Dagur - 30.08.1988, Blaðsíða 7
386 r teúps ,0E - RUOAQ - 3
30. ágúst 1988 - DAGUR - 7
KA-menn vörðu titílinn
- unnu Pór 4:2 á föstudaginn
KA-menn vörðu Akureyrar-
meistaratitil sinn í knattspyrnu
er þeir sigruðu Þórsara 4:2 á
Akureyrarvelli á föstudags-
kvöldið. Leikurinn fór fram
við hinar verstu aðstæður, í
úrhellisrigningu og á renn-
blautum velli, en þrátt fyrir
það náðu bæði lið að sýna
ágætisknattspyrnu í köflóttum
leik.
Þórsarar byrjuðu af miklum
krafti og leikurinn var ekki nema
sex mínútna gamall þegar liðið
fékk tvö gullin marktækifæri í
röð eftir slæm varnarmistök KA-
manna en í bæði skiptin var
bjargað á línu. Áfram sóttu Þórs-
arar en þeim gekk illa að skapa
sér færi þar til á 24. mínútu er
þeir náðu forystunni með gullfal-
legu marki. Kristján Kristjánsson
tók þá aukaspyrnu á miðjum vall-
arhelmingi KÁ, sendi fasta send-
ingu inn í vítateiginn þar sem
Júlíus Tryggvason henti sér fram
og skallaði í netið á glæsilegan
hátt.
Þórsarar slógu ekkert af og 12
mínútum seinna björguðu KA-
menn í horn eftir önnur hrikaleg
varnarmistök. Kristján fékk
knöttinn úr hornspyrnunni og
skaut þrumuskoti að marki en
Haukur varði vel. Á 43. mínútu
átti Kristján annað skot að KA-
markinu, Haukur varði en missti
knöttinn undir sig og hann „lak“ í
netið.
Þórsarar voru áfram mun frísk-
ari í upphafi síðari hálfleiks og á
48. mínútu munaði minnstu að
þeir bættu þriðja markinu við er
Hlynur slapp einn inn fyrir vörn
KA en Haukur bjargaði vel með
úthlaupi.
KA-menn virtust nú vakna af
einhverjum dvala og áður en
langt um leið höfðu þeir náð
undirtökunum. Þeir náðu síðan
að jafna leikinn og komast yfir á
ótrúlega skömmum tíma. Þor-
valdur Örlygsson gaf tóninn á 62.
mínútu er hann skoraði úr víta-
spyrnu og 6 mínútum sfðar jafn-
aði Gauti Laxdal leikinn með
góðu skoti úr miðjum vítateig
Þórs.
Þriðja ntark KA kom síðan á
71. mínútu og var það eitt af fal-
legri mörkum sem sést hafa á
vellinum í sumar. Þorvaldur
Örlygsson fékk boltann á miðjum
vallarhelmingi Þórs, framlengdi
hann skemmtilega til Bjarna
Jónssonar sem skaut þrumuskoti
af 25 metra færi og í netið. Ótrú-
lega glæsilegt mark og KA-menn
höfðu náð forystunni á aðeins 9
mínútum.
Þórsarar tóku nú aðeins við sér
og liðin sóttu á báða bóga um
tíma og fengu bæði ágæt færi sem
ekki nýttust þar til á síðustu mín-
útu leiksins er Anthony Karl
skoraði fjórða mark KA með
skalla eftir hornspyrnu.
Erfitt er að leggja mat á hvort
úrslitin liafi verið sanngjörn. Ef
litið er á gang leiksins í heild má
segja að hann hafi verið jafn en
KA-menn nýttu hins vegar færin
sín betur og það réði auðvitað
úrslitum.
Bjarni Jónsson átti trúlega
bestan leik KA-ntanna að þessu
sinni. Bjarni er afar mikilvægur
fyrir liðið, mjög stöðugur
leikmaður sem aldrei bregst. Þá
var Erlingur Kristjánsson góður
að vanda og Haukur Bragason
varði mjög vel þrátt fyrir ein
slæm mistök sem kostuðu mark.
Hjá Þórsurunt var Júlíus
Tryggvason mjög sterkur í fyrri
hálfleik en hann datt alveg niður
í síðari hálfleik eins og reyndar
liðið í heild. Dómari var Magnús
Jónatansson og skilaði hann sínu
hlutverki með ágætum. JHB
Sigurvegarar í Coca-Cola, frá vinstri: Eggert Eggertsson, Kristján Gylfason
Og Magnus Itirgisson. Mynd: EHB
Golf: A
Kristján og Araý Lilja
unnu Coca-Cola
Opna Coca-Cola mótið í golfí
fór fram á Jaðarsvellinum á
Akureyri um helgina. Leiknar
voru 36 holur í karla- og
kvennaflokki, með og án for-
gjafar. Það sem einkum ein-
kenndi keppnina var afar
slæmt veður báða keppnisdag-
ana, rok og rigning, og hefur
þetta trúlega fælt einhverja
keppendur frá, en þátttaka
varð minni en búist hafði verið
við. Sigurvegari í karlaflokki
án forgjafar varð Kristján
Gylfason GA á 157 höggum en
Árný Lilja Árnadóttir GA
varð sigurvegari í kvennaflokki
án forgjafar á 177 höggum.
Annars varð röð efstu manna
þessi:
Karlar án forgjafar:
1. Kristján Gylfason GA 157
2. Magnús Birgisson GK 157
3. Eggert Eggertsson GA 159
Konur án forgjafur:
1. Árný Lilja Arnadóttir GA 177
2. Inga Magnúsdóttir GA 194
3. Rósa Pálsdóttir GA 219
Karlar með forgjöf:
1. Eggert Eggertsson GA 141
2. Sigurður Hreinsson GH 144
3. Guðmundur Sigurjónss. GA 145
Konur með forgjöf:
1. Árný Lilja Árnadóttir GA 149
2. Inga Magnúsdóttir GA 168
3. Rósa Pálsdóttir GA 175
Þá voru einnig veitt aukaverð-
Það var ekki dagur Dalvíkur-
liðsins þegar það heimsótti
Sindra á Höfn á föstudags-
kvöldið. Gestirnir voru mun
sterkari allan leikinn og fengu
fjölda dauðafæra en aldrei
tókst þeim að skora. Heima-
menn skoruðu hins vegar tví-
vegis og stóðu uppi sem sigur-
vegarar.
Dalvíkingar byrjuðu af mikl-
um krafti og á fyrstu 10 mínútun-
um áttu þeir tvö stangarskot og
eitt skot framhjá úr dauðafæri.
Eftir þetta jafnaðist leikurinn
nokkuð en Dalvíkingarnir voru
þó áfram ívið sterkari.
Síðari hálfleikur hófst eins og
laun fyrir að vera næst holu og
þau sem hlutu þau voru: Hörður
Steinbergsson GA, Inga Magnús-
dóttir GA, Óskar Kristjánsson
GR, Stefán Unnarsson GR, Þór-
hallur Pálsson GA, Sigurður
Oddur Sigurðsson GA og Hjalti
Atlason GR. JHB
sá fyrri, Dalvíkingar pressuðu
stíft og fengu nokkur dauðafæri
sem ekki nýttust. Heimamenn
náðu síðan forystunni á 55. mín-
útu þegar Þrándur Sigurðsson
skoraði beint úr aukaspyrnu og
verður þetta nrark að skrifast á
reikning markvarðar Dalvíkinga.
Áfram sóttu gestirnir en inn
vildi boltinn ekki þrátt fyrir ítrek-
aðar tilraunir. Þegar 15 mínútur
voru til leiksloka bætti Guð-
ntundur J. Óskarsson öðru marki
við fyrir Sindra eftir slæm varn-
armistök Dalvíkinga og þrátt fyr-
ir ágætar tilraunir í lokin tókst
Dalvíkingum ekki að minnka
muninn. Úrslitin því 2:0 á Höfn.
JHB
Knattspyrna 3. deild:
Sindri vann Dalvík