Dagur - 06.01.1988, Page 11
6. janúar 1988 - DAGUR - 11
----------------i
„Erfitt en
skemmtilegt"
— segir Árni ÞórÁrnason
sem dvaldi í ísrael
um áramótin
„Þetta var erfið ferð en virki-
lega skemmtileg,“ sagði Árni
Þór Árnason knattspyrnumað-
ur úr Þór en hann var einn
þeirra sem keppti með U-18
ára landsliðinu á alþjóðlegu
móti í Israel um áramótin.
Landsliðshópurinn hélt utan á
annan í jóluni og kom til lands-
ins í fyrradag.
„Skipulagningin var mjög góð
og móttökurnar sem við fengum
mjög góðar. Við náðum ágætis
árangri á mótinu, við töpuðum
þremur leikjum en unnum tvo.
Við töpuðum mjög naumt fyrir
bæði ísrael og Ungverjalandi, 0:1
en töpuðum 0:3 fyrir Pólverjum.
Þá unnum við Sviss 3:2 og Kýpur
2:1 og höfnuðu í 7.-8. sæti á mót-
inu,“ sagði Árni ennfremur.
Alls voru þrír Þórsarar í lands-
liðshópnum en auk Árna Þórs
voru það þeir Páll Gíslason og
Kjartan Guðmundsson mark-
vörður.
íþróttir
Árni Þór Árnason keppti með
landsliðinu í Israel um áramótin.
Rakel Ársælsdóttir vippar sér yfir rána í hástökkinu.
Héraðsmót UMSS:
Mynd: -þá
Helgi hjó nærrí
íslandsmeti
- Fjögur héraðsmet sett
Hver verður valinn
„íþróttamaður
Norðurlands 1987“?'
- Lesendur takið þátt í valinu
Nú styttist í það að Dagur
útnefni „Iþróttamann Norður-
lands 1987“ og er þetta í þriðja
sinn sem blaðið stendur að
þessari útnefningu. í fyrra
hlaut Daníel Hilmarsson
skíðamaður frá Dalvík nafn-
bótina en Kári Elíson kraftlyft-
ingamaður frá Akureyri varð
fyrstur til að hljóta titilinn.
Eins og í fyrra gefst lesendum
blaðsins kostur á því að taka þátt
í valinu og hafa þannig áhrif á
það hver hlýtur titilinn að þessu
sinni. Fimm íþróttamönnum
verður veitt viðurkenning og auk
þcss hlýtur „íþróttamaður
Norðurlands 1987“ glæsilegan
farandbikar til varðveislu í eitt
ár.
í dag og næstu daga verður
þátttökuseðill í blaðinu og eiga
lesendur að skrifa fimm nöfn á
hann og senda blaðinu fyrir 20.
janúar næstkomandi. Þrír þátt-
tökuseðlar verða dregnir út og
hljóta eigendur þeirra hljóm-
plötuvinning að launum. Það er
því til einhvers að vinna um leið
og höfð eru áhrif í valinu á
„íþróttamanni Norðurlands
1987“.
Lesendur eru hvattir til þess að
bregðast skjótt við og senda seð-
ilinn útfylltan til blaðsins fyrir 20.
janúar.
Fjögur héraðsmet voru sett á
héraðsmóti UMSS í frjálsum
íþróttum innanhúss sem fram
fór milli jóla og nýárs. Þar á
meðal var Helgi Sigurðsson G.
þrístökkvari nokkrum senti-
metrum frá íslandsmeti í
sveinaflokki.
Aðrir sem settu héraðsmet
voru Sigurlaug Gunnarsdóttir T.
telpnaflokki í hástökki án
atrennu og Arnar Sæmundsson
G. og Stefán Friðriksson Æ.
sveinaflokki í sömu grein.
Helgi Sigurðsson G. sigraði í
langstökki, þrístökki og hástökki
án atr. Stökk 3,15 í langstökkinu,
9,58 í þrístökkinu og 1,55 í
hástökkinu. Friðrik Steinsson T.
varð annar í þessum greinum,
með 2,89, 8,74 og 1,45. í há-
stökki sigraði Björn Jónsson Gr.
stökk 1,80 eða sömu hæð og
1X2 1X2 1X2 1X2 1X2 1X2
Sveinn Ævar
lagði Guðna
Sveinn Ævar Stefánsson hafði betur í viðureigninni við Guðna Eiðs-
son í getraunaleiknum um helgina. Hann var með 7 leiki rétta á
móti 5 leikjum Guðna. Sveinn Ævar heldur því áfram og hann hefur
skorað á Ingólf Kristjánsson efnafræðing hjá Sambandinu í næstu
umferð. Ingólfur er mikill aðdáandi Everton og hefur verið það síð-
an 1969. Leikirnir á seðlinum um helgina eru í 3. umferð ensku
bikarkeppninnar og á Everton mjög erfiðan útileik fyrir höndum.
Man.United, lið Sveins er hins vegar ekki á seðlinum. En við skul-
um sjá hvernig þeim félögum tekst upp um helgina og þannig er spá
þeirra.
Sveinn Ævar:
Ingólfur:
Blackburn-Portsmouth x
Derby-Chelsea 1
Huddersfield-Man.City 2
Leeds-Aston Villa 2
Newcastle-C.Palace 1
Oldham-Tottenham 2
Reading-Southampton 2
Sheff.Wed.-Everton 2
Stoke-Liverpool 2
Swindon-Norwich x
Watford-Hull x
West Ham-Charlton 1
Blackburn-Portsmouth x
Derby-Chelsea I
Huddersfield-Man.City 2
Leeds-Aston Villa 1
Newcastle-C.Palace 1
Oldham-Tottenham x
Reading-Southampton x
Sheff.Wed.-Everton 2
Stoke-Liverpool 2
Swindon-Norwich 1
Watford-Hull 1
West Ham-Charlton x
Tipparar munið að skila seðlunum inn fyrir hádegi á fimmtudög-
um svo enginn verði nú af vinningi.
1X2 1X2 1X2 1X2 1X2 1X2
bróðir hans Sigfús. Agúst Andr-
ésson Gr. sigraði síðan í kúlu-
varpi, kastaði 10,60. Friðrik
Steinsson kastaði 10,40.
Berglind Bjarnadóttir T sigraði
í hástökki án atr. stökk 1,25.
Sigurlaug Gunnarsdóttir T stökk
sömu hæð. Sigurlaug sigraði síð-
an í hástökki fór yfir 1,56, en
Berglind 1,55. Þessar stúlkur
báru af í kvennakeppninni. Berg-
lind sigraði í hinum stökkgrein-
unum. Með 2,51 í langstökki og
7,11 í þrístökki. Sigurlaug stökk
þar 2,41 og 6,75. Berglind sigraði
einnig í kúluvarpi kastaði 9,18 og
Rósa Vésteinsdóttir H varð önn-
ur með 6,99.
í svokölluðu metamóti sem
fram fór á gamlársdag sigraði
Helgi í þrístökki stökk 9,61.
Bætti þar 4ra daga gamalt hér-
aðsmet sitt og var aðeins 6 sm frá
íslandsmetinu. Helgi vann einnig
langstökkið með 3,11, en Gísli
bróðir hans sigraði í hástökki án
atr., stökk 1,60. Sigurlaug sigraði
í einu kvennagreininni á mótinu,
hástökki. Stökk 1,54, sömu hæð
og Berglind. -þá
íþróttamaður
Norðurlands 1987
Nafn íþróttamanns:
1.
íþróttagrein:
2.
3.
4.
5.
Nafn:
Sími
Heimilisfang:
Sendið til: íþróttamaður Norðurlands 1987
c/o Dagur Strandgötu 31 600 Akureyri
Skilafrestur til 20. janúar 1988.
Knattspyrna:
Breytingar á liði Magna
Nokkar breytingar verða á
knattspyrnuliði Magna frá
Grenivík á komandi keppnis-
tímabili. Magni leikur sem
kunnugt er í 3. deild undir
stjórn Þorsteins Olafssonar og
hefur liðið fengið tvo nýja leik-
menn í hópinn en misst þrjá.
Þeir bræður Magnús og Helgi
Helgasynir sem hafa leikið með
Þór og Vaski undanfarin ár,
munu leika með Magna í sumar.
Eymundur Eymundsson hefur
hins vegar ákveðið að snúa heim
og leika með Þórsurum á ný en
hann gekk til liðs við Magna síð-
astliðið vor. Eymundur lék alla
leiki liðsins í 3. deildinni síðast-
liðið sumar og stóð sig vel.
Gamla kempan Heimir Ingólfs-
son hefur ákveðið að leggja
skóna á hilluna en hann hefur
verið lykilmaður í liði Magna í
fjöldamörg ár. Heimir mun þó
ekki hætta afskiptum af knatt-
spyrnu, því hann verður aðstoð-
armaður Þorsteins þjálfara í
sumar. Þá mun Friðbjörn Jóns-
son ekki leika knattspyrnu meira
en hann missti framan af fæti í
hörmulegu slysi undir lok síðasta
árs. Friðbjörn var mjög efnilegur
leikmaður og hafði sýnt miklar
framfarir síðastliðið sumar.
Magnamenn stefna að því að
fara í æfinga- og keppnisferð til
Hollands um páskana. Liðið fór í
slíka ferð í fyrra og þótti hún
hafa tekist mjög vel. Slíkar ferðir
eiga vaxandi fylgi að fagna og
blaðinu er kunnugt um að 1.
deildar lið Þórs, Völsunugs og
Leifturs ætla einnig í svipaða ferð
um páskana.
Körfubolti:
Tindastóll vann Þór
Tindastóll vann næsta auð-
veldan sigur á úrvalsdeildarliði
Þórs í æfingaleik á Króknum
sl. sunnudag. Urslitin urðu
90:74, eftir 44:38 fyrir Stólana í
hálfleik.
Tindastólsliðið lék vel en Þórs-
arar voru að sama skapi slappir.
Náðu heimamenn öruggri forystu
í upphafi seinni hálfleiks. Ekki
bætti úr skák fyrir gestina að
dómararnir sýndu þeim enga
miskunn og lentu þeir í hinum
mestu villuvandræðum. Þegar
Þórsarar fóru að tínast út af hver
af öðrum með 5 villur um miðjan
seinni hálfleikinn lögðu þeir
endanlega árar í bát. Var svo
komið á síðustu mínútunum að
þeir voru ekki eftir nema 4 inn á
og fengu þá að nota leikmenn
sem áður höfðu fengið brottvikn-
ingu. -þá