Dagur - 06.08.1988, Síða 6

Dagur - 06.08.1988, Síða 6
ff-DAGUR - 0.°ágiist1988 sakomálasago - Maðurim sem vissi ofmikið Árið 1930 var við skipasmíða- stöðina St. Nazaire í Frakklandi hleypt af stokkunum einhverju besta farþegaskipi, sem smíðað hafði verið fram að því, Georges Phillipar. Pað tók tæp tvö ár að fullgera þetta 17000 tonna skip, sem flutt gat eitt þúsund farþega. Káeturn- ar voru í hágæðaflokki, harðvið- arklæddar og tengdar góðu loft- ræstikerfi. Ekkert var til sparað að tryggja öryggi farþeganna. Nýjustu hugmyndum varðandi eldvarnir var góður gaumur gef- inn og m.a. var sett vatnsúðunar- kerfi í allt skipið. En þetta dugði skammt, þegar á átti að herða. Jómfrúrferðin var farin til Kína. Á heimleiðinni braust út eldsvoði á D þilfari. Eldurinn breiddist út með ofsa- hraða, 53 farþegar létu lífið og stolt fransk farþegaskipaflotans sökk í Rauða hafið. Sérstök rannsóknarnefnd var sett á laggirnar í París. Hún fann ekkert það, sem benti til, að elds- upptök væru af völdum rafmagns eða af slysni. Af hálfu rannsókn- arnefndarinnar var það gefið í skyn, að áhrifamikil alþjóðleg samtök væru ábyrg og tilgangur þeirra hefði verið sá einn, að koma fyrir kattarnef einum farþeganna, frönskum blaða- manni. Þegar skipið var statt í Shanghai, það var í aprílmánuði 1932, þá steig um borð farþegi til Frakklands, Albert Londres. Hann var sjálfstæður blaðamaður og hafði verið í Indókína í tæpt ár í erindagjörðum, sem ekki voru öllum ætluð. Hver einasta síða í minnisbók hans var full- skrifuð. Upplýsingar þær, sem þar var að finna, hefðu komið sér í meira lagi óþægilega fyrir ákveðna stóriðjuforstjóra í London, París og Berlín. Milljónir manna í Evrópu biðu eftir næstu bók þessa met- söluhöfundar og margir veltu því fyrir sér, hvar hann bæri niður. í fyrstu bók sinni, „Leiðin til Buenos Aires", sem út kom þrem árum áður, afhjúpaði hann hvíta þrælasölu með ungar konur úr hóruhúsunum í Marseilles og Hamborg til Suður-Ameríku. Frá því sú bók kom út var hann hataður af meðlimum frönsku og þýsku smyglhringjanna. En Londres lét ekki hræða sig. Hann hélt áfram og kom upp um svipaða sölustarfsemi, þar sem ungar evrópskar stúlkur voru seldar til starfa í vændishúsum í Shanghai. Einnig hafði hann rannsakað hryðjuverkasamtök þau, sem myrtu Júgóslavíukon- ung á franskri grund. Þegar Londres steig um borð á Georges Phillipar hafði hann lok- ið einni rannsókninni enn, í þetta sinn á vopnasöluhringjum í Áust- urlöndum fjær. Herir Japanskeis- ara voru í óða önn að vígbúast fyrir árásarstyrjöld og kínverskir herforingjar slátruðu löndum sín- um í blóðugum bardögum til að treysta yfirráð sín bæði í Kína og Mansjúríu. í herbúðum Evrópulanda breidd- ist út sá orðrómur, að Albert Londres væri á heimleið með efni, sem safna myndi glóðum elds að höfði vellríkra vopnasala í Evrópu, hinum svokölluðu kaupmönnum dauðans. Londres kom sér fyrir í klefa sín- um og hafðist þar síðan við að mestu og vann úr efni sínu og minnispunktum. Skipið kom við í Saigon og þar komu fleiri farþeg- ar um borð, aðallega starfsmenn nýlendustjórnarinnar frönsku og fjölskyldur þeirra. Einnig var komið við í Singapore, Penang og á Ceylon. Þegar komið var á Rauða hafið voru um 800 farþeg- ar um borð. Að kvöldi 15. maí sat Londres í klefa sínum og vann. Flestir farþeganna voru á þilfari. Að loknum kvöldverði var boðið upp á dans í hitaþrungnu kvöldloft- inu. Farþegarnir dáðust að arabísku strandlengjunni og veif- uðu áhöfninni á rússneska olíuskipinu Sovietskya Neft, sem fór fram hjá í hálfrar sjómílu fjarlægð. Um miðnætti fór skipstjórinn á Georges Phillipar, Anton Vicq, til klefa síns og yfirgaf þá farþega, sem enn sátu uppi á dekki og dreyptu á kældu kampa- víni. Tveim tímum seinna var skip- stjórinn vakinn af vakthafandi stýrimanni, sem sagði honum að eldur væri laus á D þilfari. Vicq skipstjóri fór tafarlaust niður í klefa númer 5 bakborðsmegin í skipinu. Þar sá hann „að eldurinn breiddist ört út til annarra hluta skipsins“. Þegar skipstjórinn flýtti sér eftir þilfarsganginum til að setja í gang eldviðvörunarkerfið rakst hann á hjúkrunarkonuna Yvonne Valentin, sem kallaði upp yfir sig, að kviknaði væri í hennar klefa, sem var númer 7. Meðan á þessu stóð var Albert Londres í klefa sínum, númer 6, óvitandi um hvað var að gerast fyrir fram- an dyrnar hjá honum. Vicq skipstjóri gerði árangurs- lausa tilraun til að hefta útbreiðslu eldsins. Hann skipaði svo fyrir, að öllum loftræstiopum skyldi lokað og slökkt á loftræsti- dælunum. En innan fárra mínútna hafði eldurinn breiðst út og náð stjórnpallinum. Skipstjór- inn gaf, þegar svo var komið, fyrirskipun um að yfirgefa skipið. Björgunarbátarnir voru settir á flot og loftskeytamaðurinn sendi út neyðarkall. Loftskeyta- tækin þögnuðu þó fljótlega, þeg- ar drapst á ljósavélunum. Loft- skeytamaðurinn fór eftir neyðar- áætluninni og ætlaði að tengja neyðarrafgeymana, en þeir voru horfnir. Fljótlega komu skip til hjálpar. í hópnum voru rússneska olíu- flutningaskipið, tvö bresk flutn- ingaskip og eitt japanskt og tvö farþegaskip. Björgun þeirra, sem komust í bátana og annarra, sem flutu um í björgunarbeltum, gekk vel. Á ótrúlega skömmum tíma björguðust flestir þeirra, sem verið höfðu um borð í Georges Phillipar um borð í önnur skip. í þrjá daga brann í flakinu og eld- tungurnar sáust langt að. Að lok- um fékk það slagsíðu og sökk. Albert Londres, sem setið hafði fanginn í klefa mitt á milli tveggja annarra, sem á óútskýranlegan hátt höfðu orðið alelda samtímis, var horfinn. í hópi þeirra, sem komust af, voru einstaklingar, sem full- yrtu, að þeir hefðu séð Albert Londres reyna að troða sér út um kýraugað með dýrmætt handrit sitt í hendi. Af opinberri hálfu var því lýst yfir að maðurinn, sem vissi of mikið, hefði drukknað. Minnisblöð hans og handrit hurfu í Rauða hafið. Vellauðugir og kaldrifjaðir vopnasalar Evrópu gátu haldið áfram starf- semi sinni ótruflaðir, þegar skýrslu Alberts Londres hafði verið rutt úr vegi. Sjö árum síðar uppskáru þeir árangur erfiðis síns. Áhættufjármagn þeirra gaf góða ávöxtun, þegar heimsstyrj- öldin síðari braust út. rarpegasKipio v.eorges rniiiipar í jomtruartero smni til Kina. Ekkert var til sparað að tryggja öryggi farþeganna. Brunnið flak Georges Philiipar sem Albert Londres er sagður hafa farist með.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.