Dagur - 06.06.1988, Page 2
2 - DAGUR - 6. júní 1988
Dalvík:
Víkurröst leigð
Júlíusi Snorrasyni
Júlíus Snorrason, veitinga-
maður í Sæluhúsinu á Dalvík,
tekur við rekstri Víkurrastar
frá og með 1. júní. Ætlunin er
að tengja betur saman rekstur
félagsheimilisins og Sæluhúss-
ins þegar um stærri veislur er
Verkamannabústaðir
Akureyri:
40 nýjar íbúðir
afhentar í lok
næsta árs
Nú standa yfír viðræður milli
stjórnar Verkamannabústaða
á Akureyri og byggingaverk-
taka um byggingu 40 nýrra
íbúða sem afhentar verða í lok
næsta árs.
íbúðir þessar eru auglýstar í
Degi í dag, ásamt eldri íbúðum
sem stjórnin fær til endursölu á
næstu mánuðum. í>eir umsækj-
endur sem eiga inni umsóknir frá
síðustu auglýsingu og óska eftir
að koma áfram til greina við út-
hlutun íbúða, verða að tilkynna
það til skrifstofu Verkamanna-
bústaða.
Umsóknarfrestur um íbúðirnar
rennur út 27. júní nk. VG
að ræða, en auk þess rekur
Júlíus gistihús í heimavist Dal-
víkurskóla í sumar eins og
undanfarin ár.
Júlíus sagði að undafarin tvö ár
hefði ákveðinn aðili á Dalvík séð
um rekstur Víkurrastar fyrir Dal-
víkurbæ, Reksturinn hefði nokk-
urn veginn staðið á núllinu og
eitthvað fengist upp í viðhald,
eins og hann komst að orði. Ekki
væri við því að búast að af rekstri
húss eins og Víkurrastar væri
mikill ágóði en ekki væri spurn-
ing um að heppilegt væri að
tengja þann rekstur við rekstur
Sæluhússins af hagkvæmnis-
ástæðum.
Gistiaðstaðan í heimavist skól-
ans verður opnuð 1. júní og þá
fara hjólin að snúast í ferða-
mannamálum Dalvíkur.
Samningurinn um Víkurröst er
til 4 ára, uppsegjanlegur með
þriggja mánaða fyrirvara af hendi
hvors aðila. Um rekstur Sælu-
hússins sagði Júlíus að veturinn
væri alltaf frekar erfiður í þessum
rekstri. „Mánuðirnir mars, apríl
og maí hafa alltaf verið þokka-
legir hjá okkur vegna árshátíða
o.fl. en nóvember, desember og
janúar eru erfiðir. Nú er sumarið
framundan og ég er bjartsýnn á
það,“ sagði Júlíus Snorrason.
EHB
Danslelkur
í Ljósvetningabúð
laugardaginn 11. júní
Hljómsveit Porvaldar Jónssonar úr Hafnarfiröi leik-
ur gömlu og nýju dansana. Mætum hress.
Ljósvetningabúð.
Háskólínn
á Akureyri
Við Háskólann á Akureyri verða starfandi tvær
deildir skólaárið 1988-89.
1. Heilbrigðisdeild.
Við heilbrigðisdeild er ein námsbraut þ.e. námsbraut
í hjúkrunarfræði.
2. Rekstrardeild.
Við rekstrardeild eru tvær námsbrautir og skiptist
önnur þeirra í tvö svið.
a) Iðnrekstrarbraut, framleiðslusvið.
Iðnrekstrarbraut, markaðssvið.
b) Rekstrarbraut.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á skrifstofu
skólans við Þórunnarstræti, sími 96-27855. Skrifstofa
skólans verður opin mánudaga-föstudaga frá klukk-
an 13-16, til 15. júlí. Skrifstofan verður opnuð aftur
8. ágúst.
Umsóknarfrestur um skólavist við Háskól-
ann á Akureyri er til 15. júlí 1988.
Með umsókn á að fylgja staðfest afrit af prófskír-
teinum. Með umsókn í rekstrardeild á auk þess að
fylgja greinargerð um störf umsækjanda frá 16 ára
aldri.
Guðjón Sturla, Gréta og Sigurður borða morgunmatinn fyrir utan tjaldið sitt.
Mynd: TLV
Alltaf gaman að koma
til Akureyrar
- segir Gréta Sturludóttir sem gisti á tjaldstæðinu
ásamt tveimur sonum sínum
„Það er ansi kalt að sofa í
tjaldi svona snemma sumars.
En um leið og sólin kemur
upp á morgnana þá er maður
að stikna,“ sagði Gréta
Sturludóttir sem tíðindamenn
Dags hittu á tjaldstæðinu á
Akureyri.
Það voru aðeins þrjú tjöld á
tjaldstæðinu og í einu þeirra
voru Gréta og synir hennar
Guðjón Sturla og Sigurður
Sveinn Halldórssynir.
Aðspurð um hvað hefði vald-
ið því að þau ákváðu að koma
til Akureyrar sögðust þau Gréta
og Guðjón hafa komið til að ná
í Sigurð sem stundaði nám við
Menntaskólann á Akureyri sl.
vetur. „Við ákváðum að nota
tækifærið og fara í smá útilegu í
leiðinni," sagði Gréta.
„Það er mjög gaman á Akur-
eyri,“ sagði Sigurður og móðir
hans var greinilega alveg sam-
mála. „Mér finnst alltaf gaman
að koma hingað því ég var
tiérna í Menntaskólanum í fjög-
ur ár,“ sagði hún.
Næst ætlar þessi káta fjöl-
skylda að halda til Mývatns-
sveitar og skoða sig um en það-
an liggur leiðin vestur, en þar á
Sigurður lögheimili. Gréta og
Guðjón fara síðan suður til síns
heima.
Að lokum sagði Gréta okkur
að þetta væri bara í annað skipt-
ið sem hún gisti á tjaldstæði.
„Ég hef annars alltaf gist úti í
sveit,“ sagði hún.
Akureyri:
Kassabílarall á 17. júní
í ár munu skátar sjá um 17.
júní og ætla þeir að brydda
upp á ýmsum nýjungum. Ein
þeirra er kassabílarall og vilja
skátarnir hvetja alla krakka til
þess að hefjast nú handa við
smíði kassabíla sem fyrst.
Keppnin hefst kl. 10 og er áætl-
að að hún verði haldin í Þverhloti
og Langholti. Skilyrði fyrir þátt-
töku í keppninni eru: Að mynda
4-5 manna hópa og fá einn full-
orðinn ábyrgðarmann sér til
aðstoðar, koma með kassabíl og
að bílstjórinn hafi hjálm.
Keppnin fer þannig fram að
bílstjórinn situr í bílnum og ýta
hinir honum þangað til komið er
að brekkunni, þá er bíllinn látinn
renna og sá sem rennur lengst
vinnur. Verðlaun verða veitt fyrir
hraðskreiðasta bílinn og einnig
fyrir frumlegasta bílinn, þannig
að það er um að gera að nota hug-
myndaflugið.
Til þess að gera keppnina enn
meira spennandi hafa skátarnir
ákveðið að fá nýjan og gamlan
bíl til þess að reyna sig á sömu
forsendum og kassabílarnir og
verður fróðlegt að sjá hvernig
fer.
Skrásetning í keppnina fer
fram í Skátaheimilinu Hvammi á
milli kl. 17 og 19 eða í síma 26894
á sama tíma. Við skrásetningu
verður hópunum úthlutað núm-
erum sem mála þarf á bílinn.
Þátttökutilkynningar þurfa að
hafa borist fyrir 15. júní. KR