Dagur - 21.03.1988, Síða 2

Dagur - 21.03.1988, Síða 2
2 - DAGUR - 21. mars 1988 „Erfitt að sljóma veiðum staðbundið“ - segir Halldór Ásgrímsson um stofngerðarannsóknir á þorski Um helgina voru haldnir maraþontónleikar í Uppanum á Akureyri til stuðnings skákhreyfíngunni. Listamenn komu víðs vegar að og luku leik sínum klukkan 01.00 eftir miðnætti í gær og höfðu þá leikið í 37 klukkustundir. Mynd: EHB Háskólamenntaðir hjúkrunarfræðingar: Vilja gera kjarasamning Halldór Ásgrímsson sjávarút- vegsráðherra svaraði á Alþingi fyrirspurn frá Jóhanni A. Jónssyni um stofngerðarann- sóknir á þorski við Island. I svari ráðherra kom fram að þó nokkrar rannsóknir hafa farið fram á stofngerðum fiska hjá Hafrannsóknastofnun án þess þó að neinar afgerandi niður- stöður hafí fengist í því máli. Stjarnan: Á hringferð um landið Nú á næstu vikum munu dag- skrárgerðarmenn Stjörnunnar verða á ferðinni víða um land með skemmtidagskrá sem send verður beint út: Ferðin hófst á Hellu en farið verður til Vestmannaeyja, Stykk- ishólms og Akureyrar, þar sem slegið verður upp dansleikjum laugardagskvöld og skemmtiþátt- ur Jörundar Guðmundssonar, „I hjarta borgarinnar" sendur út á sunnudögum. Reyndar breytist nafn þáttarins eftir stöðunum, þannig að á Akureyri verður það að sjálfsögðu „í hjarta Akureyr- ar“. í fréttatilkynningu frá Stjörn- unni segir að þessi landreisa sé liður í því að halda góðu sam- bandi við hlustendur á öllu hlust- unarsvæðinu. Stjarnan nær nú til rúmlega 80 prósenta lands- manna. Frá því Stjarnan tók til starfa í júní 1987, hefur 15 sinn- um verið sent út frá stöðum utan Reykjavíkur. Eina starfandi útvarpshljóm- sveit landsins, Borgarbandið, verður með í förinni. Auk Jör- undar Guðmundssonar verða á ferðinni skemmtikraftar og dag- skrárgerðarmenn, ásamt tækni- mönnum. Stjarnan verður á Akureyri 16. og 17. apríl nk. Staðan í alþjóðlega skákmót- inu er nú sú, að Jóhann cr í efsta sæti með sjö og hálfan vinning þegar aðeins ein uniferð er eftir. Margeir, sem var með sex og hálfan vinning fyrir 10. umferð, getur hafí Halldór sagði að á undanförn- um árum hafi víða verið stundað- ar rannsóknir sem beinast að því að kanna hvort fiskistofnar kunni að deilast í meira eða minna stað- bundnar einingar (hrygningar- stofna). Við þessar rannsóknir hefur bæði verið beitt aðferðum sem byggjast á útlitseinkennum svo og erfðafræðilegum aðferð- um. Ekki náðust góðar niðurstöður með þessum aðferðum og á Líf- fræðistofnun Háskóla íslands er nú verið að kanna nýjar erfða- fræðilegar aðferðir sem þykja lofa góðu. Þessar rannsóknir eru á tilraunastigi og lítið um þær að segja enn sem komið er. Það er alkunna að þorskur hrygnir víðar við ísland en á aðalhrygningarsvæðinu við suð- ur- og vesturströndina. Þá hafa merkingar sýnt að eftir hrygning- una heldur þorskurinn í ætisleit út á landgrunnið norðvestan-, norðan- og austanlands hvar sem hann annars hefur hrygnt. Sjávarútvegsráðherra dró í efa að stjórna mætti veiðum stað- bundið hér við land, þó að í ljós kæmi að þorskstofninn skiptist í margar einingar sem ættu hver sitt heimkynni sem þær leituðu til að hrygna. Eina leiðin væri vænt- anlega sú að takmarka veiðar yfir hrygningartímann sjálfan. Á öðr- um árstímum er stofninn meira eða minna blandaður annars staðar á landgrunninu eins og áður segir og eðli málsins sam- kvæmt veiddur þar upp til hópa án tillits til uppruna síns. í ljósi þessa sem að ofan grein- ir mun Hafrannsóknastofnunin halda áfram samvinnu við Líf- fræðistofnun Háskólans sem kannar nú nýjar erfðafræðilegar aðferðir, eins og áður sagði. Niðurstöður úr þeirri könnun þurfa að liggja fyrir áður en unnt er að ákveða hvort ástæða sé til að Hafrannsóknastofnunin hefji víðtækari stofngerðarannsóknir á þorski eða öðrum fisktegundum. AP náð honum að vinningum þar sem hann tefldi biðskák við Tisdall seint í gærkvöld. Tisdall hafði lengi betra tafl, en Margeir náði að snúa stöðunni sér í hag áður en skákin fór í bið. Næstir koma Polugaevsky og Hjúkrunarfræðingar í Félagi háskólamenntaðra hjúkrunar- fræðinga hafa farið þess á leit við bæjaryfírvöld á Akureyri, að gerður verði við þá sérstak- ur kjarasamningur. Kjara- samninganefnd hefur mælt með að samningurinn verði gerður þegar fengist hefur staðfesting á samningsumboði frá stjórn FSA. „Við bíðum bara eftir að verða boðaðar á fund,“ sagði Elsa Frið- Gurevich með sex og hálfan vinning, Jón L., Adorjan og Tisdall með fimm og hálfan fyrir biðskák Tisdalls. Dolmatov og Heigi eru með fimm vinninga, Karl með fjóra, Jón Garðar hefur einn og Ólafur hálfan vinning. VG finnsdóttir einn af fulltrúum hjúkrunarfræðinga í samtali við Dag. Elsa vildi ekkert láta uppi um kröfur, þar sem þær hafa ekki verið kynntar kjarasamninga- nefnd enn. Björn Jósef Arnviðarson er formaður kjarasamninganefndar Akureyrarbæjar. Hann sagði í samtali við Dag, að hjúkrunar- fræðingar sem starfa hjá FSA og Akureyrarbæ séu í tveimur stétt- arfélögum. í fyrra hafi verið gerður samningur við Hjúkrunar- félag íslands, en þar sem félögum í FHH fjölgi sífellt, hafi þeim verið greidd laun samkvæmt samningi FHH sem sé nánast samhljóða hinum samningnum því þeir voru samræmdir við gerð síðustu kjarasamninga. „Við höf- um aldrei gert samning við FHH en þykir sjálfsagt að gera það, þótt þar væri ekki verið að gera neitt nýtt í kjaramálum. Við ger- um ráð fyrir að gera samning, samhljóða þeim sem gerður var í Akureyri: Atvinnuleysis- dögum fækkar Á árinu 1987 voru skráöir 11.167 atvinnuleysisdagar á Akureyri, skv. upplýsingum frá Vinnumiðlunarskrifstofu Akureyrar. Á árinu 1986 voru atvinnuleysisdagarnir 17.679 og hefur þeim fækkað um 6.512 milli ára, eða 37%. í febrúarmánuði voru 70 skráðir atvinnulausir á Akureyri, 25 konur og 45 karlar. í sama mánuði í fyrra voru 66 á atvinnu- leysisskrá, 25 konur og 41 karl. Fjöldi atvinnuleysisdaga svarar til þess að 58 hafi verið atvinnu- lausir allan mánuðinn. SS Reykjavík við FHH að öðru leyti en því, að hér verður áfram eins launaflokks munur eins og verið hefur," sagði Björn Jósef. Ekki er útlit fyrir að stjórnar- fundur hjá FSA verði haldinn fyrr en í næstu viku og því verður ekki samningafundur hjá þessum hóp fyrr en í fyrsta lagi seint í vikunni. VG Dalvík: Úrslit hraðskák- mótsins Á laugardaginn fór fram hrað- skákmót á Dalvík. Þátttakend- ur voru 23 talsins og voru tefld- ar 11 umferðir. Keppendur höfðu 5 mínútna umhugsunar- tíma í hverri skák. Nokkrir keppendur á alþjóð- lega skákmótinu á Akureyri tóku þátt í þessu móti þar sem þeir áttu frí þennan dag. Það voru stórmeistararnir Pol- ugaevsky og Gurevich sem lentu í I. -2. sæti með tíu vinninga hvor. Dolmatov varð í 3. sæti með átta og hálfan, Sævar Bjamason varð í 4. sæti með sjö og hálfan vinning. Jón Garðar Viðarsson og Ólafur Kristjánsson urðu í 5.-6. sæti með sex og hálfan vinning. Fjórir skákmenn frá Dalvík voru meðal þátttakenda. Þeir Ingimar Jónsson og Rúnar Búa- son lentu með tveim öðrum í 7,- II. sæti með sex vinninga. Fjölmargir áhorfendur fylgdust með mótinu og var skákstjóri Albert Sigurðsson. VG Elo-stig 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 Vinn. Stig Röð 1. Ólafur Krisljánsson 2225 0 0 0 0 'k 0 0 0 0 0 'k 2. Sergej Dolmatov 2565 1 1 'k 'k 'k 'k 0 'k 'k 'k 'k 5 3. Helgi Ólafsson 2510 1 'k 'k 0 1 'k 0 'k 1 0 5 4. Margeir Pétursson 2540 1 'k 'k 'k 1 Bið 'k 'k 1 1 6'k+ 5. Lev Polugaevski 2575 1 'k 1 'k 1 'k 'k 0 1 'k 6'k 6 Karl Þorsteins 2440 'k 'k 0 0 0 'k 1 'k 0 1 4 7. Jonathan Tisdall 2425 1 1 'k Bið 'k 'k 0 0 1 1 5'k+ B. Jón L. Árnason 2510 1 'k 1 'k 0 'k 'k 'k 1 0 S'k 9. Andras Adorjan 2540 1 'k 'k 'k 'k 1 'k 'k 'k 0 S'k 10. Jóhann Hjartarson 2590 1 'k 'k 1 1 1 'k 'k 1 'k l'k 11. Jón Garðar Viðarsson 2305 'k 0 0 0 0 0 0 'k 0 0 1 12. Mikhail Gurevich 2625 1 'k 1 0 'k 0 1 1 'k 1 6'k Staðan í skákmótinu: Spennan í algleymingi

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.