Dagur - 18.11.1987, Side 11
íþrótfir
18, nóvember 1987 - DAGUR - 11
Keppni í1.
------------i
deildinni í handbolta hálfnuð:
l
Staða KA og Þórs
alls ekki glæsileg
Keppni í 1. deild íslandsmóts-
ins í handknattleik er hálfnuð
en nú hefur verið gert hlé á
mótinu fram að 20. janúar.
Mótið í ár hefur verið geysi-
lega skemmtilegt og áhugi fyrir
því á meðal almennings gífur-
lega mikill. Troðfullt var t.d. í
íþróttahúsinu í Hafnarfirði á
sunnudag er FH og Valur
mættust enda var þar um að
ræða uppgjör toppliðanna. Þá
var einnig þétt setinn bekkur-
inn í Laugardalshöll er FH og
Víkingur og Fram og KR átt-
ust þar við í síðustu viku. Þá
hefur jafnan verið troðfullt hús
á Akureyri þegar KA er að
leika.
Ástæðurnar fyrir þessum mikla
áhuga á handboltanum á ný eru
vafalaust margar. Góður árangur
landsliðsins vegur þar sennilega
Handbolti:
Héðinn
marka-
hæstur
Héðinn Giisson stórskytta
þeirra FH-inga hefur skorað
flest mörk allra leikmanna 1.
deildar í handbolta. Héðinn
lék á als oddi gegn Val á
sunnudag og skoraði þá 9
glæsileg mörk með sann-
kölluðum þrumuskotum.
Héðinn hefur skorað 56 mörk
og ekkert þeirra úr vítakasti.
Konráð Olavson hornamaður
úr KR hefur skorað næstflest
mörk eða 54 og þar af 10 úr
vítaköstum.
Markahæstu leikmenn 1.
deildar nú þegar mótið er
hálfnað eru þessir:
Héðinn Gilsson FH 56
Konráð Olavson KR 54/10
Hans Guðmundsson UBK 53/19
Júlíus Gunnarsson Fram 51/15
Þorgils Óttar Mathiesen FH 50
Valdimar Grímsson Val 49/5
Skúli Gunnsteinsson Stjörn. 48
Sigurpáll Aðalsteinss. Þór 48/32
Sigurður Gunnarss. Víking 45/16
Karl Þráinsson Víking 43/11
Júlíus Jónasson Val 43/12
Stefán Kristjánsson KR 43/13
Bjarki Sigurðsson Víking 40
Föstudaginn 27. nóvember nk.
verður haldið Herrakvöld KA.
Það var haldið í fyrsta skipti í
fyrra og tókst mcð eindæmum
vel eins og þátttakendum þá
ætti að renna í minni. Akveðið
hefur verið að Herrakvöld KA
verði árlegur viðburður sem
enginn sannur KA vinur ætti
að láta fram hjá sér fara.
Eins og í fyrra verður hátíðin
haldin í KA heimilinu við Dals-
braut. Gleðskapurinn hefst kl.
20.00 með drykk og mat en síðan
stærst en einnig endurkoma
nokkurra snjallra handknatt-
leiksmanna sem leikið hafa er-
lendis, í boltann hér heima á ný.
í íslenskum félagsliðum eru líka
margir frábærir ungir leikmenn
sem gaman er að fylgjast með. Þá
á góður árangur íslenskra félags-
liða í Evrópukeppninni einnig
sinn þátt í þessum mikla áhuga
og vafalaust sitthvað fleira.
FH og Valur hafa sýnt nokkra
yfirburði í vetur og liðin sitja í
tveimur efstu sætunum nú þegar
mótið er hálfnað. Liðin hafa bæði
hlotið 16 stig en FH-ingar sitja í
efsta sætinu með betra marka-
hlutfall. Þeir hafa skorað lang-
flest mörk í deildinni eða 255 sem
eru 28,3 mörk að meðaltali í leik.
Valsmenn hafa aftur á móti feng-
ið langfæst mörk á sig í deildinni,
eða 140 sem eru aðeins 15,5
mörk að meðaltali í leik.
Breiðablik situr í 3. sæti deild-
arinnar með 12 stig og jafna
markatölu, 189:189. Islands-
meistarar Víkings hafa ollið tölu-
verðum vonbrigðum, liðið hefur
aðeins unnið fimm leiki en tapað
fjórum og er í fjórða sæti. Stjarn-
an hefur einnig átt frekar mis-
jöfnu gengi að fagna í vetur. Lið-
ið hefur unnið fjóra leiki, gert
eitt jafntefli og tapað fjórum
leikjum.
ÍR er það lið sem komið hefur
hvað mest á óvart með góðri
frammistöðu í vetur. ÍR-ingar
hafa hlotið 8 stig en það er 8 stig-
um meira en margir áttu von á
Hörður Harðarson hefur leikið vel í
vörn Þórs í vetur en lítið fengið að
sprcyta sig í sókninni.
tekur við „læst“ dagskrá sem ein-
göngu er ætluð þátttakendum
kvöldsins.
Vegna mikillar aðsóknar í
fyrra þarf að takmarka fjölda
gesta og er því vænlegast að
tryggja sér miða í tíma. Miðarnir
verða seldir hjá Gunnari (Gassa)
í síma 25404, Þorvaldi í síma
26736 Hauki í síma 27373 og
Hinrik í síma 22140. Á daginn
verður hægt að nálgast miða í
Sporthúsinu og í KA heimilinu.
VG
fyrir mótið. Liðið hefur unnið
þrjá leiki, gert tvö jafntefli og
tapað fjórum leikjum.
KA hefur ollið gífurlegum
vonbrigðum hér norðan heiða og
jafnvel víðar. Liðið hefur eigin-
íega aldrei náð sér á strik og að-
eins hlotið 7 stig úr fyrri umferð-
inni. KA hefur aðeins unnið tvo
leiki, gert þrjú jafntefli og tapað
fjórum leikjum. Það vantar ein-
hvern neista í liðið og leikmenn
þess þurfa heldur betur að taka
sig saman í andlitinu á nýja
árinu, ef ekki á illa að fara. Jakob
Jónsson hefur verið meiddur að
undanförnu en hann mætir von-
andi í slaginn á ný eftir áramót.
KR-ingar eru á svipuðum stað
í deildinni og flestir áttu von á fyrir
mót. Liðið hefur hlotið 7 stig eins
og KA en þessi lið gerðu einmitt
jafntefli í síðasta leik sem frægt
varð. Fram hefur átt erfitt upp-
dráttar í vetur enda hafa meiðsli
hrjáð flesta af bestu leikmönnum
liðsins í vetur. Fram hefur nú
endurheimt þessa leikmenn að
nýju og liðið sýndi það gegn
Stjörnunni um helgina að það
getur bitið frá sér. Fram situr í
næstneðsta sæti með 5 stig en á
örugglega eftir að laga stöðu sína
í seinni umferðinni.
Þór hefur enn ekki komist á
blað og liðið hefur tapað öllum
leikjum sínum í deildinni til
þessa. Þórsarar hafa leikið ágæt-
lega kafla og kafla í hverjum leik
en síðan hefur botninn dottið úr
leik liðsins. Það er eins og vanti
viljann í leikmenn liðsins til þess
að klára dæmið. Eins og staðan
er í dag er fátt sem getur komið í
veg fyrir að Þór falli í vor. Þó er
mótið aðeins hálfnað og enn eru
18 stig í boði. Taki Þórsarar þau
flest í seinni umferðinni geta þeir
bjargað sér fyrir horn, þótt ekki
séu nú líkurnar miklar á að það
takist.
Leikmenn 1. deildar munu æfa
að fullum krafti þar til keppnin
hefst að nýju eftir áramót og von-
andi fáum við að sjá jafn marga
skemmtilega leiki þá og við höf-
um fengið til þessa.
Knattspyrna:
Steinar
í KR
- en ætlar að leika
með Leiftri í sumar
Steinar Ingimundarson fram-
herji Leifturs í knattspyrnu
hefur skipt yfir í KR á ný.
Steinar hyggst leika með KR í
þeim innanhússmótum sem
framundan eru en hann mun
síðan skipta yfir í Leiftur aftur
og leika með liðinu í 1. dcild-
inni í sumar.
Steinar sem er bróðir Óskars
Ingumundarsonar þjálfara Leift-
urs, lék mjög vel í framlínu liðs-
ins í sumar og skoraði 7 mikilvæg
mörk fyrir liðið í 2. deildinni.
Líklegt er að þeir Steinar og
Hörður Benónýsson leiki því
saman í fremstu víglínu Leifturs
næsta sumar.
Herrakvöld KA
Erlingur Kristjánsson hefur átt ágæta spretti meö KA í vetur en dottiö niður
þess á milli.
Enska knattspyrnan:
Beinar útsendingar
fram að jólum
- í íslenska
Nú geta knattspyrnuáhuga-
menn glaðst, því að á næsta
laugardag verður bein útsend-
ing í íslenska Sjónvarpinu frá
leik Wimbledon og Manchest-
er United í 1. deildinni ensku.
Og ekki nóg með það, Bjarni
Felixson ætlar að sýna leiki
beint frá ensku knattspyrnunni
á laugardögum fram að jólum.
Laugardaginn 28. nóvember
verður leikur Tottenham og
Liverpool sýndur í beinni útsend-
ingu frá White Hart Lane í
Lúndunum. Fyrsta laugardaginn
í desember mæta leikmenn Unit-
ed aftur á skjáinn en þá sækja
þeir spútniklið Q.P.R. heim á
Loftus Road.
Á þessari stundu er ekki
endanlega ljóst hvaða leikur
verður sýndur beint þann 12. des-
ember en það skýrist á næstunni.
Meðal leikja sem fara fram þann
dag, eru viðureignir Chelsea og
Wcst Hant, Southampton og
'Liverpool, Everton og Derby og
Coventry og Arsenal svo ein-
hverjir séu nefndir.
Laugardaginn 19. des. verður
Sjónvarpinu
svo enn einn stórleikurinn sýndur
beint í íþróttaþætti Bjarna Felix-
sonar en það er viðureign Arsen-
al og Everton á Highbury í
Lúndunum. Það er því öruggt að
knattspyrnuáhugamenn þurfa
ekki að láta sér leiðast fram að
jólum.
Brvan Robson fyrirliði United verð-
ur í eldlínunni meö liði sínu gegn
Wimbledon á laugardag.
Blak:
Kristján leikur með KA
- Leik KA og
Kristján Sigurðsson íþrótta-
kennari á Laugum í Reykjadal
hefur ákveðið að ganga til liðs
við 1. deildar lið KA í blaki.
Kristján þykir snjall blakmað-
ur en hann lék með HSÞ í
fyrra.
KA átti að leika gegn Fram á
laugardag í 1. deildinni en þeim
leik hefur nú verið frestað um
viku. Kristján verður löglegur
Fram frestað
með liðinu 27. nóv. og hann mun
því geta leikið með KA gegn
Fram þann 28. nóv.
Leiknum er frestað vegna
yngri flokka túrneringar í
Reykjavík um helgina. Þetta er
fyrsta túrneringin af þremur á
íslandsmóti yngri flokka í blaki
og verður leikið í Digranesi í
Kópavogi. KA sendir fjögur lið
til leiks, 2. og 3. flokk pilta og
stúlkna.