Dagur - 02.03.1988, Blaðsíða 15
á.’WarST98Ö - ÖÁfítitf - +á
íþróttir
Helgi Jóhannesson Þórsari í baráttu við leikmann Víkings Ó. Hclgi skoraði
70 stig fyrir.Þór í þremur leikjum. Mvnd: tlv
Körfubolti 4. flokks:
Víkingur Ó. vann
alla sína leiki
Þriðja og síðasta fjölliðainót 4.
flokks á íslandsmóti yngri
flokka í körfubolta fór fram
um helgina. C-riðill 4. flokks
var leikinn í Höllinni á Akur-
eyri og liðin sem áttust við,
voru Þór, ÍR b, Víkingur
Ólafsvík og ÍR c. Víkingur
vann alla sína leiki og flyst því
í B-riðil.
Þórsarar unnu aðeins einn leik
en töpuðu hinum tveimur mjög
naumlega. Víkingur vann Þór
57:51 og ÍR b vann Þór 58:52.
Þórsarar unnu síðan ÍR c örugg-
lega 63:40. ÍR b vann ÍR c 49:41,
Víkingur vann ÍR b 60:39 og
Víkingur vann ÍR c 52:38.
Sem fyrr voru þeir Helgi
Jöhannesson og Högni Friðriks-
son stigahæstir Þórsara. Helgi
skoraði alls 70 stig í þessum
þremur leikjum en Högni skoraði
37 stig. Þá skoraði Jón Torfi
Halldórsson 30 stig.
Körfubolti 4. flokks:
Tindastóll og USAH
kepptu í Grindavík
Haukar b báru sigur úr býtum í
síðasta fjölliðamóti b-riðils
íslandsmóts 4. flokks, sem
fram fór í Grindavík um heig-
ina. KR-ingar hlutu jafnmörg
stig, en tap þeirra í innbyrð-
isviðureigninni gegn Haukun-
um réði úrslitum í mótinu.
Tindastóll var eina liðið sem
náði að leggja Haukana að
velli.
Tindastólsmenn urðu í fjórða
sæti, á eftir ÍR-ingum. USAH
tapaði hins vegar öllum sínum
leikjum. Úrslit einstakra leikja
urðu þessi:
Haukar b-Tindastóll 39:43
USAH-ÍR 23:53
Tindastóll-KR 43:68
Haukar b-ÍR 65:51
USAH-KR 34:46
Tindastóll-USAH 29:23
ÍR-KR 41:44
USAH-Haukar b 27:48
Tindastóll-ÍR 43:57
Pétur Vopni Sigurðsson skor-
aði langmest Tindastólsmanna á
mótinu, 63 stig. Sigurður Levý
gerði 52 og þeir Ingi Þór Rúnars-
son og Ragnar Pálsson 17 hvor.
-þá
Handbolti 1. deild:
Tekst KA-mönnum að
halda sínu stríki?
- mæta toppliði FH í Hafnarfirði í kvöld
í kvöld mætast FH og KA í 1.
deildinni í handbolta. Leikur-
inn fer fram í íþróttahúsinu í
Hafnarfirði og hefst kl. 20.
FH-ingar sitja sem fyrr í efsta
sæti deildarinnar en KA-menn
eru í fjórða neðsta sæti og enn
í mikilli fallhættu.
KA-menn gerðu sér lítið fyrir og
lögðu íslandsmeistara Víkings að
velli í Höllinni á Akureyri fyrir
viku og var sigur liðsins mjög
sannfærandi. Það hefur verið
áberandi í vetur, hversu illa KA
hefur gengið gegn neðri liðunum
en aftur staðið sig mun betur
gegn toppliðunum. Liðið hefur
tekið eitt stig bæði af FH og Val
og tvö stig af Víkingi. Haldi KA-
menn sínu striki í kvöld. munu
þeir örugglega veita FH-ingum
harða keppni og á góðum degi
eiga þeir að geta farið með sigur
af hólmi.
Liðinu hefur aftur á móti geng-
iö illa gegn bæði UBK og Stjörn-
unni og tapað báðum viðureign-
um sínum gegn liðunum. KA
vann Þór í fyrri leik liðanna en
gerði jafntefli við bæði ÍR og
KR. En það var einmitt mark-
vörður KR-inga, Gísli Felix
Bjarnason sem brá sér í sóknina
undir lok leiksins og jafnaði fyrir
lið sitt, sem frægt varð.
Nú eru aðeins fjórar umferðir
eftir og auk leiksins við FH, eiga
KA-menn eftir að mæta Þór og
KR heima en ÍR úti.
Pepsimót í svigi og göngu:
Mikið fjör í Hlíðarfjalli
í blaðinu á mánudag var við-
tal við Ivar Webster körfu-
knattleiksmann úr Haukum,
þar sem m.a. kom fram að
hann hyggst ekki leika oftar
með íslenska landsliðinu.
Ástæðan er sú að Ivar var
dæmdur í langt keppnisbann
af nefnd á vegum KKÍ vegna
atviks sem átti sér stað í hálf-
leik í leik UBK og Hauka
skömmu fyrir jól og er hann
alls ekki sáttur við þá máls-
meðferð.
Vegna fréttarinnar, hafði
Björn M. Björgvinsson forrnað-
ur KKÍ samband við blaðið og
vildi koma á framfæri eftirfar-
andi athugasemdum:
„í fyrsta lagi er það dómstóll
KKÍ sem dæmir ívar Webster í
þetta bann en ekki aganefnd
KKÍ eins og kemur fram í frétt-
inni. Dómstóllinn er æðsta
dómstig körfuknattleikshreyf-
ingarinnar á íslandi. Aganefnd-
in afgreiðir aftur þau mál sem
dómarar kæra.
í öðru lagi má segja það, að
þessi atburður sem átti sér stað í
Kópavogi, er einsdæini í íþrótta-
sögu íslands. Að leikmaður sem
er á leið til búningsherbergja
skuli sleginn niður, lítur íþrótta-
hreyfingin mjög alvarlegum
augum.“
Um þá yfirlýsingu ívars
Webster áð leika ekki meira
með landsliðinu hafði Björn
þetta að segja: „Menn verða að
hafa getu til þess að spila með
landsliðinu og þeir setja ekki
landsliðsnefndinni stólinn fyrir
dyrnar og segja, ég spila núna
eða ég spila ekki. Það er gott að
vita þetta viðhorf ívars en hann
setur okkur ekki stólinn fyrir
dyrnar og er ekkert sjálfsagður í
landsliðið þegar hann segir til.
Hann verður að sýna og sanna
sína getu til þess að verða val-
inn í landsliðið.“
Verðlaunahafar í svigi í flokki 12 ára stúlkna. Sigurvegarinn Hildur Ösp Þor-
stcinsdóttir er lengst t.v. Myndir: tlv
Það var mikið um að vera í
Hlíðarfjalli um helgina en þá
komu ungir og efnilegir skíða-
menn frá Dalvík í heimsókn og
tóku þátt í Pepsimótinu í svigi
og göngu, ásamt jafnöldrum
sínum frá Akureyri. Einnig var
von á skíðamönnum frá Siglu-
flrði en þeir urðu að hætta við
að koma á síðustu stundu.
Frekar fáir keppendur tóku
þátt í göngunni og voru þeir nær
allir frá Akureyri en mun meiri
þátttaka var í sviginu. Einnig
voru settar upp hindrana- og
leikjabrautir sem krakkarnir
spreyttu sig í. En úrslit á mótinu
urðu þessi:
Ganga:
Drengir 8 ára og yngri, 1 km:
1. Helgi H. Jóhannesson 4,30
2. Anton I. Þórarinsson 4,34
3. Baldur H. Ingvarsson 4,47
Stúlkur 8 ára og yngri, 1,0 km:
1. Arna Pálsdóttir 6,08
Drengir 9-10 ára, 1,5 km:
1. Stefán Kristjánsson 8,29
2. Þóroddur Ingvarsson 8,55
3. Gísli Harðarson 10,00
Stúlkur 9-10 ára, 1,5 km:
1. Harpa Pálsdóttir 12,36
Stúlkur 11-12 ára, 2,5 km:
1. Sólveig Valgeirsdóttir 12,50
Svig:
Stúlkur 9 ára:
1. Eva Bragadóttir D 1:25,85
2. Aðalheiður Reynisdóttir A 1:27,25
3 Snjólaug Jónsdóttir D 1:27,51
Piltar 9 ára:
1. Leifur Sigurðsson A 1:26,14
2. Hannes Steindórsson D 1:27,06
3. Helgi Indriðason D 1:30,57
Stúlkur 10 ára:
1. Hrefna Óladóttir A 1:16,59
2. Brynja Þorsteinsdóttir A 1:16,75
3. Lilja Birgisdóttir A 1:18,77
Piltar 10 ára:
1. Sveinn Torfason D 1:18,77
2. Jóhann G. Arnarson A 1:20,19
3. Magnús V. Árnason A 1:26,06
Stúlkur 11 ára:
1. Helga Berglind Jónsdóttir A 1:27,37
2. Þrúður Gunnarsdóttir A 1:37,16
2. Regína Gunnarsdóttir A 1:38,03
Piltar 11 ára:
1. Elvar Óskarsson A 1:20,72
2. Axel Grettisson A 1:22,80
3. Erlendur Óskarsson A 1:24,02
Stúlkur 12 ára:
1. Hildur Ösp Þorsteinsdóttir A 1:20,63
2. Fjóla Bjarnadóttir A 1:24,42
3. Margrét Eiríksdóttir D 1:25,28
Verðlaunahafar í flokki 8 ára og yngri. Sigurvegarinn Helgi H. Jóhannesson
er lengst t.v.
Piltar 12 ára:
1. Sverrir Rúnarsson A 1:16,18
2. Kristófer Einarsson A 1:20,20
3. Gunnþór Gunnþórsson D 1:22,00
Elvar Óskarsson sigraði í svigi í
flokki 11 ára drengja.
Athugasemd frá Birni M. Björgvinssyni formanni KKÍ
vegna fréttar um mál ívars Websters á mánudag:
„Brot ívars emsdæmi
í íþróttasögu íslands“