Dagur - 20.11.1987, Page 24
Akureyri, föstudagur 20. nóvember 1987
■í neðri sal Bautans-
Á kvöldin um helgar verður boðið upp á lúxus mat
á lágu verði við kertaljós og dúkuð borð.
Matseðill lielgarinnar:
Laxatvenna með ristuðu brauði
nautametalíur með ristuðum sveppum,
Bernaisesósu og bakaðri kartöflu
Einnig Bautamatseöillinn.
Blönduós:
Eiga einstæðir
foreldrar að
hafa forgang?
- skiptar skoðanir um málið
Fundur var haldinn í félags-
málaráöi á Blönduósi 14. 10.
sl. Á fundi þessum var meðal
annars rætt um það hvort ein-
stæöir foreldrar ættu að hafa
forgang aö plássum á leikskóla
og dagheimili. Félagsmálaráö
lagði til aö einstæðir foreldrar
hefðu forgang en hreppsnefnd
féllst ekki á þessa tillögu.
Við leituðum álits hjá for-
manni félagsmálaráðs. Aðal-
björgu Þorkelsdóttur og sveitar-
stjóra Hauki Sigurðssyni. gagn-
gert til að fá fram álit beggja
nefnda.
„Við í félagsmálaráði mælt-
Siglufjörður:
Stofnun
íþrótta-
félags
fatlaðra
Á laugardag verður stofnað á
Siglufírði íþróttafélag fatlaðra.
Það eru um það bil tíu fatlaðir
aöilar á Siglufírði sem hafa
stundaö íþróttir reglulega og
eru það þeir og aðstandendur
þeirra sem að stofnun félagsins
standa.
Þrátt fyrir þetta er öllum
áhugamönnum um íþróttir fatl-
aðra boðið að koma á fundinn og
gerast stofnfélagar.
Fundurinn verður haldinn í
Kiwanishúsinu á Siglufirði og hefst
klukkan tíu fyrir hádegi. VG
umst til þess að einstæðir foreldr-
ar hefðu forgang. en hreppsnefnd
hafnar því.Hreppsnefndin leggur
til. að metið verði af félagsmála-
ráði, í hverju tilfelli fyrir sig.
hvort forgangs sé þörf. Það er
kominn töluverður biðlisti hvað
viðkemur plássum. sérstaklega á
dagheimilisdeild og einh\er bið
er líka á leikskóla. þannig að
þetta er orðið dálítið snúið allt
santan. En afstaða okkar í félags-
ntálaráði stendur óbrevtt hvað
því viðkemur að einstæðir for-
eldrar hafi forgang. Það hljóta
allir að sjá að einstætt foreldri
hlítur að eiga erfiðara um vik í
þessunt málum heldur en hjón
eða sambýlisfólk,"sagði Aðal-
björg að lokum.
Á fundi hreppsnefndar 20. 10.
sl. kemur fram að nefndin getur
ekki fajlist á tillögu félagsmála-
ráðs. við leituðum því til sveitar-
stjóra eftir nánari skýringum.
„Það er í raun afskaplega lítið
um þetta að segja í bili, þessi mál
eru í athugun og við höfum
hreinlega viljað flýta okkur hægt.
Mörg atriði viðkomandi málinu
þurfa nánari athugunnar við og
hreppsnefnd hefur ekki að svo
komnu máli viljað taka upp
þennan forgang. Hugmyndin hjá
okkur er að fjallað verði um
hvert einstakt tilfelli fyrir sig. Að
okkar áliti eru margs konar
ástæður uppi aðrar heldur en það
að fólk sé einstætt. Hugmyndin
er einfaldlega sú að félagsmála-
ráð fjalli urn hvert tilfelli þegar
þau koma upp og til þess hefur
hún allar aðstæður. Ég hef í
rauninni ekki meira um þetta mál
að segja, við vinnum að þessu í
rólegheitum,“ sagði Haukur að
lokum. pbv
Búið er að opna Glerárbrú fyrir almenna umferð. Ekki var annað hægt að sjá en ökumenn kynnu vel að meta nýju
brúna - cnda mun hún auðvelda mjög umferð milli Glerárhverfis og Oddeyrar. Mynd: tlv.
Eggjaverðið ennþá und-
ir verðlagsgrundvelli
- segir Jónas Halldórsson í Sveinbjarnargerði
„Verðlagsgrundvöllur heild-
söluverðs eggja er 206 krónur
fyrir hvert kíló. Við erum bún-
ir að ákveða að selja á 180
krónur og náum því ekki alveg
fullu verði. Þegar menn seldu
kílóið á 50 krónur voru þeir að
gefa 150 krónur með vörunni,“
sagði Jónas Halldórsson í
Sveinbjarnargerði, formaður
Landssamtaka kjáklinga-
bænda.
Að sögn Jónasar gáfu eggja-
framleiðendur vinnu sína í lang-
an tíina og seldu langt undir
kostnaðarverði til að ná sam-
stöðu um rétta verðlagningu.
„Svo erum við auðvitað kærðir
fyrir samráð þegar við mynduð-
um samstöðu til að halda uppi um
okkur. Þetta finnst okkur furðu-
legt,“ sagði Jónas.
Jónas sagðist álíta að ef ekkert
hefði verið að gert hefði helming-
ur eggjaframleiðenda farið á
hausinn. Eggjaverð hefði þá
hækkað ennþá meira en orðið er
og slíkt væri engunt til hagsbóta.
„Eggjaverðið hefur verið óeðli-
lega lágt í tvö ár og ófriður á
markaðinum ásamt deilu um
dreifingarstöðina. Ég á von á ein-
hverri viðbótarhækkun á eggja-
verði vegna verðbólgu en þetta
verð stendur í bili.
Hvað kjúklingabúin varðar þá
hefur verið léleg kjötsala í haust
og kjúklingasalan hefur minnkað
síðan umfjöllunin var um salm-
onelluna í sumar. Þessi umfjöllun
var langt komin með að drepa
búgreinina með 40% samdrætti í
sölu. Salan hefur aðeins þokast
uppávið en þó ekki nægilega.
Umræðan um salmonelluna hef-
ur ruglað margan háttvirtan neyt-
andann í ríminu,“ sagði Jónas
Halldórsson að lokum. EHB
Niðurstöður rannsókna á kvíaeldi í Ólafsfjarðarvatni:
Lífræn mengun og súrefnisskortur
- vatnið talið hentugt tii að seltuvenja fisk
Á fundi náttáruverndarnefnd-
ar Olafsfjarðar sem haldinn
var fyrr í mánuðinum var tekið
fyrir bréf frá Náttáruverndar-
ráði þar sem fjallað er um eldi
á matfíski i Olafsfjarðarvatni.
Eftir rannsóknir sem fram hafa
farið á vatninu þykir sýnt að
ekki er ráðlegt að fískur sé
alinn í kvíum í vatninu þar sem
slíkt geti skaðað iífríkið í vatn-
inu og valdið sárefnisskorti í
vatninu yfír vetrartímann.
Unnsteinn Stefánsson og
Björn Jóhannesson hafa rannsak-
að lífríki vatnsins á undanförnum
árum og af þeirra niðurstöðum
hafa menn dregið þær ályktanir
að vatnið sé ekki heppilegt fyrir
eldi á matfiski í kvíum. Aftur á
móti þykir vatnið mjög heppilegt
til að seltuvenja hafbeitarfisk
þ.e. að sleppa fiskinum í vatnið í
tvo mánuði á vorin áður en hon-
um er sleppt til sjávar.
„Rannsóknir okkar hafa beinst
að ástandi vatnsins sjálfs þ.e.
hitafari, seltu og þess háttar. Ein
augljós ályktun af þessum rann-
sóknum er sú að súrefni er ekki
mikið í dýpri hluta vatnsins og
því gæti aukinn lífmassi leitt til
súrefnisskorts," sagði Unnsteinn
Stefánsson í samtali við Dag.
Unnsteinn sagðist telja að
Ólafsfirðingar gætu haft veruleg
not af Ólafsfjarðarvatni en fylgj-
ast þyrfti grannt með súrefnis-
ástandi vatnsins, sérstaklega yfir
vetrartímann.
Laxeldisstöðin Óslax hefur sl.
tvö sumur gert tilraunir með
kvíaeldi í vatninu og hefur árang-
urinn af því veriö góður hvaö
vaxtarhraða fisksins varðar cn
hins vegar getur úrgangur frá
slíku eldi valdið mikilli lífrænni
mengun og þar með súrefnis-
skorti í vatninu.
Að sögn Hreins Bernharðsson-
ar, formanns náttúruverndar-
nefndar mun að þessum niður-
stöðum fengnum ekki verða mælt
með að kvíaeldi verði stundað í
Ólafsfjarðarvatni. JÓH
Ekki er ráðlegt að stunda matfiskeldi í Ólafsfjarðarvatni.