Dagur - 23.08.1988, Page 2

Dagur - 23.08.1988, Page 2
2 - DAQMP r íS.ágú^^ðSS Eigendaskipti notaðra bíla: Nýtt fyrirkomulag á tílkyiuiingum Auglýsingar frá menntamála- ráðuneytinu um lausar kenn- arastöður við Verkmennta- skólann á Akureyri báru ekki árangur þrátt fyrir látlausar auglýsingar frá því um miðjan maí. Þegar leið að hausti og enn voru fjórar stöður ómannaðar var gripið til ann- arra ráða. „Já, við leituðum að stúdent- um sem voru góðir að okkar mati og það endaði með því að við réðum fjóra, flesta tæknistúd- enta, sem þýðir að þeir hafa fyrst farið í gegnum iðngrein og þaðan í undibúnings- og raungreina- deild,“ sagði Baldvin Bjarnason, settur skólameistari. Hann sagði að þessir stúdentar myndu þó ekki kenna iðngreinar sínar heldur stærðfræði, eðlis- fræði, íslensku og fleira. Hann sagðist vera ánægður með að geta þó mannað kennarastöðurnar með hæfu fólki fyrst skólanum var fyrirmunað að fá fleiri kennara til starfa. SS Fjórar búseturéttar- íbúöir í byggingu Framkvæmdir eru aö hefjast við byggingu fjögurra búsetu- réttaríbúða á Húsavík á veg- um Dvalarheimilis aldraðra sf. íbúðirnar verða í tveimur parhúsum að Litla-Hvammi 8- 11. Byrjað var að grafa fyrir húsunum á miðvikudaginn sunnan við sjö hús sem þegar hafa verið reist af Dvalarheimil- inu, vestan við aðalbyggingu þess, Hvamm. Fyrsti áfangi byggingarinnar, grunnurinn, var boðinn út. Fjögur tilboð bárust og var til- boði frá Borg hf., trésmíða- verkstæði á Húsavík, tekið. Fyrsta áfanga verksins á að vera lokið 20. sept. nk. og stefnt verður að því að gera húsin fok- held á árinu. IM Hinn 1. september nk. gengur í gildi gjörbreytt fyrirkomulag á tilkynningu eigendaskipta á notuðum ökutækjum. Frá þeim degi hætta afgreiðslur Bifreiðaeftirlits ríkisins að taka á móti tilkynningum um breyt- inga á eignarhaldi á ökutækj- um (sölutilkynningum) en þess í stað skal tilkynna allar breyt- ingar á eignarhaldi á pósthús- um. Það eru Bifreiðaeftirlit ríkisins og póstgíróstofan sem hafa sam- starf um þetta nýja fyrirkomulag í samráði við dómsmálaráðuneyt- ið. Póstgíróstofan hefur gefið út nýtt pósteyðublað sem nefnist „Tilkynning um eigendaskipti ökutækis“ og mun það liggja frammi á öllum pósthúsum lands- ins og má nálgast það þar án endurgjalds. Einnig verðureyðu- blaðið gefið út í samhangandi tölvutæku formi fyrir bílasölur og aðra er vilja nota tölvu við útfyll- ingu eyðublaðsins. Pessu eyðu- blaði er ætlað að leysa af hólmi Norrænir iðnráðgjafar: Þingaá Akureyri Norrænt þing iðnráðgjalá í strjálbýli verður haldið á Hótel KEA á Akureyri dagana 1.-3. september næstkomandi. Þá munu í kringum 50 iðnráðgjaf- ar víðs vegar af Norðurlönd- unum hittast og bera saman bækur sínar. Pessi ráðstefna ber heitið „Idébörs ’88“ og á henni verður fjallað um um samstarf fyrir- tækja, einkum á sviði sölu/út- flutnings, vöruþróunar og fram- leiðslu. Fjögur framsöguerindi um þessi efni verða flutt þarna og eru framsögumenn frá Finnlandi, íslandi, Danmörku og Noregi. -KK Verkmenntaskólinn: Stúdentar í kennara- stöðum öll önnur form sem notuð hafa verið til að tilkynna sölu öku- tækja. Eftir að eyðublaðið hefur verið fyllt út og undirritað af kaupanda og seljanda er farið með það á pósthús þar sem þvf er veitt mót- taka og eigendaskiptagjald og póstþjónustugjald greitt. Pósthúsið sendir eitt afrit eyðublaðsins til bifreiðaeftirlits- ins í Reykjavík sem sér um að færa eigendaskiptin í bifreiða- skrá. Eru eigendaskipti af öllu landinu þar með færð inn á ein- um stað. Eftir að eigendaskiptin hafa verið færð í bifreiðaskrá sendir bifreiðaeftirlitið nýjum eiganda nýtt skráningarskírteini í pósti. Með þessu nýja fyrirkomulagi vinnst margt. Afgreiðslustöðum á eigendaskiptum fjölgar í um 100 í öllum byggðum landsins, tilkynning eigendaskipta og greiðsla eigendaskiptagjalds fylgjast að, öryggi við innfærsl- una eykst og sá tími sem líður frá því að eigendaskipti eru tilkynnt og þar til að innfærsla fer fram styttist. Pau atriði sem skrá skal á hið nýja eyðublað eru hin sömu og á eldra form sölutilkynninga utan það að á nýja eyðublaðið skal einungis skrá fast númer öku- tækisins en ekki skráningarnúm- er þess. Hinn 1. september verða all- margir einstaklingar vafalaust með í fórum sínum útfylltar sölu- tilkynningar á eldri formum sem þeir hafa ekki komið til af- greiðslu hjá bifreiðaeftirlitinu. Þessar tilkynningar skal frá og með 1. september einnig fara með á pósthús. Þar fylla menn út nýja eyðublaðið með sömu upp- lýsingum og eru á eldri tilkynn- ingunni að frátöldum undirskrift- um. Póstmaður afgreiðir eig- endaskiptin en fær jafnframt eldri tilkynninguna hjá viðskipta- vininum og heftir hana við það afrit eyðublaðsins sem sent er til bifreiðaeftirlitsins. Eins og kunnugt er eru umskráningar ökutækja heimilar til áramóta. Með ofangreindri breytingu er skilið á milli tilkynn- ingu eigendaskipta og umskrán- inga. Eftir 1. sept. annast afgreiðslur bifreiðaeftirlitsinis einvörðungu umskráningar þar sem tilkynning eigendaskipta flyst þá yfir á pósthúsin skv. framansögðu. Tjaldstæðin á Akureyri: Húsavík: hægt væri að nota hluta af íþróttahöllinni til þessara hluta. Auk þess stakk ég upp á að um nætur yrði lokað fyrir umferð um Þórunnarstræti milli Hrafnagils- strætis og Þingvallastrætis til þess að meiri ró yrði,“ sagði Ólafur. Hann sagðist ekki vera að fara fram á annað en að umhverfis- nefnd tæki þetta til vinsamlegrar athugunar. „Það er alls ekki mín skoðun að hér sé illa staðið að því sem gert er heldur finnst mér þegar maður hugsar til framtíðar- innar að bjóða mætti upp á meira,“ sagði hann. ívar Sigmundsson forstöðu- maður tjaldstæðanna sagði að sér þætti mjög gott að fá svona athugasemd frá héraðslækni. Þetta væri hlutur sem búið væri að benda á frá því hann tók við tjaldstæðunum fyrir 6 árum en alltaf hefði strandað á fjárveiting- um. „Ég ætla rétt að vona að meira mark verði tekið á honum heldur en okkur,“ sagði ívar. í haust verður bréfið væntan- lega tekið til nánari umfjöllunar þegar fjárhagsáætlun verður gerð og farið fram á a.m.k. eitthvað af þeim úrbótum sem Ólafur fer fram á. „Molbúaháttur okkar Akur- eyringa í tjaldstæðismálum er að verða algjör miðað við það sem er að gerast á stærri ferðamanna- stöðum,“ sagði ívar. „Ég vona því að athugasemd Ólafs verði mjög gott innlegg í uppbygging- armál tjaldstæðanna.“ KR Nýlega barst umhverfisnefnd Akureyrar bréf frá Ólafi H. Oddssyni héraðslækni, varð- andi aðstöðu á tjaldstæðum Akureyrar. Ivari Sigmundssyni forstöðumanni tjaldstæðanna hefur verið falið að gera skýrslu um málið og leggja fram tillögur um úrlausnir. í bréfinu kemur fram að af og til hafi gestir tjaldstæðanna, sem þekkja persónulega til Ólafs, kvartað yfir ýmsum atriðum. Það er þá aðallega hávaði um nætur og einnig að ekki skuli vera sturtuaðstaða og aðstaða til að þvo þvott. Gestunum fannst að auki vanta húsaskjól ef mjög slæmt veður kæmi. „Ég kom þessu bara áleiðis og stakk jafnframt upp á því hvort möguleiki væri að skoða hvort Aðstaðan mætti vera betri að mati gesta 'I ^ ^J * M r *1 "J * ? g * i • .*tn ;• j b 91V«" i»' i» n t w t

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.