Dagur - 18.01.1988, Page 15

Dagur - 18.01.1988, Page 15
flpwníipiwf-aaiff-’^ 2. janúar1988 ætíö var til nægjanlegt umræðu- efni og leikgleðin ætíð fyrir hendi. Trúi ég að margt spaklegt orðið hafi hrokkið af vörum okkar. Pannig liðu æskuárin full af gáska. Við nutum þeirra vel og ekki man ég að nein ágreinings- efni bæru á góma á þessum barn- æskuárum okkar Grants á Geld- ingsá. Við uxum úr grasi og leiðir okkar skildust þótt hvorugt okkar flytti um langan veg eins og geng- ur til í lífi hvers einstaklings. Þá fækkaði þeim stundum er við komum saman þar til þær hurfu með öllu, er búseta mín var ákveðin hér á Akureyri. Hann Einar J. Grant yfirgaf ekki sveit sína, en flutti frá æskuheimili sínu Geldingsá að Litla Hvammi með viðdvöl að Sólheimum um nokkra hríð. En Litli Hvammur varð hans bústað- ur öll hin síðustu ár. Þar stundaði hann fjárbúskap og réri til fiskjar út á fjörðinn á báti sínum. Einar J. Grant kvæntist ekki en lifði hljóðlátu lífi með fjárhópnum sínum alla tíð. Hann kvaddi þetta líf á jafn hljóðlátan hátt 2. janúar sl. Ég kveð þennan leikfélaga minn frá æskudögunum í þeirri trú, að vel hafi verið tekið á móti honum á landi ljóssins er hann lagði báti sínum þar í vör. Laufey Tryggvadóttir. Fæddur þann 21. september 1909 - Dáinn Þann 2. janúar sl. andaðist Einar Jóhann Grant, er heima átti að Litla Hvammi á Svalbarðsströnd. Mig langar að senda honum örfá kveðjuorð við fráfall hans. í æsku vorum við leikfélagar, því stutt var á milli heimila okkar Man ég góðar stundir í matarkist- unni hans frænda, berjamónum. Eða við fyrirdrátt framan við fjöruna hans. Þar fiskaðist oft vel. Einar var ætíð hress og skemmtilegur. Sá marga hluti frá öðrum sjónarhornum en flestir aðrir. Hann hafði áhuga á ólík- ustu málefnum, og skoðun á þeim. Góður sögumaður var hann og kunni sæg af vísum, svo tíminn flaug af stað í návist hans. Einar var vaskur til verka, var með afbrigðum harðger og aldrei man ég hann kveinka sér. Einu sinni laskaðist hann í fæti, og gat ekki gengið, öðruvísi en á hnjánum. Þannig sá hann um gegningarnar í fjárhúsunum og þó orðinn miðaldra. Vildi helst ekki þiggja hjálp. Andstætt var ef aðrir þurftu á hjálpandi hönd að halda. í vetur var hann afar lélegur til heilsu, treysti sér vart að heiman, þótt keyrður yrði dyra á milli. En er nábúinn þurfti á hjálp hans að halda settist hann á opna traktor- inn sinn, þrátt fyrir hríðarveður og veikindi, til að draga bíl. Þetta varð hans síðasta verk, varð örendur á vélinni. Einar fæddist á Blönduósi, fað- ir hans, Carl Einar Josefsen Grant, dó rétt á eftir. Móðir hans Kristjana Steinvör Halldórsdóttir flutti til Eyjafjarðar með þrjá syni. Einari kom hún í fóstur hjá Halldóri og Lilju á Geldingsá. Þar óx hann upp í góðu atlæti. Fór snemma að vinna fyrir sér, eins og þá var siður. Var á fiski- og síldarskipum. Hann keypti Sólheim 1950, hafði kindur og vann á Sláturhúsi Svalbarðs- strandar á haustin. Jöfnum hönd- um sótti hann sjóinn, á smá trillu. Seldi Sólheim 1961, keypti Hvamm og undi sér vel þar til æviloka. Blessuð sé minning þín föður- bróðir, ég hlakkaði alltaf til að hitta þig. Ásgeir Friðrik Grant. Meyjarhóls þar sem ég átti h'eima og Geldingsár er var heimili hans. Við vorum mjög samrýmd enda á líkum aldri. Leikir okkar voru mjög á sviði er þá þekktist, leikir með kindahorn og leggi og það sem því heyrði til á þeim tíma. Óhætt er að fullyrða, að leikgleðin var engu minni þá en nú með þessi leikföng er sauð- kindin lagði okkur til. Léttfætt hlupum við milli bæjanna, því Könnun á húsnæðis- þörf aldraðra Trúnaðarráð Dvalarheimilis aldraðra s.f. á Húsa- vík, hefur ákveðið að kanna áhuga aldraðra á frekari uppbyggingu íbúða á vegum félagsins, í formi „búseturéttaríbúða“ við Hvamm - heimili aldraðra, eða í öðru formi víðar á félagssvæðinu m.a. á Raufarhöfn. Þeir aldraðir sem eru í þörf fyrir sérhannað húsnæði og hafa áhuga á að vera með í næstu byggingar- áföngum á vegum félagsins, hafi samband við Hörð Arnórsson, forstöðumann Hvamms - heimilis aldr- aðra, fyrir 5. feb. n.k. í síma 4-18-90. Trúnaðarráð Dvalarheimilis aldraðra s.f. Húsavík. Minning: y Einar Jóhann Grant frá Hvammi á Svalbarðsströnd Vinnuvéla- námskeið sem veitir réttindi á þungavinnuvélar verður haldið á Akureyri, eftir miðjan febrúar ef næg þátttaka fæst. Upplýsingar og innritun hjá Vinnueftirliti rtkisins á Akur- eyri. sími 25868. Iðntæknistofnun. Sölumaður Við leitum að sölumanni til starfa hjá rótgrónu vaxandi heildsölufy rirtæki. Allar nánari upplýsingar á skrifstofunni. FELL hf. Kaupvangsstræti 4 -Akureyri - slmi 25455 Einingar- félagar Almennur félagsfundur verður Alþýðuhúsinu Skipagötu 14, þriðjudaginn 19. jan. kl. 20.30. Dagskrá: 1. Guðmundur J. Guðmundsson og Karvel Pálmason ræða kjaramálin. 2. Önnur mál. haldinn í Akureyri Stjórn Einingar. UTGERDARMENN ATH. Eigum á lager, flestar gerðir af teinaefnum frá Hampiðjunni (á Hampiðjuverði), netaflögg, línu- flögg, grásleppuflögg, baujustangir, baujuljós, línubala, ábót no 6, ábót no 7, víralása, blakkir, vatnsspennur, sjófatnað og flestar gerðir af vírum. Taiwan grásleppunet 101/2”-10 garn 790 kr. stgr. Japan grásleppunet 101/2”-10 garn 1010 kr. stgr. Japan grásleppunet 11 ”-12 garn 1367 kr. stgr. Netagerð Höfða hf. Húsavík sími 41999. RARIK RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS ÚTBOÐ Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftirfar- andi: RARIK 88002 raflínuvír 101 km. Opnunardagur: Þriðjudagur 16. febrúar 1988 kl. 14.00. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyriropnun- artíma og verða þau opnuð á sama stað að við- stöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með fimmtudeginum 14. janúar 1988 og kosta kr. 300,00 hvert eintak. Rafmagnsveitur ríkisins, Laugavegi 118,105 Reykjavík.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.