Dagur - 20.09.1988, Page 3
20. september 1988 - DAGUR - 3
Húsavík:
Dýr viðgerð á
sorpeyðingarstöð
Sorpeyðingarstöðin á Húsavík
hefur verið lokuð síðan um
mánaðamót júní-júlí í sumar
en áætlað er að hún komist í
gagnið aftur um næstu mán-
aðamót. A meðan stöðin er
lokuð er sorpi ekið á haugana
norðan bæjarins. Talsverð
brögð hafa verið að því að fólk
kveiki í sorpinu á haugunum
áður en bæjarstarfsmenn ná til
að urða það og hefur þurft að
kalla út slökk vilið vegna þessa.
Unnið er að viðgerðum á sorp-
eyðingarstöðinni, eðlilegu við-
haldi að sögn Bjarna Þóis Einars-
sonar bæjarstjóra. Loka þurfti
stöðinni mánuði fyrr en til stóð,
vegna þess að steinhleðslan í ofn-
inum var svo illa farin að úr
henni hrundi, en þá var steinninn
sem pantaður hafði verið ekki
kominn svo viðgerð gat ekki haf-
ist strax. Sorpeyðingarstöðin var
fyrst tekin í notkun 1970 og átta
árum síðar var steinninn í ofnin-
um endurnýjaður. Nú er unnið
við víðtækari endurnýjun, bæði á
steininum í ofninum og steini í
reykháf, auk þess sem töluvert
þarf að gera við stálið í ofninum.
Viðgerðir þessar munu kosta
rúmlega 3,1 milljón króna, þar
af kostar steinninn 1,8 millj.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á
rúmlega 2,6 millj. en vegna
gengisfellingarinnar í vor hækk-
aði verð á steininum og einnig
kom í ljós að gera þurfti kostnað-
arsamari viðgerð á stálvirkinu í
ofninum en áætlað var í upphafi.
IM
Á AKUREYRI
NÁMSKEIÐ
Almenn námskeið Myndlistaskólans á Akureyri
3. október til 20. janúar.
Barna- og unglinganámskeið.
Teiknun og málun.
1. fl. 5-6 ára. Einu sinni í viku.
2. fl. 6-7 ára. Einu sinni í viku.
3. fl. 8-9 ára. Einu sinni í viku.
4. fl. 10-11 ára. Einu sinni í viku.
5. fl. 12-13 ára. Einu sinni í viku.
Málun og litameðferð.
Byrjendanámskeið. 14-15 ára. Einu sinni í viku.
Framhaldsnámskeið. 15-16 ára. Einu sinni [ viku.
Skrift og leturgerð.
Byrjendanámskeið. 13-15 ára. Einu sinni í viku.
Kvöldnámskeið fyrir fullorðna.
Teiknun.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Framhaldsnámskeið. Tvisvar í viku.
Módelteiknun.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Framhaldsnámskeið. Tvisvar í viku.
Málun og litameðferð.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Framhaldsnámskeið. Tvisvar í viku.
Auglýsingagerð.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Byggingalist.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Skiltagerð.
Byrjendanámskeið. Einu sinni í viku.
Skrift og leturgerð.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Allar nánari upplýsingar og innritun I síma 24958
kl. 13.00-17.00 virka daga.
Skólastjóri.
Matvöruverslanir KEA
Tilboð
vikunnar
19.-24. september
reyktur
Viðmiðunarverð kr. 47,
Rúsínur
«,.131
pr. kg. Viðmiðunarverð kr. 167,
iðmiðunarverð kr. 351
TmJ !H i ii i fTTl i—
mm
Wjé 1 | [ > i 1 Lp ] [<