Dagur - 05.01.1988, Blaðsíða 3

Dagur - 05.01.1988, Blaðsíða 3
5. janúar 1988 - DAGUR - 3 -J bœndur & búfé Vélmenni í mjöltum Handmjólkað um aldir Svo lengi sem húsdýrin hafa þjónaö manninum hafa mjaltir verið stundaðar og lengst af handmjólkað og sums staðar er það enn við lýði. Mjaltir eru það atriði sem krefst fullkomins trausts milli þeirrar skepnu sem mjólkuð er og þess sem mjólkar. Þetta er samvinna manns og dýrs þar sem dýrið færir manninum þá mjólk sem það ætlar afkvæmi sínu. Handmjaltirnar hafa látið und- an vélvæðingu nútímans eins og margt annað, en það var 1819 sem Ameríkanar komu fram með fyrsta vísi að mjaltavélum þó nokkuð ófullkomnar væru. Þetta þróaðist smám saman bæði í Evr- ópu og vestanhafs fram eftir öld- inni og í lok hennar var byrjað að nota vélar líkar því sem margir þekkja. Laurence-Kennedy vélin sem mjólkaði tvær kýr í einu var í notkun í Bretlandi frá 1903 og náði mikilli útbreiðslu. Síðan hefur margt gerst og enn halda menn áfram að þróa þessa tækni og það næsta er vélmenni sem mjólkár, segja þeir sem að þessu vinna. Hvernig bregðast kýrnar við? Mjög margir vísindamenn í Evr- ópu og víðar hafa haft áhuga á algerri sjálfvirkni mjalta um árabil. Tilraunir þcssar miða að því að kanna hegðun kúnna með frjálsum aðgangi að mjöltum all- an sólarhringinn. Þessar tilraunir komast allar að þeirri niðurstöðu að kýrin sé á allan hátt fær um að láta mjólka sig sjálf og oft á hverjum 24 tím- um, án þess að það hafi nokkur neikvæð áhrif á heilsufar og með því að auka framleiðsluna um 10- 15%. í Kiel í Þýskalandi voru gerðar tilraunir með tvo tíu kúa hópa 1983 með það fyrir augum að athuga hversu oft kýrnar færu sjálfviljugar til injalta og kom það í Ijós að þær fóru allt að 6 Umsjón: Atli Vigfússon sinnum að jafnaði er á leið þó það væri nokkuð misjafnt eft- ir kúm. Rannsóknirnar í Kiel leiddu einnig í ljós betri júgur- heilsu við þessar aðstæður og betri nýtingu á möguleikum kýr- innar til framleiðslu mjólkur. í Hollandi hafa einnig verið gerðar tilraunir á svipaðan hátt og létu þær kýr mjólka sig um 4 sinnum á dag og framleiðslu- aukningin var 14% og vilja þeir mein? að svo margar mjaltir hafi á engan hátt neikvæð áhrif á spena og júgur. Vélmennið þarf að þekkja kýrnar Bretar, Frakkar, Hollendingar, Japanir og Þjóðverjar vinna nú að því að koma áformum sínum í framkvæmd og vilja taka vél- menni sem mjólkar í þjónustu sína. Staða kýrinnar og hvernig hún eigi að vera bundin meðan verið er að mjólka er mál sem enn er nokkuð óljóst, einnig gerð spenahylkja og hvernig setja eigi þau á. Nokkuð greinir menn á um hvernig lögun hylkjanna eigi að vera og vilja Bretar helst að þau séu trektlaga og vélmennið finni spenana með geisla. Einnig gæti það fúndið þá með snertingu eða mynd. Frakkar beina nú rannsóknum sínum að því hvernig skráning nythæðar fer fram, hreinsun mjaltastæðis milli kúa, hvernig gefa skuli kjarnfóður meðan á mjöltum stendur, sé það gert, og það hvernig vélmennið geti greint á milli nythæðar í hinum ýmsu kúm og hve oft þær koma í Margar gátur eru enn óleystar hvað varðar vélmenni í mjöltum. Myndin er tekin úr frönsku tímariti PLU um landbúnað. AKUREYRARB/ÍR Frá dagvistardeild Við auglýsum eftir dagmæðrum, aðallega á Brekkunni og Eyrinni, til að gæta barna frá 4 mán. aldri og til að sinna sérverk- efni. Upplýsíngar í síma 24600 kl. 10-12 alla virka daga. Umsjónarfóstra. básinn. Af þessu má ráða að vél- mennið verður einnig að geta greint á milli einstaklinga. Einnig er það spurning hvort vélmennið geti áttað sig á ef kýr er með særða spena eða önnur veikindi. Kostnaður Samkvæmt niðurstöðum nefndar sem unnið hefur að því að kanna kostnaðarhlið málsins þá vilja þeir meina að fyrir 30 kýr muni kostnaður vera um það bil nokk- uð á þriðju milljón króna íslensk- ar. Nefndin bendir þó á að á meðan svo margir þættir séu ófrágengnir þá megi vart taka þessa tölu alvarlega. Inn í þenn- an kostnað vilja þeir líka reikna vinnusparnað við mjaltir fram í tímann. Þegar Japanir kynntu vél- mennið fyrst vildu þeir meina að þessi tækni ætti að leysa hús og dýra mjaltabása af hólmi en eitt er víst að í kaldari löndum verður ekki liægt að sleppa húsakosti fyrir mjólkurkýr. Hættir spjallið á tröðinni? Formaður nefndar á Vesturlönd- um, M. Bouniol að nafni, sem fjallar um tækni í mjöltum bendir á að ekki sé langt í það að tækni- legu þættirnir séu komnir í það form sem menn kjósa helst og fyrirtækið sé hagkvæmt, og segir að á þessari stundu hafi hönnuð- Laurcnce-Kenncdy nijaltavélin mjólkaði tvær kýr í einu. irnir enga vissu um hvaða áhrif þetta hafi á framleiðslu mjólkur í framtíðinni og hvort þetta verði einkennandi form mjaltá innan 15 ára. Hann segist þess þó full- viss að eftir ein 30 ár verði ein- hvers konar vélmenni við mjaltir jafn algengt og venjulegur mjalta- bás er í dag. Hvenær vélmcnni verða farin að mjólka kýr á íslandi er erfitt að segja og sumar nýjungar koma fyrr en varir hvaö svo sem mönn- um finnst um þær. Það virðist þó nokkur tími þangað til menn hætta að sinna mjöltum í því formi sem nú er og geta því enn um sinn fylgt kúnum í rósemi þeirra á málum og spjallað á tröð- inni ef svo ber undir. Breyttur sölutími kjörbúí fn 1 nninr 1Q8Í iaKEA Hti i« jtiiitim 170t Hrísalundur 5 1 Mánud., þriðjud. og miðvikud kl. 09-18 Fimmtud kl. 09-20 Föstud kl. 09-19 Laugard kl. 10-16 Laugard., lúgusala kl. 16-20 Sunnud., lúgusala kl. 11-18 Byggðavegur 98 Mánud., þriðjud., miðvikud., fimmtud. ogföstud kl. 09-20 Laugard kl. 10-20 Sunnuhlíð 12 Mánud., þriðjud., miðvikud. og fimmtud kl. 09-18 Föstud kl. 09-19 Laugard kl. 10-16 Höfðahlíð 1 Mánud., þriðjud., miðvikud., fimmtud. og föstud kl. 09-18 Laugard., lúgusala kl. 11-20 Sunnud., lúgusala kl. 11-18 Brekkugata 1 Mánud., þriðjud., miðvikud., fimmtud. og föstud kl. 09-18 Laugard kl. 10-16 Sunnud., lúgusala kl. 11-18 Ath. Aðrar kjörbúðir hafa óbreyttan opnunartíma Kjörbúðir KEA

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.