Dagur - 20.01.1988, Page 8
8 - DAGUR - 20. janúar 1988
Ríkisútvarpið var stofnað árið 1930
í kjölfar laga sem veittu ríkinu
einkarétt til slíks reksturs. En þess-
um lögum hefur nú verið breytt og
nú eru starfandi nokkrar einkaút-
varpsstöðvar og ein einkasjónvarps-
stöð. Ríkisútvarpið gegnir þó enn
mikilvægu hlutverki á fjölmiðlasviði
þjóðarinnar. Enn eru nokkur svæði
á landinu sem einungis ná sending-
um ríkisútvarpsins og þar að auki
gegnir gamla gufan mikilvægu hlut-
verki í fréttaflutningi, hvar sem er á
landinu.
Hlutverk Ríkisútvarpsins er skil-
greint í útvarpslögunum, en þar
segir að það skuli leggja rækt við
íslenska tungu, sögu þjóðarinnar og
menningararfleifð. Því er einnig
ætlað að halda í heiðri lýðræðisleg-
ar grundvallarreglur og mannrétt-
indi og frelsi til orðs og skoðana og
gæta fyllstu óhlutdrægni í frásögn,
túlkun og dagskrárgerð. Því er ætl-
að veita almenna fréttaþjónustu og
vera vettvangur fyrir mismunandi
skoðanir, og efni skal miðað við
fjölbreytni íslensk þjóðlífs.
Lengst af starfaði Ríkisútvarpið
við Skúlagötuna, en árið 1986 flutti
það í nýtt húsnæði við Efstaleiti í
Reykjavík. Þar fer nú flest starf-
semi útvarpsins fram og innan
tveggja ára mun Sjónvarpið einnig
flytja höfuðstöðvar sínar þangað.
Blaðamanni Dags lék forvitni á að
vita hvernig vinnuaðstaðan og allar
aðrar aðstæður væru þarna við
Efstaleitið. Við hringdum því í
Dóru Ingvadóttur hjá útvarpinu og
hún sagði að það væri ekki nema
sjálfsagt að við mættum líta inn og
berja nýju húsakynnin augum.
Útvarpshúsið.
Eftir að hafa gefið sig fram við
Dóru Ingvadóttur þá var
blaöamaður fyrst fræddur
almennt um starfsemi stofnun-
arinnar. Dóra dældi bækl-
ingunum í skjóðu blaðamanns-
ins með þeim orðum að betra
væri að vera með of mikið en
of lítið. Eftir að þessu lauk
hófst hin eiginlega kynnisferð
blaðamannsins um þetta glæsi-
lega hús.
Eftir að hafa litið augum upp-
tökuherbergin sex á jarðhæð
hússins og smellt mynd af f’óri
Steingrímssyni tæknimanni, þar
sem hann var á fullu að taka upp
þáttinn Hin gömlu kynni með
Hermanni Ragnari Stefánssyni,
þá var ferðinni heitið inn í Safna-
deildina svoköiluðu. Par yfirgaf
Dóra blaðamanninn og við
stjórninni tók Elín Kristinsdóttir
deildarstjóri Safnadeildarinnar.
Að sögn Elínar þá er safna-
deildin einstök í sinni röð hér á
landi. Til hennar teljast ekki ein-
ungis allar plötur og snældur
Ríkisútvarpsins, heldur einnig
allar bækur, skjöl og nú nýlega
bættust geisladiskarnir í hópinn.
Par að auki fellur allt filmusafn
sjónvarpsins undir deildina.
Elín er bókasafnsfræðingur að
mennt og hefur starfað hjá stofn-
uninni síðan árið 1983. Sagði hún
að mikil vinna lægi að baki
endurskipulagningar safnsins og
enn væri mikið verk óunnið.
Plötusafn útvarpsins er um 50
þúsund plötur og er það allt
vandlega skráð og geymt í kjall-
ara nýbyggingarinnar. Síðasta
árið hafa hins vegar næstum ein-
göngu verið keyptir geisladiskar
og að sögn Elínar má búast við
að í kringum 1990 verði þeir
orðnir allsráðandi á markaðin-
um.
Ríkisútvarpið á töluvert af
bókum og að sögn Elínar á enn
eftir að skipuleggja það safn
betur. Útlánin úr Safnadeildinni
eru mjög mikil og sagði Elín að
því mætti líkja við þann fjölda
titla sem væri lánaður á venju-
legu almenningsbókasafni úti á
landi. Umsvif safnsins munu enn
aukast þegar sjónvarpið flytur í
Útvarpshúsið, því þá kemur allt
filmu- og myndbandasafn sjón-
varpsins í hlut þeirra Safnadeild-
armanna.
í Safnadeildinni starfa nú átta
manns auk Elínar. Af þeim
fjölda eru þrír lærðir bókasafns-
fræðingar.
Öflug tónlistardeild
Eftir að hafa skoðað nægju sína
tiplaði blaðamaðurinn yfir í tón-
„Dægurmáladeðdffl
er aðtaf í þróun“
- segir Stefán Jón Hafstein
yfirmaður deildarinnar
Er blaðamaður læddist léttur á
fæti niður í kjallara útvarps-
hússins, þar sem dægurmála-
deildin nýstofnaða á sér grið-
arstað, datt hann í lukkupott-
inn. Þar hitti hann nefnilega að
máli yfirmann deildarinnar
Stefán Jón Hafstein þar sem
hann, ásamt þeim Ævari
Kjartanssyni og Guðrúnu
Gunnarsdóttur, var í óðaönnn
að undirbúa síðdegisþátt dæg-
urmálaútvarpsins.
Það gladdi hjarta blaðamanns-
ins einstaklega þegar hann sá á
borðinu hjá þeim skötujúunum
nýjasta eintakið af DEGI. Að
sjálfsögðu flýtti hann sér að taka
mynd af þeim þremur ásamt
blaðinu okkar og ef myndin
prentast vel sést hve nálægt blað-
ið er kjarna umræðunnar! Pað
skal tekið fram að það er ekkert
plat í þessu og var blaðinu ekki
stillt þarna upp. Hinsvegar verð-
ur að viðurkennast að innsiglið
var enn órofið enda sögðust þau
ekki hafa haft tíma til að lesa
blaðið!
- Fyrsta spurningin sem við
lögðum fyrir þau þrjú var hvort
þau hefðu fengið mikla svörun
vegna efnis dægurmálaútvarps-
ins.
Pau litu á hvort annað, hnykl-
uðu brýnnar og að iokum var það
Guðrún sem tók af skarið og
sagði; „Já, ég held að þættir eins
og Meinhornið hafi sýnt það og
sannað að fólk fylgist með því