Dagur - 20.11.1987, Blaðsíða 9
V3Q r ledrnsvön .OS — RUOAG_S
20. nóvember 1987 - DAGUR - 9
Skipadeild Sambandsins veitir alhliða flutningaþjónustu
hvaðan sem er og hvert sem er þ. á m.:
vikulegar siglingar
til ogfrá:
HULL
ANTWERPEN
ROTTERDAM
HAMBORG
KAUPMANNAHÖFN
AARHUS
GAUTABORG
LARVÍK
aðra hvora viku
til ogfrá:
SVENDBORG
VARBERG
MOSS
þriðju hverja viku
til ogfrá:
NEW YORK
PORTSMOUTH
GLOUCESTER
HELSINKI
LUEBECK
FÆREYjAR
Auk þessa vikulegir strandflutningar.
SETTU TRAUST MTT Á OKKUR
HAFÐU SAMBAND
## Skagaströnd:
Orvar og Arnar
inni um nelgina
Báðir togarar Skagstrendings
hf. verða inni um helgina. Sjó-
menn ætla að gera sér glaðan
dag og halda árshátíð sína.
Orvar verður á veiðum til 12.
desember, en Arnar á inni
daga fram að jólum.
I samtali við Svein Ingólfsson
framkvæmdastjóra, fengum við
þær upplýsingar að báðir togarar
fyrirtækisins yrðu í höfn um
næstu helgi. Tilefnið er árshátíð
sjómanna á staðnum. Af gefnu
tilefni vildi Sveinn að það kæmi
fram að árshátíðin yrði haldin
hér heima að þessu sinni, en
heyrst hefur að sum fyrirtæki séu
farin að taka upp á því að bjóða
fólki til árshátíðahalds í útlönd-
um. „Hvað verður gert seinna í
þeim málum veit maður aldrei,“ 1
sagði Sveinn.
„Bæði skipin eru á sóknar-
marki og er Örvar búinn með
sína daga 12. desember en Arnar
á daga fram til jóla. Örvar fer í
slipp að lokinni síðustu veiði-
ferð ársins. Pað sem um ræðir að
gera er bara venjulegt eftirlit og
viðhald, en ekkert sem orð er á
gerandi," sagði Sveinn í lokin.
pbv
Lifandi orð
Ritningin segir: „Hver sem trúir á
hann, mun ekki til skammar
verða. “ Ekki er munur á Gyðingi
og grískum manni, því að hinn
sami er Drottinn allra, fullríkur
fyrir alla þá sem ákalla hann; því
að „hver sem ákallar nafn
Drottins, mun hólpinn verða“.
Róm. 10.11-13.
Hann er „fullríkur fyrir alla“ og
getur miðlað okkur ríkulega af
andlegri auðlegð sinni. Nægta-
brunnar Guðs verða ekki tæmdir
og hjá honum þrýtur hvorki viska
né máttur. Hjá honum fáum við
það sem hjartað þráir innst inni.
Hann megnar að mæta þörfum
okkar og veita okkur af ríkdómi
náðar sinnar. Hann er „Drottinn
allra“ og getur því mætt þörfum
allra manna, þrátt fyrir gjörólíkar
aðstæður. Hann fer ekki í mann-
greinarálit og hann spyr ekki um
litarhátt eða menningu. Hann vill
mæta þeim sem af heilum huga
leita hans og treysta honum.
Hjá Drottni eru engin takmörk;
það erum við mennirnir sem tak-
mörkum það streymi Guðs bless-
unar, sem hann vill að flæði til
okkar um farveg trúarinnar og
hlýðninnar. Það er enginn svo
fjarlægur eða vonlaus, að hann
megi ekki ákalla Drottin. Enginn
er útilokaður, allir geta fengið
hjálp hjá honum, hvort heldur
andlega, sálarlega eða líkam-
lega. Allir eiga jafnan aðgang að
þeim gnóttum miskunnar, sem
Drottinn þráir að veita okkur.
Hann er fullríkur að fyrirgefa og
fullrfkur að bænheyra.
(ritningunni er talað um nauð-
syn þess að vera „ríkur í Guði“.
„Blessun Drottins, hún auðgar,
og erfiði mannsins bætir engu við
hana." Orðskv.10.22. Andleg
fátækt er ekki síður meðal þeirra
sem hafa nóg af efnislegum
gæðum. Hann einn getur bætt úr
andlegri fátækt okkar og sérhverri
þörf. „Hver sem trúir á hann, mun
ekki til skammar verða.“ Sá sem
treystir Guði mun ekki verða von-
svikinn né verða fyrir niðurlæg-
ingu, þvert á móti, hið gagnstæða
mun verða raunin.
Biblían talar mikið um hjálp-
ræði Guðs og að verða hólpinn.
„Sá sem ákallar nafn Drottins,
mun hólpinn verða.“ Með hjálp-
ræði er átt við, að Guð vill frelsa
okkur frá synd fyrir trúna á Drottin
Jesú. Nafnið Jesús þýðir frelsari.
Engill Drottins sagði við Jósef:
„Hún mun son ala, og hann skaltu
láta heita Jesú, því að hann mun
frelsa lýð sinn frá syndum þeirra.“
Matt.1.21.
Seljum bæði nýja og sólaða
hjólbarða,
af öllum gerðum.
Gott verð
Nordlenskt fyrirtæki
Gummivinnslan hf.
Norðlensk gæði
Rettarhvammi 1 Akureyri Simi 96-26776