Dagur - 20.09.1988, Blaðsíða 9
20. september 1988 - DAGUR - 9
Ferðamótið í golfr.
Arni Ingimimdarson og
Þórhallur Pálsson sigruðu
- hlutu sólarlandaferðir að launum
Árni Ingimundarson og Þór-
hallur Pálsson urðu sigurveg-
arar í Ferðamótinu í golfi sem
fór fram á Jaðarsvellinum á
Akureyri um helgina. Það voru
Golfklúbbur Akureyrar, Flug-
leiðir og ferðaskrifstofurnar
Útsýn og Úrval ásamt Ferða-
skrifstofu Akureyrar sem
gengust fyrir mótinu. Árni og
Þórhallur léku á 132 höggum
nettó, eða jafnmörgum og þeir
Gunnar Sólnes og Pálmi Þor-
steinsson, en tókst að knýja
fram sigur í spennandi bráða-
bana.
f bráðabananum voru leiknar
þrjár holur, 1., 4. og 9. Árni
hafði eitt högg í forgjöf á 1. holu,
lék hana á 5 höggum en fékk 4
skrifuð og það högg réði úrslit-
um þegar upp var staðið og
Gunnar og Pálmi höfnuðu því í
2. sæti. í 3. sæti urðu Halldór
Rafnsson og Gunnar Jakobsson á
134 höggum nettó.
Verðlaunin í mótinu voru afar
vegleg eins og fram hefur komið
en það voru Flugleiðir og ferða-
skrifstofurnar Útsýn og Úrval
sem gáfu þau. Árni og Þórhallur
hlutu báðir sólarlandaferð fyrir
sigurinn og þeir Gunnar Sólnes
og Pálmi fengu helgarferðir til
London í sinn hlut. Halldór og
Gunnar Jakobsson hlutu síðan
helgarferðir til Reykjavíkur fyrir
3. sætið.
Þá voru einnig veitt aukaverð-
laun fyrir að vera næst holu á
brautum 4 og 18. Árni Björn
Árnason varð næstur holu á 4.
braut og Gunnar Sólnes á þeirri
18. Báðir hlutu þeir flugfarmiða
til Reykjavíkur að launum.
Mótið þótti heppnast vel þrátt
fyrir að veðrið léki ekki við kepp-
endur síðari daginn. Nokkuð
færri mættu til leiks en búist hafði
verið við, eða um 60 manns, og
vakti athygli að engir keppendur
komu frá Ólafsfirði og Húsavík.
Hins vegar komu keppendur frá
Sauðárkróki, Reykjavík, Hafnar-
firði, Keflavík, Borgarnesi og
Eskifirði og voru mótshaldarar
ánægðir með það. Að sögn Gfsla
Jónssonar, framkvæmdastjóra
Ferðaskrifstofu Akureyrar, er
þetta í fyrsta en örugglega ekki
síðasta sinn sem þetta mót er
haldið og sagði hann að næsta ár
yrði reynt að halda mótið fyrr og
mætti þá búast við betri þátttöku.
JHB
Verðlaunahafar í Ferðamótinu ásamt Gísla Jónssyni (4. frá vinstri), forstjóra Ferðaskrifstofu Akureyrar. Mynd: ehb
Knattspyrna 2. deild:
KS lá f\TÍr Þrótti
leikur í 3. deild að ári
Þróttur sigraði KS 3:1 á Val-
bjarnarvellinum í Reykjavík á
laugardaginn. Þessi úrslit þýða
að KS er fallið í 3. deild, því öll
hin liðin sem voru í fallhættu
fyrir þessa síðustu umferð sigr-
uðu í sínum leikjum.
KS-liðið getur ekki kennt nein-
um nema sjálfum sér um tapið í
leiknum. Leikmennirnir óðu svo-
leiðir í færum, þó sérstaklega í
seinni hálfleik, en tókst á ein-
hvern furðulegan hátt að klúðra
þeim öllum.
Annars var leikurinn mjög
brokkgengur. Þróttur var mun
betra liðið fyrsta hálftímann og
máttu norðandrengirnir þakka
fyrir að fá ekki meira en eitt
mark á sig. Það skoraði Sigurður
Hallvarðsson á 25. mínútu með
glæsilegum skalla, án þess að
Magnús Jónsson markvörður ætti
möguleika á því að verja.
Tómas Kárason fyrirliði jafn-
aði leikinn tíu mínútum síðar
með glæsilegu skoti eftir góðan
undirbúning Paul Friar. Óli
Agnarsson hafði að vísu skorað
mark fyrr í leiknum, en það var
dæmt af vegna rangstöðu.
KS sótti nú í sig veðrið og sótti
stíft að marki Þróttar. Þeir
gleymdu þá varnarleiknum og
litlu munaði að Þróttur kæmist
yfir. Magnús markvörður sá hins
vegar til þess að jafnt væri í leik-
hléi.
Það var fyrsti hálftíminn eftir
leikhlé sem gerði útslagið um
úrslit leiksins. KS-ingar fengu
hvert dauðafærið á fætur öðru en
inn vildi boltinn ekki. Paul Friar
fékk tvö færi sem Guðmundur
Erlingsson í marki Þróttar varði
frábærlega. Oddur Hafsteinsson
stóð fyrir opnu marki, en hitti
boltann illa og varnarmenn
Þróttar náðu að hreinsa á síðustu
stundu.
Þeir rauðklæddu náðu nú að
rétta aðeins úr kútnum og mestu
pressunni var létt af marki þeirra.
Sigurður Hallvarðsson skoraði
mark fyrir þá úr skyndisókn, en
það var dæmt réttilega af vegna
rangstöðu.
Nú fór að bera á vonleysi í leik
KS-liðsins og Þróttur náði að
nýta sér það ráðleysi. Ásmundur
Vilhelmsson, sem var þá nýkom-
inn inn sem varamaður, skoraði
mark af stuttu færi eftir vel
útfærða sókn Reykvíkinga.
Rétt fyrir leikslok skoraði síð-
an Sigurður Hallvarðsson þriðja
mark Þróttar með fallegum skalla
og þar með var annar sigur Þrótt-
ar í sumar í höfn.
Besti maður KS í leiknum var
Paul Friar sem var óheppinn að
skora ekki í leiknum. Einnig átti
Hafþór Kolbeinsson ágæta
spretti inn á milli.
Besti maður Þróttar og um leið
besti leikmaður vallarins var
Guðmundur Erlingsson mark-
vörður og bjargaði hann liði sínu
frá stórtapi. AP
Þórhallur Pálsson slær inn á grínið á 4. braut. Mynd: ehb
SL-deildin:
Völsungur tapaði
- að þessu sinni fyrir Víkingi
Völsungar gátu ekki fylgt
glæsilegum sigri sínum á Fram
eftir í þessari umferð og urðu
að lúta í lægra haldi fyrir
frísku Víkingsliðinu. Hinir fáu
áhorfendur fengu nokkuð fyrir
aura sína því sjö mörk voru
skoruð í leiknum.
Víkingar byrjuðu af miklum
krafti og greinilegt að þeir ætluðu
sér að kafsigla Húsvíkingana.
Atli Einarsson skoraði fyrsta
markið með góðum skalla á 18.
mínútu eftir aukaspyrnu Hlyns
Birgissonar.
Leikurinn jafnaðist nokkuð
eftir markið og komu nú Völs-
ungarnir meira inn í leikinn.
Ekki náðu þeir þó að ógna marki
Víkinga að neinu ráði, enda var
Guðmundur Hreiðarsson þar
öryggið uppmálað.
Rétt fyrir leikhlé jók Björn
Bjartmarz forskotið fyrir Víkinga
með þrumuskoti frá markteig.
Þorfinnur Hjaltason markvörður
Völsunga gerði heiðarlega tilraun
til þess að verja en án árangurs.
Það var svo sannarlega flug-
eldasýning í síðari hálfleik og
fengu áhorfendur að sjá fjögur
mörk á fjórtán mínútum. Það
fyrsta gerði Víkingurinn Atli
Helgason eftir að Stefán Hall-
dórsson hafði átt skot úr auka-
spyrnu. Knötturinn hrökk af
varnarvegg Húsvíkinga og Atli
fylgdi vel á eftir og skoraði.
Theodór Jóhannsson minnkaði
muninn með skalla nokkrum
mínútum síðar eftir hornspyrnu.
En Adam var ekki lengi í paradís
og Lárus Guðmundsson skoraði
fjórða mark Víkinga eftir að hafa
leikið á tvo varnarmenn Völs-
unga.
En markahátíðin var ekki búin
ennþá, því enn eitt skallamarkið
leit dagsins ljós. Þar var Skúli
Hallgrímsson á ferðinni eftir
aukaspyrnu Guðmundar Guð-
mundssonar.
Þetta fannst þeim rauðrönd-
óttu ótækt og undir lok leiksins
bætti Björn Bjartmarz við öðru
marki sínu og auðvitað með
skalla! Það voru því Víkingar
sem stóðu uppi sem 5:2 sigurveg-
arar. Þess má geta að einungis
152 áhorfendur mættu á þennan
leik.
Besti leikmaður Víkinga var
Lárus Guðmundsson og áttu
varnarmenn Völsungs í miklum
erfiðleikum með hann. Greini-
legt er að Víkingsliðið er fyrst
að smella saman núna og ættu
þeir að vera með þokkalegt lið að
ári.
Völsungsliðið var jafnt í þess-
um leik en þeir mættu hreinlega
ofjörlum sínum í þetta skiptið.
Lið Víkings: Guðmundur Hreiðarsson,
Sveinbjörn Jóhannsson, Þórður Marels-
son, Hallsteinn Arnarsson, Stefán Hall-
dórsson (Björn Einarsson 70. mfn.), Atli
Helgason, Jón Oddsson (Lúðvík Braga-
son 74. mín.), Björn Bjartmarz, Atli
Einarsson, Lárus Guðmundsson, Hlynur
Birgisson.
Lið Völsunga: Þorfinnur Hjaltason,
Eirtkur Björgvinsson, Theodór Jóhanns-
son, Helgi Helgason, Guðmundur
Guðmundsson, Unnar Jónsson (Baldvin
Viðarsson 89. mín.), Sveinn Freysson,
Skúli Hallgrímsson, Jónas Hallgrímsson,
Sigurður Illugason, Skarphéðinn ívars-
son. AP