Dagur - 08.09.1988, Blaðsíða 11
f/ hér <& þar J
Næsti áratugur:
Holskefla fítu
og hvaps
Eftir 1990 verður heilsuræktar-
æðið minning ein, tveggja vikna
ferðalög munu hverfa, æ fleiri
taka einlífi fram yfir hjónaband
eða sambúð og næringarríkar
máltíðir munu heyra sögunni til.
Pessar uggvænlegu staðreyndir
er að finna í spádómum Marilyns
Block um lífið á næsta áratug.
Marilyn vinnur hjá fyrirtæki sem
sérhæfir sig í komandi þjóðfé-
lagsbreytingum og við skulum líta
aðeins á hvað við eigum í
vændum.
Snúum okkur fyrst að sumar-
leyfum og ferðalögum. Hefð-
bundin tveggja vikna ferðalög
verða lögð niður víðast hvar. í
stað þeirra mun sú venja skapast
að fara í nokkrar helgarreisur yfir
árið. Samkeppnin um störf mun
harðna og þeir sem eru í fastri
vinnu þora ekki að taka langt frí,
enda gætu þeir hreinlega átt það
á hættu að aðrir kæmu í þeirra
stað. Lausnin verður sú að fólk
fer í um fjórar til fimm helgar-
reisur á ári.
Heilsurækt. Fólk mun gleyma
öllu heilsuræktarstússi. Þessi
bylgja flóði yfir á árunum 1982-
1983 en nú eru flestir að gefast upp
á púlinu og það mun brátt heyra
sögunni til. Unga kynslóðin er
svo upptekin af tækninni og þeim
möguleikum sem hún hefur í för
með sér. Sjónvarp, myndbönd,
tölvuleikir og aðrar græjur munu
taka við af skokki og eróbikk.
Eftir 1990 verður allt yfirfullt af
feitum ungmennum sem eiga
feita foreldra. „Holskefla fitu og
hvaps er að skella yfir Bandarík-
in,“ segir Block.
Matur. Þar eð svo margar kon-
ur vinna úti munu hinar nær-
ingarríku fjölskyldumáltíðir
endanlega hverfa úr samfélags-
mynstrinu. Sífellt fleiri munu
tileinka sér forsoðinn og for-
steiktan mat sem það kaupir í
næstu sjoppu og hitar upp í
örbylgjuofninum heima hjá sér.
Þannig verður nú matseldin á
næsta áratug, a.m.k. í Bandaríkj-
unum, en vonandi munu íslend-
ingar halda í sunnudagssteikina,
svo ekki sé farið fram á meira.
Fjölskyldumynstur. Vegna
þess að nú tekur það mun lengri
tíma en áður að koma sér upp
húsnæði og stofna fjölskyldu
munu æ fleiri verða fráhverfari
hjónabandi. Hlutfall þeirra sem
aldrei ganga í hjónaband vex ört
og allt verður vaðandi í einstæð-
um og sjálfstæðum körlum og
konum.
Menntun. í dag eyða fyrirtæki
milljónum í þjálfun og menntun
starfsmanna sinna, til að fylla
upp í þau göt sem eru í menntun
viðkomandi. Á næsta áratug mun
viðskiptaheimurinn beita skóla-
kerfið þrýstingi til að fá þaðan
starfsfólk sem er betur að sér í
ýmsum málum og með betri
menntun á bakinu. Foreldrarnir
munu ýta undir þessar breyting-
ar. Þeir vilja að börnin verði bet-
ur undir það búin að krækja sér í
góða vinnu.
Þannig hljóðar spádómurinn
um bandarískt þjóðfélag á kom-
andi áratug og hví skyldi þetta
ekki geta átt við um ísland, þar
eð bandarísk áhrif eru jú eigi
mjög lítil í þjóðfélagi voru.
Eftir 1990 mun heilsuræktaræðið
hcyra sögunni til og holskefla fitu og
hvaps skellur yfir Bandaríkin, segir
m.a. í þessari fróðlegu grein.
rJ
dagskrá fjolmiðla
SJONVARPIÐ
FIMMTUDAGUR
8. september
18.50 Fréttaágrip og táknmáls-
fréttir.
19.00 Heiða.
Teiknimyndaflokkur byggður á
skáldsögu Johanna Spyri.
19.25 íþróttasyrpa.
Umsjónarmaður Ingólfur Hann-
esson.
19.50 Dagskrárkynning.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Byggingameistarinn.
Heimildamynd um bjórinn, einn
mesta byggingameistara dýrar-
íkisins og fylgst með fram-
kvæmdum hans í Finnlandi.
21.30 Matlock.
Bandarískur myndaflokkur um
lögfræðing í Atlanta og einstæða
hæfileika hans og aðstoðar-
manna hans við að leysa flókin
sakamál.
22.15 „Komir þú á Grænlands-
grund...“
(Grön fritid í Grönland.)
Gróður og ræktun.
22.45 Útvarpsfréttir í dagskrár-
lok.
SJONVARP
AKUREYRI
FIMMTUDAGUR
8. september
16.35 Eintrjáningurinn.
(One Trick Pony.)
Mynd um líf og starf lagasmiðs
og söngvara. Paul Simon, sem
átti stóran þátt í popptónlistar-
byltingunni sem varð upp úr
sjöunda áratugnum, á heiður-
inn af kvikmyndahandritinu og
leikur auk þess aðalhlutverkið.
Týnda kynslóðin ætti að fá
eitthvað við sitt hæfi í þessari
mynd þar sem bæði verða flutt
lög eftir Paul og aðra samtíma-
menn hans.
Aðalhlutverk: Paul Simon, Blair
Brown og Rip Torn.
18.15 Sagnabrunnur.
Fríða og dýrið.
18.25 Olli og félagar.
(Ovid and the Gang.)
Teiknimynd með íslensku tali.
18.40 Dægradvöl.
(ABC's World Sportsman.)
Þáttaröð um frægt fólk með
spennandi áhugamál.
19.19 19.19.
20.30 Svaraðu strax.
Starfsfólk hjá Byggingarfélagi
Kópavogs tekur þátt í léttum
spurningaleik með veglegum
vinningum í boði.
21.10 Morðgáta.
(Murder she Wrote.)
22.00 Hickey og Boggs.#
(Hickey and Boggs.)
Tveir harðsvíraðir einkaspæjarar
leiknir af Bill Cosby og Robert
Culp eru ráðnir af dularfullum
manni til að hafa uppi á stúlku
sem horfið hefur sporlaust. Þeg-
ar félögunum er afhent greiðsl-
an fyrir viðvikið, er þeim ljóst að
málið er ekki eins einfalt og það
virtist vera í fyrstu. Leitin leiðir
til dauða flestra sem eru hugs-
anlega viðriðnir hvarfið.
Auk aðalhlutverkanna birtast
mörg kunnugleg andlit í þessari
hörku spennumynd.
Aðalhlutverk: Robert Culp, Bill
Cosby og Rosalind Cash.
23.50 Viðskiptaheimurinn.
(Wall Street Journal.)
Nýir þættir úr viðskipta- og efna-
hagslífinu.
00.25 Maðurinn í rauða skónum.
(The Man with One Red Shoe.)
Ungur maður er eltur uppi af
njósnunim, sími hans hleraður,
lagðar eru fyrir hann gildrur og
honum sýnt banatilræði. AUt án
þess að hann verði þess var.
Aðalhlutverk: Tom Hanks,
Dabney Coleman og Lori Singer.
01.55 Dagskrárlok.
# táknar frumsýningu á Stöð 2.
0
RAS 1
FIMMTUDAGUR
8. september
6.45 Veðurfregnir • Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið
með Ingveldi Ólafsdóttur.
Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30,
fréttir kl. 8.00 og veðurfregnir kl.
8.15. Fréttir á ensku að loknu
fréttayfirliti kl. 7.30.
Sigurður Konráðsson talar um
daglegt mál laust fyrir kl. 8.00.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn.
Meðal efnis er sagan „Lena-Sól"
eftir Sigríði Eyþórsdóttur.
Höfundur les (4).
9.20 Morgunleikfimi.
9.30 Landpósturinn - Frá
Norðurlandi.
Umsjón: Gestur E. Jónasson.
10.00 Fréttir • Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tíð.
11.00 Fréttir • Tilkynningar.
11.05 Samhljómur.
11.55 Dagskrá.
12.00 Fréttayfirlit • Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir • Tilkynning-
ar.
13.05 í dagsins önn.
13.35 Miðdegissagan: „Jónas"
eftir Jens Björneboe. (26)
14.00 Fréttir • Tilkynningar.
14.05 Heitar lummur.
Umsjón: Inga Eydal. (Frá Akur-
eyri.)
15.00 Fréttir.
15.03 Heimshorn.
Þáttaröð um lönd og lýði í umsjá
Jóns Gunnars Grjetarssonar.
Níundi þáttur: Tyrkland.
(Endurtekinn frá kvöldinu áður.)
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin.
Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi.
18.00 Fréttir.
18.03 Torgið.
Umsjón: Jón Gunnar Grjetars-
son.
Tónlist • Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál.
Endurtekinn þáttur frá morgni.
19.40 Að utan.
Fréttaþáttur um erlend málefni.
20.00 Litli barnatíminn.
(Endurtekinn frá morgni.)
20.15 Tónlistarkvöld Ríkis-
útvarpsins.
22.00 Fróttir • Dagskrá morgun-
dagsins ■ Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.30 Ævintýri nútímans.
Annar þáttur af fimm um afþrey-
ingarbókmenntir.
23.10 Tónlist á siðkvöldi.
24.00 Fréttir.
RÍKJSUIVARPfÐ
AAKO---------
VAKUREYRI4
Svæðisútvarp fyrir Akureyri
og nágrenni.
FIMMTUDAGUR
8. september
8.07-8.30 Svæðisútvarp Norður-
lands.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norður-
lands.
FIMMTUDAGUR
8. september
7.03 Morgunútvarpið.
Dægurmálaútvarp með frétta-
yfirliti kl. 7.30 og 8.30 og fréttum
kl. 8.00. Veðurfregnir kl. 8.15.
Leiðarar dagblaðanna að loknu
fréttayfirliti kl. 8.30.
9.03 Viðbit.
- Þröstur Emilsson. (Frá Akur-
eyri.)
10.05 Miðmorgunssyrpa.
- Eva Ásrún Albertsdóttir og
Óskar Páll Sveinsson.
12.00 Fréttayfirlit • Auglýsingar.
12.20 Hádegisfróttir.
12.45 Á milli mála.
- Eva Ásrún Albertsdóttir og
Óskar Páll Sveinsson.
16.03 Dagskrá.
Dægurmálaútvarp.
18.03 Sumarsveifla
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir.
19.30 Langlífi.
Atli Björn Bragason leikur tón-
list og fjallar um heilsurækt.
22.07 Af fingrum fram.
- Rósa Guðný Þórsdóttir.
01.00 Vökulögin.
Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi til morguns.
Að loknum fréttum kl. 2.00 verð-
ur endurtekinn frá mánudegi
þátturinn „Á frívaktinni" þar
sem Þóra Marteinsdóttir kynnir
óskalög sjómanna.
Veðurfregnir kl. 1.00 og 4.30.
Fréttir eru sagðar kl. 2, 4, 7,
7.30, 8, 8.30, 9, 10, 11, 12, 12.20,
14, 15, 16, 17, 18, 19, 22 og 24.
Hljóðbylgjan
FM 101,8
FIMMTUDAGUR
8. september
07.00 Kjartan Pálmarsson
leikur tónlist við allra hæfi, lítur i
blöðin og spjaUar við hlustend-
ur.
09.00 Rannveig Karlsdóttir
með góða tónlist og kemur öllum
í gott skap. Afmæliskveðjurnar
og óskalögin á sínum stað.
12.00 Ókynnt hádegistónlist.
13.00 Pétur Guöjónsson
á dagvaktinni og leikur bland-
aða tónlist við vinnuna. Tónlist-
armaður dagsins tekinn fyrir.
17.00 Kjartan Pálmarsson
leikur létta tónlist. Tími tækifær-
anna er kl. 17.30 til kl. 17.45.
Síminn er 27711.
19.00 Ókynnt kvöldmatartónlist.
20.00 Snorri Sturluson
gerir tónlist sinni góð skil.
22.00 Linda Gunnarsdóttir
leikur rólega tónlist fyrir
svefninn.
24.00 Dagskrárlok.
FM 104
FIMMTUDAGUR
8. september
07.00 Þorgeir Ástvaldsson.
Lífleg og þægileg tónlist, veður,
færð og hagnýtar upplýsingar
auk frétta og viðtala.
Fréttir kl. 8.
09.00 Gunnlaugur Helgason.
Seinni hluti morgunvaktar með
Gulla.
Fréttir kl. 10 og 12.
12.10 Hádegisútvarp.
Bjarni Dagur veltir upp frétt-
næmu efni, innlendu jafnt sem
erlendu i takt við vel valda
tónlist.
13.00 Helgi Rúnar Óskarsson.
Leikið af fingrum fram, með
hæfilegri blöndu af nýrri tónlist.
Fréttir kl. 14 og 16.
16.10 Mannlegi þátturinn.
Árni Magnússon leikur tónlist,
talar við fóik um málefni liðandi
stundar og mannlegi þáttur til-
verunnar í fyrirrúmi.
Fréttir kl. 18.
18.00 íslenskir tónar.
Innlend dægurlög að hætti
hússins.
19.00 Síðkvöld á Stjörnunni.
Gæða tónlist leikin fyrir þig og
þína með Bjarna Hauki.
24.00-07.00 Stjörnuvaktin.
989
BYLGJAR
FIMMTUDAGUR
8. september
08.00 Páll Þorsteinsson
- tónlist og spjall að hætti Palla.
Mál dagsins tekið fyrir kl. 8 og
10. Úr heita pottinum kl. 9.
10.00 Hörður Arnarson
- morguntónlistin og hádegis-
poppið.
Síminn hjá Herði er 611111 - Ef
þú getur sungið íslenskt lag þá
átt þú möguleika á vinningi.
Vertu viðbúinn!
12.00 Mál dagsins/maður dags-
ins.
Fréttastofa Bylgjunnar rekur
mál dagsins, málefni sem skipta
þig máli. Simi fréttastofunnar er
25393.
12.10 Hörður Arnarson á hádegi.
Hörður heldur áfram til kl. 14.00.
Úr heita pottinum kl. 13.00.
14.00 Anna Þorláksdóttir
setur svip sinn á síðdegið.
Anna spilar tónlist við allra hæfi.
Siminn hjá Önnu er 611111. Mál
dagsins tekin fyrir kl. 14.00 og
16.00 - úr heita pottinum kl.
15.00 og 17.00.
18.00 Reykjavik siðdegis
- Hvað finnst þér?
Hallgrímur Thorsteinsson fer
yfir málefni dagsins og leitar
álits hjá þér. Síminn hjá Hall-
grími er 611111.
19.00 Margrét Hrafnsdóttir
og tónlistin þín. Siminn er
611111 fyrir óskalög.
22.00 Á síðkvöldi
með Bjarna Ólafi Guðmunds-
syni; Bjami hægir á ferðinni þeg-
ar nálgast miðnætti og kemur
okkur á rétta braut inn í nóttina.
02.00 Næturdagskrá Bylgjunnar.