Dagur - 08.02.1988, Blaðsíða 2

Dagur - 08.02.1988, Blaðsíða 2
2 - Q^xayR,.- 8.,f€brúai:rj:98a Innflutningur loðdýra til kynbóta nauðsynlegur - Þingsályktunartillaga frá Elínu R. Líndal og Valgerði Sverrisdóttur þingmönnum Framsóknarflokksins Elín R. Líndal og Valgerður Sverrisdóttir þingmenn Fram- sóknarflokksins hafa lagt fram þingsályktunartillögu um inn- flutning loðdýra til kynbóta. Tillagan gerir gerir ráð fyrir að Alþingi feli landbúnaðarráð- herra að hefja þegar undirbún- ing að árlegum innflutningi kynbótadýra til loðdýraræktar. í greinargerð með frumvarpinu segir að vöxtur loðdýraræktar hafi verið mikill hér á landi frá árinu 1980. í ársbyrjun 1987 voru um 220 loðdýrabú starfrækt í landinu. Um síðustu áramót Á fundi Öldrunarráðs Akur- eyrar frá 18. janúar kemur fram tillaga um að öldrunarráð samþykki að skipa tvo fulltrúa ráðsins í starfshóp, er vinni að alhliða starfslýsingu og stefnu- mótun öldrunarþjónustu á Akureyri. Félagsmálaráð bæjarins skipi einnig tvo full- trúa i þennan fjögurra manna starfshóp. í tillögunni segir, að hraða skuli verkinu eftir föngum, og fyrstu drög að stefnumótun og fjölgaði þeim um nálægt 60. Aætlað er að fjárfesting í loðdýra- rækt sé orðin um 1,3-1,4 millj- arðar króna. Framleiðslutekjur þessa árs eru áætlaðar 450-500 miljónir króna á núverandi verðlagi. Loð- dýraræktin er mjög gjaldeyris- skapandi. Afgangshráefni frá fisk- og kjötframleiðslu er breytt í þarfan gjaldeyri. Á þessu ári má ætla að notkun fiskúrgangs verði 15-16 þúsund tonn og sláturúr- gangs 1500-2000 tonn. Loðdýraræktin skapar mikla atvinnu í hinum dreifðu byggðum og er ekki fjarri lagi að ætla að starflýsingu í öldrunarmálum verði lögð fyrir sameiginlegan fund öldrunar- og félagsmálaráðs fyrir lok mars-mánaðar. Á fundi Bæjarráðs Akureyrar 4. febrúar var samþykkt tillaga um tilnefningu fulltrúa í starfs- hópinn frá félagsmálaráði, en það eru Guðrún Sigbjörnsdóttir og Sigríður Stefánsdóttir. Öldr- unarráð mun tilnefna fulltrúa sína á morgun, þriðjudag. „Mér finnst mjög gott að þessi starfshópur skuli nú vera í þann um 300 ársverk séu bundin í loð- dýrarækt samanlagt (uppbygging meðtalin). Til að geta stundað samkeppn- ishæfa loðdýrarækt má tilkostn- aður ekki vera hærri hér en gerist í helstu samkeppnislöndunum. Með aðgerðum hins opinbera undanfarin ár hefur ýmsum kostnaðarþáttum verið komið niður í viðunandi horf, t.d. með eftirgjöf eða niðurfellingu aðflutn- ingsgjalda og söluskatts. Bygg- ingar eru þó dýrari hér en vfðast hvar annars staðar, en þær má afskrifa á eitthvað lengri tíma en tíðkast með þau skýli sem notuð veginn að hefja störf, en að vísu hefði þurft að gera þetta fyrr. Ég lýsi ánægju minni með þessa til- lögu, og að hún hefur hlotið góð- ar undirtektir bæði hjá félags- málaráði og öldrunarráði. Málefni aldraðra koma bæði til kasta öldrunar- og félagsmála- ráðs, og því er eðlilegt að full- trúar beggja ráðanna fjalli um framtíð öldrunarþjónustu á Akureyri," sagði Úlfhildur Rögnvaldsdóttir, bæjarfulltrúi, en hún á sæti í öldrunarráði. EHB eru erlendis. Að sama skapi þurfa tekjur af loðdýrarækt að geta verið sambærilegár við það sem þekkist í helstu loðdýrarækt- arlöndum. Til að svo megi vera þarf að stunda loðdýrarækt af kunnáttu. Því er rannsókna- og leiðbeiningastarf greininni mikil- vægt. Þegar næg kunnátta í meðferð dýranna er fyrir hendi markast afkoma loðdýrabúa einkum af þremur þáttum: Frjósemi bú- stofnsins, fóðurverði og síðast en ekki síst af gæðum fr.amleiðsl- unnar, Það er loðdýraræktirfni því afar mikilvægt að eiga kost á úrvalsdýrum til að geta framleitt þá gæðavöru sem er samkeppnis- hæf og eftirsótt. í minkaræktinni er svarta litar- afbrigðið uppistaðan í fram- leiðslu íslendinga. Til saman- burðar við framleiðslu Dana á sama litarafbrigði er staðan þessi miðað við sl. ár: Meðaltal danskra skinna fær gæðastuðul- inn 100. Hæsta danska búið fær 132 fyrir gæði sinna skinna. Á sama tíma var hæsta íslenska búið verulega fyrir neðan danskt meðalbú eða með gæðastuðulinn 85, og íslenska meðaltalið var 76. Öflugt kynbótastarf er því mikil- vægt og innflutningur loðdýra nauðsynlegur, sérstaklega á með- an vöxtur búgreinarinnar er svo mikill sem raun ber vitni. Eink- um er þörfin inikil fyrir innflutn- ing minka á næstu árum en minni í refarækt vegna samdráttar í henni og þess að í refaræktinni nýtast kynbótadýrin betur með tilkomu sæðinganna. Nauðsyn- legt er að geta flutt árlega inn minka næstu árin til að bæta Valgerður Sverrisdóttir. Elín Líndal. stofninn og til að svara eftirspurn vegna væntanlegrar aukningar í greininni. Sóttkvíarbú fyrir um 200 minkalæður hefur verið byggt upp á Möðruvöllum í Hörgárdal. Það eitt nægir ekki eins og sakir standa, Nauðsynlegt er að eiga kost á að flytja inn fleiri dýr á næstu árum. Til þess þarf að byggja upp aðstöðu á sér- stökum sóttkvíarbúum. Einnig kemur til greina að koma upp sóttkví á völdum búum hjá bænd- um meðan þörfin er mest. Erfitt er að áætla þörfina en hún er mjög mikil. Brýnt er að flytja inn verulegan fjölda dýra á næstu tveimur til þremur árum. Þegar fram í sækir og stofninn er kominn í meira jafnvægi ætti að nægja að flytja inn 200-300 minkalæður árlega. Til þess að svo megi verða þarf a.m.k. tvö sóttkvíarbú því að sóttkví tekur allt að tveimur árum. AP Akureyri: Stefnumótun og alhliða starfslýsing öldrunarþjónustu viðtal dagsins Kaupangskirkja tekur stakkaskiptum - Stefán Bjarnason segir frá framkvæmdum Alltaf er virðingarvert að heyra af því þegar fámennar kirkjusóknir í sveitum taka sér fyrir hendur stórverkefni. Kaupangssókn í Eyjafirði er um 150 manna sókn sem nú stendur í endurbótum á kirkj- unni sinni, Kaupangskirkju. Stefán Bjarnason úrsmiður er í byggingarnefnd sóknarinnar og fengum við hann til að segja okkur nánar frá því starfi sem verið er að vinna. Kaupangskirkja var byggð af Sveinbirni Jónssyni árið 1922 og varð því 65 ára á síðasta ári. Það var hinn kunni arkitekt Guðjón Samúelsson sem teiknaði þessa fallegu kirkju. - Hvers vegna var farið út í þessar endurbætur? „í fyrra sumar var skipað í byggingarnefnd en í henni sitja með mér, Aðalsteinn V. Júlíus- son og Stefán Steinþórsson. Framkvæmdir hófust síðan með haustinu og hafa þær gengið Stefán Bjarnason, sem sæti á í bygg- ingarncfnd. Mynd: ÁP rólega en örugglega og allt í sjálf- boðavinnu. Kirkjan lá undir skemmdum. Gólfið var ónýtt sakir frostskemmda og var það allt brotið upp og mokað út. Ég held að áður hafi eina viðhald kirkjunnar verið að hún var mál- uð og e.t.v. eitthvað lagað gólfið. Það var ekkert frosthelt efni und- ir gólfinu svo þegar fraus bólgn- aði það allt upp, brotnaði og varð því allt mishæðótt. Nú hefur ver- ið steypt og lögð í það hitaveitu- lögn og ný útihurð hefur verið smíðuð sem sett verður í næstu daga. Næst þarf að leggja á gólfið eitthvað fallegt hvort sem það verður viður eða steinflísar. Fljótlega verður hafist handa við að smíða nýja bekki en þeir gömlu voru lélegir og sömuleið- is var of þröngt í kirkjunni. Nú það þarf að mála bæði að innan sem utan og gera við þakið því húsið lekur. „Það má segja að þurft hafi að endurbyggja kirkj- una, svo mikið þarf að gera. Ekki má svo gleyma að allt sem gert hefur verið hefur verið unnið í sjálfboðavinnu og er ekki að efa að við það hafa sparast tugir eða hundruð þúsunda. Fjárhagsáætl- un hjá okkur hljóðar upp á Kaupangskirkja, byggð 1922. 1.479.100 krónur svo öll aðstoð, hvort sem eru fjárframlög eða vinna er vel þegin.“ - Er gott að fá fólk til að vinna? „Já, menn hafa verið duglegir að mæta og hjálpa til svona yfir- leitt. Nú er að vísu orðið fámennt á flestum bæjum og flestir í vinnu. Nú þurfum við að leita til sveitunganna um fjárframlög og mega þeir búast við að bankað verði upp hjá þeim á næstunni. Vonandi geti sem flestir látið eitthvað af hendi rakna til þessa starfs." Mynd: TLV - Að lokum, er gott að búa í þessari sveit? „Já það er fínt að búa í sveit- inni og prýðisfólk þar. í Eyjafirð- inum eru margar litlar sóknir og er félagslíf t.d. í Öngulsstaða- hreppi alveg frábært. Þarna býr töluvert af ungu fólki og allt á uppleið. Svo vil ég bara hvetja sveit- unga mína og aðra velunnara til að bregðast vel við og styrkja okkur. Framlög má leggja inn á sparisjóðsreikning í Búnaðar- bankanum nr. 239514 og reikning Kaupangskirkju hjá KEA.“ VG

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.