Dagur - 18.11.1987, Side 15

Dagur - 18.11.1987, Side 15
18. nóvember 1987 - DAGUR - 15 t, Minning: Ami Guðlaugsson Dalvík Fæddur 10. júní 1912 - Dáinn 7. nóvember 1987 Árni frændi minn Guðlaugsson lést 7. nóvember síðastliðinn og var jarð- settur frá Dalvíkurkirkju 14. nóvember. Fráfall hans kom öllum á óvart, en var þó e.t.v. í fullu sam- ræmi við persónuna, ef svo má segja. Árni Guð var aldrei að tvínóna við hlutina hvorki í orði né æði; hann var snöggur til alls og því heill í gegn til hinstu stundar. Eins og jafnan á slíkum tímamót- um koma upp í huga manns minning- ar frá liðnum árum. Allar götur frá því undirritaður hafði líkamsburði til að trítla út á Möl til þeirra Árna og Kidda, þar sem þeir ráku steypustöð og þar til nú fyrir nokkrum dögum, þá hefur Árni verið mér og mínu fólki mikils virði. Ég átti því láni að fagna að vera með honum á grásleppu eitt vor fyrir nokkrum árum. Við vorum tveir saman á trillu sem hann átti. Þá var Árni kominn á sjötugsaldurinn en ég 24ra ára unglamb. Hann sjálfstæðis- maður, ég alþýðubandalagsmaður. Báðir þrjóskir. Báðir töldu sínar skoðanir réttar. Það var því ekki allt- af logn í kringum okkur frændurna þegar við drógum netin og fórum að ræða um pólitík. - Puuh! Þetta er nú svo vitlaust! sagði hann einu sinni þegar ég var búinn að halda langa ræðu um nauð- syn þess að allir grásleppukarlar gerðust sósíalistar. Þú vilt steypa alla í sama mótið og gefa mönnum ekki frelsi til að athafna sig að vild. Þótt þú veiðir rauðmaga þarftu ekki sjálf- ur að vera rauðmagi! í þessum eldhúsdagsumræðum okkar komst Árni sjaldan í rökþrot. En ef svo ólíklega vildi til að honum fyndist fæturnir vera farnir að renna undir honum átti hann til að segja um leið og hann horfði upp í loftið: - Jaaa, láttu ekki svona góurinn, þú ert svo ungur að þú veist ekkert hvað þú ert að segja. Svo hló hann. En við Árni ræddum líka eilífðar- málin. Hann var þeirrar skoðunar að kristin trú væri það haldreipi sem héldi lengst. Ég er ekki frá því að slíkt hafi hann fengið að sannreyna á erfiðum stundum í lífinu. Margt af því sem okkur frændun- um fór á milli á þessari grásleppu- vertíð átti undirritaður eftir að rifja upp þegar hann setti saman bók sem tengdist þeim göfuga fiski gráslepp- unni. Árni gegndi fjölmörgum trúnaðar- störfum fyrir Dalvík og Dalvíkinga. Hann átti ríkulegan þátt í að byggja upp staðinn, bæði beint og óbeint. Meðan hann vann í múrverkinu var varla reist það hús í þorpinu að hann kæmi þar ekki nærri. Hann var einn af stofnendum Dalvíkurdeildar Slysavarnafélags íslands og fyrsti for- maður hennar, einn af stofnendum Lionsklúbbsins, sat í byggingarnefnd til margra ára, í sóknarnefnd, í karla- kór, kirkjukór og svona mætti lengi telja. Með Árna Guð er horfinn ein af litríkustu persónum Dalvíkur. Kem- ur þar margt til. Langur og starfsam- ur æviferill, umönnun og ástríki í garð þeirra sem minna máttu sín, óbilandi þrek og kjarkur þegar á reyndi í lífinu og síðast en ekki síst fastmótaðar og ákveðnar skoðanir á hlutunum. Um slíkt talaði hann tæpi- tungulaust með þungum áherslum þegar honum var mikið niðri fyrir, en glettni og stráksskap ef sá gállinn var á honum. Það er mikill missir að slík- um manni og forréttindi að hafa fengið að kynnast honum. Blessuð sé minning hans. Fjölskylda mín vottar Þórgunni, Svönsu og öllum aðstandendum inni- legustu samúð við fráfall þessa góða drengs. Guðlaugur Arason Minning: Fædd 7. des. 1897 - Dáin 24. okt. 1987 Kveðja frá systkinum Sigrún á Skarði, eins og hún var alltaf nefnd, af sveitungum sínum, lést 24. okt. sl. á Kristnesspítala og var jarð- sungin frá Laufáskirkju 31. sama mánaðar. Með Sigrúnu á Skarði er horfin mikil húsfreyja sem stýrði með sóma stóru heimili um margra áratuga skeið. Sigrún fæddist á Hlöðum á Greni- vík 7. des. 1897 og var annað barn foreldra okkar, sem voru: Valgerður Jóhannesdóttir, Jónssonar prests Reykjalíns á Þönglabakka og Guð- mundur Sæmundsson, Sæmundsson- ar í Gröf í Öngulsstaðahreppi. Árið 1903 fluttist fjölskyldan að Lómatjörn og þar ólst Sigrún upp á mannmörgu heimili, því systkini hennar urðu tíu talsins. Það var mikið sungið, fjölskyldan var söngelsk, hljóðfæri var keypt snemma á árum, barnaskóli sveitar- innar var þar hluta úr vetri, ár hvert og heimilisbragur skemmtilegur. Sigrún var austur á landi nokkur misseri, í Möðrudal og á Eiríksstöð- um á Jökuldal. Eftir það fór hún til Reykjavíkur og vann um tíma á matsölustað. Einnig lærði hún fata- saum, þar sem hæfileikar hennar fengu að njóta sín, því að upplagi var hún mjög listfeng og smekkleg hvað sem hún tók sér fyrir hendur. Einn vetur var hún á Flateyri við Önundar- fjörð að læra á hljóðfæri hjá frænku sinni, Guðrúnu, konu Snorra Sigfús- sonar skólastjóra. Sigrún giftist stórbóndanum Jóni Jóhannssyni á Skarði 24. júlí 1920. Hjónavígslan fór fram á heimili for- eldra okkar á Lómatjörn og um leið var yngsti bróðir okkar skírður. Þá var sólskin og bjart yfir Dalsmynni, er ungu hjónin þeystu á gæðingum sínum, að aflokinni veislu heim að Skarði. Skarð er mikil jörð, skógur í hlíðum, landrými mikið og Fnjóská rennur við túnfótinn, venjulega tær og góðlátleg en getur dökknað á vor- in í leysingum. Á þessum fagra stað, Skarði, átti systir okkar sitt góða heimili alla ævi þar til Elli kerling bugaði starfsþrek hennar, eins og liggur fyrir þeim flestum, sem kom- ast á háan aldur. Sigrún aflaði sér á unga aldri menntunar í saumaskap, eins og fyrr er frá sagt, sem kom sér vel, er hún þurfti að sjá um fatnað fyrir marg- mennt heimili. Henni lá allt í augum uppi í þessum efnum og sóttu margir hjálp og ráð til hennar, sem vel dugðu. Hún var nett og fínleg í sjón, þjóðbúninginn bar hún með reisn og hárprúð með eindæmum. Hún var söngelsk og lék dálítið á orgel og söng ætíð í kirkjukór Laufáskirkju. En sorgin sneiddi ekki hjá garði þeirra góðu hjóna, því tveir elstu synirnir voru vanheilir fæddir og lét- ust báðir á fyrsta ári. Var allt gert sem hægt var, ef takast mætti að lækna þá, meira að segja farið með skipi til Reykjavíkur um hávetur í kulda og fannfergi, til að leita úrlausnar, en allt kom fyrir ekki. Börn þeirra er upp komust voru: Einar, sem lengi vann við verkfræði- störf í Kaliforníu, kvæntist Hildi Barðadóttur, þau eru bæði látin. Næstur var Guðmundur Sveinn, verkfræðingur, kvæntist Elínu Finn- bogadóttur. Hann er látinn. Skírnir, bóndi á Skarði, kvæntur Hjördísi Sigurbjarnardóttur. Dætur þeirra eru: Sigurlaug, gift ísleifi Sumarliða- syni og Valgerður, ekkja eftir Daða Eiðsson á Grenivík. Lítinn dreng, Sigurð að nafni mistu þau hjón í frumbernsku, var hann haldinn sama veikleika og þeir tveir elstu, sem báðir höfðu hlotið nafnið: Jóhann Pétur. Barnamissinum tóku þau hjón með stillingu og nóg var við að sýsla á mannmörgu heimili, þar sem gest- risni var mikil og verkahringurinn stór. Börnin, sem upp komust, voru öll sérlega mannvænleg. Er nú afkom- endahópurinn orðinn stór og allt mesta myndarfólk. Vert er að minnast hins mikla starfs, sem Sigrún tókst á hendur, við gamla Laufásbæinn. Hún var upp- hafsmanneskja að því að færa bæinn í byggilegt horf, svo hægt yrði að sýna næstu kynslóðum búhætti og aðstöðu horfinna þjóðfélagsþegna. Var miklu safnað af gömlum munum og verkfærum sem hætt var að nota og þeim komið fyrir í Laufásbæ. Naut hún þar góðrar aðstoðar Sigur- bjargar, systur okkar og fleiri góðra kvenna, sem lögðu þar hönd á plóginn. Lokið er farsælu lífi og starfi. Alls staðar kom hún fram til góðs, skap- gerðin traust og sálaröryggið mikið. Þótt minnið væri farið að sljóvgast undir það síðasta fór hún með sálma- vers og vísur fram á hinstu stund. Kær systir er hérmeð kvödd með innilegum þökkum fyrir allt, sem hún var okkur. Sigríður og Sverrir. TVÖFALT SF. auglýsir Akureyringar nágrannar! Kem til Akureyrar og verö á Hótel Stefaníu 20. og 21. nóvember. Tvöfalt sf. sími 91-46672 Hafsteinn Ólafsson. Opinn kynningarfundur AA samtakanna veröur haldinn í Borgarbíói á Akureyri laugardaginn 21. nóvember kl. 14.00. ★ Ætlir vetkomnir ★ Sættir þú þig við aðgerðir ríkisstjórnarinnar? Fundur í Hafralækjarskóla nk. laugardag kl. 14.00. Frummælendur: Stefán Valgeirsson, alþingismaður og Pétur Þórarinsson, sóknarprestur. Samtök jafnréttis og félagshyggju. Stefán. Pétur. Eiginkona mín, KRISTÍN JÓHANNESDÓTTIR, Eiftsvallagötu 1, Akureyri, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 12. þ.m. Útför fer fram fimmtudaginn 19. nóv. kl. 13.30 frá Akureyrar- kirkju. Jakob Jónsson. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, RÖGNVALDUR RÖGNVALDSSON, Munkaþverárstræti 22, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 20. nóvember kl. 13.30. Hlín Stefánsdóttir, Margrét Rögnvaldsdóttir, Brynjar H. Jónsson, Úlfhildur Rögnvaldsdóttir, Hákon Hákonarson, Rögnvaldur Dofri Pétursson, Unnur Bjarnadóttir og barnabörn. Innilegar þakkir sendi ég öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns og föður okkar, JÓHANNSJÓNSSONAR, frá Hlíð, Ólafsfirði. María Sigurðardóttir og börn. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, JÓNS SIGURBJÖRNSSONAR, Lindargötu 6b, Siglufirði. María Jónsdóttir, Sigurbjörn Jónsson, Ingibjörg Jónatansdóttir, Ingibjörg Ása Jónsdóttir, Sigurbjörn Jóhannsson, Sverrir Jónsson, Guðný Sölvadóttir, Lovísa Hermína Jónsdóttir, Arnar Ingólfsson, Margrét Jónsdóttir, Hreiðar Jóhannsson, barnabörn.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.