Dagur - 06.01.1988, Page 1
71. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 6. janúar 1988
3. tölublað
Ódýr
Ijósritunarpappír
BÓKVAL
Kaupvangsstræti 4 ■ Símar 26100 og 26155
Byggiiigavinna var ekki beint hlýlegasta starfið sem hægt var að finna sér í gær.
Mynd: TLV.
Bmnagaddur!
- Frostið víða yfir 20 stig
Flestir landsmenn vöknuðu
við gífurlegar frosthörkur í
gærmorgun, ekki síst íbúar á
Norður- og Austurlandi. Á
Akureyri mældist 17 stiga
frost á hinum löglega mæli á
Iögreglustöðinni, en mælar
við hús víðs vegar í bænum
sýndu hins vegar frost í kring-
um 20 stig.
Á Egiisstöðum mældist fostið
21 stig, 23,6 á Staðarhóli í Aðal-
dal og 24 stig á Grímsstöðum á
Fjöllum. Himinninn var
helblár, loftið stillt og jökulkalt,
vötn ísi lögð. Á Akureyri rauk
úr Pollinum þar sem hann var
ekki í klakabrynju enda sjórinn
mun hlýrri en andrúmsloftið.
Frostið var meira en það mæld-
ist nokkru sinni á nýliðnu ári en
þá komst það mest í rúm 15 stig
í febrúár.
Á Veðurstofu íslands fengum
við þær upplýsingar í gær að
hæð yfir Grænlandi og lægð
milli Jan Mayen og Noregs
hefðu um það samvinnu að dæla
köldu heimskautalofti til
landsins. Næstu nótt, þ.e. síð-
astliðna nótt, mætti búast við
brunagaddi, jafnvel 23ja-26
stiga frosti inn til landsins.
Seinnipartinn í dag á síðan að
draga úr frostinu, sérstaklega
þó á fimmtudag. SS
Brottvikning Sturlu Kristjánssonar:
Verða sættir í málinu?
Sjúkrahús Skagfirðinga:
Fæðingar færri
en í meðalári
Barnsfæðingar á Sjúkrahúsi
Skagfírðinga á Sauðárkóki
urðu 62 á síðasta ári eða 12
fleiri en á árinu á undan. En
það ár fækkaði fæðingum
mjög og höfðu ekki verið svo
fáar í langan tíma.
Þrátt fyrir þessa fjölgun náði
1987 ekki meðalári. Karl-
mennirnir voru í meirihluta í
þetta sinn. 36 strákar fæddust og
26 stelpur. -þá
Akureyri:
Nýliðið ár
það 6. hlýjasta
á öldinni
Meðalhiti á Akureyri árið 1987
var 4,6 stig og er þetta mestur
meðalhiti síðan 1972 en þá var
jafnhlýtt. Til að fínna hærri
meðalhita þarf að Ieita allt aft-
ur til ársins 1953 og að sögn
Trausta Jónssonar veðurfræð-
ings var nýliðið ár það sjötta
hlýjasta á öldinni á Akureyri.
Mestur hiti á árinu var 23,3 stig
þann 26. maí og mest frost mæld-
ist 15,8 stig í febrúar. Úrkoma
mældist 438 millimetrar sem er
92% af meðalúrkomu. Úrkomu
varð vart 162 daga á árinu. Sól-
skinsstundir voru 1.053 sem er
nálægt meðaltali.
Aðeins tveir mánuðir voru
kaldari en í meðalári, eða sept-
ember og október, sérstaklega þó
október. Janúar, nóvember og
desember voru hins vegar mun
hlýrri en í meðalári. Sérstaklega
þurrt var í janúar og maí en mikil
úrkoma í apríl, september og
október. Sólskinsstundir voru
fyrir ofan meðallag í apríl, maí,
júní og ágúst, en talsvert undir
meðallagi í júlí og september.
Lítið var um hvassviðri á
árinu. Vindur náði einu sinni 10
vindstigum og þrisvar sinnum 9
vindstigum. Heiðskírt var í 8
daga og alskýjað í 224. Snjódýpt
var aldrei mjög mikil, mest 18 cm
í mars. Jörð var alhvít í 69 daga.
SS
„Þingað verður í máli Sturlu
Kristjánssonar dagana 12. til
14. febrúar en þá verður málið
tekið til aðalflutnings í Borgar-
dómi Reykjavíkur. I framhaldi
af því fara fram vitnaleiðslur
og málflutningur,“ sagði
Jónatan Sveinsson, Iögfræð-
ingur Sturlu Kristjánssonar,
fyrrverandi fræðslustjóra í
Norðurlandsumdæmi eystra.
Að sögn Jónatans má vænta
úrskurðar Borgardóms Reykja-
víkur fljótlega eftir þetta, t.d.
fyrrihluta marsmánaðar. Stúrla
Kristjánsson krefst skaðabóta að
upphæð sex milljónir króna, auk
greiðslu vaxta og málskostnaðar,
vegna ólögmætrar uppsagnar og
mannorðshnekkis. Én eru ein-
hverjar blikur á lofti í þá veru að
sættir kynnu að takast í málinu
áður en til dóms kemur? „Það
eru að vísu engin merki um að
sáttatilboð sé á leiðinni en þau
tíðindi geta alltaf gerst allt fram
að þeim degi að málið verði tekið
til dóms,“ sagði Jónatan.
Lögfræðingur Sturlu var spurð-
ur að því hvort sátt í málinu
þýddi að Sturla yrði á ný settur í
embætti fræðslustjóra. Sagði
hann að svo væri ekki heldur yrði
sæst á fébætur, ef til kæmi.
Stefnukrafa Sturlu lýtur ein-
göngu að því að honum verði
bætt ólögmæt uppsögn með
fébótum, en engin krafa um að
hann fái embætti fræðslustjóra
aftur. „Krafan íýtur að bótum
fyrir beint fjártjón, tekjumissi og
þau óþægindi sem þessu voru
sanifara. Þetta er alfarið einka-
mál og hefur ekki verið hlutast til
um neina opinbera rannsókn af
hvorugum aðilanum," sagði
Jónatan, þegar hann var spurður
nánar um kröfurnar og eðli
málsins. EHB
Slökkviliðið á Akureyri:
Útköll
aldrei
fleirí
- en á síöasta ári
Á síðasta ári voru brunaútköll
hjá Slökkviliði Akureyrar alls
115 og hafa aldrei verið eins
mörg. Árið 1986 voru útköllin
alls 71 talsins. Að sögn Tómas-
ar Búa Böðvarssonar slökkvi-
liðsstjóra hafa útköllin verið
flest fyrir rúmlega tíu árum
þegar þau urðu 108 á einu ári,
en síðan hefur þeim farið fækk-
andi þar til nú.
Á síðasta ári fjölgaði mikið
útköllum vegna elds í rusli og
sinu. I flestum tilfellum er um að
ræða leik barna með eld og þegar
um er að ræða íkveikjur. Alls
voru tilfellin vegna leiks barna að
cldi 30 talsins.
Útköll slökkviliðsins utanbæj-
ar voru 8 1987 en aðeins 3 árið
áður. Mestu eldsvoðarnir á síð-
asta ári voru að Kringlumýri 4 og
að Tjörnum í Eyjafirði. Þar voru
einnig mestu tjónin en þau eru
metin sem mikil, eða á meira en
2 miljónir króna. Eitt tjón var
metið á bilinu 1-2 miljónir, 21
sem lítið, eða á minna en eina
miljón og í 56 tilfellum var ekki
um tjón að ræða.
Sjúkraútköll voru 1086 á árinu
1987, þar af 172 utanbæjar, en
voru 977, þar af 130 utanbæjar
árið áður. Tómas Búi sagði að
mikil aukning hafi verið í sjúkra-
flutningi milli sjúkrahúsa á síð-
asta ári.
Aðspurður um hvernig slökkvi-
liðið væri mannað og tækjum
búið sagði hann: „Við erum
undirmannaðir því aðeins eru 3
menn á vakt og ef sjúkrabíllinn
er úti, er aðeins einn maður eftir
inni. Varðandi bílana erum við
sæmilega settir. Við höfum bæði
gamla og nýja bíla en okkur vant-
ar tilfinnanlega körfubíl. Við
söknuðum mjög körfubíls þegar
eldur kom upp á sjúkrahúsinu.
Ef kviknar í 5 hæða húsi eins og
t.d. því sem verið er að byggja
við Hjallalund, höfum við aðeins
lausa stiga til að nota og enginn
kæmist með meðvitundarlítinn
mann niður ef þær aðstæður
kæmu upp. Ég geri mér vonir um
að á næstu fjárlögum verði gert
ráð fyrir kaupum á körfubíl,"
sagði Tómas Búi að lokum. VG