Dagur - 18.11.1987, Page 1

Dagur - 18.11.1987, Page 1
70. árgangur Akureyri, miðvikudagur 18. nóvember 1987 220. tölublað Fílman þin á skiliö þaö besta1 Nýja Filmuhúsið Hafnarstræti 106 - Sími 27422 Pósthólf 196 gæðaframköllun Hrað- framköllun Opiö á laugardögum frá kl. 9-12. í rútubíl af stað til Trier í kvöld leggur 100 manna hóp- ur starfsfólks, og maka, af Frystihúsi KEA á Dalvík og Hjalteyri, af stað í fjögurra daga ferð til Þýskalands. Tilefnið er að í borginni Trier við landamæri Luxemburg og Þýskalands verður á föstudags- kvöldið haldin árshátíð fyrir- tækisins. í sumar kom upp sú hugmynd í starfsmannafélagi fyrirtækisins að leggja í ferð sem þessa. For- ráðamenn fyrirtækisins tóku vel í að leggja í „púkkið" upphæð sem næmi kostnaði við árshátíðarhald og var þá afráðið að slá til. Til- boða var leitað og síðan gengið til samninga við Ferðaskrifstofu Akureyrar, sem bauð best. Þegar ferðin var endanlega skipulögð í endaðan ágúst var að sjálfsögðu ekkert vitað um veðurhorfur á þessum tíma og því var strax ákveðið að aka til Keflavíkur, „til að vera viss“ eins og Hjördís Jónsdóttir ein þeirra sem stóðu að undirbúningnum sagði í samtali við Dag. Hjördís sagðist telja að um % hlutar starfsfólksins tækju þátt í ferðinni og væru 30-35 af þeim að fara í sfna fyrstu utanlandsferð. Elsti þáttakandinn er 75 ára en sá yngsti er 16 ára. ET Síðbúnar leitir í Bárðardal: Óvenjumargt fé á hálendinu -11 kindur hafa fundist eftir göngur í haust voru þau llutt hcim í bíl. í þessum síðbúnu leitum var Tryggvi Höskuldsson, bóndi á Mýri og hann var spurður hvort algengt væri að leitað sé á afrétti svo síðla hausts. „Þetta kemur mest til af því að vegna vondrar tíðar í haust var ekki hægt að ganga þriðju göngur. Við fórum aftur á móti inn á hálendið á snjósleðum fyrr í haust og fundum 9 kindur og fengum síðan fregnir af þessum lömbum núna á dögunum. Þetta er þó óvanalega margt fé sem eftir hefur orðið,“ sagði Tryggvi á Mýri. JÓH Á dögunum var farið frá Mýri, fremsta bæ í Bárðardal inn á hálendi í því skyni að sækja tvö lömb sem vitað var um þar inn frá. Lömbin fundust um 35 kflómetra fyrir framan Mýri og eftir að búið var að ná þeim „Me-gas“ sprenging á Króknum /kirkjudyrum. Sr. Sighvatur Karlsson að opna dyr Húsa víkurkirkj u. Mynd: im Bæjarstjórn Akureyrar: Fyrri umræða um stjórn- skipulagið „Lýsa má verkefninu svo að það næði tii endurskoðunar bæði á embættiskerfi og nefndakerfi bæjarins og sjá til að samræmi yrði milli kerf- anna tveggja. Jafnframt er nauðsynlegt að skilgreina markmið og hlutverk Akureyr- arbæjar á hverju sviði fyrir sig betur en nú er,“ sagði Sigfús Jónsson, bæjarstjóri, við fyrri umræðu um breytingar á stjórnskipulagi Akureyrar á bæjarstjórnarfundi í gær. Bæjarstjóri lýsti í stuttu máli á fundinum hvernig hið nýja stjórnskipulag væri hugsað og fór yfir helstu þætti þess. Sagði hann m.a. að nauðsynlegt væri að vinna að nýrri stefnumótun í starfsmannamálum bæjarins, einkum með tilliti til fræðslu- og endurmenntunarnáms fyrir starfsfólkið. Þá væri nauðsynlegt að taka húsnæðismál bæjarstofn- ana til endurskoðunar því mikil dreifing bæjarstofnana hamlaði eðlilegri þróun þeirra og innbyrð- is samvinnu sem nauðsynlegt væri að auka. Sigurður Jóhannesson var eini bæjarfulltrúinn sem tók til máls um stjórnskipulagsbreytingarnar. Hann sagði m.a. að álit sitt væri að stjórnskipulagsnefndin hefði rækt hlutverk sitt vel og þakkaði þeim sem hafa starfað að fram- gangi þessara breytinga gott samstarf. Rakti hann þróun þeirra hugmynda sem lagðar hafa verið fram og sagði að nefndin þyrfti að starfa áfram um ótil- greindan tíma. Sjá nánari umfjöllun um stjórnskipulagið á bls. 6-7. EHB Á dögunum varð vart við megna ólykt á Eyrinni á Sauð- árkróki. Var ódaunninn svo mikill að þeir sem úti voru við vinnu höfðust þar illa við. Fannst mönnum þetta ein- kennilegt þar sem þefinn lagði úr annarri átt, og var miklu mun sterkari, en Sauðkræking- ar eru vanir. En þeir fá stund- um að kenna á öskuhaugunum norðan við bæinn. Þegar að var gáð reyndist lykt- in koma úr fjöldagröf upp með Gönguskarðsá, töluverðan spöl frá bænum, þar sem um 3500 kindur úr riðuhjörðum voru dysjaðar. Þó svo að grafin hafði verið djúp gröf og sett þykkt farg af jarðvegi ofan á hélt það ekki gegn gasmynduninni í innyflum dýranna. „Tættist“ jarðvegurinn ofan af og við það skutust nokkr- ir skrokkar upp úr gröfinni. Segja gárungarnir að þarna hafi „me- gas“ sprenging mikil átt sér stað. Að sögn Sveins H. Guðmunds- sonar heilbrigðisfulltrúa, láðist að stinga á belginn eins og gert var t.d. á Blönduósi, og lyftist því haugurinn meira en gert var ráð fyrir. -þá Ríkisstjórnin staðfesti á fundi sínum í gær að staðið verði við samþykktir Alþingis um að fram- kvæmdir við Olafsfjarðarmúla verði hafnar á næsta ári. Skal þeim vera lokið eigi síðar en árið 1991. Áætlaður kostnaður við verkið er 530 milljónir króna og á að verja 90 milljón- um til framkvæmda á árinu 1988. Á mánudaginn afhentu Hall- dór Blöndal alþingismaður og Skúli Pálsson frá Ólafsfirði Þor- steini Pálssyni forsætisráðherra undirskriftarlista með nöfnum 698 Ólafsfirðinga, þar sem þeir kröfðust þess að stjórnvöld myndu standa við gefin loforð um jarðgöng gegnum Ólafsfjarð- armúla. Ríkisstjórnin brást skjótt við þessu og staðfesti að fram- kvæmdir myndu hefjast á næsta ári. Að sögn Guðmundar Bjarna- sonar ráðherra hefur verið mikil samstaða meðal þingmanna kjör- dæmisins um að koma þessu máli í örugga höfn og kvaðst hann fagna því að þetta mál hafi nú fengið staðfestingu ríkisstjórnar- innar. Staðfesting þessi er byggð á eftirfarandi forsendum. I fyrsta lagi að ríkisstjórnin muni beita sér fyrir 20 m.kr. fjárútvegun, til viðbótar 70 m.kr. sem kæmu af vegaáætlun. í öðru lagi að í sambandi við endurskoðun vega- áætlunar veturinn 1988-’89 verði Múlinn hefur oft verið erfiður yflr- ferðar. Mynd: kga tekin afstaða til fjármögnunar verksins á árunum 1989-’91. Við þá endurskoðun verði tekið tillit til stærðar þessa verkefnis við skiptingu útgjalda í vegaáætlun, þannig að það fái stærri skammt í sinn hlut en er í gildandi vega- áætlun. Og í þriðja lagi að í ljósi tilboða í framkvæmdina verði verkhraði og árleg heildarfjárút- vegun metin. Að sögn Guðmundar gætu orðið einhverjar umræður á Alþingi um annan lið þessara forsenda og í sambandi við þriðja liðinn þá gæti kostnaðaráætlunin vonandi lækkað eitthvað þegar verkið verður boðið út á almenn- um markaði. AP

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.