Dagur - 05.01.1988, Blaðsíða 5

Dagur - 05.01.1988, Blaðsíða 5
ARGUS/SÍA 5. janúar 1988 - DAGUR - 5 Þrettánda- gleði Heimis á laugardag Hin árlega þrettándagleði karlakórsins Heimis í Skaga- firði fer fram í Miðgarði í Varmahlíð nk. laugardags- kvöld og hefst kl. 21. Það var einhvern tíma á fjórða áratugnum sem Heimir tók að halda söngskemmtanir með þessu nafni, í kringum þrettánd- ann ár hvert. Síðustu árin verið fléttað inn í dagskrána skemmtiatriðum til að gera hana fjölbreyttari. Að skemmtuninni lokinni verður stiginn dans fram eftir nóttu við undirspil hljóm- sveitar Geirmundar Valtýssonar. Stjórnandi Heimis er Stefán R. Gíslason og undirleik annast Catharine Louise Seedell. Ein- söngvarar eru þeir bræður Pétur og Sigfús Péturssynir frrá Álfta- gerði og Sveinn Arnason frá Víðimel. Formaður karlakórsins Heimis, sem varð 60 ára á síðasta ári, er Þorvaldur G. Óskarsson á Sleitustöðum. -þá Snjóruöningstæki Akurcyrarbæjar hafa nú loks einhverju hlutverki að gegna. Mynd: TLV Mývatnssveit: Óvenju mikið hefur veiðst af mink og ref Ingi Yngvason í Mývatnssveit veiddi 80 minka á sl. ári og er það óvenju mikil veiði. Einnig var óvenju mikið um ref og skaut Ingi 18 tófur í vor. Vargfugl er líka plága í sveit- inni og skaut Ingi vel á annað hundrað hrafna á sl. ári. Ingi hefur verið minkabani í Mývatnssveit síðan 1976 og á því tímabili hefur hann banað 756 minkum, flestum árið 1980 en þá veiddi hann 100 minka. Ingi stundar minkaveiðarnar nánast allt árið, ekki sfst á veturna þegar finna má slóðir eftir dýrin í snjónum. Minkarnir eru að mestu veiddir í gildrur, erfitt er að ná þeim með hundum vegna þess hve landið er víða erfitt yfir- ferðar og sprengingar með dína- míti mundu valda tjóni á landinu. Ingi sagðist nær vikulega fylgj- ast með hvað mikið væri um mink og með því að stunda veið- arnar svona stöðugt væru sárafá dýr í sveitinni á hverjum tíma. Minkurinn fyndi hvergi betri skil- yrði en við Laxá og Mývatn og enginn vafi væri á að hann yrði stórkostleg plága og mundi strá- fella fugla ef hann fengi að grassera í sveitinni. I vor leitaði Ingi að og lá á grenjum, skaut hann þá 18 tófur og er það óvenju mikið. Vargfugl er plága í sveitinni, þar er aðal- lega um hrafn að ræða og hefur Ingi skotið vel á annað hundrað hrafna á árinu. IM I # Nú þarft þú að fá þér miða Happdrætti Háskólans hefur hæsta vinnings- hlutfall í heimi! 70% af veltunni fara til vinnings- hafa! Allir vinningar eru greiddir út í beinhörð- um peningum sem vinningshafar ráðstafa að eigin vild. Vinningarnir eru undanþegnir skatti! Vinningamir 1988: 9 á 5.000.000 kr J 108 á 1.000.000 kr./108 á 500.000 kr./ 324 á 100.000 kr./1.908 á 25.000 kr./ 10.071 á 15.000 kr./122.238 á 7.500 kr/ 234 aukavinningar á 25.000 kr./ Samtals 135.000 vinningar á 1.360.800.000 kr. /lllSv

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.