Dagur - 23.08.1988, Síða 7

Dagur - 23.08.1988, Síða 7
*‘W átjliist 1^88 -‘ÖÁfeítjR - 7 Kvennaknattspyrna: Þór í 1. defld - sigraði KS 3:0 í úrslitaleik á föstudagskvöldið Þór tryggði sér sæti í 1. deild kvenna þegar liðið sigraði KS í hreinum úrslitaleik um annað sætið í 2. deild á Þórsvelli á föstudag. Breiðablik hafði þegar tryggt sér sigur í deild- inni en Þór tryggði sér annað sætið með 3:0 sigri á föstudag- inn. Jafnræði var með liðunum framan af fyrri hálfleik en um miðjan hálfleikinn náðu Þórs- stúlkurnar undirtökunum. Þær náðu þó ekki að skora fyrir hlé og staðan var 0:0 þegar síðari hálf- leikur hófst. Þegar um 10 mínútur voru liðnar af síðari hálfleik var dæmd vítaspyrna á KS og Steinunn Jónsdóttir skoraði úr henni. Skömmu síðar komst Ellen Ósk- arsdóttir ein inn fyrir vörn KS og skoraði annað mark Þórs. Þórs- stúlkurnar pressuðu síðan áfram en tókst ekki að bæta við fleiri mörkum fyrr en undir lok leiksins þegar Kolbrún Jónsdóttir skoraði þriðja markið beint úr auka- spyrnu. UBK hafnaði í efsta sæti deild- arinnar með 15 stig af 16 mögu- legum. Þór varð í öðru sæti með 11 stig og loks urðu KS-stúlkurn- ar í þriðja sæti með 9 stig. JHB Lið Þórs að loknum leiknum gegn KS. í efri röð frá vinstri: Jónas Hallgrímsson, framkvæmdastjóri, Valgerður Jóhannsdóttir, Soffía Frímannsdóttir, Ellen Óskarsdóttir, Málfríður Þórðardóttir, Karen Ingimarsdóttir, Sveindís Benediktsdóttir, Gunda Viglúsdóttir, Jórunn Jóhannesdóttir, Sigríður Pálsdóttir, Ingigerður Júlíusdóttir og Gísli Bjarnason, þjálfari. Neðri röð frá vinstri: Anna Hermína Gunnarsdóttir, Inga Huld Pálsdóttir, Eva Eyþórsdóttir, Kolbrún Jónsdóttir, fyrirliði, Bergrós Guðmundsdóttir, Friörika Illugadóttir, Steinunn Jónsdóttir og Hólmdís Benediktsdóttir. Mvnd kk SL-deildin: Stórsigur KA-manna á Völsungum - fallið blasir við Húsvíkingunum Það var kraftur og hraði í leik Völsungs og KA á Húsavíkur- velli á sunnudagskvöldið og greinilegt að bæði liðin ætluðu sér sigur. Leikurinn var ekki nema þriggja mínútna gamall er 1. dauðafærið leit dagsins ljós. Helgi Helgason komst þá upp vinstra megin, gaf fyrir en Stefán Viðarsson missti af boltanum, aleinn fyrir opnu marki. Aðeins Staðan 1. deild Úrslit í fjórum fyrstu leikjum 14. umferðar: Völsungur-KA 0:4 ÍBK-Leiftur 2:1 KR-Fram 1:2 Þór-Valur 0:3 Fram Valur ÍA KA KR Þór ÍBK Víkingur Leiftur Völsungur 14 13-1-0 29: 14 9-2-3 25: 7-3-3 23: 7-2-5 25: 7-1-6 21: 4-5-5 18: 3-5-6 16: 3-3-7 10: 1-4-9 9: 1-2-11 8 13 14 14 14 14 13 14 14 3 40 12 29 18 24 22 23 18 22 2117 24 14 19 12 19 7 :28 5 Markahæstir: Guðmundur Steinsson Fram 11 Sigurjón Kristjánsson Val 8 Pétur Ormslev Fram 7 Halldór Áskclsson Þór 6 Þorvaldur Örlygsson KA 6 mínútu seinna átti Erlingur þrumuskot rétt framhjá fjærstöng eftir fyrirgjöf frá hægri. Á 12. mínútu átti Gauti góðan skalla að marki Völsungs en Haraldur varði snilldarlega. Nokkrum mínútum seinna braust Guð- mundur í gegnum vörn KA en Haukur varði skot hans vel. Áfram hélt leikurinn, hraði og barátta á báða bóga. Það var svo á 34. mínútu að hið fræga gat opnaðist á miðri vörn Völsungs. Þorvaldur fékk þá boltann frá vinstri inn á auða svæðið, og fum- laus og öruggur lyfti hann boltan- um yfir úthlaupandi Harald í marki Völsungs. Vel að verki staðið. Sex mínútum seinna skor- aði svo Jón Kristjánsson úr þvögu, 2:0 fyrir KA. Síðasta færi hálfleiksins fengu svo Völsungar er Grétar átti gott skot að marki KA, sem Haukur varði snilldar- lega. Fjörugur fyrri hálfleikur þar sem munaði mestu að KA nýtti færin sín. KA hóf seinni hálfleikinn af krafti og á 48. mín. skoraði Þor- valdur þriðja mark KA og sitt annað í leiknum af stuttu færi. KA tók nú leikinn í sínar hendur, sótti án afláts og 10 mínútum seinna þrumaði Erlingur boltan- um í netið eftir hornspyrnu frá hægri, glæsilegt mark. Eftir þetta má segja að eitt lið hafi verið á vellinum og spurning- in frekar hvort KA tækist að bæta við mörkum en að Völsungar réttu sinn hlut. Tvisvar á þessum tíma bjargaði Haraldur með út- hlaupi og KA átti stangarskot. Síðustu tíu mín. leiksins tóku Völsungar smáfjörkipp pg á 84. mín. átti Helgi Helga gott skot sem Guðjón bjargaði á línu, eftir það fjaraði leikurinn út. Ef til vill finnst mönnum sigur KA of stór miðað við gang leiksins, sérstak- lega í fyrri hálfleik en KA menn héldu haus, spiluðu sóknarleik allan tímann, nýttu færin sín og unnu verðskuldaðan sigur. Ef KA-menn halda áfram á þessari braut eru góðar líkur á því að Evrópuleikur fari fram á Akur- eyri haustið ’89. Völsungar léku þokkalega út á vellinum en sóknarleikurinn er gjörsamlega bitlaus. Ennfremur opnast vörnin íllilega á stundum. Því fór sem fór. HK Þorvaldur Örlygsson er í góðu formi þessa dagana. Hann skoraði tvívegis á Húsavík. Knattspyrna 2. deild: Tindastóll tók stig í Reykjavík Tindastóll tók mikilvægt skref í því að tryggja sæti sitt í 2. deildinni með jafntefli við Þrótt í Reykjavík á laugardag- inn. Leikurinn bar öll merki fallbaráttu, mikil keyrsla og barátta en minna af áferöar- fallegri knattspyrnu. Þegar á heildina er litið var jafntefli sanngjörn úrslit í þessum mikilvæga leik. Þróttarar komu sterkari til leiks á Valbjarnarvellinum og greinilegt að þeir ætluðu sér að selja sig dýrt, enda neðstir í deildinni. Um miðjan fyrri hálf- leik fengu Stólarnir dæmda á sig óbeina aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig. Boltanum var rúllað fyr- ir fætur Björgvins Björgvinssonar og hann þrumaði knettinum í markið. Knötturinn snerti einn varnarmann norðanmanna og Gísli markvörður náði því ekki að koma í veg fyrir mark. Leikurinn jafnaðist eftir mark- ið og Tindastóll fór að sækja í sig veðrið. Ekki tókst þeim þó að skapa sér nein umtalsverð mark- tækifæri og leiddu því Reykvík- ingarnir í leikhléi. Eftir leikhlé voru Sauðkræk- ingar öllu sterkari og þar kom að þeir náðu að jafna leikinn. Guð- brandur Guðbrandsson átti þá góða sendingu á Eyjólf Sverris- son inn fyrir Þróttaravörnina. Magnús Bergs og Eyjólfur háðu mikið kapphlaup um boltann og þeirri viðureign lauk þannig að Eyjólfur féll við. Dómarinn var í engum vafa og dæmdi vítaspyrnu á Þrótt og þótti sumum áhorfend- um það strangur dómur. En það þýðir ekki að deila við dómarann og Eyjólfur skoraði sjálfur úr vítaspyrnunni. Heldur dró úr leikmönnum kappið við markið og skiptust lið- in á að sækja. Ekki tókst þeim þó að valda neinum sérstökum usla hvorum upp við annars mark og leiknunt lauk því með sann- gjörnu jafntefli 1:1. Þetta var mikilvægt stig sem Tindastóll náði í leiknum og ættu þeir nú bráðlega að vera öruggir um sæti sitt í deildinni. Bestu leikmenn liðsins í þessum leik voru þeir Eyjólfur Sverrisson, sem ætíð skapaði vandamál fyrir varnarmenn Þróttar, og Guð- brandur Guðbrandsson. Einnig var Gísli markvörður öruggur og verður ekki sakaður um markið. Hjá Þrótti skaraði enginn fram úr og verða þeir nú heldur betur að taka á ef þeir ætla ekki að falla úr deildinni. AP

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.