Dagur - 18.01.1988, Síða 13

Dagur - 18.01.1988, Síða 13
 18: janúár 1988 - DAGUR — T3 Margt er mmiuama bölið - sumir berjast við reykingar, aðrir við offitu eða Bakkus Margt er mannanna bölið, stend- ur einhvers staðar, og víst er um það að hver hefur sinn djöful að draga. Sumir berjast við reyking- ar, aðrir við offitu og enn aðrir við brennivínið. Við skulum ekki gera lítið úr þessari baráttu, slíkt væri ósanngjarnt, en til gamans má skoða ýmis ráð sem fólk hefur notað um dagana til að draga úr ofneyslu á ýmsurn sviðum. Reykingar fluttust tii Evrópu á 16. öld með Sir Walter Raleigh, enskum aðalsmanni í þjónustu Elísabetar 1. drottningar. Walter Raleigh kynntist þessum sið í Ameríku meðal indíána, en þeir höfðu fyrir sið að brenna þurrkuð tóbakslauf á litlu báli. Síðan köstuðu þeir teppi yfir bálið og önduðu að sér reyknum. Indíán- arnir reyktu líka pípur, en vindl- ingar eru nýrri uppfinning við að reykja tóbak. Ekki verður efast um skaðsemi tóbaks fyrir mannslíkamann. Tóbak inniheldur nikótin, sem er vanabindandi eiturefni. Því reyn- ist mörgum erfitt að losna úr viðj- um þess. Sérfræðingar segja að best sé að hætta alveg að reykja, því hætt er við að þeir sem minnka reykingar falli fljótt í gryfjuna aftur og komist á skömmum tíma aftur í þá neyslu sem fyrir var. Það er ekki eins erfitt að hætta meðan fólk er ungt og skyldu því flestir reyna að hætta áður en það er orðið um seinan, þ.e.a.s. meðan þeir hafa betri möguleika á að geta hætt. Eini gallinn við að hætta að reykja er sá að sumu fólki hættir við að fitna á eftir. Þá er einmitt komið að öðru vandamáli, offit- unni. Nú á dögum er hægt að neyta ýmiss konar matvæla án þess að fitna, en vörur sömu teg- undar hefðu verið á bannlista megrunarkúra fyrir fáum árum. Hér er t.d. um að ræða sykur- laust gos, en það er ágætt ráð að drekka ntikið af því ef maður vill leggja af. Þá er líka gott að borða harðsoðin egg. Þó verður fólk að hafa í huga að mikilvægt er að líkaminn fái lágmarksorku úr fæðunni á hverjum degi, og fisk- ur og grænmeti gefa góða undir- stöðu í því efni. Þeir, sem þurfa að leggja af, ættu að hafa hugfast að best er að taka eitt skref í einu á megrun- arbrautinni. Grípið í harðfisk eða annað í stað þess að falla fyr- ir kökum og sætabrauði og munið: Það má ALDREI snerta sælgæti, þá er betra að borða yfir sig af hollum mat. Þá er komið að brennivíninu, en það er alvarlegasta málið. Enginn veit, sem ekki hefur reynt það, hvað það er að takast á við Bakkus. Því er best að halda sig alveg frá honum - það er líka svo gott að vera aldrei timbraður heldur eldhress á laugardags- og sunnudagsmorgnunt. Það veit heldur enginn nema sá sem reynt hefur hvað slíkt er þægilegt. Haf- ið þið hugleitt hvað venjulegur íslendingur eyðir miklum hluta launa sinna í áfengi og tóbak? Nei, lífshamingjuna höndlar fólk ekki með áfengi eða tóbaki, og raunar ekki peningum heldur. Sá, sem reynir að losna úr viðjum vanans, getur a.m.k. sagt að hann sé að reyna. Og svo er eitt heilræði að lokum: Ef þú vilt hætta að reykja eða drekka eða borða of mikið, segðu þá engum frá þeirri ákvörðun heldur láttu aðra um að taka eftir því. rl dagskrá fjölmiðla SJONVARPIÐ MÁNUDAGUR 18. janúar 17.50 Ritmálsfréttir 18.00 Töfraglugginn. Endursýndur þáttur frá 13. janúar. 18.50 Fréttaágrip og táknmáls- fréttir. 19.00 íþróttir. 19.30 George og Mildred. Breskur gamanmyndaflokkur. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Gleraugað. Þáttur um listir og menningar- mál. í þetta sinn verður fjallað um bókaútgáfu nýliðins árs frá ýms- um hliðum. Fram koma m.a. höfundar og bókaútgefendur og einnig flytur Sverrir Stormsker tvö lög. 21.20 Opnar svalir. (E1 Balcon Abierto.) Ný, spænsk mynd gerð til minningar um spænska skáldið Federico García Lorca. Leikstjóri Jaime Camino. Aðalhlutverk José Luis Gómez, Amparo Munoz, Antonio Flores, Berta Riaza og Alvaro de Luna. í myndinni er fjallað um ævi skáldsins en einnig er brugðið upp myndum úr nokkrum ljóða hans. 22.50 Útvarpsfréttir í dagskrár- lok. SJONVARP AKUREYRI MÁNUDAGUR 18. janúar 16.30 Af ólíkum meiði. (Tribes.) Síðhærður sandalahippi er kvaddur í herinn. Liðþjálfa ein- um hlotnast sú vafasama ánægja að gera úr honum sannan, bandarískan hermann, föðurlandi sínu til sóma. Myndin hlaut Emmy verðlaun fyrir besta handrit. Aðalhlutverk: Darren McGavin og Earl Holliman. 18.00 Hetjur himingeimsins. (He-man.) 18.20 Handknattleikur. Sýnt frá helstu mótum í hand- knattleik. 18.50 Fjölskyldubönd. (Family Ties.) 19.19 19.19. Fréttir, veður, íþróttir og þeim málefnum sem hæst ber hverju sinni gerð fjörleg skil. 20.30 Sjónvarpsbingó. Bingó þar sem áhorfendur eru þátttakendur og glæsilegir vinn- ingar eru í boði. Símanúmer sjónvarpsbingósins er 673888. 20.45 Leiðarinn. Fjallað verður um byggingu borg- arráðhúss. Davíð Oddsson verð- ur meðal viðmælenda. 21.15 Vogun vinnur (Winner Take All.) Framhaldsmyndaflokkur í tíu þáttum. 8. þáttur. 22.05 Dallas. 22.50 Götur ofbeldisins. (Violent Streets.) Eftir 11 ára fangelsisveru ákveð- ur Frank að byrja nýtt og glæsi- legt líf. Til þess þarf hann fjár- muni og fljótlegasta leiðin til að afla þeirra er með ránum. Bönnuð börnum. 00.50 Dagskrárlok. © RAS 1 MANUDAGUR 18. janúar 6.45 Veðurfregnir - Bæn. 7.00 Fréttir. 7.03 í morgunsárið með Ragnheiði Ástu Pétursdótt- ur. Finnur N. Karlsson talar um dag- legt mál kl. 7.55. 9.00 Fréttir. 9.03 Morgunstund barnanna. „Grösin í glugghúsinu" eftir Hreiðar Stefánsson. 9.30 Morgunleikfimi. 9.45 Búnaðarþáttur. 10.00 Fréttir • Tilkynningar. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Gengin spor. Umsjón: Sigríður Guðnadóttir. (Frá Akureyri). 11.00 Fréttir • Tilkynningar. 11.05 Samhljómur. 12.00 Fréttayfirlit • Tónlist ■ Tilkynningar. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veðurfregnir • Tilkynn- ingar • Tónlist. 13.05 Í dagsins önn - Breytinga- aldurinn - breyting til batnað- ar. Umsjón: Helga Thorberg. 13.35 Miðdegissagan: „Óskréðar minningar Kötju Mann." 14.00 Fréttir • Tilkynningar. 14.05 Á frívaktinni. Þóra Marteinsdóttir kynnir óska- lög sjómanna. 15.00 Fréttir ■ Tónlist. 15.20 Lesið úr forustugreinum landsmálablaða. 16.00 Fréttir. 16.03 Dagbókin. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið - Skautar. 17.00 Fréttir. 17.03 Tónlist á síðdegi - Haydn og Mozart. 18.00 Fréttir. 18.03 Vísindaþáttur. Umsjón: Jón Gunnar Grjetars- son. Tónlist ■ Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir ■ Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Tilkynningar. Daglegt mál. Endurtekinn þáttur frá morgni sem Finnur N. Karlsson flytur. Um daginn og veginn. Sigurlaug Bjamadóttir mennta- skólakennari talar. 20.00 Aldakliður. 20.40 Hvunndagsmenning. 21.15 „Breytni eftir Kristi" eftir Thomas a Kempis. 21.30 Útvarpssagan: „Kósakkarn- ir“ eftir Leo Tolstoi. 22.00 Fréttir ■ Dagskrá morgun- dagsins • Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Upplýsingaþjóðfélagið. Við upphaf norræns tækniárs. 23.00 Fjórhent píanótónlist eftir Franz Schubert. 24.00 Fréttir. 00.10 Samhljómur. 01.00 Veðurfregnir. MANUDAGUR 18. janúar 7.03 Morgunútvarpið. Dægurmálaútvarp með fréttayf- irliti, fréttum og veðurfregnum. Vaknað eftir helgina: Fréttarit- arar i útlöndum segja tiðindi upp úr kl. 7.00, síðan farið hringinn og borið niður á ísafirði, Egils- stöðum og Akureyri og kannað- ar fréttir landsmálablaða, héraðsmál og bæjarslúður víða um land kl. 7.35. Thor Vilhjálms- son flytur mánudagssyrpu að loknu fréttayfirliti kl. 8.30. Umsjón: Leifur Hauksson, Egill Helgason og Sigurður Þór Salvarsson. 10.05 Miðmorgunssyrpa. Meðal efnis er létt og skemmti- leg getraun fyrir hlustendur á öllum aldri. Umsjón: Kristín Björg Þorsteins- dóttir. 12.00 Á hádegi. Dægurmálaútvarp með frétta- yfirUti kl. 12.00. Stefán Jón Hafstein flytur skýrslu um dægurmál og kynnir hlustendaþjónustuna, þáttinn „Leitað svars" og vettvang fyrir hlustendur með „orð í eyra". Simi hlustendaþjónustunnar er 693661. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Á milli mála. Gunnar Svanbergsson kynnir m.a. breiðskifu vikunnar, 16.03 Dagskrá. Dægurmálin tekin fyrir: Ævar Kjartansson, Guðrún Gunnars- dóttir og Stefán Jón Hafstein njóta aðstoðar fréttaritara heima og erlendis sem og útibúa Útvarpsins norðanlands, aust- an- og vestan-. IUugi Jökulsson gagnrýnir fjölmiðla og Gunn- laugur Johnson ræðir forheimsk- un iþróttanna. Andrea Jónsdótt- ir velur tórUistina. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Ferskir vindar. Umsjón: Skúli Helgason. 22.07 Næðingur. Umsjón: Rósa Guðný Þórsdóttir. 00.10 Næturvakt Útvarpsins. Gunnlaugur Sigfússon stendur vaktina tU morguns. Fréttir eru sagðar kl. 7, 7.30, 8, 8.30, 9, 10, 11, 12, 12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 19, 22 og 24. RJKISUIV/ AAKUl VARPKH t AKUREYRW Svæðisútvarp fyrir Akureyri og nágrenni. MÁNUDAGUR 18. janúar 8.07-8.30 og 18.03-19.00 Umsjón: Kristján Sigurjónsson og Margrét Blöndal. Mjóðbylgjan FM 101,8 MANUDAGUR 18. janúar 8.00-12.00 Morgunþáttur Hljód- bylgjunnar. Olga Björg Örvarsdóttir með rólega tónlist í morgunsárið, auk upplýsinga um veður, færð og flugsamgöngur. 12.00-13.00 Ókynnt tónlist. 13.00-17.00 Pálmi Guðmundsson og gömlu góðu uppáhaldslögin. Óskalög, kveðjur og hin sívin- sæla talnagetraun. 17.00-19.00 Síðdegi í lagi. Ómar Pétursson og íslensk tónlist. Róleg íslensk lög í fyrir- rúmi ásamt stuttu spjalli um daginn og veginn. 19.00-20.00 Ókynnt tónlist með kvöldmatnum. 20.00-24.00 Kvöldskammturinn. Marinó V. Marinósson skammt- ar tónlistina i réttum hlutföllum fyrir svefninn. Fréttir sagðar kl. 10.00,15.00, og 18.00. BYLGJAN, MANUDAGUR 18. janúar 07.00-09.00 Stefán Jökulsson og morgunbylgjan. Stefán kemur okkur réttum meg- in framúr með góðri morguntón- list, spjallar við gesti og litur í blöðin. 09.00-12.00 Páll Þorsteinsson á léttum nótum. Hressilegt morgunpopp gamalt og nýtt, getraunir, kveðjur og sitthvað fleira. 12.00-12.10 Fréttir. 12.10-15.00 Ásgeir Tómasson á hádegi. Létt tónlist, innlend sem erlend - vinsældalistapopp og gömlu lögin i réttum hlutföllum. Saga dagsins rakin kl. 13.30. 15.00-18.00 Pétur Steinn Guð- mundsson og síðdegisbylgjan. Pétur Steinn leggur áherslu á góða tónlist í lok vinnudagsins. Litið á vinsæidaiistana kl. 15.30. 18.00-19.00 Hallgrímur Thorsteins- son í Reykjavik siðdegis. Kvöldfréttatími Bylgjunnar. Hallgrímur lítur yfir fréttir dags- ins með fólkinu sem kemur við sögu. 19.00-21.00 Anna Björk Birgis- dóttir. Bylgjukvöldið hafið með tónlist og spjalli við hlustendur. 21.00-24.00 Þorsteinn Ásgeirs- son. Tónlist og spjall. 24.00-07.00 Næturvakt Bylgj- unnar.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.