Dagur - 20.01.1988, Blaðsíða 10
ÍaftttWií m
Leikritin hefðu verið flutt af
fimmtudagskvöldum til að lenda
ekki í samkeppni við sjónvarpið.
Leikrit koma venjulega vel út úr
hlustendakönnunum og sýna þær
að fólk hlustar yfirleitt á þessi
leikrit.
Jón Viðar sagði að aðstaðan í
nýja húsinu væri til fyrirmyndar.
Þar væri t.d. að finna fullkomið
leiklistarstúdíó. Þar eru flest öll
leikritin tekin upp og hefur öll
aðstaða til vinnslu útvarpsleikrita
stórbatnað með tilkomu þess.
„Það er von mín að við getum
fengið fleiri höfunda til þess að
skrifa fyrir útvarp,“ sagði Jón
Viðar. „Bretar og Þjóðverjar
búa við gamla útvarpsleikritunar-
hefð og má t.d. benda á að Har-
old Pinter og Berthold Brecht
hafa báðir skrifað mikið fyrir
útvarp. Pinter hóf reyndar feril
sem leikritahöfundur hjá BBC.
Útvarpið er mjög heillandi miðill
fyrir höfunda að spreyta sig við
og ég vona að við íslendingar eig-
um eftir að eignast okkar eigin
hefð í útvarpsleikritun,“ sagði
Jón Viðar Jónsson leiklistarstjóri
að lokum.
Fréttirnar tölvuvæddar
Nú var farið að líða að lokum
þessarar heimsóknar blaða-
mannsins í nýja útvarpshúsið og
oftast geymir maður það besta
þar til seinast. Það var einnig svo
í þetta skiptið er fréttastofa
útvarpsins var heimsótt. Þar var
leiðangursstjóri Friðrik Páll Jóns-
son aðstoðarfréttastjóri.
Á fréttadeildinn starfa nú 20
manns enda frá mörgu að segja.
Eins og á flestum öðrum stöðum
í þjóðfélaginu hefur tölvan hald-
ið innreið sína á fréttastofu
útvarpsins. Nú eru gömlu telex-
tækin hætt að spýta út út sér frétt-
um allan sólarhringin, heldur eru
hljóðlátar tölvurnar farnar að
geyma þessa vitneskju í innyflun-
um, þægar og rólegar. Frekar
rólegt var þennan mánudags-
morgun á fréttastofunni og
greinilegt að fólk var enn að
jafna sig eftir áramótin. Broddi
Broddason og Þorvaldur Friðriks-
son fréttamenn voru þó af kappi
að undirbúa sig undir hádegis-
fréttatímann. Þeir sátu ábúða-
fullir fyrir framan tölvuskjáinn og
ýttu á óteljandi takka til að lokka
vélina til að spúa fram heims-
fréttunum.
Eftir að hafa fylgst með þeim í
nokkurn tíma héldum við inn í
stúdíóið og var þar tæknimað-
ur í óðaönn að taka á móti
fréttapistli frá Stefáni Jóni
Stefánssyni í Svíþjóð. Eitthvað
var sambandið lélegt og þurfti
því Stefán að endurtaka lest-
urinn í nokkur skipti. Að sögn
Friðriks er Ríkisútvarpið með þó
nokkuð að fréttariturum erlendis
og eru flestir þeirra námsmenn
sem drýgja tekjurnar með því að
send fréttir heim. Sagði Friðrik
þetta ódýra þjónustu og gæfi
þetta erlendum fréttum meira líf,
en ef þær væru einungis unnar
upp úr fréttaskeytum eða erlend-
um blöðum.
Nú var komið að lokum þess-
arar heimsóknar og það var
ánægður blaðamaður sem hélt út
í vetrarkuldann fyrir utan Efsta-
leitið. Gestrisni útvarpsmanna
var til fyrirmyndar og greinilegt
að þeim var ummunað að vel yrði
sagt frá stofnun sinni. Mikið og
merkt starf er unnið innan veggja
Ríkisútvarpsins og á þessum tím-
um frjálsrar fjölmiðlunar er ekki
síður mikilvægt en áður að hlúa
að starfsemi þessarar merku
stofnunar. AP
Elín Kristinsdóttir deildarstjóri
Safnadeildar.
Þórir Steingrímsson tæknimaður.
Bjóðum fullkomna viðgerðarþjónustu á sjón-
varpstækjum, útvarpstækjum, steríomögnur-
um, plötuspllurum, segulbandstækjum, bíl-
tækjum, talstöðvum, fiskileitartækjum og sigl-
ingartækjum.
ísetning á bíltækjum.
Slmi (96) 23626 Glerárgotu 32 Akureyri
1 rjfwfiw //t/sfffj
JJj ÁHHITA WJ
ARABIA
Hreinlætistæki
mn
Verslið vib
fagmann.
DRAUPNISGÖTU 2 AKUREYRI
SÍMI (96)22360
Borgarbíó
Miðvikud. 20. janúar
kl. 9.00 Glaumgosinn
kl. 9.10 Beverly Hils Cop
kl. 11.00 Robo Cop
kl. 11.10 Beverly Hils Cop
Leikstjóri Borgar Garðarsson.
Leikmynd Örn Ingi Gíslason.
Lýsing Ingvar Björnsson.
Tónlist Jón Hlöðver Áskelsson.
Föstud. 22. jan. kl. 20.30.
Laugard. 23. jah. kl. 20.30.
Sunnud. 24. jan. kl. 16.00.
Athugið breyttan sýningartíma.
Forsala aðgöngumiða hafin.
■■■■
V/SA
——I
# Æ MIÐASALA
Bm ÆU simi
& 96-24073
Leikfglag akureyrar
□ RÚN 59881207 -1 ATKV.FRL.
I.O.O.F. 2 = 1691228'/2 =
Frá Sálarrannsóknarfélagi Akur-
eyrar.
Almennur félagsfundur verður
haldinn laúgardaginn 23. jariúar
kl. 16.00 í sal Kaupfélagsins Við
Kaupvangsstræti (efstu hæð'j.
Nýir félagar velkomnir.
Stjórnin.
I.O.G.T. bingó að
Hótel Varðborg föstu-
daginn 22. þ.m. kl.
20.30.
Vinningar: Kjötskrokkur, mat-
vara, búsáhöld og fleira og fleira.
I.O.G.T. Bingó.
Fclagsvist - Félagsvist.
Félag aldraðra minnir á
spilakvöldið fimmtu-
daginn 21. janúar kl.
20.30 í Húsi aldraðra.
Góð kvöldverðlaun.
Allir velkomnir meðan húsrúm
leyfir.
Spilanefndin.
Náttúrugripasafnið á Akureyri.
Sýningarsalurinn er opinn á
sunnudögum kl. 1-3.
Opnað fyrir hópa á öðrum tímum
eftir samkomulagi í síma 22983
eða 27395.
Glerárprestakall.
Sóknarprestur Pálmi Matthíasson
er fjarverandi til 1. febrúar. Séra
Pétur Þórarinsson á Möðruvöllum
gegnir þjónustu og er fólk beðið
að snúa sér til hans.
Sími hans er 21963.
Er með viðtalstíma
fimmtudaginn 21. janúar kl. 16-18
að Gránufélagsgötu 4, 3. hæð.
Málmfríður Sigurðardóttir
Sími 27208.
-----------------
Akureyringar
Rabbfundur með Kvennalistanum á Uppanum
miðvikudaginn 20. janúar kl. 21.00.
Málmfríður Sigurðardóttir mætir á fundinn.