Dagur - 08.02.1988, Síða 8

Dagur - 08.02.1988, Síða 8
8 - DAGUR - 8. febrúar 1988 íþróttir f Handbolti 1. deild: Þór skoraði ekki mark fyrstu 16 mín. Það er víst flestum greiði gerð- ur með því að segja sem minnst frá þessum leik. Þór skoraði ekki mark fyrstu 16 mínútur leiksins og hafði þá m.a. klúðrað tveimur vítaköst- um. Þeir náðu að vísu að klóra í bakkann fyrir leikhlé með því að skora 5 mörk í röð. í seinni hálfleik datt síðan allur botn úr leik liðsins og röðuðu ÍR-ingar þá inn mörkum og endaði því leikurinn með stór- sigri þeirra 27:14. Erfitt er að útskýra þetta al- gjöra hrun í leik Þórsliðsins, að vísu vantaði Sigurð Pálsson sem var í leikbanni en það eru leik- menn sem eiga að geta tekið stöðu hans. Það var einungis á tímabili í fyrri hálfleik sem liðið lék ágætlega, en þess á milli datt spilið algjörlega niður. ÍR er með ungt stemmningslið og náðu þeir upp góðum baráttu- anda strax í byrjun leiksins. Hrafn Margeirsson átti stór- leik í markinu og einnig Hall- grímur Jónasson, þegar hann kom í markið í seinni hálfleik. Samtals vörðu markmennirnir tveir tæplega tuttugu skot, sum þeirra að vísu úr vonlausum skot- um Þórsara. Eini maðurinn sem gat eitt- hvað í Þórsliðinu var Hermann Karlsson markvörður og varði hann vel þann tíma sem hann var í markinu. Kristján Kristjánsson stóð sig einnig þokkalega þegar hann kom inn á í seinni hálfleik og á tímabili sáu ÍR-ingar sig til- neydda til að taka hann úr umferð! Sigurpáll var ágætur í fyrri hálfleik, en gerði mikið af mistökum í seinni hálfleik eins og reyndar flestir aðrir leikmenn Þórsliðsins. Mörk Þórs: Sigurpáll 6/3, Kristinn Hreinsson 2, Jóhann Samúelsson 2, Gunnar Gunnars- son 2, Kristján Kristjánsson 1, Ólafur Hilmarsson 1. Mörk ÍR: Ólafur Gylfason 8/3, Róbert Rafnsson 4, Sigfús J. Bollason 4, Þröstur Guðlaugsson 4, Matthías Matthíasson 3, Bjarni Bessason 3, Finnur B. Jóhannsson 1. AP Haukui Björn Sveinsson Þórsari reynir körfuskot í leiknum gegn UMFG á föstudagskvöld. Mynd: tlv Þórsarar steinlágu fyrir Grindvíkingum - UMFG sigraði Þór 93:68 Þórsarar náðu ekki að hrista af sér slenið er þeir mættu Grindvíkingum á föstudagskvöld í úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Leiknum sem fram fór í íþróttahöllinni á Akureyri, lauk með öruggum sigri Grindvíkinga, 93:68. Þórsarar sýndu lélegan leik og er eins og að leikmenn liðsins hafa ekki trú á því sem þeir eru að gera. Grindvíkingar mættu ákveðnir til leiks og ætluðu sér greinilega ekkert annað en sigur í þessum leik. Þórsarar áttu í hinu mesta basli með finna leiðina í körfu andstæðinganna og fyrstu 11 mín. leiksins var það aðeins Konráð Óskarsson sem skoraði stig fyrir Þór. Hann skoraði þau 11 stig sem liðið gerði á þeim tíma og voru 9 þeirra skoruð með þriggja stiga körfum. Konráði tókst hins vegar aðeins að bæta við einni körfu til viðbótar það sem eftir Iifði leiksins, þrátt fyrir fjölmargar til- raunir. Grindvíkingar náðu yfirhöndinni strax í byrjun og skoruðu 21 stig á móti 11 stigum Þórsara í byrjun og í hálfleik var enn 10 stiga munur, 34:24. í síðari hálfleik bættu Grindvíkingar enn við og eftir 5 mín. var munurinn orð- inn 20 stig, 51:31. Fimm mín. fyrir leiks- lok var munurinn enn 20 stig, 72:52 en í lokin var hann orðinn 25 stig, 93:68. Guðmundur Bragason landsliðsmaður þeirra Grindvíkinga lék mjög vel að þessu sinni og þá sérstaklega í seinni hálfleik en þá skoraði hann 23 stig. Hjá Þór var Bjarni Össurarson skástur en aðrir léku langt undir getu. Stig UMFG: Guðmundur Bragason 29, Sveinbjörn Sigurðsson 16, Jón Páll Hall- dórsson 10, Ingi Þór Helgason 10, Hjálm- ar Hallgrímsson 10, Rúnar Árnason 7, Eyjólfur Guðlaugsson 6, Dagbjartur Will- ardsson 3, Óli Björn Björgvinsson 2. StigÞórs: Konráð Óskarsson 14, Bjarni Össurarson 13, Eiríkur Sigurðsson 11, Guðmundur Björnsson 11, Ágúst Guð- mundsson 8, Jón Már Héðinsson 4, Björn Sveinsson 3, Jóhann Sigurðsson 2 og Ein- ar Karlsson 2. Sigurður Valur Halldórsson og Bergur Þór Steingrímsson dæmdu leikinn þokka- lega. Haukur Eiríksson á fullri ferð í Visa-bikarmótinu á laugardag. Hann sigraði tvöfalt um helgina. Mynd: tlv Þátttakendur í FN-mótinu í skíðagöngu sem fram fór í Kjarnaskógi í gær. Mynd: TLV Fyrsta Visa-bikarmótið í göngu á þessu keppnistímabili fór fram í Hlíðarfjalli á laugar- dag. Keppt var í þremur flokk- um karla og einum flokki kvenna og var gengið með hefðbundinni aðferð. Þá átti að fara fram FN punktamót í göngu í fjallinu en það mót varð að færa í Kjarnaskóg vegna slæmra veðurskilyrða. I FN-mótinu var keppt í sömu flokkum en gengið var með frjálsri aðferð. Haukur Eiríksson frá Akureyri sigraði í flokki karla í báðum mótunum og Hulda Magnúsdótt- Sigurvegarar í flokki stúlkna á FN-nn ardóttir. Sigurvegarar í flokki drengja 13-14 ára

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.