Dagur - 20.09.1988, Qupperneq 8
8 - DAGUR - 20. september 1988
fe Tilkynning til
ais launaskattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að gjalddagi
launaskatts fyrir mánuðinajúlí og ágúst er 15. september.
Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til innheimtu-
manns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og afhenda um
leið launaskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið.
Til leigu!
Önnur og fjórða hæð Glerárgötu 28 eru til
leigu.
Leigjast í heilu lagi eða í hlutum.
Lausar 1. október 1988.
Ennfremur er til sölu iðnaðarhúsnæði við Hvanna-
velli 12.
Upplýsingar gefur Aðalsteinn Jónsson í síma 21165.
Efnaverksmiðjan
Sjöfn
______________________________>
Nauðungaruppboð
annað og síðara,
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins,
Hafnarstræti 107, 3. hæð,
Akureyri, á
neðangreindum tíma:
Draupnisgötu 3, K og L-hl.,
Akureyri, þingl. eigandi Hreiðar
Hreiðarsson, föstud. 23. sept.
'88 kl. 14.30.
Uppboðsbeiðendur eru: Ingvar
Björnsson hdl., Pétur Kjerúlf
hdl. og Ólafur Sigurgeirsson
hdl.
Fögrusíðu 13b, Akureyri, talinn
eigandi Kristján Þorvaldsson,
föstud. 23. sept. ’88 kl. 14.45.
Uppboðsbeiðendur eru: Bæjar-
sjóður Akureyrar og Árni Hall-
dórsson hrl.
Grenivöllum 16, 1. hæð t.v.,
Akureyri, þingl. eigandi Stein-
dór Kárason, föstud. 23. sept.
’88 kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru: Gunn-
ar Sólnes hrl., Bæjarsjóður
Akureyrar, innheimtumaður
ríkissjóðs, Veðdeild Lands-
banka íslands, Ólafur Birgir
Árnason hdl. og Sveinn H.
Valdimarsson hrl.
Hafnarstræti 77, 3. og 4. hæð,
Ak., þingl. eigandi Jóna
Ákadóttir o.fl., föstud. 23. sept.
’88 kl. 16.15.
Uppboðsbeiðendur eru: Björn
Jósef Arnviðarson hdl, Sveinn
H. Valdimarsson hrl. og Gunnar
Sólnes hrl.
Kaldbaksgötu 5, Akureyri, þingl.
eigandi Ofnasmiðja Norður-
lands, föstud. 23. sept. ’88 kl.
13.45.
Uppboðsbeiðendur eru: Skúli
Bjarnason hdl., innheimtumað-
ur ríkissjóðs, Útvegsbanki
íslands og Iðnlánasjóður.
Mímisvegi 17, Dalvík, þingl.
eigandi Þorsteinn Aðalsteins-
son, föstud. 23. seþt. ’88 kl.
16.30.
Uppboðsbeiðendur eru: Sigríð-
ur Thorlacius hdl. og innheimtu-
maður ríkissjóðs.
Richardshús, s.-endi, Hjalteyri,
þingl. eigandi Sveinn Eðvalds-
son o.fl., föstud. 23. sept. ’88 kl.
16.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Sigurmar Albertsson hdl.,
Ásgeir Thoroddsen hdl. og Veð-
deild Landsbanka íslands.
Smárahlíð 18i, Akureyri, þingl.
eigandi Hrefna Helgadóttir,
föstud. 23. sept. ’88 kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru: Veð-
deild Landsbanka íslands, Ólaf-
ur Birgir Árnason hdl. og Ólafur
Axelsson hrl.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins,
Hafnarstræti 107, 3. hæð,
Akureyri, á
neðangreindum tíma:
Fögrusíðu 9a, Akureyri, talinn
eigandi Þorgerður Þorgilsdóttir,
föstud. 23. sept. '88 kl. 15.30.
Uppboðsbeiðendur eru: Bæjar-
sjóður Akureyrar og innheimtu-
maður ríkissjóðs.
Flögusíðu 5, Akureyri, þingl.
eigandi Erling Pálsson, föstud.
23. sept. ’88 kl. 14.30.
Uppboðsbeiðendur eru. Gunn-
ar Sólnes hrl. og Ásgeir Thor-
oddsen hdl.
Frostagötu 3c, A.-hl., Akureyri,
þingl. eigandi Haukur Adólfs-
son, föstud. 23. sept. ’88 kl.
15.30.
Uppboðsbeiðandi er Iðnlána-
sjóður.
Grund II, Hrafnagilshreppi,
þingl. eigandi Þórður Th. Gunn-
arsson o.fl., föstud. 23. sept. ’88
kl. 15.15.
Uppboðsbeiðendur eru: Búnað-
arbanki íslands, Landsbanki
(slands og Baldur Guðlaugsson
hrl.
Mímisvegi 24, Dalvík, þing. eig-
andi Hannes Sveinbergsson,
föstud. 23. sept. ’88 kl. 14.45.
Uppboðsbeiðendur eru: Veð-
deild Landsbanka Islands,
Gunnar Sólnes hrl. og Sigríður
Thorlacius hdl.
Skipagötu 13, Akureyri, þingl.
eigandi Skipagata 13 hf.,
föstud. 23. sept. '88 kl. 16.15.
Uppboðsbeiðandi er Bæjar-
sjóður Akureyrar.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
íþróttir
SL-deildin:
- náði einungis jafntefli á Skaganum
ÍA og KA skildu jöfn 2:2 í
barningsleik uppi á Skipaskaga
á laugardaginn. Með þessum
úrslitum tryggðu heimamenn
sér Evrópusæti á næsta ári, en
KA-menn verða að reyna aftur
að ári.
Leikurinn var ekki skemmti-
legur á að horfa. Baráttan var
mest á miðju vallarins og hugs-
uðu menn oft meira um and-
stæðinginn en boltann. Það voru
norðanmenn sem náðu forystu
með góðu marki Þorvalds
Örlygssonará 10. mínútu. Ólafur
Gottskálksson markvörður
Skagamanna átti þá misheppn-
aða sendingu á samherja, Þor-
valdur var fyrstur að átta sig á því
og skoraði fyrsta mark leiksins.
Það tók IA ekki nema fimm
mínútur að jafna leikinn. Sigur-
steinn Gíslason átti fast skot að
marki KA, boltinn fór í varnar-
vegginn en barst þaðan til Aðal-
steins Víglundssonar sem skoraði
örugglega án þess að Ægir Dags-
son í markinu ætti nokkurn
möguleika á að verja.
Félagarnir Sigursteinn og
Aðalsteinn voru aftur á ferðinni
nokkrum mínútum síðar. f>á átti
Sigursteinn sendingu frá hægri
kanti beint á höfuðið á Aðalsteini
sem stýrði boltanum rétta leið í
mark KA.
En heimamenn höfðu varla
hætt að fagna er Antony Karl
Gregory jafnaði leikinn fyrir
gestina. Þorvaldur átti þá send-
ingu frá kantinum og Antony Karl
skallaði í stöng. Boltinn rúllaði
eftir línunni og Antony Karl
fylgdi vel á eftir og renndi boltan-
um inn í markið.
í síðari hálfleik sótti ÍA liðið
næstum stanslaust. Á 18. mínútu
átti Heimir góðan skalla að marki
KA en Ægir varði vel. Nokkrum
mínútum síðar átti Aðalsteinn
gott færi en brenndi af. Guðbjörn
Tryggvason og Haraldur Ingólfs-
son áttu einnig góð færi en inn
vildi boltinn ekki.
Leiknum lauk því með jafntefli
2:2 og geta bæði lið vel sætt sig
Erlingur Kristjánsson hélt liði sínu á
floti á Skaganum.
við þá niðurstöðu - KA af því að
ÍA átti mun meira í leiknum, og
heimamenn af því að stigið tryggði
þeim Evrópusæti.
Langbesti maður KA liðsins
var Erlingur Kristjánsson og hélt
hann liðinu á floti í seinni hálf-
leik. Þorvaldur átti góðan leik í
fyrri hálfleik en sást lítið eftir
leikhlé. Sá leikmaður sem mesta
athygli vakti var 3. flokks mark-
vörðurinn Ægir Dagsson og stóð
hann sig mjög vel í markinu.
Ekki er við hann að sakast út af
mörkunum og spilaði Ægir eins
og reyndur markvörður. Ef rétt
er á spilum haldið er Ægir fram-
tíðarmaður hjá félaginu.
Hjá ÍA átti Guðbjörn Tryggva-
son góðan leik og einnig var Sig-
ursteinn frískur.
Lið ÍA: Ólafur Gottskálksson, Ólafur
Þórðarson, Guðbjörn Tryggvason,
Sigurður B. Jónsson, Heimir Guðmunds-
son, Haraldur Ingólfsson, Sigursteinn
Gíslason, Aðalsteinn Víglundsson, Karl
Þórðarson, Alexander Högnason, Mark
Duffield.
Lið KA: Ægir Dagsson, Erlingur
Kristjánsson, Stefán Ólafsson, Örn Við-
ar Arnarsson (Halldór Kristinsson 79.
mín.), Friðfinnur Hermannsson (Árni Þ.
Freysteinsson), Gauti Laxdal, Bjarni
Jónsson, Þorvaldur Örlygsson, Antony
Karl Gregory, Valgeir Barðason. ES/AP
Auðveldur sigur
Framara
- á Leiftri
Anthony Karl Gregory skoraði
síðara mark KA.
Staðan
1. deild
Úrslit í 17. umferð:
Víkingur-Völsungur 5:2
Þór-ÍBK 2:2
ÍA-KA 2:2
Leiftur-Fram 0:3
Valur-KR 3:2
Fram 17 15-1- 1 35: 6 46
Valur 17 12-2- 3 35:15 38
ÍA 17 9-5- 3 30:22 32
KA 17 8-3- 6 31:28 27
KR 17 7-3- 7 25:23 24
Þór 17 5-6- 6 23:27 21
Víkingur 17 5-3- 9 19:28 18
ÍBK 17 3-6- 8 19:3115
Leiftur 17 1-5-1111:25 8
Völsungur 17 2-2-13 12:35 8
2. deild
Úrslit í 17 . umferð:
FH-Selfoss 1:5
Tindastóll-ÍR 1:0
Þróttur-KS 3:1
ÍBV-Víðír 2:1
Fylkir-UBK 2:3
FH 17 13-2-2 46:20 41
Fylkir 17 9-6-2 39:27 33
Víðir 17 8-2-7 35:28 26
ÍR 17 8-2-7 31:34 26
Tindastóll 17 7-2-8 26:30 23
Selfoss 17 6-4-7 26:26 22
ÍBV 17 6-2-9 29:35 20
UBK 17 5-5-7 25:32 20
KS 17 4-4-9 35:46 16
Þróttur 17 2-5-10 24:39 11
Leikur Leifturs og Fram í
Olafsfirði á laugardag bar þess
greinileg merki að annað liðið
var nánast fallið og hitt orðið
íslandsmeistari. Heimamenn
voru nokkuð frískir fyrstu 15
mínúturnar en síðan ekki sög-
una meir. Framarar komust
aldrei í gang þó að þeir ættu
nokkra góða spretti.
Leiftursmenn fengu fyrstu tvö
færin, það fyrra strax á 2. mín-
útu. Hörður Benónýsson fékk þá
góða stungu inn fyrir vörn Fram-
ara en mistókst að taka boltann
með sér og upplagt færi varð að
engu. Steinar Ingimundarson var
síðan á ferðinni á 11. mínútu er
hann stakk sér í gegnum vörn
Fram en skot hans fór rétt fram
hjá.
Fyrsta mark Fram kom á 22.
mínútu. Kristinn R. Jónsson var
að dóla með knöttinn á vinstri
vængnum og sendi á Guðmund
Steinsson sem var á vítateigs-
horninu. Hann snéri sér laglega
og skoraði í hornið fjær. Fleira
markvert gerðist ekki í fyrri hálf-
leik.
Þegar 16 mínútur voru liðnar
af síðari hálfleik skoruðu gestirn-
ir sitt annað mark. Pétur Arn-
þórsson braust upp hægri kantinn
og alveg inn á markteig. Þaðan
sendi hann fastan bolta fyrir
markið og Pétur Ormslev þrum-
í Ólafsfirði
aði í netið af stuttu færi.
Á 75. mínútu fengu Framarar
víti eftir að Árni Stefánsson
braut á Kristni R. Jónssyni. Arn-
ljótur Davíðsson skoraði af
öryggi úr vítaspyrnunni og staðan
var þar með orðin 3:0 fyrir Fram-
ara.
Á síðustu mínútunni munaði
litlu að Halldóri Guðmundssyni
tækist að minnka muninn fyrir
heimamenn er hann átti skot í
stöng úr þvögu.
Leikur þessi var mjög leiðin-
legur á að horfa. Þegar á leið fór
mestur kraftur heimamanna í að
tuða í dómaranum en Framarar
virtust algerlega áhugalausir.
Gústaf Ómarsson spilaði einna
best heimamanna en Arnljótur
Davíðsson og Pétur Arnþórsson
báru af í liði Fram. ÓH
Lið Leifturs: Þorvaldur Jónsson, Ámi
Stefánsson, Sigurbjöm Jakobsson, Gústaf
Ómarsson, Halldór Guðmundsson,
Steinar Ingimundarson, Lúðvík Berg-
vinsson, Hafsteinn Jakobsson, Þorsteinn
Geirsson, Friðgeir Sigurðsson, Hörður
Benónýsson.
Lið Fram: Birkir Kristinsson, Þor-
steinn Þorsteinsson, Jón Sveinsson, Pét-
ur Ormslev, Viðar Þorkelsson, Kristinn
R. Jónsson (Kristján Jónsson á 78.
mín.), Pétur Arnþórsson, Guðmundur
Steinsson (Ómar Torfason á 61. mín.),
Steinn Guðjónsson, Arnljótur Davíðs-
son, Ormarr Örlygsson.
Dómari: Haukur Torfason og dæmdi
hann prýðilega.
KA missti af
Evrópusætinu