Dagur - 21.03.1988, Side 15

Dagur - 21.03.1988, Side 15
21. mars 1988 - DAGUR - 15 Piltarnir við stoltið sitt, sem er forláta tæki fyrir „standandi bekkpressu“. Frá vinstri: Þorgils Guðmundsson, Björn Sveinsson, Ingi Garðarsson, Vagn Sigtryggsson, Muggur Matthíasson, Gunnar Óli Vignisson, Bergur Gunnarsson, Ingvar Stefánsson, Bessi Vésteinsson, Sigurður Tryggvason og Garðar Ingjaldsson leiðbeinandi. Myndír: gb Nemendur á 2. ári málmiðnaðar í VMA: Smíða þrektæki fyrir skólann í kjallara Verkmenntaskólans á Eyrarlandsholti er þreksalur sem um nokkurt skeið hefur stadið fullbúinn, með gólfdúk,, speglum, rimlum og öðru til- heyrandi, nema þrektækjun- um sjálfum. Úr þessu hefur vitanlega þótt þörf að bæta. Fyrir um tveimur árum hafði Hinrik Þórhallsson íþrótta- kennari skólans orð á þessu við Gunnlaug Björnsson kennara á málmiðnabraut skólans og þessa dagana er árangurinn að koma í Ijós. Ellefu piltar á öðru ári brautarinnar hafa síð- an í haust unnið að smíði tækj- anna í samstarfi við nemendur annarra iðnbrauta skólans, og þessa dagana er verið að leggja lokahönd á verkið. í salnum góða verður því fljótlega hægt að stunda eitthvað annað en það sem piltarnir kalla „frúar- leikfími“. Verklegt nám í málmsmíði hefur í vetur snúist um þetta verkefni auk skylduverkefnis sem allir verða að taka og er skrúf- stykki. Að sögn Björns Sveins- sonar, eins nemandans, kemur þetta ágætlega út fyrir þá því í staðinn fyrir vinnuna sem þeir leggja í þennan búnað fyrir skólann, fá þeir lækkun á efnis- gjaldi sem þeir þurfa að greiða. Þrektækin eru ekki það eina sem piltarnir hafa smíðað fyrir skólann því þeir hafa líka smíðað festingar fyrir bita og ljós svo eitthvað sé nefnt. „Það er mun skemmtilegra að vinna að ein- hverjum verkefnum sem hafa eitthvert notagildi í stað þess að sjóða bara saman tvær plötur,“ sagði Björn. Gunnlaugur útvegaði í haust bæklinga um tæki þeirrar gerðar sem óskað var eftir. Upp úr þess- um bæklingum unnu piltarnir teikningar sem síðan var farið að smíða eftir. „Það var heilmikil vinna að gera þessar teikningar því það var auðvitað ekkert mál- sett á myndunum þar,“ sagði Björn Sveinsson í samtali við Dag. Þegar blaðamenn komu á stað- inn var allur hópurinn í óða önn að pússa og snurfusa gripina, undir leiðsögn Garðars Ingjalds- sonar leiðbeinanda í rafsuðu. Ætlunin er svo að nemendur á rafiðnabraut máli tækin en sess- ur og púðar eru unnin af nemendum á tréiðnabraut. Öll lóð voru keypt tilbúin að sunnan. Piltarnir á öðru ári málmiðna- brautar VMA hafa því þegar svitnað talsvert við tækin en vafa- laust eiga svitadroparnir við þau eftir að verða mun fleiri í fram- tíðinni. ET Hópferð áleikKAogÍR er fer fram í Seljaskóla í Reykjavík þriðjudaginn 22. mars kl. 20.00. Verð aðeins kr. 3.520 Brottför kl. 17.30. Heimför strax eftir leik. Fjölmennum og hvetjum KA til sigurs AUar nánari upplýsingar gefur Ferðaskrifstofa Akureyrar h/f RÁÐHÚSTORGI 3 SfMI 96-25000 Nátturulækningafélag Akureyrar Aöalfundur félagsins verður haldinn í Laxdalshúsi þriöjudaginn 22. mars 1988 kl. 20.00. Félagar fjölmennið. Takið með nýja félaga. Stjórn N.L.F.A. SÖLUHR0SS Skráning söluhrossa fer fram í Hestasporti á Akur- eyri, sími 21872. Ný skrá mun birtast þar mánaðarlega. Skráning fyrir fyrstu skrá lýkur 25. mars. þeir sem hafa áhuga á myndbandsupptöku tilkynni þaö á sama staö. Félag hrossabænda í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum. Hvammstangahlaup Hlaupið verður laugardaginn 26. mars og hefst það kl. 14.00 við félagsheimilið á Hvamms- tanga. Keppt verður í eftirtöldum flokkum: Flokkum drengja og stúlkna 12 ára og yngri. Flokkum drengja og stúlkna 13-14 ára. Flokki drengja 15-18 ára, og flokkum fullorðinna karla og kvenna. Þátttaka tilkynnist Flemming í síma 95-1367 eða 1368. Þátttökugjald kr. 50 greiðist við skráningu. U.S.V.H. gjjj Laus staða Staða bókara er laus til umsóknar V/ hjá Siglufjarðarkaupstað. Krafist er góðrar bókhaldskunnáttu og reynslu í notkun tölvu við bókhald. Laun samkvæmt kjarasamningi Siglufjarðarkaupstaðar við S.M.S. Umsóknarfrestur er til 28. mars n.k. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem allra fyrst. Umsóknum sé skilað á bæjarskrifstofuna, Gránugötu 24, 580 Siglufirði. Bæjarstjórinn Siglufirði. — AKUREYRARB/íR Starfsfólk Dagvistin Pálmholt auglýsir eftir starfs- fólki í eftirtaldar stöður: 50% starf fóstru eða starfskrafts í sal, þarf að geta unnið sjálfstætt. Heíl staða fóstru eða starfskrafts á deild með börnum 2ja til 6 ára. Einnig vantar starfsfólk í afleysingar á deildir á Pálmholti og Flúðum. Við óskum eftir þroskuðu fólki. Húsmæður sem vilja komast aftur út á vinnumarkaðinn eru velkomnar. Allar nánari upplýsingar veittar á dagvistardeild í síma 24600, virka daga milli kl. 10 og 12. Dagvistarfulltrúi.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.