Dagur - 12.02.1988, Síða 11
12. féferúar’i'9'8'8 — tJAGÚR — 11
Hallfreður
Örgumleiðason:
Lj ósabekkjabrú n i r strákl-
ingar í sundskýlum"
þessíim afmælispistli lokið og
vona bara að Dagur bjóði mér í
afmælið.
Annað mál verður eflaust í
deiglunni á Akureyri um helgina,
nefnilega fegurðarsamkeppni
karla. Heyr á endemi! Ég tek
þessa keppni sem persónulega
móðgun og raunar ntóðgun við
karlkynið eins og það leggur sig.
Aldrei hef ég haft nokkuð við
kroppasýningar kvenna að
athuga, enda eru þær kynverur
og lifa og hrærast sem slíkar. Það
er hins vegar hneisa að karlmenn
skuli láta hafa sig út í slíkt og get
ég ómögulega viðurkennt að
sminkaðir, gulbrúnir, kolgeit-
karlmenn séu af sama stofni og
ég-
Vissulega gæti verið gaman að
sjá þennan skandal. Eins og allir
vita fer fegurðarsamkeppni
kvenna frant á þann hátt að fyrst
koma þær fram íklæddar
aðskornum sundbolum og háhæl-
uðurn skóm og síðan dilla þær sér
í kynæsandi kvöldkjólum. Þessi
kvenkarlafegurðarsamkeppni á
víst að fara frarn á hliðstæðan
hátt. Þá munu þeir fyrst koma
fram í sundfatnaði og mikið rosa-
lega held ég að það verði fyndið
að sjá ljósabekkjabrúna strákl-
ingana í hvítum sundskýlum,
svörtum sokkum og lakkskónt.
Ég lifi ekki þá hugsun til enda.
Auðvitað verða þeir að vera í
spariskónum við sundskýlurnar,
alveg eins og kvenfólkið í spari-
skóm og sundbol, og þá eru
svörtu sokkarnir ómissandi til að
kóróna hlálegheitin.
Blessaðir stráklingarnir. Fjórir
þeirra koma frá Akureyri og þrír
frá suðvesturhorninu. Mér skilst
að ekki hafi verið valið í þessa
keppni þannig að þessir drengir
hafa látið skrá sig sjálfviljugir,
handvissir um eigið ágæti, en
þeirra á meðal er einn alkunnur
dillibossi að sunnan. Já, ég ætla
sko sannarlega að mæta á staðinn
og upplifa herligheitin. Kannski
gantast ég dálítið, ef þannig ligg-
ur á mér, svipti mig klæðum og
slæst í hópinn á nærbuxunum og
tek þátt í keppninni sem leyni-
vopn Akureyringa. Þá held ég að
það færi kliður um salinn, maður
lifandi!
Jæja, ég veit að það er ekki
fallegt að láta svona og samræm-
ist ekki því untburðarlyndi sem
ég segist alltaf vera þekktur fyrir.
Samt skil ég ekki tilganginn með
þessu brölti. Sjö, sjálfselsk
strákrassgöt geta varla haft neitt
til brunns að bera sem réttlætir
það að einhver þeirra verði
krýndur Herra ísland. Þetta er
auðvitað mín persónulega skoð-
un og það kæmi mér ekki á óvart
ef einhver mótmælti harðlega.
Sérstaklega virðist kvenfólk upp-
numið af þessari keppni, enda
fellur hún örugglega vel að þeirra
jafnréttiskjaftæði sem auðvitað
getur aldrei gengið upp því kynin
eru eins ólík og hægt er að hugsa
sér. Karlmenn eiga að vera karl-
menn og konur eiga að vera kyn-
verur, eiginkonur og rnæður.
Þetta er tilgangur lífsins.
Æ, komiði nú sæl og blessuð öll
sömul. í dag er stór dagur,
a.m.k. fyrir Dag. Dagur á víst 70
ára afmæli í dag og óska ég hon-
um innilega til hamingju með
afmælið. Ekki er annað hægt að
segja en að Dagur beri aldurinn
vel og raunar finnst mér hann
hafa yngst til muna á síðustu
árum. Vissulega er hann öllu feit-
ari en hér áður fyrr og stundum
virtist hann orðinn dálítið ráð-
villtur í ellinni. Dagur hefur þó
sýnt það og sannað að hugsun
hans er enn skýr, hann á auðvelt
með að tjá sig og ná athygli fólks-
ins og hann er aðeins rúmliggj-
andi um helgar, annars fer hann á
fætur eldsnemma á morgnanna.
Já, árla morguns hefur Dagur
fótaferð og flýtir sér út til að
miðla fólkinu af visku sinni og
fjöri. Yfirleitt er honum tekið
opnum örmum, en hann getur
verið umdeildur, og eflaust hafa
einhverjir stundum sitthvað við
málflutning hans að athuga. Sem
betur fer hefur Dagur samt stórt
hjarta og þar rúmast hinar marg-
víslegustu skoðanir. Læt ég nú
Hallfreður fer hörðum orðum um fegurðarsamkeppni karla en vonandi, hans
vegna, mætir Jón Páll ekki til leiks. Hann gæti launað Freði lambið gráa.
Framleiðum Netadreka í staðlaðri stærð,
þyngd 30 kg án keðju, eða smíðum eftir ósk-
um viðskiptavinarins.
1 lrinlýsingar í síma 23000.
Vélsmiðjan Atli
Strandgötu 61
PENINGUM
STRAX
TÍMAMÓT í REKSTRI FYRIRTÆKJA
Tölur á blaði geta gefið upplýsingar um
góða afkomu og trygga stöðu fyrirtækja, en
þær koma að takmörkuðum notum sem
rekstrarfjármagn. Vanskil, erfið innheimta
o. fl. kostar bæði tíma og fé og geta skipt
sköpum um afkomu fyrirtækjanna.
Kröfukaupadeild KAUPÞINGS hf. kaupir
og/eða innheimtir:
— Reikninga
— Víxla
— Euro-Visa afborgunarsamninga
— Euro-Visa sölunótur
og greiðir handhafa skuldaviðurkenningar
andvirðið samdægurs.
,JH KROFU
*? ? KAUPÞING M KAUPA
NORÐURLANDS HF 1H| Ráðhústorg 5 Akureyri 3EILD nAUI’ÞINCS hf
Sími 96-24700 Bolholti 4 ■ slmi: 68 90 80
Afsöl og
sölutilkynningar
Afsöl og sölutilkynningar vegna bílaviðskipta
a atgreiðsiu Oags.