Dagur - 20.09.1988, Side 6
6 - DAGUR - 20. september 1988
\
Bridds
Vetrarstarf Bridgefélags Akureyrar hefst í
kvöld kl. 19.30 með hinu árlega Startmóti í
Félagsborg.
Um er að ræða tvímenningsmót með Mitchell fyrir-
komulagi.
Allir briddsspilarar velkomnir - skráning fer fram á
staðnum.
Bridgefélag Akureyrar.
AKUREYRARB/ER
Dagvistardeild Akureyrarbæjar auglýsir
opnunartíma
gæsluvalla
Frá 16. september eru gæsluvellir bæjarins opnir
frá kl. 13-16 e.h.
Dagvistarfulltrúi.
SMABATAPROF
(pungapróf)
Námskeið þetta miðast við próf, sem veitir mönnum
rétt til að stjórna bátum upp að 30 rúmlestum að
stærð að loknum siglingatíma. Kenndar verða 110
kennslustundir. Megináhersla er lögð á siglinga-
fræði, siglingareglur og tækjabúnað. Kennt verður
tvisvar í viku - 5 kennslustundir í senn. Stefnt er að
prófi í janúar.
Innritun í síma 25413 kl. 14-19.
Öll kennsla fer fram í Glerárskóla á tímabilinu frá kl.
18-22 á mánudögum til fimmtudags. Námsgjöld
greiðist laugardag 1. október. Öll námsgögn innifalin
í námskeiðsgjöldum. Unnt er að greiða námsgjöld
með VISA.
Innritun er alla daga kl. 14-19 í síma 25413.
Námsflokkarnir á Akureyri.
Síðasta
innritunarvika
Nánar í Dagskránni
Sími 22566 ,
frá kl. 16-20
Gríniðjan:
Samkomuhúsinu
Laddi í hlutverki Rick Steadman.
Hvað í ósköpunum er NÖRD?
Það fá gestir Leikfélags Akur-
eyrar að vita dagana 22.-25.
september, en þá kemur Grín-
iðjan hf. í heimsókn með
gestaleikinn NÖRD, sem
stendur víst fyrir: Nær öldung-
is ruglaður drengur. Þetta er
gamanleikur sem sýndur var á
Hótel íslandi sl. vetur við
afburða undirtektir og nú ætlar
Gríniðjan að troða upp í Sam-
komuhúsinu.
Gamanleikurinn NÖRD, eftir
bandaríska leikarann og leikrita-
skáldið Larry Shue, var frum-
fluttur af Milwaukee leikfélaginu
í Visconsin í Bandaríkjunum árið
1981, með höfund verksins í einu
af aðalhlutverkunum. Bretar
tóku gamanleiknum opnum örm-
um og sýndu hann í Manchester
og London og síðan var NÖRD
sýndur á Broadway í New York
fyrir troðfullu húsi í tvö ár sam-
fleytt.
Larry Shue fórst í flugslysi árið
1985, en skemmtileikur hans
Útlendingurinn hefur verið sýnd-
ur í London frá því í janúar á
þessu ári við fádæma aðsókn.
„NÖRD er um fólk sem
ég þoli ekki“
Um fyrirmyndina að NÖRD seg-
ir Larry Shue: „Hann er í raun-
inni sambland af öllu því ömur-
legasta fólki sem ég hef kynnst.
Eitt af því sem ég fékk í vega-
nesti úr uppvextinum er að mað-
ur á að vera notalegur við fólk -
en ef þú ert notalegur við NÖRD
siturðu uppi með hann fyrir
lífstíð.“ Og síðar segir Shue: „í
leikriti mínu Amma önd er dauð
(Grandma Duck is dead) fjalla ég
um fólk sem mér þykir vænt um.
NÖRD er um fólk sem ég þoli
ekki.“
Af einkennum NÖRDSINS má
nefna að hann gerir ævinlega ráð
fyrir vináttu þar sem engin slík er
fyrir hendi. Hann vekur hjá
manni sektarkennd einfaldlega
vegna þess að hann biður aldrei
um neitt. Hann vill einungis fá að
vera nálægur, í sama herbergi, en
hversu mikið sem maður reynir
að umbera það er það gersam-
lega óþolandi. Það er ekki auð-
velt fyrir mann sem hefur fengið
sæmilega kristilegt uppeldi, að
þurfa að viðurkenna fyrir sjálfum
sér að önnur mannvera sé ekki
annað en sóun á matvælum.
Þannig er NÖRDINN og þess má
geta að NÖRDAR eru yfirleitt
karlkyns.
Leiðinlegt og
heimskt mannkerti
Will Cubbert, söguhetja í
umræddum gamanleik, segir svo
um innihald leiksins: „Náunginn
sem bjargaði lífi þínu fyrir svo
mörgum árum að þú ert búinn að
gleyma því, dúkkar upp einn
góðan veðurdag og tilkynnir að
hann sé kominn til að vera. Þú
hafðir nefnilega heitið því í þakk-
arbréfi til hans að hjá þér stæðu
honum ævinlega allar dyr opnar;
húsaskjól, peningar, hvað sem
er.
Nú er komið að skuldadögunum.
Þessi miskunnsami samverji, sem
þú varst næstum búinn að
gleyma, reynist vera eitthvert
jafnleiðinlegasta, heimskasta og
mest uppáþrengjandi mannkerti
sem þú hefur augum barið og
hefur einstakt lag á því að gera
þér lífið óbærilegt. En þú færð
ekki rönd við reist. Maður stend-
ur í slíkri þakkarskuld við þann
sem bjargar lífi manns, að hann
er í fullum rétti til að leggja það í
rúst.
Þetta er nákvæmlega það sem
ég, 34 ára gamall næmgeðja arki-
tekt, hef orðið að ganga í
gegnum. Ég veit full vel, kæri
leikhúsgestur, að ég get ekki
krafist þess að þú haldir aftur af
hlátrinum en góðfúslega hafðu
samúð með mér.“
Persónur og Ieikendur
Gísli Rúnar Jónsson er leikstjóri,
Snjólaug Bragadóttir þýddi
verkið, aðstoðarleikstjóri er
Stefán Sturla Sigurjónsson, leik-
mynd hannaði Karl Aspelund
og lýsinguna hannaði Sveinn
Benediktsson. Hlutverkaskipan í
gamanleiknum NÖRD er sem
hér segir:
Will Cubbert: Randver Þor-
láksson, Ransý McGinnis: Sigrún
Waage, Axel Hammond: Júlíus
Brjánsson, Warnock Waldgrave:
Gísli Rúnar Jónsson, Clara
Waldgrave: Edda Björgvinsdótt-
ir, Thor Waldgrave: Björgvin
Franz Gíslason, Rick Steadman:
Þórhallur Sigurðsson, öðru nafni
Laddi. SS
Ransý, Willi, Rikki og Axel í kvöldsamkvæmi.