Dagur - 06.06.1988, Side 7

Dagur - 06.06.1988, Side 7
'G. jttm 1988 - DAQUR -7 KA með ííillt hús eftir tvær umferðir - liðið sigraði ÍBK 2:1 á föstudag „Þetta var erfiður leikur enda völlurinn mjög þungur. Kefl- víkingarnir voru mun sprækari en ég átti von á og þá sérstak- lega framan af. Við áttum þó mun fleiri færi í þessum leik og unnum sanngjarnan sigur,“ sagði Erlingur Kristjánsson fyrirliði KA, eftir leikinn við IBK á föstudagskvöld í 1. deildinni í knattspyrnu. KA- menn sigruðu í leiknum 2:1 og hafa því fengið fullt hús úr tveimur fyrstu leikjum sínum í deildinni. Þeir lögðu Víkinga að velli í fyrsta leiknum eins og mönnum er í fersku minni. Fyrir mótið var ekki búist við miklu af KA, a.m.k. ekki hjá sunnlenskum spámönnum en liðið hefur sýnt það í þess- um fyrstu leikjum að það er til alls líklegt í sumar. KA-menn komu ákveðnir til leiks og fengu m.a. tvær horn- spyrnur á fyrstu 5 mín. leiksins. En síðan jafnaðist leikurinn og það voru þó Keflvíkingar sem fengu fyrsta hættulega marktæki- færið á 9. mín. Óli Þór átti send- ingu á Ragnar Margeirsson inn fyrir vörn KA, hann lék inn í teiginn og skaut góðu skoti sem Haukur varði vel. Á 16. mín. kom Einar Ásbjörn Ólafsson Keflvíkingum yfir, er hann skall- aði í mark KA af stuttu færi eftir fyrirgjöf Gests Gylfasonar. Haukur hálfvarði skallann frá Einar Ásbirni en hélt boltanum ekki, sem rúllaði yfir marklín- una. KA-menn Iétu ekki slá sig út af laginu við þetta og náðu að jafna 5 mín. síðar. Gauti Laxdal sendi boltann fyrir markið úr aukaspyrnu frá vinstri, þar stökk Jón Kristjánsson hæst og skallaði boltinn til bróður síns Erlings, sem stóð einn og óvaldaður á markteig og skallaði boltann áfram í netið hjá Þorsteini Bjarnasyni. Á 33. mín. skoraði Óli Þór mark fyrir Keflvíkinga með skalla sem dæmt var af, þar sem Óli P. Olsen dómari taldi að nafni sinn hefði gerst brotlegur. Á 43. mín. var Óli Þór enn á ferðinni er hann skallaði fyrirgjöf Grétars Einarssonar í utanverða stöng- ina. Á síðustu mín. hálfleiksins komst Bjarni Jónsson KA-maður í gegnum vörn ÍBK en Þorsteinn Bjarnason varði skot hans úr frekar þröngri stöðu, í horn. í síðari hálfleik fengu liðin nokkur ágæt marktækifæri og m.a. átti Einar Ásbjörn skot í slá og yfir af stuttu færi. En það voru KA-menn sem nýttu eitt af sínum færum og skoruðu mark á 70. mín. sem reyndist sigurmark leiksins. Tekin var hornspyrna og eftir mikinn darraðardans í víta- teignum, stökk Valgeir Barðason á boltann og sendi hann í hornið hjá Þorsteini af stuttu færi. Erlingur Kristjánsson var lang- besti maður vallarins í þessum leik og sýndi enn einu sinni hversu mikilvægur hann er KA- liðinu. Aðrir leikmenn liðsins stóðu einnig fyrir sínu og þetta var fyrst og fremst sigur liðsheild- arinnar. Frank Upton þjálfari ÍBK tók þá Ragnar Margeirsson og Einar Ásbjörn út af snemma í stðari hálfleik og þó að þeir félagar hafi ekki verið mjög atkvæðamiklir fram að því í leiknum, vakti sú ákvörðun mikla athygli og ekki varð þessi breyting til þess að skerpa sókn ÍBK-liðsins. Einar Ásbjörn hafði skorað mark ÍBK og Ragnar Margeirsson er leikmaður sem getur unnið leik upp á sitt einsdæmi. Sigurður Björgvinsson lék best Keflvík- inga að þessu sinni. Lið KA: Haukur Bragason, Erlingur Kristjánsson, Jón Kristjánsson (Halldór Halldórsson vm. á 88. mín.), Arnar Bjarnason (Arnar Freyr Jónsson vm. á 46. mín.). Stefán Ólafsson. Þprvaldur Örlygsson, Gauti Laxdal, Bjarni Jónsson, Örn Viðar Arnarson, Antony Karl Gregory, Valgeir Barðason. Lið ÍBK: Þorsteinn Bjarnason, Guð- mundur Sighvatsson. Sigurður Björgvinsson. Peter Farell, Gestur Gylfason, Ragnar Margeirsson (Jóhann Magnússon vm. á 65. mín.) Einar Ásbjörn Ólafsson (Árni Vilhjálmsson vm. á 65. mín.). Grétar Einarsson. Óli Þór Magnússon, Ingvar Guðmundsson, Jón Sveinsson. Dómari: Óli P. Olsen og dæmdi ágæt- lega. Línuverðir: Sæmundur Víglunds- son og Gcir Þorsteinsson. Gul spjöld: Erlingur Kristjánsson og Antony Karl Gregory KA og Jóhann Magnússon IBK. Óli Þór Magnússon leikmaöur ÍBK og Gauti Laxdal K A-maður í baráttu um boltann í leiknum á föstudag. Þó að Oli Þór hafi haft betur í þetta skipti voru það Gauti og félagar sem fögnuðu sigri. Mynd: TLV íslandsmótið í knattspyrnu 2. deild: Kærkominn sigur Tinda- stóls í Vestmannaeyium T s A n . . S TTT T T Liðið fékk óskabyrjun í 4:2 sigri á ÍBV Tindastóll gerði góða ferð til Vestmannaeyja sl. föstudags- kvöld að keppa við ÍBV í 2. deild íslandsmótsins í knatt- spyrnu. Eftir slæma útreið í fyrstu tveim leikjunum gegn KS og Víði tókst Tindastóli að krækja sér í sætan sigur og fljúga burt frá Vestmannaeyj- um með fyrstu þrjú stigin í farteskinu. Úrslit leiksins urðu þau að heimamenn gerðu tvö mörk gegn fjórum mörkum Tindstælinga. Staðan í hálfleik var 3:0. Það voru ekki liðnar nema þrjár mínútur af leiknum þegar Ingvar Guðfinnsson skoraði með skalla fyrir Tindastól, eftir langt innkast frá Eyjólfi Sverrissyni, Hólmar Ástvaldsson skallaði boltann lengra fyrir markið og þar kom Ingvar aðvífandi og hamraði knöttinn inn. Ingvar var aftur á ferðinni tveim mínútum síðar. Þá var tekin hornspyrna og boltinn barst að fjarstönginni þar sem Ingvar stóð óvaldaður og skallaði firnafast í markið upp við slána, gjörsamlega óverjandi fyrir markvörð ÍBV. Sem sagt óskabyrjun, staðan orðin 2:0 eftir 5 mínútur. Fyrri hálfleikur var nánast í eigu Tindastóls, heimamenn fengu lítil sem engin færi og lítið reyndi á Gísla Sigurðsson, mark- vörð Tindastóls. Rétt fyrir leikhlé bætti Tindastóll við þriðja markinu. Þá óð Eyjólfur upp völlinn frá miðju að vítateignum vinstra megin, sneri sér þá við og rak boltann inn að miðri víta- teigslínu og skaut snöggu skoti í mark ÍBV. Vestmanneyingar komu ákveðnir til leiks í seinni hálfleik og á 50. mínútu skoruðu þeir sitt fyrsta mark í leiknum. Það var Hlynur Stefánsson sem gerði það beint úr aukaspyrnu, glæsilegt ntark og óverjandi fyrir Gísla í marki Tindastóls. Á 65. mínútu kom fjórða mark Tindastóls. Þar var Eyjólfur aftur að verki eftir frábæran undirbúning Guð- brandar Guðbrandssonar, sem óð upp hægri kantinn, lék á nokkra Vestmanneyinga og gaf fyrir markið. Þar beið Eyjólfur sallarólegur og átti ekki í erfiö- leikum með að koma knettinum í netið. Mikil barátta var síðustu 20 mínútur leiksins og á 80. mínútu skoraði Ingi Sigurðsson fyrir IBV, eftir mistök varnarmanns Tindastóls. Eftir það sótti ÍBV fast að marki Tindastóls, en tókst ekki að bæta við þriðja markinu. Úrslitin því ráðin, 4:2 fyrir Tinda- istól. Lið Tindastóls í þessum leik var í heild gott og erfitt að taka einhverja út. Einna helsta má nefna Eyjólf, Guðbrand, Eystein Kristinsson og varnarmanninn Ingvar, sem gerði sín fyrstu tvö mörk fyrir Tindastól. bjb Staðan 2. deild Úrslit leikja í 2. deild íslands- mótsins í knattspyrnu um helgina urðu þessi: UBK-Selfoss 2:2 ÍBV-Tindastóll 2:4 KS-ÍR 2:2 Víðir-FH «:2 Staðan í deildinni er þessi: FH Víðir UBK Fylkir KS ÍR ÍBV Tindastól! Selfoss Þróttur 3 3-0-0 8: 2 9 3 1-1-1 5: 3 4 3 1-1-1 6: 5 4 2 1-1-0 3: 2 4 3 1-1-1 7: 7 4 3 1-1-1 5: 6 4 3 1-0-2 6: 8 3 3 1-0-2 6:10 3 3 0-2-1 5: 7 2 2 0-1-1 4: 5 1

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.