Dagur - 18.11.1987, Side 3

Dagur - 18.11.1987, Side 3
18. nóvember 1987 - DAGUR - 3 Nýbygging við Amtsbókasafnið: Samkeppnisformið varð fyrir valinu Menningarmálanefnd Akur- eyrar hefur samþykkt að efna til samkeppni um hönnun nýbyggingar við Amtsbóka- safnið og skal miða hana við samkeppnisreglur Arkitekta- félags íslands. Ingólfi Ár- mannssyni, menningarfulltrúa og Lárusi Zophoníassyni, amtsbókaverði, var falið að vinna að frumforsögn bygging- arinnar til að auðvelda störf dómnefndar. Verulegur skriður er því að Salan á Húseiningum hf.: Beðið undir- skrifta sjóða iðn- aðarins -Ijóster að afskrifa þarf einhvern hluta af kröfum Enn hefur ekki verið gengið endanlega frá kaupum Kon- ráðs Baldvinssonar á þrotabúi Húseininga hf. á Siglufírði. Samningur hefur verið undir- ritaður af kaupanda, bústjóra þrotabúsins og þremur af fímm veðhöfum í búinu, með fyrir- vara um samþykki hinna tveggja sem eftir eru, Iðnþró- unarsjóðs og Iðnlánasjóðs. í þessari viku verða að öllum líkindum haldnir stjórnarfundir í þessum sjóðum báðum og að sögn Árna Pálssonar bústjóra þrotabúsins hefur ekki staðið á öðru en að bíða þessara funda. Kaupverðið er um 36 milljónir en kröfur með áföllnum vöxtum nema talsvert hærri upphæð. Það er því ljóst að einn eða fleiri kröfuhafar verða að gefa eftir og afskrifa einhvern hluta af kröfum sínum. Vegna þess að áðurnefnd- ir sjóðir eiga kröfur framarlega í veðröð sleppa þeir við slíkt og því má telja fullvíst að stjórnir þeirra afgreiði erindin jákvætt og endanlega verði gengið frá kaup- unum. Að sögn Gísla Benedikts- sonar framkvæmdastjóra Iðn- Iánasjóðs er algengast að þessir tveir sjóðir séu samstíga í með- ferð sameiginlegra mála sem þessa. Þess má geta að eftir að tilboði Konráðs hafði verið tekið, barst annað tilboð í eignirnar frá þrem- ur aðilum á Siglufirði, Byggingar- félaginu Dverg, Siglufjarðarleið og Sigurði Fanndal. ET Uppinn - sækir um vínveitingaleyfi Bæjarráði Akureyrar barst á dögunum erindi frá bæjar- fógetanum á Akureyri þess efnis að óskað var umsagnar bæjarstjórnar við erindi Þráins Lárussonar veitingamanns. Þráinn sem er veitingamaður á hinum nýja veitingastað Uppanum þar sem áður var Café Torg var þarna að sækja um leyfi til vínveitinga í veitingahúsi sínu. Bæjarráð lagðist ekki gegn veit- ingu leyfisins. VG komast á málið sem hófst með því að bæjarstjórn Akureyrar samþykkti á hátíðarfundi 29. ágúst að veita 2 milljónum króna til undirbúnings við hönnun nýbyggingar við safnið. í fram- haldi af því var menningarmála- nefnd falið að annast undirbún- ing og nú hefur verið ákveðið hvernig að honum skuli staðið. Gunnari Ragnars, formanni menningarmálanefndar, hefur verið falið að rita Arkitektafélag- inu bréf þar sem þessi ákvörðun er tilkynnt og þess óskað að félagið tilnefni tvo menn í dómnefnd. Jafnframt er þess ósk- að að Ólafur Jensson, fram- kvæmdastjóri Byggingaþjónust- unnar í Reykjavík, verði til- nefndur trúnaðarmaður dóm- nefndar. Ólafur var viðstaddur fund mennmgarmálanefndar 6. nóv- ember og skýrði hann frá því hvernig samkeppni af þessu tagi fer fram. Einnig lagði hann fram samkeppnisreglur Arkitektafé- lags íslands og á þessum fundi voru menn sammája um að hraða undirbúningi. Samkeppnisformið var síðan samþykkt á fundi nefndarinnar 13. nóvember og í bókun nefnd- arinnar segir að stefnt skuli að því að dómnefnd verði'fullskipuð í desember. SS Gaddavír og girðingastaur eiga vel saman og skapa í sameiningu vissa vetrar- stemmningu. Mynd: tlv. Ráðhústorg og Skátagil: Skilafrestur í sam- keppninni senn útmnninn Samkeppni um skipulag og mótun Ráöhústorgs og Skáta- gils stendur nú yfír en skila- frestur rennur út 26. nóvem- ber. Aö sögn Finns Birgissonar skipulagsstjóra, sem er for- maður dómnefndar, hafa 20 útboðsgögn verið send til þátt- takenda en það kæmi ekki í Ijós fyrr en skilafrestur væri útrunninn hve margir tækju þátt í keppninni. Eftir að skiláfrestur rennur út kemur dómnefnd saman, en Finnur sagði að ekki væri víst að niðurstöður yrðu ljósar fyrr en eftir áramót. Heildarverðlaun í samkeppninni nema 900 þús. kr. og þar af eru fyrstu verðlaun 500 þúsund kr. Tilgangur samkeppninnar er að fá fram hugmyndir um mótun og frágang svæðisins í samræmi við það hlutverk sem því er ætlað í skipulagi Miðbæjarins, þ.e. úti- vistar- og göngusvæði. Stefnt er að því að verðlaunatillagan, eða tillögurnar, komi til framkvæmda á næstu árurn. SS ábökmarwnm Stór- aftfálhtr Tiíöoðið stendur titjófad oUu éíaas- svœðinu.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.