Dagur - 30.08.1988, Blaðsíða 4
5 - RUOACJ - 388 f ísöga .08
4 - DAGUR - 30. ágúst 1988
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 800 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 70 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 530 KR.
RITSTJÓRAR:
ÁSKELL ÞÓRISSON (ÁBM.)
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON
(Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík),
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON
(Sauöárkróki vs. 95-5960), EGILL BRAGASON,
FRÍMANN HILMARSSON (Blönduósi vs. 95-4070),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavik vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, KRISTJÁN JÓSTEINSSON,
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON (íþróttir), STEFÁN SÆMUNDSSON,
VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
LJÓSMYNDARAR: GUÐMUNDUR HRAFN BRYNJARSSON,
TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON,
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Skortur á
jarðsambandi
Stærstu stjórnarandstöðuflokkarnir, Kvennalisti og
Alþýðubandalag, hafa síður en svo setið auðum
höndum, meðan ríkisstjórnin er að gera upp hug
sinn um hvaða aðgerðum verði beitt til lausnar
efnahagsvandanum. Efnahagssérfræðingar flokk-
anna tveggja hafa setið á löngum fundum og soðið
saman tillögur sem væntanlega myndu leysa allan
vanda þjóðarinnar - ef þær kæmust til fram-
kvæmda. Til þess er þó lítil von.
Það er tæpast tilviljun að flokkarnir tveir kynna
tillögur sínar svo til samtímis. Skoðanakannanir
hafa ítrekað sýnt að Kvennalisti og Alþýðubanda-
lag eru í raun í samkeppni um sama fylgið. Forystu-
mönnum þessara flokka er því mikið í mun að sýna
kjósendum að þeir séu ekki aldeilis ráðalausir á
þessum síðustu og verstu tímum.
Tillögur flokkanna tveggja láta vissulega vel í
eyrum. Sá galli er þó á gjöf Njarðar að þær eru ger-
samlega óraunhæfar. Alþýðubandalagsmenn kjósa
að kalla sínar tillögur „leið millifærslu og kerfis-
breytinga". Er þar gert ráð fyrir stöðugu gengi
krónunnar, óskertum kaupmætti launa og fullri
atvinnu. Einnig er reiknað með að vextir verði í einu
vetfangi færðir niður í 3% og fjármagn flutt til í
gegnum skattakerfið. Ólafur Ragnar Grímsson, for-
maður Alþýðubandalagsins, fræddi blaðamenn á
því, er tillögurnar voru kynntar, að raunverulega
væri engin kreppa í efnahagslífi þjóðarinnar, heldur
væri rangri hagstjórn um að kenna hvernig komið
væri! Svo einfalt er það.
Kvennalistakonur færðu Þorsteini Pálssyni for-
sætisráðherra tillögur sínar, tuttugu að tölu, og
kökukefli að auki, til að undirstrika alvöru málsins.
Þessar tillögur taka hver annarri fram hvað hljóm-
fegurð snertir, þótt tillögurnar um að hækka laun
með lagaboði í stað þess að lækka þau og að koma
á 6 stunda vinnudegi á íslandi, hafi óneitanlega
vinninginn.
Það er með ólíkindum að tveir stærstu stjórnar-
andstöðuflokkarnir leyfi sér að leggja fram tillögur
sem hafa jafn litla skírskotun til raunveruleikans og
við blasir. Hvernig á þjóð, sem „státar" af hvað
minnstu framleiðni allra þjóða á íbúa, að fara að því
að stytta vinnuvikuna niður í 30 stundir? Hvernig á
atvinnulífið að bera enn hærri kaupmátt launa, sem
þó er þegar með því hæsta sem þekkist í heimin-
um? Er eðlilegt að þjóð sem lifir langt um efni fram
gangi enn lengra á sömu braut? Slíkar spurningar
gerast áleitnar við lestur þessara dæmalausu til-
lagna.
Þeir, sem staðið hafa í þeirri trú að Kvennalisti og
Alþýðubandalag hefðu lausn efnahagsvandans á
takteinum, ættu að endurmeta stöðuna. Tillögur
tveggja stærstu stjórnarandstöðuflokkanna eru
draumórakenndar og bera það með sér að höfunda
þeirra skortir jarðsamband. BB.
)
- „kom til að heimsækja fólk en ekki til að sk
„Allar stundir, hvert einasta augnablik þessa Qóra daga. Pegar maður fer að
vera með fólkinu þá er aldrei hægt að taka eitt fram yfir annað né einn fram yfir
annan,“ sagði frú Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands þegar blaðamaður Dags
spurði hana hvað mundi verða henni minnisstæðast úr íjögurra daga ferð
hennar um Húnaþing. Heimsókninni lauk í Þingeyrakirkju um klukkan hálfníu
á sunnudagskvöldið. Vigdís kom víða við og á leið sinni um héraðið gróðursetti
hún þrjátíu og þrjú birkitré á ellefu stöðum þar sem hún hafði viðdvöl. Við
gróðursetningu trjánna kallaði hún börn sér til aðstoðar. Forsetanum var mjög
vel tekið hvar sem hann fór og fjöldi fólks safnaðist saman til að fagna honum.
Við Reftjarnarbungu.
Það var þungbúið veður í
Hrútafirðinum á fimmtudaginn
þegar Jón ísberg sýslumaður og
sýslunefnd Vestur-Húnavatns-
sýslu tóku á móti forsetanum á
sýslumörkunum við Hrútafjarð-
ará. Frá sýslumörkunum var ekið
rakleiðis að Reykjaskóla þar sem
Bjarni Aðalsteinsson, skólastjóri
tók á móti gestunum og sýndi
þeim byggðasafnið sem var stofn-
að þar árið 1967. Að lokinni
skoðun byggðasafnsins var haldið
til hádegisverðar í Reykjaskóla í
boði sýslumanns, sýslunefndar og
hreppsnefndar Staðarhrepps.
Við málsverðinn ávarpaði Jón
fsberg, sýslumaður forsetann.
Vigdís þakkaði þann hlýhug sem
henni var sýndur og sagði opin-
berar heimsóknir um lands-
byggðina vera eitt af sínum
skemmtilegustu embættisverk-
um. Með aðstoð barna úrStaðar-
hreppi gróðursetti forsetinn þrjú
fyrstu birkitréin sem hann
gróðursetti í Húnaþingi. Hún
sagði birkið vera það tré sem
eðlilegast væri að gróðursetja á
íslandi.
Frá Reykjaskóla var haldið inn
í Miðfjörð, að Efra-Núpi þar sem
forsetinn skoðaði leiði Skáld-
Rósu. Þaðan var farið að Bjargi í
Miðfirði þar sem minnismerki
um Ásdísi móður Grettis Ás-
mundarsonar var skoðað. Frá
Bjargi var síðan haldið að félags-
heimilinu Ásbyrgi á Laugabakka
þar sem kaffiveitingar voru í boði
íbúa Ytri- og Fremri-Torfustaða-
hrepps.
Vigdís á ættir sínar að rekja til
Miðfjarðar og var langafi hennar,
séra Jakob Finnbogason, prestur
á Staðarbakka í Miðfirði um 10
ára skeið og afi hennar Þorvaldur
Jakobsson var fæddur á Staðar-
bakka. í ávarpi Böðvars Sig-
valdasonar bónda á Barði kom
fram að tveir íslenskir forsetar
hafa átt ættir sínar að rekja að
Staðarbakka. Afi Sveins heitins
Björnssonar, fyrrum forseta, séra
Sveinn Níelsson, hafði einnig
verið prestur á Staðarbakka.
Vigdísi var mjög vel fagnað af
ættmennum og öðrum Miðfirð-
ingum og að loknum veitingum í
Ásbyrgi lagði hún lykkju á leið
sfna og kom við á Staðarbakka
og skoðaði kirkjuna þar. Hjónin
á Staðarbakka, Ásdís Magnús-
dóttir og Benedikt Guðmunds-
son, sýndu forsetanum kirkjuna
og Benedikt las áritun á silfur-
skildi. Skjöldur þessi er til
minningar um Eirík Bjarnason
fyrrum prest á Staðarbakka en
grafið var á skjöldinn af séra
Sveini Níelssyni.
Frá Staðarbakka var haldið á
Vertshúsið á Hvammstanga til
kvöldverðar í boði hreppsnefnd-
ar Hvammstangahrepps og
Kirkjuhvammshrepps. Um
kvöldið var opið hús í félags-
heimilinu í boði hreppsnefnd-
anna. Þessa fyrstu nótt heim-
sóknarinnar í Húnaþingi gisti
forsetinn í Vertshúsinu á
Hvammstanga.
Annar dagur heimsóknarinnar
hófst með því að Vigdís gróður-
setti þrjú birkitré við skólann á
Hvammstanga og síðan var hald-
ið norður fyrir Vatnsnes framhjá
Tjörn og Hindisvík og að Hvít-
serki. Þar var stansað og klettur-
inn skoðaður. Frá Hvítserki var
haldið að Vesturhópsskóla en þar
var opið hús og kaffiveitingar fyr-
ir íbúa Þverárhrepps.
Agnar Leví oddviti Þverár-
Gróðursett í skógreit við Húnaver.