Dagur - 06.06.1988, Page 5
Steingrímur Ingason. Mynd: tlv
keppnum eins og Ljómaralli þarf
fleiri bíla enda verður þjónustu-
bíllinn að vera til staðar við enda
hverrar sérleiðar. Steingrímur
segir að t.d. í Ljómarallinu síð-
asta sumar hafi hann haft 8
manns í þjónustuliði á þremur
viðgerðarbílum. í þjónustubílun-
um þarf að vera mikið af vara-
hlutum og nóg af dekkjum. Þetta
eru sérstök keppnisdekk og ekki
er óalgengt að í styttri keppnum
séu notuð 8-10 dekk. Þessi dekk
tætast upp í öllu spólinu og
spriklinu og mikilvægt er að rétt
dekk séu undir bílnum í sér-
leiðunum. „Ég gerði t.d. þau
mistök í rallinu um daginn að þá
setti ég of mjúk dekk undir bílinn
að aftan sem orsakaði að þegar
ég var kominn miðja leið þá voru
þau orðin of heit og hálfuppslitin.
Þetta orsakaði að ég missti bílinn
þvert í einni beygju og tapaði þar
20 sekúndum,“ segir rallarinn.
Já, sekúndur skipta öllu í þess-
ari keppni enda er þetta ekkert
annað en hreinn kappakstur.
Hraðinn getur verið mikill og
sem dæmi má nefna að Stein-
grímur ók allt upp í 180 km hraða
á klukkustund á síðustu sérleið
Vorrallsins enda erfitt að halda
hraðanum niðri þar sem bíllinn
var fastur í 5. gír! Jafnvel flugvél
sem flaug yfir bílnum hafði ekki
við honum. Reyndar segir hann
ekki óalgengt að rallbílar aki svo
hratt á sérleiðum, þegar beinn
kafli kemur þá er gefið í.
Steingrímur segist ákveðinn í
að vinna slaginn um íslands-
meistaratitilinn að þessu sinni.
Baráttan er hörð og ekkert má út
af bera. Hann hefur fengið til liðs
við sig mjög snjallan aðstoðar-
ökumann sem er Pólverjinn
Witek Bodansky en þáttur
aðstoðarökumanns er mikill.
Witek þessi hefur verið hér á
landi í 3 ár og býr yfir mikilli
reynslu af rallkeppnum. Fyrir
hverja keppni þarf að aka Sér-
leiðirnar og þá skrifar aðstoðar-
ökumaðurinn niður allar skipanir
sem ökumaðurinn biður um s.s.
hvar á að bremsa, hvenær allt
skal í botn, hvenær eru beygjur
og hve krappar o.s.frv.
„Ég stefni á að taka þátt í
keppnum erlendis í haust og
keppa þá á mínum eigin bíl.
Maður þarf að fá reynslu í þess-
um keppnum og ekki síst koma
sér á framfæri og vekja á sér
athygli
- Geturðu lýst því hvernig þér
líður þegar keppnin er í hámarki
og bíllinn er á æð.andi ferð á
sérleið?
„Ég veit eiginlega ekki hvernig
á að lýsa þessu. Pað sem gerir
þetta svona skemmtilegt er senni-
lega spennan. Þú mátt ekki gera
nokkur mistök, þá ertu jafnvel
búinn að tapa stórum upphæðum
eða jafnvel bílnum. Stór hluti af
þessu er að vera nógu yfirvegað-
ur enda sjáum við það að sjaldan
ná ungir ökumenn góðum árangri
í rallakstri. Menn eru að bæta sig
í þessari grein allt fram yfir
fertugt,“ segir Steingrímur Inga-
son.
Næsta rall er framundan og
Steingrímur í nógu að snúast.
Rallið er hans vinna, þyrfti að
vera „full time job“. JÓH
Gamlar bækur
Bókamenn, lesið bókaskrána
í Sjónvarpsdagskránni núna.
Bókabúðin Hlöðum
sími 97-11299, 701 Egilsstöðum.
^Fræðslustjóri Norðuriandsumdæmis eystra
Furuvöllum 13 - Akureyri - Sími 96-24655
Akureyringar
Vistunarfjölskylda óskast fyrir 14 ára stúlku,
sem stunda mun nám í Þjálfunarskóla ríkisins
við Hvammshlíð næsta skólaár.
Vistunartímabil 1.9. 1988-31. 5. 1989.
Nánari upplýsingar veitir fræðslustjóri, Sigurður Hall-
marsson, eða forstöðumaður sálfræðideildar, MárV.
Magnússon, í síma 24655 á skrifstofutíma.
6. júní 1988 — DAGUR — 5
lesendahornið
StoMð samtök
sjúkrahúsvina
Wilhelm Jónsson Sólheim,
hringdi.
Hann sagðist sakna þess að hér
á landi væru ekki starfandi sam-
tök svokallaðra sjúkrahúsvina.
„Ég er norskur ríkisborgari og
Hví er ekki
málað á
götumar?
„Ég er með fyrirspurn til hátt-
virtra bæjaryfirvalda. Hvers
vegna og eftir hverju er verið að
bíða með að mála á göturnar?
Ekki er hægt að kenna tíðinni
um, langflestir eru komnir af
nagladekkjum og því er ekki
nema von að maður spyrji hvers
vegna yfirborðsmerkingar eru
ekki boðnar út fyrst þetta dregst
alltaf fram eftir sumri. Þessi
seinagangur kemur sér illa fyrir
vegfarendur og ómerktar götur
geta verið hættulegar.“
Bæjarbúi
Hefur það ®>I5|
bjargað þér
------yujJEROAR
þar í landi á starfsemi slíkra sam-
taka miklu fylgi að fagna. Hlut-
verk sjúkrahúsvina er að halda
uppi reglulegum heimsóknum til
þeirra vistmanna sjúkrahúsa sem
sjaldan eða aldrei fá heimsóknir
og eru af þeim sökum einmana.
Ég er viss um að mjög margir,
sem dvelja á elli- og hjúkrunar-
stofnunum til langs tíma, myndu
fagna því ef slík samtök yrðu
stot'nuð hér á landi, t.d. á Akur-
eyri.
Ég vil því skora á þau fjöl-
mörgu félagasamtök, sem vilja
láta gott af sér leiða, að taka
þessa ábendingu til athugunar.
Stofnun samtaka sjúkrahúsvina
væri t.d. verðugt verkefni fyrir
skáta.“
Bréfritari segir samtök sjúkrahús-
vina öflug í Noregi.
Ljóslausar kerrur
Ökumaður hringdi og bar fram
fyrirspurn: „Nú er búið að lög-
leiða ljósanotkun bíla en gilda
engar reglur um kerrur? Maður
lendir daglega á eftir bíl með
kerru enda vorverkin í fullum
gangi en það er enginn Ijósabún-
aður á þessum kerrum. Maður
sér ekki bremsuljósin á bílnum
fyrir kerrunni og varla stefnuljós-
in heldur. Það er ekki nema ein-
staka kerra sem er með ljósabún-
að og ég tel að það sé siysahætta
af þessu."
Sigurður Indriðason hjá Bifreiða-
eftirlitinu: „Um kerrur sem ekki
eru skráningarskyldar gilda engar
reglur um ljósabúnað nema hvað
þær verða að hafa glitaugu.
Skráningarskyldar kerrur eru 500
kg og þar yfir að eigin þyngd og
þær verða að hafa Ijósabúnað. Ég
hef ekki orðið var við að það sé
slysahætta af litlu kerrunum.
a.m.k. hef ég ekki hevrt um neitt
slys sem rekja má til þeirra.“
Stórbætt þjónusta
Höfum tekið í notkun púströrabeygjuvél
Getum smíðað alla vega rör.
Eigum til beygjur 45° og 90°
Stóraukið úrval af kútum, pakkningum og
festingum
Þórshamar hf. Varahlutaverslun, sími 96-22875.
Fasteignasalan
Brekkugötu 4 • Sími 21744
Gunnar Sólnes hrl., Jón Kr. Sólnes hrl. og Árni Pálsson hdl.
Sölust. Sævar Jónatansson
Iðnaðar-, verslunar- og skrifstofuhúsnæði:
Glerárgata: Mjög gott skrifstofuhúsnæði á
3. hæð (lyfta) rúml. 200 fm. Laust strax.
Glerárgata: Sérverslun í eigin húsnæöi til
sölu.
Hvannavellir: Mjög vel staðsett iðnaðar-
húsnæði, alls um 545 fm. Góð kjör.
Sunnuhlíð: Sérverslun á 1. hæð til sölu.
Draupnisgata: Gott iðnaðarhúsnæði um
255 fm. Góð lán fylgja.
Kaupvangsstræti: Gott húsnæði um 290
fm. Hentar vel til ýmissa nota.
Kaupangur: Vel staðsett verslunarhúsnæði
jarðhæð + kjallari, alls um 270 fm.
Óseyri: Gott húsnæði um 150 fm. Hentar til
ýmissa nota.
Kaupangur: Verslunarhúsnæði hæð og
kjallari um 180 fm.
Réttarhvammur: Iðnaðarhúsnæði um 140
fm. Fokhelt.
Draupnisgata: Iðnaðarhúsnæöi um 64 fm.
Laust fljótlega.
Strandgata: Verslunar-, skrifstofuhúsnæði
um 70 fm, gott verð, góð kjör.
Sunnuhlíð: Verslunarhúsnæði á n. hæð
um 140 fm.
Sunnuhlíð: Verslunarhúsnæði á 2. hæð.
Góð lán fylgja.
Sérverslun í Miðbæ Akureyrar til sölu,
lager, innréttingar.
Gott lítið fyrirtæki til sölu. Hentugt fyrir
eina til tvær fjölskyldur.
Sunnuhltð: Mjög gott húsnæði með sér
inngangi til sölu. Um 150 fm.
Opið allan daginn frá kl. 9-18