Dagur


Dagur - 23.08.1988, Qupperneq 6

Dagur - 23.08.1988, Qupperneq 6
6 - DAGUR - 23. ágúst 1988 á Siglufirði - rúmlega 1000 manns samankomnir á Hóli Lokadagur hátíðarhaldanna á Siglufírði var á laugardaginn og var þá margt til skemmtun- ar fyrir bæjarbúa og afmælis- gesti. Aðaldagskráin fór fram á Hóli, þar sem um 1000-1200 manns voru saman komin í blíðskaparveðri. Það var íþróttabandalag Siglufjarðar sem hafði veg og vanda að lokadagskránni, sem tókst með afbrigöum vel. Um morguninn voru ýmsar uppákomur í Sundhöllinni, s.s. boðsund á vindsængum o.fl. Þá var gönguhjólarallý og víða- vangshlaup um götur bæjarins. Eftir hádegi byrjaði svo dagskrá- in á nýja Hólsvellinum á leik KS og Breiðabliks í 2. deildinni, en þvf miður töpuðu heimamenn þeim leik. í leikhléi var svo fall- hlífarstökk, einir fjórir fallhlífar- stökkvarar lentu á Hólsvellinum við góðar undirtektir fjölmargra áhorfenda. Að leik loknum fór fram skemmtidagskrá þar sem menn reyndu atgervi sitt í ýmsum leikj- um, s.s. pokahlaupi, naglaboð- hlaupi, belgjahlaupi, reiptogi o.m.fl. Síðan var tekið til við heilmikla grillveislu að Hóli. Öll- um bæjarbúum og gestum var boðið til veislu þar sem menn hesthúsuðu pylsur og kjöt eins og þeir gátu í sig látið og renndu niður með gosdrykkjum. Heill bílfarmur af gosi stóð við grillið, þar sem um 2 tonn af kjöti og pylsum voru grilluð ofan í mann- skapinn. Um kvöldið lauk svo afmælis- hátíðinni á Siglufirði með varð- eld og flugeldasýningu að Hóli og síðan dansleik á Hótel Höfn. Þar með lauk 8 daga hátíðarhöldum, sem tókust með afbrigðum vel og voru Siglfirðingum til sóma. Myndir og texti: BJB KS og UBK léku fyrsta deildarleikinn á nýja grasvellinum á Siglufirði á laug- ardag. í hálfleik lentu fjórir fallhlífarstökkvarar á vellinum við góðar undir- tektir áhorfenda. Að minnsta kosti 2000 pylsur voru grillaðar í veislunni miklu og liöfðu þeir, sem sáu um fram- reiðsluna, meira en nóg að gera. í belgjahlaupinu sáust hin ótrúlegustu tilþrif. Að lokinni skemmtidagskrá var bæjarbúum og gestum boðið til mikillar grillveislu og var þrön á þingi. Siglfirsk ungmenni öttu kappi í reiptogi og var tekið hraustlega á, svo sem sjá má. Að knattspyrnuleiknum loknum var boðið upp á fjölbreytta skemmtidagskrá á Hólsvelli. Meðal atriða var svokallað naglaboðhlaup, þar sem keppendur þurftu að inna af hendi ýmsar þrautir meðan á hlaupinu stóð. Þeir þurftu að skríða gegnum síldartunnu...

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.