Dagur - 05.01.1988, Page 1

Dagur - 05.01.1988, Page 1
Kjóffot Smokingföt HERRADEILD Gránufélagsgötu 4 Akureyri • Sími 23599 „Sjallamálið“: „Ekkí sáttir við úrskurðinn" - segir Haraldur Blöndal, lögfræðingur þrotabús Akurs hf. „Já, dómnum verður áfrýjað til Hæstaréttar. Ég geri ráð fyrir því að það verði þingfest í febrúar,“ sagði Haraldur Blöndal lögfræðingur þrotabús Akurs hf. Urskurður bæjar- þings Akureyrar var þrotabúi Akurs í óhag, bæði í aðalsök og gagnsök, og var því gert að greiöa Jóni Rafni Högnasyni og Helga B. Helgasyni 650 þúsund krónur auk vaxta. Hinu víðfeðma „Sjallamáli" er því engan veginn lokið þótt Sjall- inn liafi verið seldur á nauðung- aruppboði þann 17. október 1986. Sem kunnugt er lögðu eig- endur Bita sf. fram lögbanns- beiðni á fyrirhugaða hlutafjár- aukningu Akurs hf. en Akurs- menn svöruðu með kröfu um kyrrsetningu á eignum Bita- rnanna og kröfðust að auki 40 milljóna króna skaðabóta. „Þetta er Bæjarþing Akureyrar sýknaði eigendur Bita sf. af skaðabóta- kröfunni. Eigendur Bita stefndu þrotabúi Akurs vegna kyrrsetn- ingarmálsins og unnu það mál; kyrrsetningin var dæmd ólög- mæt. Þar eð dómnum verður áfrýjað til Hæstaréttar mun kyrr- setningin hins vegar standa áfram, eða þar til Hæstaréttar- dómur liggur fyrir, nema um ann- að verði samið. Eftir að áfrýjunin hefur verið þingfest fær lögfræðingur þrota- búsins fjögurra mánaða frest til að ganga frá skjölum en dómur verður ekki upp kveðinn fyrr en einhvern tíma á næsta ári, enda tekur um 1 ár að fá mál í gegnum Hæstarétt. „Nei, við erum ekki sáttir við úrskurðinn. Ef menn byrja á slagsmálum þarf náttúrlega að Ijúká þeim. Þeim er ekki lokið og maður fer tæpast að áfrýja dómi nema maður eigi möguleika á því að vinna,“ sagði Haraldur. SS í gær var í fyrsta skipti landað úr frystitogara Útgerðarfélags Akureyringa, Slétthaki. Mynd: tlv Sléttbakur EA: 180 tonn úr fyrstu veiðiferð í gær hófst löndun afla úr fyrstu veiðiferð frystitogarans Sléttbaks og verður henni lok- ið í dag. Afraksturinn af um það bil mánaðar útiveru voru um 180 tonn af flökum og heil- frystum fiski að verðmæti um 24 milljónir króna. Afli upp úr sjó er um 370 tonn. Mcstur hluti aflans er þorskur en einn- ig er nokkuð af öðrum tegund- um. Sléttbakur hélt upphaflega til veiða 15. nóvember en kom inn aftur vegna bilunar eftir þriggja daga útiveru. Aftur var haldið til veiða 23. nóvember og ekki kom- ið til hafnar fyrr en á Þorláks- messu. Aftur var haldið til veiða 27. desember og komið inn á gamlársdag. Að sögn Kristjáns Halldórs- sonar skipstjóra gekk þessi fyrsta veiðiferð vel fyrir sig, ekki var nema um smávægilegar bilanir að ræða. Fiskirí var hins vegar held- ur dauft allan tímann. Sléttbakur heldur aftur til veiða í kvöld og er gert ráð fyrir þriggja til fjögurra vikna túr. ET Akureyri: óþolandi virðingar- leysi“ Nauðungaruppboðum fækkar í fyrsta sinn frá 1983 - segir Tryggvi Svein- björnsson um skemmdir vélsleða- manna Einhverjir vélsleðagarpar á Akureyri hafa ekki kunnaö sér læti þegar snjórinn loksins lét sjá sig. Á lóð Sjálfsbjargar norðan Hlíðarbrautar hafa töluverðar skemmdir verið unnar á trjáplöntum og söku- dólgarnir eru augljóslega ökumenn vélsleða. „Þetta er óþolandi virðingar- leysi. Plönturnar stóðu vel upp úr snjónum og hafa ekki getað farið fram hjá þeiin sem hér hafa átt í hlut," sagði Tryggvi Sveinbjörnsson framkvæmda- stjóri Sjálfsbjargar í samtali við Dag. Runnar þessir voru settir nið- ur fyrir afmæli Akureyrarkaup- staðar síðastliðið sumar. Á nokkrum stöðum hefur verið ekið í gegnum beðin og sums staðar eru komnar djúpar slóðir. „Það er einkennilegt að settar séu strangar reglur um akstur fjórhjóla en svo komist eigendur vélsleða óáreittir upp með svona lagað," sagði Tryggvi. ET Fasteignum, seldum á nauð- ungaruppboðum í umdæmi bæjarfógetans á Akureyri og Dalvík, hefur fækkað milli ára. Árið 1987 voru níu fasteignir seldar á nauðungaruppboðum en sautján árið 1986, að sögn Elíasar I. Elíassonar, bæjar- fógeta. Til samanburðar upplýsti bæjarfógeti að fjöldi fasteigna, sem hafa verið seldar nauðungar- sölu frá árinu 1980, er sem hér segir: Árið 1980 tvær eignir, 1981 átta, 1982 sjö, 1983 tvær, 1984 fjórtán, 1985 sextán, 1986 sautján og árið 1987 níu eignir, eins og áður sagði. Á síðasta ári fækkar nauðungaruppboðum í fyrsta sinn frá árinu 1983. Arnar Sigfússon, skiptaráð- andi hjá embættinu, hefur með höndum uppboð lausafjármuna, en í hverjum mánuði eru tugir bifreiða auglýstar á nauðungar- uppboðum, auk heimilisbúnaðar af ýmsu tagi. Á síðasta ári komu 363 uppboðsbeiðnir á lausafé til embættisins, þar af fóru fimmtán uppboðssölur fram. Þar af eru um tíu bílar en afgangurinn sjón- varpstæki o.fl. Til samanburðar voru uppboðsbeiðnir á lausafé 354 talsins árið 1986 en það ár voru 24 uppboð raunverulega - uppboð á lausafé dragast einnig saman framkvæmd. Því hefur seldum lausafjármunum einnig töluvert fækkað milli ára. Arnar sagði að sem betur fer tækist flestum að bjarga sínum málum áður en til uppboða komi og því séu auglýstir hlutir alltaf mun fleiri en þeir sem enda undir hamrinum. EHB Laun fóstra: „ Lítisvirðing við þeirra menntun“ - segir Sonja Sveinsdóttir Meðan deila Akureyrarbæjar og fóstra sem starfa hjá bæn- um stendur sem hæst er rétt að kanna ástandið á öðrum dag- vistum í bænum. Á Krógabóli, sem er foreldrarekin dagvist, munu fóstrur og forstöðumað- ur hafa sagt upp störfum. Þar fá fóstrur laun samkvæmt sömu samningum (STAK) og fóstrur hjá Akureyrarbæ og þær bíða því einnig eftir úrlausn. Stekkur er dagvist fyrir börn starfsfólks Fjórðungssjúkrahúss- ins. Þar fá fóstrur hliðstæð laun og hjá bænum. Að sögn Sonju Sveinsdóttur hættu allar fóstrur á heimilinu sl. sumar nema for- stöðumaðurinn og ítrekaðar auglýsingar hafa ekki borið árangur; fóstrur hafa ekki fengist til starfa. „Það er hægt að halda þessu gangandi ennþá en það fer hjá okkur eins og annars staðar að forstöðumaðurinn gefst upp. Það er mjög óheppilegt fyrir faglærð- an aðila sem á að sinna stjórnun- arstörfum að vera einn og svona ástand varir aldrei nema vissan tíma. Fólk gefst upp,“ sagði Sonja. Hún sagði að fóstrur litu á þau laun sem í boði væru sem lítils- virðingu við þeirra menntun og því hefðu þær ekki svarað auglýs- ingum. „Eg vona að þeir sem peningamálunum ráða taki við sér og sjái hve mikilvægt það er fyrir þjóðfélagið eins og það er í dag að foreldrar hafi gæslu fyrir börn sín. Við byggjum á því að fólk sé úti á vinnumarkaðinum en það er ekki hægt nema fólk hafi örugga gæslu fyrir börn sín,“ sagði Sonja. SS

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.