Dagur - 02.03.1988, Side 6
6 - DAGUR - 2. Wars 1988
Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs:
Fáeinar ábendingar
- Sigurður J. Sigurðsson skrifar
Að undanförnu hafa farið fram
nokkur skrif á síðum þessa
blaðs og reyndar víðar, um
fjárhagsáætlun Akureyrarbæj-
ar og stofnanir hans. I þessum
skrifum hefur margt komið
fram, sem skýrir þær áætlanir
sem gerðar hafa verið fyrir árið
1988. Ástæðan fyrir þessum
viðbótarskrifum er fyrst og
fremst sú að mér finnst að orð
svo sem niðurskurður og slæm
ijárhagsstaða hafi einkennt
þessa umræðu og fært hana í
þann búning að bæjarbúar geti
haft það á tilfinningunni að
verið sé að skerða við þá þjón-
ustu og jafnframt að útlitið
framundan sé ekki bjart. Þetta
hef ég orðið var við og tel því
fulla ástæðu til þess að setja
fram nokkur atriði til þess að
skýra hversu röng slík sjón-
armið eru.
Útsvar - staðgreiðsla
Við þessi áramót tekur við nýtt
skattkerfi sem veldur nokkrum
breytingum fyrir sveitarfélög þar
sem útsvar er nú greitt af tekjum
yfírstandandi árs í stað þess að
byggjast á tekjum liðins árs. Pessi
breyting er þess valdandi að
álagningarprósenta lækkar úr
10,6% (hér á Akureyri) í 6,7%,
en það er það hlutfall sem inn-
heimt er í staðgreiðslunni. Sveit-
arstjórnir geta þó lagt'á hærra
útsvar eða allt að 7,5%, enda
þótt svo virðist sem öll sveitarfé-
lög sætti sig við það hlutfall sem
ákveðið var í staðgreiðslunni. Þá
kæmi mismunur útsvarsálagning-
ar frá 6,7% upp í 7,5% ekki fyrr
en á næsta ári. Útsvarsálagning
vegna skattskyldra tekna á árinu
1987 hefur enn ekki verið ákveð-
in. Útsvar er nú reiknað af tekj-
um sem áður voru undanþegnar
útsvari. Pessi breikkun skatt-
stofnsins er metin til 10% hækk-
unar af stjórnvöldum, en sveitar-
stjórnir telja þetta vera lægra
hlutfall, eða 5-7,5%. Þá er gert
ráð fyrir betri innheimtu útsvara.
Staðreyndir þessa máls koma
ekki strax í Ijós og er því erfitt að
fullyrða um það hvor hefur rétt
fyrir sér. Það sem veldur sveitar-
félögum búsifjum á yfirstandandi
ári er það fyrirkomulag stað-
greiðslunnar að greiða sveitarfé-
lögum útsvarshluta staðgreiðsl-
unnar ekki fyrr en rúmum þrem
vikum eftir launamánuð. Þetta
leiðir til þess að ráðstöfunarfé
bæjarsjóðs á fyrsta ári skerðist og
verða útsvarstekjur aðeins fyrir
mánuðina janúar til nóvember á
yfirstandandi ári. Útsvarstekjur
eru nú u.þ.b. 60% af heildar ráð-
stöfunarfé bæjarins og því auð-
séð hversu mikið mál það er þeg-
ar tekjur eins mánaðar vantar.
Þetta er vandamál yfirstandandi
árs sem verður með öðrum hætti
á næsta ári. Þetta er ein megin
ástæða þess að minna ráðstöfun-
arfé er hjá Akureyrarbæ á yfir-
standandi ári.
Fasteignagjöld
Annar þáttur í tekjuöflun sveitj
arfélaga eru fasteignagjöld. Á
undanförnum árum hefur staðið
nokkur styrr um álag á fasteigna-
skatt af íbúðarhúsnæði. Stefna
okkar sjálfstæðismanna hefur
verið sú að leita leiða til þess að
ekki þyrfti að innheimta fast-
eignaskatt af íbúðarhúsnæði með
álagi. Það er jafnframt ljóst að
þeir flokkar sem mynda núver-
andi meirihluta í bæjarstjórn
hafa í máli þessu ólíkar skoðanir,
sem varð að ná sáttum í við
myndun nýs meirihluta í þessum
bæ eftir síðustu bæjarstjórnar-
kosningar. Við gerð fyrstu fjár-
hagsáætlunar var þetta álag lækk-
að niður í 10% en hafði verið
25% lengst af til þess tíma. Við
gerðum okkur þær vonir að frek-
ari lækkanir yrðu möguiegar nú,
en því miður kom fljótt annað í
ljós.
Á sl. ári urðum við fyrir því
áfallí að fasteignamat á Akureyri
tók minni breytingum en annars
staðar. Þetta var afleiðing þess að
síðustu árin hafði fasteignaverð
lækkað, sala var búin að vera treg
og almenn vantrú hafði ríkt á
framtíð staðarins. Breytt viðhorf
til framangreindra þátta, með
auknum kaupmætti, meiri vinnu
og lækkun hitaveitu leiddu til
þess að fasteignamat fór aftur
hækkandi og hækkaði nú meir en
annars staðar. Hlutfallið milli
Akureyrar og Reykjavíkur hefur
batnað.
Við höfum orðið að sætta okk-
ur við óbreytt álag á fasteigna-
skatt með hliðsjón af heildaraf-
komu ársins. Önnur sveitarfélög
hafa orðið að hækka sínar álögur
með hliðsjón af framangreindum
staðreyndum.
Þegar fasteignagjöld voru til
ákvörðunar í bæjarstjórn lögðu
bæjarfulltrúar Framsóknar-
flokksins til að þessi álagsprós-
enta yrði lækkuð. Þeir hafa nú
lýst því yfir að hefðu þessar
staðreyndir legið fyrir þá, sem
komið hafa í ljós við gerð fjár-
hagsáætlunarinnar, þá hefði af-
staða þeirra til fasteignagjalda
orðið með öðrum hætti.
Aukin þjónusta
í framsöguerindi bæjarstjóra
með fjárhagsáætlun komu fram
forsendur útreikninga og áætl-
aðra útgjaldabreytinga milli ára.
Nú sem fyrr er erfitt að gera sér
grein fyrir kostnaðarbreytingum
á árinu, en þó hefur sú breyting
orðið, með tilkomu staðgreiðslu-
kerfis skatta, að útsvar tekur nú
þeim breytingum sem verða á
launum.
Almennt má segja um rekstur
bæjarins að hann fer sífellt vax-
andi, hraðar en bein íbúafjölgun
segir til um. Þessu veldur vaxandi
byggð, lengra gatnakerfi, fjölgun
ökutækja, bætt heilbrigðisþjón-
usta og menntunaraðstaða, fjöl-
breytt tómstundastarf, aukin
áhersla á umhverfismál og fleira
sem tengist framfarasinnuðu
þjóðfélagi. Það hlýtur því að
verða sífellt flóknara dæmi að ná
saman endum í rekstri sveitarfé-
lags án þess að auka á skatt-
heimtuna. Erfitt virðist að leggja
af þá þjónustu sem einu sinni er
komin.
Þessum staðreyndum stöndum
við andspænis og verðum sem
félagsleg heild að finna okkur
leiðir til þess að ná endum
saman.
Þó tekjur sveitarfélaga séu að
megin hluta til byggðar á sköttum
sem lagðir eru á einstaklinga
vegna Iauna þeirra og skráðra
eigna er ljóst að uppistaðan í
öflugu samfélagi er þróttmikið
atvinnulíf. Það er því mikilvægt
að þær aðstæður skapist sem geri
slíkt mögulegt.
Breytt verkaskipting
Sveitarstjórnum ber það hlutverk
að fara með sameiginleg málefni
bæjarbúa. Á liðnum árum hefur
þessum verkefnum fjölgað og
jafnframt hefur fyrirkomulag í
stjórnun og fjármögnun orðið
flóknara. Um mjög langan tíma
hafa sveitarstjórnarmenn barist
fyrir því að ná fram gleggri
verkaskiptingu milii ríkis og
sveitarfélaga. Nú bregður hins
vegar svo við að þegar þessi mál
eru tilbúin til umræðu á Alþingi
að sveitarstjórnarmenn víðs veg-
ar af landinu vilja frestun þessa
máls. Framsetning fyrrihluta til-
lagnanna í sjálfstæðu frumvarpi
er ekki gallalaus og hefur m.a.
orðið til þess að sveitarstjórnar-
menn draga í efa að aðrir þættir
verkaskiptingarinnar komist til
framkvæmda með þeim hætti
sem gert er ráð fyrir. Það hefði
verið eðlilegra að setja verka-
skiptinguna fram í einu lagi enda
þótt framkvæmd verksins skiptist
á fleiri en eitt ár. Það er ákaflega
varasamt að ætla að stöðva þetta
brýna hagsmunamál nú, enda
þótt fyrstu þættir þessa máls séu
sveitarfélögunum ekki hagstæðir
á yfirstandandi ári. Þessi óvissa
um framkvæmd verkaskiptingar-
innar leiðir til þess að sveitar-
stjórnir hafa sett fram sínar fjár-
hagsáætlanir með hliðsjón af
núverandi kerfi.
Yaxandi rekstur
Enda þótt hærra hlutfall tekna
renni nú til reksturs bæjarins, en
á síðasta ári, hefur hvergi verið
lagður af rekstur. Þvert á móti er
gert ráð fyrir nýjum rekstrarein-
ingum í þessari áætlun. Má í því
sambandi nefna atriði svo sem
opnun tveggja dagvista og að
fjárveitingar til dvalarheimilanna
eru við það miðaðar að hægt sé
að taka alla nýbygginguna við
Hlíð í notkun á árinu. Fjölgað er
kennslustofum í Síðuskóla og
sérkennslubúnaður keyptur.
Veruleg aukning er á fjárveiting-
um til skipulags- og menningar-
mála. Hér er því hvergi verið að
slaka á þvert á móti.
í framkvæmdum er við það
miðað að standa að fullu við
framlög okkar til sameiginlegra
verkefna, svo sem skólabygginga
og sjúkrahúss á móti framlögum
ríkisins. Þá er gert ráð fyrir að
gera sundlaug í Glerárhverfi fok-
helda.
Tímabundnar þrengingar
vegna skattkerfisbreytinga og
kostnaðarauki undanfarinna ára
hefur að sjálfsögðu sín áhrif. Því
varð að setja sér markmið sem
raunhæft væri að ná. Jafnframt er
gert ráð fyrir því að bæta versn-
andi greiðslustöðu og stöðva
frekari lántökur, en reyna þess í
stað að greiða örlítið af skuldum.
Þetta eru þau atriði sem ein-
kenna þessa áætlun.
Verklegar framkvæmdir
Verklegar framkvæmdir á vegum
bæjarins og stofnana hans eru
mjög miklar á þessu ári. Hjá
bæjarsjóði er gert ráð fyrir kr. 90
millj. til nýframkvæmda. Þá er
gert ráð fyrir að hafin verði bygg-
ing 40 íbúða á vegum Verka-
mannabústaða og að varið verði
um kr. 193 millj. til þess verkefn-
is. Tii byggingar dvalarheimil-
anna í Hlíð er ákveðið að verja
kr. 35 millj. Framkvæmdir við
höfnina eru áætlaðar að kosti kr.
60 millj., Vatnsveita Akureyrar
er með framkvæmdaáætlun upp á
kr. 32 millj., Rafveitan með
framkvæmdir upp á kr. 35 millj.
og Hitaveitan með framkvæmdir
fyrir um kr. 15 millj. Með gatna-
gerðarframkvæmdum eru hér í
framkvæmd verkefni fyrir um kr.
500 millj.
Af framansögðu má glöggt sjá
hversu miklar og öflugar fram-
kvæmdir eru í gangi á þessu ári.