Dagur - 20.01.1988, Side 1
Filman þm
á skiliö þaö
besta1
Nýja Filmuhúsið
Hafnarstræti 106 Sími 27422 ■ Pósthólf 196
Hrað-
framköllun
Opið á
laugardögum
frá kl. 9-12.
Kannabisneysla
unglinga:
Ekki orðið
vart í
Dynheimum
í fyrsta tölublaði frétta- og
fræðslurits landlæknisembætt-
isins er sagt frá könnun sem
framkvæmd var á síðasta ári, á
vímuefnaneyslu unglinga. Þar
kemur m.a. fram, að á meðan
neysla kannabisefna hefur
dregist saman á Reykja-
víkursvæðinu, hefur hún auk-
ist nokkuð í öðrum lands-
hlutum.
í Degi fyrir skömmu var haft
eftir rannsóknariögreglunni á
Akureyri, að ekki væri mikið um
neyslu kannabisefna á Akureyri.
Anton Haraldsson, forstöðu-
maður Dynheima, sagði að þeir í
Dynheimum hefðu aldrei orðið
varir við, eða þurft að hafa
afskipti af unglingum vegna
neyslu kannabisefna. „Hér eru
ekki einu sinni reyktar sígarettur
í húsinu á þeim tímum sem ungl-
ingarnir eru á dansleikjum. Síga-
rettur hafa verið svo lítið vanda-
mál að við ákváðum að l'æra
reykingar út úr húsinu. Ég hef
ekki einu sinni heyrt um neyslu
kannabisefna meðal unglinga á
Akureyri,“ sagði Anton að
lokum. VG
Samræmdu prófln eru mörgu ungmenninu töluveröur höfuðverkur, en fleirum gengur þó vel en illa í þeim, sem betur fer. Myiuin
Samræmdu prófin:
Próftökum fjölgar um hundrað
Alls munu fímm hundruð
þrjátíu og átta nemendur á
Norðurlandi eystra gangast
- frá fyrra ári á Norðurlandi eystra
Reglugerð um úthafsrækjuveiðar:
Dalborgin sleppur
í „flokkinn“
Dalborgin frá Dalvík hélt
gærkvöld á rækjuveiðar. Um
tíma óttuðust menn að skipið,
sem gert hefur verið út á
úthafsrækju stóran hluta ársins
undanfarin ár, yrði útilokað
frá þeim vegna ákvæða reglu-
gerðar um stjórnun úthafs-
rækjuveiða. í fyrradag bárust
svo þau boð frá ráðuneyti að
skipinu væri heimilt að veiða
rækju vegna breytinga á reglu-
gerðinni.
„Ég er að sjálfsögðu ánægður
með þetta. Fyrir mér var málið
að vera ekki ýtt algerlega út úr
þessum veiðum. Ég var ekki að
fara fram á nein foréttindi hcldur
vildi bara fá að vera eins og
aðrir," sagði Snorri Snorrason
skipstjóri á Dalborginni í samtali
við Dag.
Vegna tafa sem urðu á viðgerð
Ijósavélar Dalborgarinnar fór
hún ekki á veiðar fyrr en f gær-
kvöld í stað þess að fara í fyrra-
dag, um leið og boðin frá ráðu-
neyti bárust.
Samkvæmt þeim drögum að
reglugerð sem fyrir lágu, þurftu
togarar að hafa verið með 50%
aflaverðmætis síns á árinu 1986
eða 1987 vegna rækjuveiða, til að
fá að veiða rækju á þessu ári. Að
sögn Gylfa Gauts Péturssonar í
sjávarútvegsráðuneytinu, varð sú
breyting á reglugerðinni að þessi
mörk voru lækkuð. Samkvæmt
þeim drögum sem lágu fyrir í gær
sleppur Dalborgin í flokk sérút-
búinna rækjuveiðiskipa. Ekki
fengust um það upplýsingar í gær
hvaða önnur skip fengju með
þessu móti heimild til rækju-
veiða. Hitt er ljóst, „kakan“
stækkaði ekki en var skipt í fleiri
parta.
Hversu mikið magn af rækju
Dalborginni verður heimilt að
veiða ræðst nokkuð af því hvort
valið er sóknarmark eða afla-
mark. f aflamarki fæst 500 tonna
rækjukvóti og möguleiki á að
„breyta" botnfiskkvóta, öðrum
en svokölluðum „meðafla", í
rækju. í sóknarmarki má skipið
vera 260 daga á veiðum, fær 900
tonna rækjuaflahámark, og 200
tonn af reiknuðum þorskígildum
í „meðafla.“ ET
undir samræmd próf í vor,
samkvæmt upplýsingum
Sigurðar Hallmarssonar,
fræðslustjóra. Samræmdu
prófín vcrða með sama eða
svipuðu sniði og á síðasta ári,
og kemur það fram í bréfí frá
skrifstofu samræmdra prófa í
Reykjavík. Prófin standa yfír
frá 25. til 28. apríl, að báðum
dögunum meðtöldum.
Á Akureyri munu tvö hundruð
sjötíu og sex nemendur gangast
undir prófið, að öllu forfalla-
lausu. Á Húsavík eru fimmtíu og
þrír nemendur í 9. bekk sem
gangast undir samræmd próf,
fjörutíu og einn á Laugum, fjöru-
tíu og tveir á Dalvík, tuttugu og
fimm á Ólafsfiröi, tuttugu og þrír
á Þelamörk, nítján á Hrafnagili,
átta á Grenivík, sextán á Stóru-
Tjörnum, sextán í Hafralækjar-
skóla, fimm á Raufarhöfn og átta
á Þórshöfn.
Á Akureyri skiptist fjöldi
nemenda, sem mun gangast und-
ir samræmd próf, á milli Gagn-
fræðaskóla Akureyrar og Glerár-
skóla. Við Gagnfræðaskólann
munu væntanlega eitt hundrað
áttatíu og sex ncmendur þreyta
prófin en níutíu og tveir nemendur
við Glerárskóla.
Hjá Menntamálaráðuneytinu
fengust þær upplýsingar að í fyrra
hefðu fjögur hundruð þrátíu og
átta nemendur á Norðurlandi
eystra tekiö samræmt próf í
íslensku, en við þá grein er oft
miöað þegar sá fjöldi nemenda í
samræmdum prófum er rciknað-
ur út. Próftökum fjölgar því um
eitt hundrað milli ára á Norður-
landi eystra, sem er í samræmi
við mannfjöldatölur mismunandi
árganga. EHB
Leigubílastríöið:
Málflutningur hafinn
- Kærandi er Bílstjórafélag Akureyrar
Málflutningur í lcigubílastríð-
inu á Akureyri hófst í gær.
Kærandinn er Bílstjórafélag
Akureyrar, ekki Bifreiðastöð
Oddeyrar, því stöðin er aðeins
þjónustuaðili fyrir félaga í Bíl-
stjórafélagi Akureyrar. Leigu-
Dalborgin hélt á rækjuveiðar í gærkvöld.
bílstjórar og sendibílstjórar
standa að því félagi og þeir
telja Glæsibíla sf. fara inn á
verksvið þeirra beggja.
Þessi deila kemur því BSO
ekkert við, strangt til tekið, held-
ur er hér um að ræða stéttarfélag
sem telur réttindalausa menn
ryðjast inn á verksvið sinna
félagsmanna. Félagið álítur að
Akureyrarbær hafi á sínum tíma
veitt því lögverndun til leigu- og
sendibílaaksturs.
Bifreiðastöð Oddeyrar tekur
þá bifreiðarstjóra sem hafa
atvinnuleyfi sem gefin eru út af
samgöngumálaráðuneytinu upp á
sína arma. Leyfin eru bundin við
hvern bílstjóra, ekki stöðina, og
þegar bílstjóri hættir störfum er
leyfinu skiiað til Bílstjórafélags
Akureyrar.
Bílstjórar Glæsibíla sf. hafa
ekki leyfi til leigu- eða sendibíla-
tiksturs á Akureyri. Fyrirtækið er
skráð í Glæsibæjarhreppi en Bíl-
stjórarfélag Akureyrar ásakar
Glæsibíla um að ryðjast inn á
lögverndað starfssvið sitt á Akur-
eyri og kærði því fyrirtækið.
Sem fyrr segir er málflutningur
hafinn í þessu kærumáli. Bíl-
stjórafélag Akureyrar fór frarn á
að sett yrði lögbann á Glæsibíla
og verður fróðlegt að fylgjast
með framvindu málsins, fógeti
hefur 3 vikur til að taka afstöðu
til lögbannskröfunnar.
Töluverður hiti er í mönnum
sem þarna eiga hagsmuna að
gæta. Matthías Gestsson hjá
Glæsibílum sf. sagðist í gær vera
óánægður með það að gagnkæra
Glæsibíla sf. hefði verið sett í
salt, taldi þetta sýna að málsaðil-
ar væru ekki jafnir fyrir lögum.
SS