslaun listamanna. Við getum hugsað okkur tvenns konar starfslaun. Annars vegar laun fyrir þá sem hafa nýlokið námi, gefa þeim tækifæri í eitt, tvö ár, til að sýna hvað í þeim býr. Hins vegar eru þeir sem hafa starfað að þessu um lengri tíma, að þeir fái möguleika að starfa að listinni án þess að hafa áhyggjur af annarri vinnu. á einhverju tímabili að minnsta kosti. Þetta er hægt, en viðhorfin þurfa að breytast. Fólki finnst að hér sé um einhverja ölmusu að ræða.“ - Nú eru myndlistarmenn á Akureyri minna þekktir en t.d. reykvískir listamenn. Eigum við laícari listamenn, eða er þetta spurning um tækifæri til að koma sér á framfæri? „Fjölmiðlar flytja okkur frem- ur fréttir af því sem er að gerast í myndlist á höfuðborgarsvæðinu en á Akureyri. Við stöndum á nokkrum tímamótum. hér lifir og starfar allstór hópur listamanna, sem vinnur af meiri metnaði en áður. Fleiri Akureyringar en fyrr stunda nú listnám víða um heim og hafa nokkrir þeirra vakið sér- staka athygli og viðurkenningu fyrir afburða námsárangur. Ef ráðamenn skynja ekki sinn vitj- „Vantar á kveðnari stefiiu bæjai *yfirvalda“ - segir Helgi Vilberg ráða sér og þroskast við eðli þeirra og hæfi, en búa þeim sem best skilyrði. Hér á Akureyri er jarðvegurinn frjór og við eigum margt vel menntað kunnáttufólk, sem á það skilið að starfsaðstaða þeirra verði bætt, en það sem e.t.v. vantar er ákveðnari stefna bæjaryfirvalda í þágu lifandi menningar." Myndlist og íþróttir - Og frá vinnuaðstöðu í sýning- arsali. Hafa listamenn á Akureyri ekki átt í erfiðleikum með að koma list sinni á framfæri? „Jú, það þarf góðan, sérhæfð- an sýningarsal til að koma mynd- listinni á framfæri. Auðvitað er fyrir hendi húsnæði í bænum til að hengja upp myndir en það er annað mál. Séraðstaða skiptir listamanninn máli en hún skiptir ekki minna máli fyrir þann stóra hóp sem vill njóta listarinnar, á sama hátt og við teljum nauðsyn- legt að hafa hér íþróttahöll og íþróttahús við skólana. Flestir, ef ekki allir skilja mikilvægi þessa, en færri skilja það kannski að fjöldi þeirra sem sækir listsýning- ar er svipaður og á íþrótta- viðburði. Það var gerð úttekt á þessu ekki alls fyrir löngu í Reykjavík. Til dæmis var aðsókn áð Picasso sýningunni á Kjarvals- stöðum meiri en að nokkrum íþróttaviðburði í Reykjavík. Mönnum yfirsést þetta. Sama er um stórborgir erlendis. Þær leggja metnað í að búa listasöfnin sem best, það er verið að byggja listasöfn út um allt, vegna þess að menn sjá hvaða hagnað, beinan og óbeinan, má hafa af þessari starfsemi. Ferðamennirnir koma til að njóta listarinnar og skila sér síðan líka á hótelin, veitingastað- ina, verslanirnar, o.s.frv. Það verður æ algehgara erlend- is að fyrirtæki sjái sér hag í að styðja listræna starfsemi hvers- konar með því að kosta einstaka listviðburði og með því að verð- launa listamenn og styðja á ann- an hátt. Þessa er rétt farið að gæta hér á landi og jafnvel á Akureyri, ég bendi á fjárstuðning nokkurra vel rekinna fyrirtækja við Gluggann hið nýja gallerí. Þess verður vart langt að bíða að snjallir athafnamenn geri sér grein fyrir þeim fjárfestingar- möguleikum sem felast í nútíma- myndlist. Hagnaður af stuðningi við list hlýtur að vera bæði beinn og óbeinn.“ Tvenns konar starfslaun - Við hljótum þá að standa á ákveðnum tímamótum með Glugganum? „Já, hann bætir úr brýnni þörf. Auðvitað er rétt að taka það fram að þeir staðir sem fyrir eru gegna ákveðnu hlutverki. Gamli Lundur er ljómandi fallegt hús og hæfir minni sýningum alveg prýðilega, en um leið og kom- ið er út í stærri sýningu fer mál- ið að vandast. Haldnar hafa ver- ið sýningar í Vín, Dynheimum, Glerárkirkju, Laxdalshúsi, golf- skálanum og í Skemmunni, en ákveðnir vankantar eru á öll- um þessum stöðum. Með Glugg- anum erum við hins vegar ekki bara að innrétta gott húsnæði unartíma og bæta starfsskilyrði listamanna hér á Akureyri, þyrfti ekki að spyrja svona spurninga í framtíðinni. Eins held ég að fréttamenn hafi ekki gert sér grein fyrir því, að vaxtarbroddur- inn er í myndlistinni hér.“ - En eftir að Myndlistarfélag Akureyrar var lagt niður, hafa þá nokkuð verið starfandi samtök myndlistarmanna hér? Er ekki auðveldara að koma sér á fram- færi í gegnum samtök? „Við tökum þátt í sýningum á vegum samtaka íslenskra mynd- listarmanna og erum félagsmenn í FÍM og fleiri félögum, en e.t.v. er nú mikilvægara en áður að stofna hér hagsmunafélag mynd- listarmanna á Akureyri, það gæti verið styrkur að því fyrir bæjar- félagið og stuðlað að markvissari kynningu.“ - Víkjum sérstaklega að kon- um í lokin. Eru þeim að fjölga í myndlistinni? „Ég held að fleiri konur en karlar starfi að myndlist á íslandi og í myndlistarskólunum eru þær í meirihluta." SS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.