Dagur - 18.01.1988, Page 10
vto -W -r,m-janúar1^8
íþróttir
Enska knattspyrnan:
Mörg óvænt úrslit
- Negrarnir komu í veg fyrir sigur Tottenham
- Ekkert ræðst við Liverpool
Talsvert var um óvænt úrslit í
1. deildinni á laugardaginn, en
það átti ekki við um aðal leik
umferðarinnar á Anfield í
Liverpool sem sjónvarpsáhorf-
endur fengu að sjá í beinni
útsendingu hjá Bjarna Fel.
Rúmlega 44.000 áhorfendur
borguðu sig inn á leikinn þrátt
fyrir að fátækt og atvinnuleysi í
Liverpool sé með því mesta
sem gerist á Englandi. En
menn leggja mikið á sig til að
sjá hetjurnar sínar leika og
þeir urðu ekki fyrir vonbrigð-
um með sína menn í leiknum
gegn Arsenal.
Leikmenn Arsenal komu
ákveðnir til leiks og þrátt fyrir að
heimaliðið hefði undirtökin frá
byrjun virtist sem gestirnir ætl-
uðu að halda út fyrri hálfleikinn.
En á síðustu mínútu hálfleiksins
tókst heimamönnum loks að
brjóta ísinn. Steve McMahon
tókst með miklu harðfylgi að
vinna boltann sem hann sendi til
Peter Beardsley, honum tókst að
koma boltanum fyrir markið
fram hjá John Lukic, til John
Aldridge sem var óvaldaður og
renndi knettinum í netið, hans
20. mark á leiktímabilinu.
Aldridge sást varla í leiknum og
virkar slakur innan um hina frá-
bæru leikmenn McMahon, Barnes
og Beardsley, en hann nýtir færin
vel og meðan hann skorar mörk
er Kenny Dalglish ánægður. Það
er líka eins gott fyrir hann að
missa ekki töframáttinn úr skot-
skónum því aðrir hæfileikar hans
gerðu ekki be.tur en tryggja hon-
um öruggt sæti í varaliði liðsins.
Arsenal hóf síðari hálfleikinn
með sókn og David Rocastle fékk
færi á að skora, en Beardsley og
Aldridge fengu einnig góð mark-
tækifæri fyrir Liverpool. Það var
síðan Beardsley sem gerði út um
leikinn með frábæru marki eftir
einleik í gegnum vörn Arsenal
áður en hann skoraði örugglega
fram hjá Lukic í marki Arsenal.
Beardsley og Barnes áttu mjög
góðan leik hjá Liverpool ásamt
McMahon og oft gaman að sjá
Barnes renna sér í gegnum vörn
Lundúnaliðsins eins og hnífur í
gegnum smjör. Liverpool hefur
því náð 15 stiga forskoti í 1. deild
og erfitt að sjá hvernig komið
verði í veg fyrir að liðið hirði
Englandsmeistaratitilinn.
Óvæntustu úrslitin urðu í leik
Wimbledon á heimavelli gegn
Watford, sem fyrr í vikunni rak
framkvæmdastjóra sinn Dave
Bassett sem áður stjórnaði hjá
Wimbledon. Steve Harrison
aðstoðarframkvæmdastjóri Aston
Villa tók við hjá Watford og
hann stjórnaði liði sínu til sigurs
gegn Wimbledon sem hefur verið
ósigrandi að undanförnu eftir
aðeins 3 daga hjá sínu nýja
félagi. En sigur Iiðsins var að
sjálfsögðu erfiður og liðin léku
ekki fallega knattspyrnu. Worrel
Sterling náði forystu fyrir Watford
1 SÉRLEYFISBÍLAR AKUREYRAR S/F
______I SÍMAR 23510, 26922 & 24729
Verðskrá 1987-1988
Akureyri - Skíðastaðir
Einstök ferð barna 11 ára og yngri ................................ kr. 90.-
Báðar leiðir •" " .......................................... kr. 150.-
Einstök t'crð fullorðinna ......................................... kr. 110,-
Báðar leiðir ...................................................... kr. 190,-
10 ferða blokk barna .............................................. kr. 1.350 -
20 ferða blokk barna .............................................. kr. 2.550,-
10 ferða blokk fullorðinna ........................................ kr. 1.710.-
20 fcrða blokk fullorðinna ........................................ kr. 3.230,-
Árskort 11 ára og yngri ........................................... kr. 3.700,-
Árskort 12 ára og eldri ........................................... kr. 5.400.-
Ath. Arskort má greiða með Visa og skipta greiðslu
Tímatafla: Kvöldferðir:
Mánudaga-Föstudaga Þri.d. Mið.d. Fimm.d.
Móasíða 13.15 15.30 16.30 18.30 18.30 18.30
Versl. Síða 13.17 15.32 16.32 18.32 18.32 18.32
Sunnuhlíð 13.19 15.34 16.34 18.34 18.34 18.34
Esso Veganesti 13.22 15.37 16.37 18.37 18.37 18.37
Suðurendi göngugötu 13.25 15.40 16.40 18.40 18.40 18.40
Heimavist M.A. 13.27 15.42 16.42 18.42 18.42 18.42
Shell Kaupangi 13.30 15.45 16.45 18.45 18.45 18.45
KEA Hrísalundi 13.35 15.50 16.50 18.50 18.50 18.50
Frá Skíðastöðum: 16.00 17.15 19.00 21.00
Laugardaga & sunnudaga Móasíða 09.30 13.00 Ath. Kvöldferðir eru háðar
Versl. Síða 09.32 13.02 opnunartíma
Sunnuhlíð 09.34 13.04 skíðalyftanna
Esso Veganesti 09.37 13.07 Nánari upplýsingar í
Suðurendi göngugötu 09.40 13.10 símsvara 22930.
Heimavist M.A. 09.42 13.12
Shell Kaupangi 09.45 13.15
KEA Hrísalundi 09.50 13.20 Upplýsingar um ferðir
Frá Skíðastöðum 14.00 16.00 17.15 í símum 26922 og 22930
í síðari hálfleik, en 10 mín. síðar
jafnaði varnarmaðurinn Eric
Young eftir hornspyrnu. En á 75.
mín. kom úrslitamarkið, dómar-
inn hafði dæmt aukaspyrnu á
vítateig, en eftir að hafa ráðfært
sig við línuvörðinn breytti hann
dómnum í vítaspyrnu og úr henni
skoraði Malcolm Allen. Á síð-
ustu mínútunni átti Watford síð-
an skot í stöng, en góður sigur í
höfn og liðið færðist upp úr
neðsta sætinu.
Nottingham For. sem er í öðru
sæti deildarinnar lenti í óvæntu
basli á heimavelli gegn Charlton
og varð að sætta sig við jafntefli.
Calvin Plummer kom Forest yfir,
en Robert Lee jafnaði fyrir
Charlton. Þegar aðeins 6. mín.
voru til leiksloka tókst Neil
Webb að ná forystunni á ný fyrir
Forest og leikurinn virtist
unninn, en Andy Jones náði að
jafna fyrir Charlton og þar við sat.
Everton var eina liðið af sjö
efstu auk Liverpool sem náði að
sigra á laugardaginn. Liðið hafði
mikla yfirburði á útivelli gegn
Norwich og sigraði 3:0. Graeme
Sharp skoraði í fyrri hálfleik og
bætti síðan við öðru marki í þeim
síðari, en lokaorðið átti Adrian
Heath á lokamínútu leiksins.
Manchester Utd. er að missa af
lestinni og tapaði mjög óvænt á
heimavelli fyrir Southampton.
Colin Clarke skoraði tvívegis í
leiknum fyrir Southampton, sitt
markið í hvorum hálfleik án þess
Utd. tækist að svara fyrir sig.
Q.P.R. og West Ham áttust
við á Loftus Road og þar hafði
West Ham betur, Alan Dickens
skoraði eina mark leiksins á 75.
mín. Liðin mætast aftur á sama
stað í lok mánaðarins í 4. umferð
FA-bikarkeppninnar.
Coventry virðist hafa eitthvert
tak á Tottenham þessa dagana.
Liðið sigraði í úrslitaleik FA-
bikarkeppninnar sl. vor í fram-
Graeme Sharp skoraði tvö af mörk-
um Everton gegn Norwich.
Clive Allen hefur nú fundið skotskóna að nýju og skoraði bæði mörk
Tottenham gegn Coventry, en það dugði ekki til sigurs.
lengdum leik og aftur í fyrri leik
liðanna í deildarkeppninni í
haust. Nú bjuggust margir við því
að Tottenham gengi milli bols og
höfuðs á Coventry, sem hefur
gengið illa að undanförnu, en
það fór á annan veg. Clive Allen
sem hefur nú fundið skotskóna
að nýju kom Tottenham tvívegis
yfir í leiknum, en negrarnir hjá
Coventry, þeir Cyrille Regis og
David Bennett jöfnuðu í bæði
skiptin, mark Bennett í lok leiks-
ins og Tottenham þarf ekki að
láta sig dreyma um toppbaráttu í
vetur.
Derby hefur nú tapað átta
leikjum í röð eftir að Darron
McDonough skoraði eina mark
leiksins fyrir Luton aðeins þrem
mín. fyrir leikslok.
Oxford nældi sér í stig á útivelli
gegn Portsmouth eftir 2:2 jafn-
tefli. Gary Briggs kom Oxford
yfir, Kevin Ball jafnaði fyrir
Portsmouth. Mike Quinn náði
síðan forystunni fyrir Portsmouth,
en Dean Saunders náði að
tryggja Oxford jafntefli undir
lokin.
Sheffield Wed. fór létt með
Chelsea og sigraði með þrem
mörkum. Larry May kom Sheffi-
eld yfir í fyrri hálfleik og síðan
bættu Brian Marwood úr víti og
Carl Bradshaw við mörkum í
þeim síðari.
Aston Villa hefur nú þriggja
stiga forskot í 2. deild, á undan
Crystal Palace og Millwall. Liðið
sigraði Ipswich á heimavelli sín-
um í erfiðum leik. Martin Keown
skoraði eina mark leiksins með
skalla eftir aukaspyrnu snemma í
fyrri hálfleik. En Ipswich hafði
lengst af undirtökin í leiknum og
það var aðeins stórleikur mið-
varða Villa liðsins Keown og All-
an Evans sem kom í veg fyrir að
Ipswich næði að jafna.
Millwall er nú komið í sterka
stöðu í 2. deild og á góða mögu-
leika á 1. deildarsæti, þó að ekki sé
víst að 1. deildarliðin verði hrifin
af að fá Millwall upp, þar sem
mesti óaldarlýður fylgir þessu
liði. En knattspyrnumenn Millwall
standa sig vel og um helgina sigr-
aði liðið Middíesbrough. Teddy
Sherringham skoraði sigurmark-
ið mín. fyrir leikslok, en áður
hafði Bernie Slaven jafnað fyrir
Middlesbrough eftir að Alan
Walker hafði náð forystu fyrir
Millwall.
Huddersfield náði óvænt for-
ystu á útivelli gegn Crystal
Palace, Duncan Shearer gerði
markið, en Palace náði að knýja
fram sigur með mörkum Phil
Barber og Jim Cannon.
Leeds Utd. var í mikilli upp-
sveiflu um jólin, en nú eru jólin
búin og einnig velgengni liðsins.
Darren Foreman skoraði bæði
mörk Barnsley í óvæntu tapi
Leeds Utd. á heimavelli.
Manchester City er furðulegt
lið. Paul Stewart og Neil McNab
náðu tveggja marka forystu fyrir
liðið gegn Plymouth, en Tommy
Tynan, Mark Smith og Evans
skoruðu allir fyrir Plymouth í síð-
ari hálfleik.
Steve Archibald skoraði fyrra
mark Blackburn í 2:1 sigri liðsins
gegn Hull City.
Engir voru eins heppnir og
leikmenn Bradford á laugardag-
inn. 3:0 undir í hálfleik á útivelli
gegn Swindon, auk þess sem þeir
voru aðeins 10 inn á vegna brott-
rekstrar, en þá kom frelsunin af
himnum ofan. Þykk þoka lagðist
yfir völlinn þannig að hætta varð
leiknum og þegar aftur verður
hafist handa síðar í vetur verður
búið að setia markatöfluna aftur
á 0:0.
Sunderland er efst í 3. deild
með 58, Notts County 54 og
Walsall 51 stig. í 4. deild hefur
Wolves 51, Leyton Orient og
Colchester 47 stig, en í neðsta
sæti 4. deildar sem nú þýðir fall
úr deildakeppninni er lið New-
port, 12 stigum á eftir næstu
liðum. Þ.L.A.
FA-bikarinn:
Þremur leikj-
um ólokið
- í 3. umferð
I síöustu viku voru endurteknir
jafnteflisleikirnir í 3. umferð
ensku bikarkcppninnar. Þrem-
ur þeirra lauk aftur með jafn-
tefli og þurfa liðin því að reyna
með sér á ný í þessari viku.
Þá léku Plymouth og Colshest-
er frestaðan leik úr 3. umferð og
lauk honum með sigri Plymouth
1:0. Önnur úrslit urðu þessi:
Blackpool-Scunthorpe 1:0
Everton-Sheff.Wed. 1:1
Hull-Watford 2:2
Liverpool-Stoke 1:0
Man.City-Huddersfield 0:0
Middlesbro-Sutton 1:0
Norwich-Swindon 0:2
Þ.L.A.