Dagur


Dagur - 18.01.1988, Qupperneq 3

Dagur - 18.01.1988, Qupperneq 3
18. janúar 1988 - DAGUR - 3 Fyrir skömmu var dregið í áskrifendagetraun Eyfirska sjónvarpsfélagsins um tvær Mallorkaferðir á vegum Sam- vinnuferða/Landsýnar. Hér má sjá Bjarna Hafþór Helgason, framkvæmdastjóra Eyfirska sjónvarpsfélagsins afhenda þeim Haraldi Júlíussyni og Hólmfríði Sigurðardóttur vinningana. Mynd: tlv Bæjarstarfsmenn: Fremstir meðal jafningja 1 frétt um ellimóða slökkviliðs- menn á forsíðu blaðsins sl. föstudag var mistúlkun sem nauðsynlegt er að leiðrétta. Vitnað var í Gunnlaug Búa sem sagði „að slökkviliðsmenn yrðu fremstir meðal jafningja þegar ráðið væri í nýjar stöður hjá bænum.“ Hann átti ekki við slökkviliðsmenn heldur bæjarstarfsmenn, féiaga í Starfsmannafélagi Akureyrar- bæjar. Þessi misskilningur er til kom- inn vegna þess að Gunnlaugur Búi sagði „við" og var það rang- lega túlkað sem slökkviliðsmenn. Hið rétta er að þegar hann var formaður STAK fór hann fram á að félagar í STAK vrðu fremstir meðal jafningja þegar ráðið væri í nýjar stöður hjá bænum. Málsgreinin sem um ræðir gæti þá litið svona út, kórrétt: „Þegar ég var formaður starfsmannafé- lagsins sendi ég þeim bréf þar senr ég fór fram á að félagar í Starfsmannafélagi Akureyrar- bæjar yrðu fremstir meðal jafn- ingja þegar ráðið væri í nýjar stöður hjá bænum." SS Vínveitingahús: „Hróplegt ósamræmi“ - segir eftirlitsmaður um 18 ára aldurstakmark að húsunum „Yngri mönnum en 20 ára má ekki selja, veita eða aíhenda áfengi með nokkrum hætti.“ Þetta segir í 5. kafla áfengis- laga um meðferð áfengis. I reglugerð um sölu og veitingu áfengis segir svo, að ungmenn- um yngri en 18 ára sé óheimil dvöl á veitingastað eftir klukk- an 20.00 á kvöldin, nema í fylgd foreldra eða maka. Það ósamræmi sem þarna kem- ur frant er, að fólki á aldrinum 18-20 ára er heimilaður aðgangur að vínveitingahúsum, en ekki má selja þeim áfenga drykki. Þorsteinn Pétursson er lög- skipaður eftirlitsmaður með vín- veitingahúsum á Akureyri og sagði hann í samtali við Dag, að starfið fælist aðallega í því að fylgjast með, að ekki sé of margt fólk í einu inni í húsunum, fólkið sé ekki of ungt og að ekki sé afgreitt vín til þeirra sem ekki liafa til þess aldur. „Það er hróp- legt ósamræmi í því að 18 ára fólk megi vera í húsunum en að ekki megi selja nema 20 ára fólki áfengi. Það er ákaflega erfitt að fylgjast með þessu. Eg hef ekki orðið var við annað hjá starfs- fólki húsanna, en að fullur vilji sé fyrir því að þessir hlutir séu í lagi. Ég tel að það verði að sam- ræma þessa hluti, því engum er greiði gerður með því að hafa þessi mál eins og þau eru." Þor- steinn sagði að ekki væri hjá því komist að inn á vínveitingahúsin komist endrum og eins fólk yngra en 18 ára og að það geti stundum keypt áfenga drykki. Hann vildi hvetja þá foreldra sem hafa vitn- eskju um að slíkt hafi hent, til að hafa samband við sig og láta vita af slíkum tilvikum. Varðandi fjölda gesta á vín- veitingastöðum sagði Þorsteinn að eitt tilfelli hafi komið upp í desember um að of margt var inni í Sjallanum, en það hafi ekki gerst í langan tíma. Hann sagðist hafa ástæðu til að ætla að þessi rnál yrðu í lagi í framtíðinni. VG DAGUR Sauðárkróki 0 95-5960 Norðlenskt dagblað BREYTTUR persónuafclátfur: Nú 14.797 kr. fýrir hvem mánuð ámmmummwinrriiir Persónuafsláttur í staðgreiðslu opin- berra gjalda hefur verið ákveðinn 14.797 krónur fyrir hvem mánuð á tímabilinu jan,- júní 1988. Þessi breyting á persónuafslætti hefur Til þess að þeir, sem fengu skattkort sín ekki í för með sér að ný skattkort verði gefin út til útgefin fyrir 28. desember 1987, fái notið rétts þeirra sem fengu sín skattkort fýrir 28. des. sl., heldur ber launagreiðanda að hækka persónu- afsláttinn við útreikning staðgreiðslu. afsláttar ber launagreiðanda að hækka þann persónuafslátt, sem fram kemur á þessum skattkortum og aukaskattkortum (öllum grænum og gulum kortum), um 8,745% (stuðull 1,08745). / / Mikilvægt er að launagreiðandi breyti ekki upphæðinni á sjálfu skattkortinu. Sú upphæð á að standa óhreyfð til ársloka. Hins vegar ber að taka tillit til orðinnar hækkunar við útreikning staðgreiðslu. Launamaður má ekki heldur breyta upphæðinni sem fram kemur á skatt- korti hans. Hann afhendir launagreiðanda kort- ið óbreytt nema hann fái aukaskattkort. Skattkort sem gefin eru út 28. desember og síðar bera annan lit en þau skattkort sem gefin voru út fram að þeim tíma. Þau skattkort munu sýna réttan persónuafslátt fyrir tímabilið janúar-júní 1988 og þarf því ekki að hækka persónuafslátt þann sem þar kemur fram við útreikning staðgreiðslu. Heimilt er að millifæra 80% af ónotuðum persónuafslætti til maka. Þetta gildir bæði um hjón og sambúðarfólk, sem hefur heimild til samsköttunar. Launagreiðandi millifærir persónu- afsláttinn, þannig að hann tekur tillit til 80% þeirrar upphæðar sem fram kemur á skatt- korti og aukaskattkorti maka, hafi það verið afhenthonum. Launagreiðendur afhugið að hœkka upphœð persónuafslóttar ó eldrí skattkortum um 8.745%

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.