Dagur - 06.01.1988, Blaðsíða 3

Dagur - 06.01.1988, Blaðsíða 3
6. janúar 1988 - DAGUR - 3 Kristinn Kristinsson og Haraldur Pálsson sölumaður við tölvuna hjá Sana. Akureyri: Handtölva tekin í notkun hjá Sana hf. Sana hf. hefur tekið í notkun handtöivur sem sölumenn hafa í bílum sínum og nota þegar þeir taka pantanir hjá kaup- mönnum. Þessum tölvum er síðan stungið í samband við stærri tölvu hjá Sana og upp- lýsingarnar prentaðar út. Þetta er sams konar fyrirkomulag og hjá Sanitas í Reykjavík en þessar tölvur hafa ekki verið í sjálfsögðu talsvert um bókaverð- ið.“ - Ég hef heyrt að það sé til í dæminu að fólk kaupi bækur á bókamörkuðum og reyni að skila þeim aftur milli jóla og nýárs. Þessar bækur eru ennþá í plast- inu. Hefur þú orðið var við þetta? „Þetta kann að koma fyrir. Við getum ekki séð hvort tiltekin bók hefur verið keypt á bókamarkaði eða ekki en við getum séð annað því við höldum nákvæmar skrár yfir þær bækur sem við höfum verið með. Ef fólk kemur með bók í plasti sem hefur fengist hjá okkur þá er henni skipt, annars skiptum við ekki.“ - Gefur fólk líka erlendar bækur í jólagjöf? „Að mjög litlu leyti. Þetta eru aðallega vasabrotsbækur en við eigum líka til erlendar bækur í hörðu bandi, fyrst og fremst metsölubækur. Hreyfingin í vasa- biotsbókunum er umtalsverð en ekki til jólagjafa." - Hvað er desembersalan mik- ill hluti af bóksölu ársins? „Ég álít að desember geti verið allt að því fjórfaldur meðalmán- uður í bóksölu. Nóvember er yfirleitt ekkert sérstakur sölu- mánuður, það er meiri sala í •september og október þegar skólarnir eru að byrja. f>á seljast ritföng líka vel. Ég er bjartsýnn á að bókin verði alltaf vinsæl þó að ég treysti mér ekki til að segja um hvort bóksala verður eins mikil næstu jól eins og hún var núna og ,árið þar áður.“ EHB notkun hér nordanlands fyrr en nú. „Þetta kerfi gerir það að verk- um að hraðinn verður meiri. Enginn tími fer í að skipuleggja eða áætla hvað hver aðili vill fá mikið magn því á meðan bíllinn er úti erum við að taka til lestanir morgundagsins. Tölur úr bíltölv- unni eru prentaðar út og nákvæmur hleðsluseðill fer inn á lagerinn. Þar geta menn raðað tegundum í réttu magni á bretti og síðan tekur ekki nema fimm mínútur að hlaða bílinn,“ sagði Kristinn Kristinsson, sem kom, frá Reykjavík til að annast upp- setninguna. Reikningar fylgja vörusending- unum og er þar um endanlegan reikning að ræða, en áður var Sana með nótur og reikninga um mánaðamót og sá reikningur var að hluta til samantekt á úttektum mánaðarins og yfirlit yfir inn- borganir viðskiptavinarins. Handtölvurnar koma sér líka vel fyrir kaupmenn. í tölvunum er prentari þannig að þeir geta fengið útskrift á pöntuninni. Einnig eru síðustu pantanir geymdar í tölvunni og geta við- skiptavinir á augabragði séð hvað þeir pöntuðu mikið síðast af hverri tegund. Tölvan hjá Sana er tengd beint við móðurtölvu hjá Sanitas og því auðvelt að senda upplýsingar á milli. Áður var bókhaldið sent suður til vinnslu en nú er það allt unnið hjá Sana. Kristinn sagði að lagertíniinn nýttist mun betur með þessu fyrirkomulagi og mikil hagræðing væri í því að bílarnir væru alltaf Hér er Karl Karlsson sölumaður að taka á móti pöntun nieð handtölv- unni. Myndir: TLV með rétt magn þegar þeir keyra út. „Við eigum eftir að sjá þessar handtölvur í ótrúlegri mynd eftir 4-5 ár. Þær taka gríðarlegt magn af upplýsingum, miðað við það sem áður var, t.d. tekur þessi tölva 128 þúsund stafi og það þarf að versla rnikið til að hún fyllist," sagði Kristinn. SS Menningarsjóður KS: Níu aðilar hlutu styrki Nýlega fór fram úthlutun úr Menningarsjóði Kaupfélags Skagfírðinga og hlutu þá níu félagasamtök í héraðinu styrki, samtals 660 þúsund. Að þessu sinni lagði Fiskiðja Sauðár- króks hf., dótturfyrirtæki kaupfélagsins, sjóðnum til verulegt fé til viðbótar því sem aðalfundur félagsins ákvað sl. vor. Menningarsjóðurinn sem stofnaður var árið 1961 hefur jafnan haft að markmiði að styrk- veitingar hans nýtist sem best menningar- og félagsstarfi í hér- aðinu. Og hafa fjölmargir aðilar notið þeirra frá því fyrst var veitt úr sjóðnum 1962. Ungmennasamband Skaga- fjarðar hlaut hæsta styrkinn að þessu sinni, 150 þúsund. Ung- mennafélagið Tindastóll, sem varð 80 ára á árinu, hlaut 100 þúsund. Tónlistarfélag Sauðár- króks og skíðadeild Ungmenna- félags Fljótamanna 75 þúsund hvort, Sögufélag Skagfirðinga og Karlakórinn Heimir 40 þúsund hvort og Rökkurkórinn og Björg- unarsveitin Grettir á Hofsósi 30 þúsund hvor aðili. -þá Sauöárkrókur: Slasaður fálki í hjúkrun Á dögunum komu 3 strák- ar á lögreglustöðina á Sauð- árkróki með ungan fálka sem þeir höfðu fundið ósjálf- bjarga í húsagarði í bænum. Blæddi úr nefi fálkans og var að sjá sem hann hefði flogið á. Haft var samband við Ævar Petersen fuglafræðing og lagði hann á ráðin um hjúkrun fálkans næstu daga. Verður hann fluttur suður til Náttúrufræðistofnunar þcgar heilsa lians leyfir. cn fugl- inn var mjög dasaður í gær. Á dögunum fannst annar ungur fálki í bænum. Var sá dauður. -þá • *•. is fös lou • . sun ■ . JlSií . mi Helgarferðir Flugleiða og samstarfsflugfélaga ásamt 17 samstarfshótelum hefjast á ný í ársbyrjun 1988. Við byrjum með JANÚARTILBOÐI sem stendur í rúman mánuð. JANÚARTILBOÐIÐ ER ÓTRÚLEGT! Þar er ferðin (flug, gisting ásamt góðum morgunverði) á hlægilegu verði. Til Reykjavíkur eru helgarferðir frá 20 stöðum á landinu og þar geta helgarferðargestir valið milli sjö frábærra hótela. Frá Reykjavík eru helgarferðirnar til ísaQarðar, Akureyrar, Húsavíkur, Egilsstaða, HornaQarðar og Vestmannaeyja þar sem gist er á úrvals hótelum og gistiheimilum. Allar upplýsingar hjá söluskrifstofum Flugleiða, ferðaskrifstofum og umboðsmönnum. Láttu ekki JANÚARTILBOÐIÐ fljúga frá þérl FLUGLEIDIR

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.