Dagur - 23.08.1988, Page 1

Dagur - 23.08.1988, Page 1
71. árgangur Akureyri, þriðjudagur 23. ágúst 1988 157. tölublað Gránufélagsgötu 4 Akureyri - Sími 23599 Ráðgjafanefiidin vill niðurfærslu - allt að 10% lækkun launa og verðlags Séð út Eyjafjörð frá Hjalteyri. Mynd: GB Öxarflörður: Heitt vatn íiindið - nægir til að hita 1000 hús í gær gaf borhola við Skógalón í Oxarfirði 130 tonn/klst. af 85 stiga heitu, sjálfrennandi vatni. Mun slíkt vatnsmagn nægja til að hita upp 1000 hús, og má auka vatnsmagnið veru- lega með dælingu að sögn Guðmundar Ómars Friðleifs- sonar, jarðfræðings hjá Orku- stofnun. Borun holunnar er liður í rann- sóknaverkefni á vegum Orku- stofnunar og sveitarfélaganna á svæðinu ásamt Seljalax hf., en bor frá Jarðborunum hf. er not- aður við verkið. Eysteinn sagði að árangur af boruninni væri alveg einstakur. Tilgangurinn með boruninni hefði verið sá að finna sem mest af heitu vatni, og teldu menn að enn væri von á meira vatni ef borað væri dýpra. Því væri mikill hugur í Seljalax- mönnum að bora sem dýpst, en upphaflega var ráðgert að fara í a.m.k. 500 m dýpi. IM Ráðgjafanefnd ríkisstjórnar- innar skilaði í gær bráðabirgða- áliti til Þorsteins Pálssonar forsætisráðherra. Helstu tillög- ur hennar eru að laun og verð- lag verði lækkað með lögum - niðurfærsluleiðin svokallaða. Einnig gerir nefndin ráð fyrir að vextir verði færðir niður ef bönkum og innlánsstofnunum takist ekki að lækka vexti mið- að við verðlag. Ekki er gert ráð fyrir að gengið verði fellt. Tilíögur nefndarinnar hafa ekki verið gerðar opinberar og ráðamenn verjast frétta af gangi mála. Einar Oddur Kristjánsson formaður nefndarinnar sagði að þeir myndu hittast aftur og skila endanlegri skýrslu næstu daga. Þorsteinn Pálsson forsætisráð- herra var varkár í svörum er hann var spurður af fréttamönn- um eftir fund sinn með nefndinni til hvaða ráðstafana yrði gripið. Sagðist hann ætla að leggja málið fyrir stjórnina á morgun og þar yrðu tillögur nefndarinnar rædd- ar. Ekki vildi forsætisráðherra tjá sig um hvenær ákveðið yrði að grípa til efnahagsaðgerða. Tillögur nefndarinnar gera ráð fyrir því að ríkisstjórnin láti kanna hver áhrif mismunandi prósentulækkanir hafi á verðlag. Samkvæmt fréttum telja nefndar- menn að allt að 10% skerðing á launum og verðlagi sé nauðsyn- leg til að ná tökum á efnahags- málunum. Pótt nefndin virðist vera sam- mála um þessa leið eru hliðarráð- stafanirnar þær sem mestum deil- um valda og ekki er víst að nefndarmenn nái samkomulagi um þær. Deilt er m.a. um leiðir til þess að ná niður ríkisútgjöld- um og auka tekjur ríkisins. Nefndin sat á fundi meirihluta dags í gær og var enn á fundi er Dagur fór í prentun. AP Kartöfhmppskera: Prýðilegar horfur Guðmundur Þórisson formaö- ur Félags kartöflubænda telur prýðilegar horfur vera á ágætis kartöfluuppskeru í haust ef ekki fer að frysta. Misjafnlega mikið er undir grösunum en víða er það orðið álitlegt. Óvenjumikil uppskera var í fyrra og sagðist Guðmundur vona að ekki yrði það sama uppi á teningnum í ár. „Það var eng- inn hagur af svona mikilli upp- skeru," sagði hann. Kartöflubændur eru lítið farnir að taka upp og selja nýjar kart- öflur. Ástæða þess er að ennþá er þó nokkuð mikið til af góðum kartöflum frá því í fyrra og eru þær á góðu verði. „Pað eru marg- ir komnir með það góðar geymsl- ur svo að kartöflurnar geymast vel. Nýju kartöflurnar eru líka ennþá tiltölulega dýrar og það er ekki hagur í því að taka þær upp ennþá. Um leið og eftirspurn eft- ir þeim eykst verður farið að taka meira upp,“ sagði Guðmundur. KR Breytt greiðslufyrirkomulag hjá tryggingafélögunum: Bifreiðagjöld hækka um næstu mánaðamót - taka framvegis hækkunum mánaðarlega Borað var niður í fyrstu vatns- æð holunnar á 137 m dýpi fyrir verslunarmannahelgi, og hrundi þá holan og festi borstrenginn. Fyrri hluti ágúst fór síðan í að bjarga holunni og tókst bor- mönnum frá Jarðborunum hf., af miklu harðfylgi, að fóðra holuna niður á 117 m dýpi, og steyþa fóðringuna fasta. I síðustu viku var svo borað niður úr fóðring- unni og kom þá vatnsæðin inn aftur á 137-140 m dýpi. Æðin reyndist vera 103° C heit. Er neð- ar dró var svo komið í aðra vatns- æð á 160-180 m dýpi, og er hún einungis um 30° C heit. Loks var svo komið í þriðju vatnsæðina á 200 m dýpi, og var sú um 110° C. í sameiningu gefa allar þessar vatnsæðar um 35 1/s af u.þ.b. 85° C heitu vatni, en holan fer hitn- andi. „Við erum óskaplega ánægð- ir,“ sagði Eysteinn Sigurðsson, kaupfélagsstjóri KNÞ og einn stjórnarmanna Seljalax í samtali við Dag í gær. „Við erum að reyna að fá fjármagn til að bora niður á 5-600 metra dýpi. Það kostar um 1,5-2,0 milljónir, en nærri því 1 milljón að fá borinn aftur á staðinn ef til þess þyrfti að koma.“ Þeir sem alvarlega eru að hugsa um að skipta um, eða kaupa sér bíl þessa dagana ættu að drífa í því, vegna þess að iðgjöld bifreiðatrygginga hækka um næstu mánaðamót. Tryggingafélögin hafa, með samþykki Tryggingaeftirlits- ins, ákveðið að hverfa frá því að iðgjöld hækki aðeins einu sinni á ári þannig að þau munu framvegis hækka mánaðarlega og verður sú hækkun ákvörð- uð miðað við vísitölu Hagstofu íslands. Þetta þýðir að hyggist bíleig- andi ábyrgðartryggja bifreið sína í dag, kaupir hann tryggingu til árs, en ekki aðeins til 1. mars. „Þetta verður til þess að „stóri skellurinn" einu sinni á ári, verð- ur ekki eins stór en á móti kemur að þetta verður auðveldara fyrir félögin, því nú koma peningarnir inn með jöfnu streymi og ávöxt- un þeirra verður auðveldari,“ sagði Ólafur Jón Ingólfsson hjá Almennum Tryggingum í samtali við blaðið en hann á jafnframt sæti í samstarfsnefnd trygginga- félaganna sem unnið hefur að undirbúningi þessara breytinga. í hverjum mánuði verður reiknuð út hækkun iðgjaldanna. Ólafur Jón sagði að áfram verði notaður sami grunnur og verið hefur auk þess sem vísitala Hag- stofu íslands verði notuð til þess að mæla hækkunarþörf hverju sinni. Ekki vildi hann gefa upp Bifreiðagjöldin munu hækka um mánaðamótin. hver hækkunin nú um mánaða- mótin verður nákvæmlega, „hún verður einhver prósent,“ eins og hann komst að orði. Vegna við- miðunar við vísitölu Hagstof- unnar verður hækkunin nú ekki eins mikil og hún hefði getað orðið, því tollabreytingarnar um síðustu áramót sem m.a. gerðu að verkum að varahlutir í bifreið- ir lækkuðu, kemur á ný bifreiða- eigendum til góða. Aðspurður um hvernig endur- greiðsla iðgjalda mun fara fram eftir breytingarnar sagði Ólafur Jón, að ákveðið hefði verið að endurgreiða iðgjald á þeim gjöld- um sem endurnýjað var á, en ný trygging keypt á nýjum töxtum og þá til eins árs. VG

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.