Dagur - 20.09.1988, Side 2
2 - DAGUR - 20. september 1988
Búið var að flytja dráttarvélina af slysstað og velta bifreiðinni á lijólin þegar blaðamaðurinn átti leið uni. Mynd
Harður árekstur dráttarvélar og bíls
Harður árekstur varð á þjóðveginum við
Hvamm í Langadal þegar dráttarvél með fjár-
vagn var beygt til hægri í átt að túnhliði ísama ■
mund og ökumaður á fólksbifrejð yar að hefja
framúrakstur.
Áreksturinn var svo harður að dráttarvélin,
brotnaði í tvennt og bíllinn kastaðist út af végin-
um og valt. Hjón rheð työ ung börn voru í bifreið-
inni og að sögn lögreglunar á Blönduósi voru það
. bfltoelti og barnaátólar.sem forðuðu því að ekki
varð þarna stórslys. Konan sem var farþegi í
bifreiðinni skárst á hendi og ökumaðúr dráttar-
vélarinnar hlaut minniháttar skrámur. Eins og
fyrr .segir brotnaði dfáttarvélin í tvennt og bíllinn
er tálinn ónýtur. fh
Lögreglan á Akureyri:
Sextán útköll vegna
skennnda í hvassviðri
- vindhraðinn náði 12 vindstigum
Vindgnauð vakti Akureyringa
á sunnudagsmorgun, þakplöt-
ur og spýtnarusl lömdust við
mannvirki, enda komst vind-
hraðinn í 73 hnúta eða 12
vindstig. Lögreglan á Akureyri
var kölluð 16 sinnum út um
morguninn vegna veðurofsans
og höfðu margir orðið fyrir
tjóni, en það er ekki fullkann-
að.
Að sögn varðstjóra hjá lögregl-
unni var fyrsta útkallið klukkan
7.30 á sunnudagsmorgun. Þá
hafði rafmagnsstaur brotnað við
Síðuskóla. Síðan komu útköllin á
færibandi: Járnplötur fuku, hurð
fauk á KA-velli, kerra fauk á bíl
við Galtalæk, bátur fauk, vinnu-
skúr tókst á loft, rúða brotnaði í
KEA-verslun, hurð og girðing á
Þórshamri urðu veðrinu að bráð,
þakgluggi fauk, þakpappi losn-
aði, rúðubrot í Hrafnagilsskóla
o.s.frv.
Síðasta útkallið vegna roksins
var klukkan rúmlega 11 um
morguninn en vindur gekk niður
um hádegisbilið. Víða mátti sjá
Tundurdufla-
slæðari til
sýnis
í gær kom franskur tundur-
duflaslæðari til Akureyrar.
Hér er um að ræða nýtt skip
og er verið að kanna sjó-
hæfni þess á öldur Norður-
Atlantshafs. Skipið Iiggur
við Torfunefsbryggju og
verður almenningi til sýnis í
dag og tvo næstu daga milli
kl. 14.30 og 17.30.
Óslax hf. í Ólafsfirði:
Viðiagatrygging á að borga
tjónið á mannvirkjumim“
- segir Ármann Þórðarson ijármálastjóri fyrirtækisins
Þeir hjá Óslaxi hf. í Ólafsfirði,
fóru ekki varhluta af þeim
ósköpum sem gengu þar yfir í
rigningunum fyrir skömmu.
Fjárhagslegt tjóp fyrirtækisins
Sauðárkrókshöfn:
Kokkurinn gleymdist
- var að skokka í landi
Strandferðaskipið Askja var á
ferðinni í Sauðárkrókshöfn sl.
miðvikudagskvöld að losa og
lesta vörur. Er það svo sem
ekki í frásögur færandi, en hins‘
vegar brottför skipsins. Skip-
stjóri flýtti sér sem mest hann
mátti úr höfn því annað skip
beið fyrir utan að komast að.
Askjan var komin drjúgan spöl
út úr höfninni þegar uppgötv-
aðist að kokkurinn var ekki
um borð. En það uppgötvaðist
ekki fyrr en skipaafgreiðslu-
maður I landi hringdi í skip-
stjórann og sagðist vera með
aukafrakt handa honum.
Þar var kokkurinn kominn,
móður og másandi, eftir að hafa
fengið sér heilsubótarskokk í
landi og kom við í leiðinni í
sjoppu að kaupa fyrir félaga sína
um borð. Sá hann þá, sér til
mikillar skelfingar, að skipið
hans var á miklu stími á haf út.
Hljóp hanp sem aldrei fyrr og til-
kynntí skjpaafgreiðslumaríninum
atburðinjfcSem fyrr segir hringdi
hann í sícipið og hafði hvárf
kokksins þá ekki uppgötvast. Var
kokkurinn síðan sendur með
trillu út að skipinu.
„Það er öruggt að ég mun
rukka útgerðarfélagið um túrinn
út í skipið," sagði Steindór Stein-
dörsson skipáafgreiðslumaður í
léttu spjalli við Dag. Steindór
sagðist kannast vel við þennan
kokk, hann færi alltaf að skokka
þegar hann væri í landi og stund-
um skokkaði hann alveg fram í
Kimbastaði og til baka út á höfn,
sem eru meira en 10 kílómetrar.
„Ég man eftir því einu sinni að
hann skokkaði upp í Gönguskörð-
in og kom við í Tungu. Þetta var
á berjatímanum og húsfreyjan
vildi endilega fá hann í hús. Hún
bauð kokknuin upp á skyr og ber
og mátti hann borða eins og hann
gat ísig látið. Síðan þurfti hann
að skokka til baka með öll
herlegheitin í máganum og þegar
hann kom niður á höfn engdist
hann allur sundur Og sanían. Ég'
hélt fyrst áð maðúrinn væri með
bráða botnlangabólgu, en svo var
ekki,“ sagði Steindór áð lokum.
-bjb
hefur enn ekki verið metið til
fullnustu en Ijóst þykir að það
er mikið. Töluverðar skemmd-
ir urðu á mannvirkjum fyrir-
tækisins og þá drapst mikið af
seiðum.
„Ég er harður á því að Við-
lagatrygging eigi að borga tjónið
á mannvirkjunum en þeir menn
sem voru hér á vegum Viðlaga-
tryggingar um daginn, vildu ekki
fara í að meta tjónið hjá okkur.
En hvað varðar seiðadauðann,
þá reiknum við með að bera
kostnaðinn af honum,“ sagði
Ármann Þórðarson útibússtjóri
KEA í Ólafsfirði og fjármála-
stjóri Óslax hf. í samtali við
blaðið.
„Grindurnar og laxakistan sem
við notuðum til þess að taka á
móti hafbeitarlaxinum fóru úr
skorðum og skemmdust. Inntaks-
mannvirkin á Garðsdal fóru
einnig úr sambandi og skemmd-
ust, leiðsla fór í sundur og sumir
brunnarnir fylltust af drullu."
Fyrirtækið var með yfir
300.000 sumaralin seiði inni í
stöðinni sjálfri en að sögn
Ármanns drapst ótrúlega lítið af
þeim, miðað við allt það sem
gekk á. „Hins vegar var geysileg
vinna við að hreinsa þetta allt og
halda gangandi. Þá áttum við
27.000 gönguseiði í útikeri við
stöðina, sem höfðu verið sett í
áframeldi en það drapst töluverð-
ur hluti þeirra og einnig drapst
eitthvað af seiðum í flotkví í
vatninu," sagði Ármánn enn-
fremur.
Á hluthafafúndi hjá Óslaxi hf.
fyrir skömmu, lagði stjórn fyrir-
tækisins tií að hlutafé yrði aukið
um 50% og var. það samþykkt.
Stofnhlutáfé fyrirtækisins var 10
milljónir á sínum tíma og því er
hér um 5 milljón króna hlutafjár-
aukningu að ræða. -KK
brotin tré og önnur ummerki
veðurofsans. Þak Glerárkirkju
var t.a.m. æði skellótt því þak-
pappinn hafði flysjast af á
köflum. Fáir voru á ferli um
morguninn, enda ekki hættulaust
að vera utandyra þegar hviðurnar
ná 12 vindstigum.
„Ég held að enginn hafi átt von
á þessu, en því miður verður að
segjast eins og er að frágangur
við nýbyggingar er til skammar,"
sagði Matthías Einarsson varð-
stjóri, en töluvert var um fok á
byggingarefni og víða mátti sjá
vinnuflokka við björgunarstörf á
byggingarsvæðum. SS
Raufarhöfn:
Tjaldstæðið
líkaði vel
í sumar var nýtt tjaldstæði tek-
ið formlega í notkun á Raufar-
höfn. Við tjaldsvæðið var
útbúinn mini-golfvöllur og var
hvort tveggja afhent ung-
mennafélaginu til rekstrar.
Tjaldsvæðið hefur líkað mjög
vel, en ungmennafélagið fær allar
tekjur af rekstrinum og hefur
eftirlit með því.
Sundlauginni og mini-golfvell-
inum er lokað um miðjan sept-
ember þegar skólinn byrjar. Er
það vegna kyndingarkostnaðar,
en sundnámskeið fyrir skólabörn
fara fram á haustin og vorin.
Raufarhafnarbúar fara þó ekki
alveg varhluta af líkamsrækt því
þegar sundlaugin er lokað, er
heilsuræktin opnuð þar sem til
staðar eru ljósabekkir, gufubað
og líkamsræktartæki. VG
Rúna Gísladóttir við eitt verka sinna.
Mynd: fh
Sýning á Hótel Blönduósi
Þann 9. sept. opnaði listmálar-
inn Rúna Gísladóttir sýningu á
Hótel Blönduósi og stendur
hún tii 1. október. Á sýning-
unni eru 40 verk, málverk og
collage.
Rúna er ættuð frá Brautarhóli í
Svarfaðardal en fædd í Kaup-
mannahöfn árið 1940. Hún út-
skrifaðist úr Kennaraskóla
íslands 1962 og stundaði almenna
kennslu í 10 ár. Nam málaralist
hjá Axel E. Johansen í Noregi
auk myndvefnaðarnámskeiða þar
á árunum 1974-76.
Árið 1982 útskrifaðist hún úr
málaradeild Myndlista- og hand-
íðaskólans. Hún starfar nú sjálf-
stætt sem listmálari á vinnustofu
að Seljabraut 11 á Seltjarnarnesi
og stundar þar einnig myndlistar-
kennslu í námskeiðaformi. Hún
hefur einnig kennt málun við
Tómstundaskólann undanfarin
ár.
Þetta er önnur einkasýning
Rúnu en hún var með sýningu á
Kjarvalsstöðum 1987. Auk þess
hefur hún tekið þátt í mörgum
samsýningum, þeirri fyrstu 1981.
Sýningin á Hótel Blönduósi
hefur verið ágætlega sótt. fh