Dagur - 30.08.1988, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 30. ágúst 1988
VERKMENNTASKÓLINN
Á AKUREYRI
Skólinn verður settur
í Akureyrarkirkju fimmtudaginn 1. september kl.
10.00 árdegis.
Skólameistari.
Húsnæði tíl leigu!
Nýstandsett 80 fm húsnæði
við Skipagötu á Akureyri til leigu.
Hentugt fyrir t.d. skrifstofur.
AO
\^_J GLERAUGNAþJONUSTAN DAVÍÐSSON
SKIPAGÖTU 7 - BOX 11 - 602 AKUREYRI - SÍMI 24646
Svalbarðsströndungar
í tilefni af 100 ára afmæli Búnaðarfélags Sval-
barðsstrandar býður félagið Svalbarðsströndung-
um og burtfluttum fyrrverandi félögum til sam-
komuhalds sunnudaginn 4. september kl. 20.30.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku í símum 24902 Helgi
eða 22309 Grímur.
Stjórnin.
HAFNARSTRÆTI 96 SÍMI96-24423 AKUREYRI
Skólaúlpur
Stór sending af skólaúlpum var að koma
til okkar. Margar gerðir og litir á góðu verði
Þær eru öðruvísi.
Það eru úlpur sem
börnin kjósa sér.
Komið meðan
úrvalið
er mest.
HAFNARSTRÆTI96 SÍMI 96*24423 AKUREYRI
I;:;IhD;;;Ií
TrTTTITT
mim
I
rTtl HH rP
Menntaskólinn á Akureyri
Öldungadeild
Innritun í öidungadeild fer fram á skrifstofu
skólans dagana 1.-8. september.
Skrífstofan er opin frá kl. 8-15 virka daga.
Auk þess verður kennslustjóri til viðtals á skrifstof-
unni frá kl. 17.30-19.00 þessa daga.
Við innritun skal greiða innritunargjald kr. 6.200.-
Sérstök athygli skal vakin á því að fáist næg þátttaka
verður nemendum framvegis gefinn kostur á námi á
ferðamálabraut auk náms á hefðbundinni mála-
braut.
Skólameistari.
Samstarf fvTÍrtækja
- Fyrirlestur á Hótel KEA
á vegum Iðnþróunarfélags Eyjaíjarðar
í sambandi við ráðstefnu nor-
rænna iðnráðgjafa, Þemafundur
’88 (Idebörs ’88), sem haldinn
verður á Akureyri 1.-3. septem-
ber, og aðalþema er samstarf fyr-
irtækja, mun Iðnþróunarfélag
Eyjafjarðar hf. standa fyrir fyrir-
lestri um sama efni.
Eftirfarandi efni verða rædd:
- Af hverju samstarf?
- í hverju er samstarf fólgið?
- Hvað mælir með og hindrar
samstarf?
- Eru það aðrir aðilar en fyrir-
tækin sjálf sem geta tekið
þátt í samstarfi?
- Dæmi um tvö vel heppnuð
samstarfsverkefni í Noregi.
Fyrirlesturinn er ölium opinn,
en einkum ætlaður forráðamönn-
um fyrirtækja og sveitarstjórn-
armönnum. Hann verður haldinn
á Hótel KEA laugardaginn 3.
september kl. 14-16.
Innritun á námskeiðið fer fram
á skrifstofu Iðnþróunarfélags
Eyjafjarðar hf. að Glerárgötu 30,
sími 26200 fyrir 31. ágúst.
Þeir grípa gæsina meðan hún gefst.
Mynd: TLV
Gæsaveiðitímabilið hafið:
Mikið af gæs í haust
Fyrirlesari er Sven Erik Öst-
engen, Noregi. Hann hefur tutt-
ugu ára reynslu í ráðgjöf við
minni fyrirtæki í gegnum starf sitt
hjá Norsku iðntæknistofnun
ríkisins og hefur verið deildar-
stjóri hjá INKO-þjónustunni síð-
astliðin fjögur ár. Hann hefur
m.a. leiðbeint á kennslufræði-
námskeiði á vegum Fræðslumið-
stöðvar iðnaðarins.
Þórshöfn:
Unnið að
gatnagerð og
jarðvegs-
skiptum
í sumar hefur mikið verið unn-
ið að gatnagerðarmálum á
Þórshöfn, aðallega að jarð-
vegsskiptum og holræsalögn-
um. Mikill áhugi er meðal ibú-
anna um að bundið slitlag
verði sem fyrst lagt á götur
Þórshafnar.
Daníel Árnason, sveitarstjóri,
sagði að undirbúningsvinna við
jarðvegsskipti og holræsagerð
hefði reynst tímafrekari og viða-
meiri en menn gerðu sér grein
fyrir í upphafi. Þá tafðist verkið
m.a. vegna þess að sprengja
þurfti klappir undir vegarstæðum
og tókst því ekki að leggja bund-
ið slitlag á eins stóran hluta
gatnakerfisins og áætlað var í
vor.
Að sögn Daníels hefur þegar
verið skipt um jarðveg í u.þ.b.
helmingi gatnakerfis Þórshafnar
og verður reynt að ljúka verkinu
næsta sumar. Áfram verður hald-
ið við framkvæmdirnar í haust.
EHB
Gæsaveiðitímabilið hófst síð-
astliðinn Iaugardag og þá
héldu allir helstu veiðimenn
landsins af stað með byssu um
öxl í leit að bráð. Að sögn
kunnugra er töluvert mikið af
grágæs hér norðanlands en
hún er frekar mögur ennþá.
Lítið er veitt af heiðagæsinni
en samkvæmt upplýsingum
blaðsins er mjög mikið af
henni inni á hálendi.
„Það er mikið af gæs í haust og
varpið virðist hafa tekist vel.
Gæsin er ekki komin mikið niður
á túnin ennþá, hún er mikið í
berjunum á þessum árstíma og
ekki síst þegar tíðin er svona
góð,“ sagði Hermann Brynjars-
son í versluninni Eyfjörð á Akur-
eyri í samtali við Dag.
„Nokkrar af gæsunum voru
lengi í sárum og t.d. voru gæsir
sem eru mikið á vatnasvæðum og
við ár, ennþá í sárum þegar veiði-
tímabilið hófst á laugardaginn.“
Hermann sagði að verslunin
hefði selt mikið af byssum á
þessu ári og það stafaði m.a. af
þvfaö fellt var niður 30% vörugjald
af byssum og skotfærum og eins
voru fluttar inn byssur af ákveð-
inni gerð á mjög góðu verði.
„Sönn gæsaskytta notar ein-
göngu haglabyssu við veiðarnar
og skýtur á flugi og það er m.a.
það sem við í skotveiðifélaginu
erum að reka áróður fyrir, þ.e.
bættri veiðimenningu," sagði
Hermann ennfremur. -KK
Akureyri:
Grunnskólar
að heljast
Grunnskólar á Akureyri hefj-
ast þriðjudaginn 6. september
að sögn Ingólfs Ármannssonar
skóla- og menningarfulltrúa
Akureyrar. Forskóladeildirnar
munu þó byrja eitthvað
seinna.
Nemendur í grunnskólum á
Akureyri verða um 2500 í ár.
„Það eru þó alltaf nokkrar sveifl-
ur þannig að endanlegar tölur
liggja ekki fyrir fyrr en í lok sept-
ember þegar skólarnir eru komn-
ir af stað,“ sagði Ingólfur.
Hann sagði töluna 2500 hafa
verið gegnumgangandi síðastlið-
in ár en þó hefði fækkað nokkuð
frá því í fyrra því einhver stærsti
árgangur sem verið hefði í grunn-
skólunum hefði farið út í vor.
„Þessi árgangur var í 9. bekk í
fyrra og veldur núna vissum erf-
iðleikum í framhaldsskólunum,“
sagði Ingólfur. KR
Verðstöðvun út september
- Engar launahækkanir á fimmtudaginn
Ríkisstjórnin ákvað á fundi
sínum á föstudagskvöld að
fresta fyrirhuguðum launa- og
búvöruhækkuuum sem taka
áttu gildi á fimmtudaginn.
Jafnframt hefur ríkisstjórnin
ákveðið almenna verðstöðvun
til loka septembermánaðar.
í frétt frá ríkisstjórninni segir
að þessum aðgerðum sé ætlað að
skapa svigrúm til athugunar og
undirbúnings aðgerða sem miða
að því að treysta rekstrargrund-
völl útflutnings- og samkeppnis-
greina atvinnulífsins og hemja
verðbólgu. í því sambandi er nú
sérstaklega unnið að könnun á
niðurfærslu verðlags, vaxta og
launa, m.a. með viðræðum við
aðila vinnumarkaðarins.
Ákvörðun ríkisstjórnarinnar
um að fresta hækkun launa og
búvöruverðs og að grípa til
almennrar verðstöðvunar hefur í
fór með sér að mjög mun draga
úr verðbólgu þegar í september.
Þessi lækkun verðbólgu skapar
skilyrði fyrir 10-20% lækkun
nafnvaxta þegar í byrjun næsta
mánaðar og enn frekari lækkun
síðar. Ríkisstjórnin hefur ákveð-
ið að fela Seðlabankanum í sam-
ráði við viðskiptaráðuneytið að
hefja viðræður við innlánsstofn-
anir. AP