Dagur - 20.09.1988, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - 20. september 1988
Vinningstölur 17. sept. 1988.
Heildarvinningsupphæð kr. 4.156.884.-
Þar sem enginn var með 5 réttar tölur færist fyrsti vinn-
ingur yfir á fyrsta vinning á laugardaginn kemur.
Bónusvinningur var kr. 332.286.-
Aðeins einn þátttakandi fékk bónusvinning.
2. vinningur kr. 573.195.-
Skiptist á milli 63 vinningshafa, kr. 9.098,- á mann.
3. vinningur kr. 1.337.454.-
Skiptist á milli 2.608 vinningshafa, sem fá 512 kr. hver.
Sölustaðirnir eru opnir frá
mánudegi til laugardags
og loka ekki fyrr en 15 mínútum
fyrir útdrátt.
Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111
ÉFramhalds-
aðalfundur
verður haldinn að Bjargi n.h. fimmtudaginn
29. sept. kl. 20.30.
Dagskrá:
Reikningar félagsins.
Önnur mál.
Reikningar Sjálfsbjargar liggja frammi á skrifstofu félags-
ins kl. 13-17 næstu daga.
Kaffiveitingar.
Mætið vel og stundvíslega.
Stjórnin.
it
Sendum alúðar þakkir öllum þeim er auðsýndu okkur samúð
og vináttu við andlát og jarðarför,
RÓSU ÞORGILSDÓTTUR,
Sökku.
Gunnlaugur Gíslason,
böm og tengdabörn.
Ólympíufár í
Sjónvarpinu
- sjónvarpað dag og nótt
Ólympíuleikarnir í Seoul voru
settir með mikilli viðhöfn
aðfaranótt föstudags í Kóreu.
Það er eins gott að allir hafí
látið Iíta á sjónvarpstækið hjá
sér því næstu tvær vikurnar
mun sjálfsagt mæða mikið á
imbanum. Sjónvarpið mun
verða með næstum linnulausar
sýningar frá Ieikunum á þess-
um tíma og hætt er við að
margir verðir syfjaðir í vinn-
unni því flestar beinu sending-
arnar eru á nóttunni.
Sjónvarpið hefur staðið sig vel
að útvega okkur beinar sendingar
frá þeim greinum þegar landar
okkar standa í ströngu. Frétta-
mennirnir Arnar Björnsson og
Samúel Örn Erlingsson eru
staddir í Seoul og munu stjórna
útsendingum þaðan. Hér heima
eru síðan þau Bjarni Felixson,
Ingólfur Hannesson, Jón Óskar
Sólnes og Ásdís Eva Hannesdótt-
ir sem munu, bæði í útvarpi og
sjónvarpi, lýsa því sem frá Kóreu
kemur.
í þessari grein ætlum við að
greina frá þeim beinu útsending-
um sem munu fara fram þessa
vikuna og í næsta helgarblaði
munum við vera með vikuna þar
á eftir. Lesendur eru hvattir til að
geyma þessa síðu til að vera með
allar upplýsingar um beinar
útsendingar á einum stað.
Þriðjudagur
20. september
10.00 Ólympíusyrpa.
Ýmsar greinar.
10.25 Bein útsending - úrslit í
sveitakeppni karla í fimleik-
um.
12.30 Bein útsending - ísland-
Bandaríkin í handbolta.
Miðvikudagur
21. september
10.25 Bein útsending - úrslit í
sveitakeppni kvenna í fimleik-
um.
21.20 Ólympíusyrpa.
Ýmsar greinar.
23.10 Bein útsending til kl. 05.00
- undanrásir í sundi og úrslit í
fimleikum.
Arnar Björnsson.
Ásdís Eva Hannesdóttir.
Ragnar Guðmundsson. 200 m
bringusund - Amþór Ragnars-
son. 100 m bringusund -
Ragnheiður Runólfsdóttir.
Föstudagur
23. september
09.55 Bein útsending - frjálsar
íþróttir og úrslit í sundi.
23.40 Bein útsending til kl. 06.30
- frjálsar íþróttir, fimleikar
karla og úrslit í sundi.
Spjótkast - Einar Vilhjálms-
son og Sigurður Einarsson.
200 m fjórsund - Ragnheiður
Runólfsdóttir. 100 m baksund
- Eðvarð Þór Eðvarðsson. 50
m frjáls - Magnús Ólafsson.
1500 m frjáls - Ragnar Guð-
mundsson.
Laugardagur
24. september
08.15 Ólympíusyrpa.
Handknattleikur ísland-
Svíþjóð.
17.00 Ölympíusyrpa.
M.a. syrpa úr leik fslands og
Svíþjóðar í handbolta.
23.05 Olympíusyrpa.
Ýmsar greinar.
00.30 Bein útsending til kl. 06.30
- frjálsar íþróttir, sund, fim-
leikar og dýfingar.
400 m grindahlaup - Helga
Halldórsdóttir. Spjótkast
karla úrslit. Spjótkast - íris
Grönfeldt. ÁP
Samúel Örn Erlingsson.
100 m frjáls aðferð - Magnús
Ólafsson. 200 m baksund -
Eðvarð Þór Eðvarðsson.
Fimmtudagur
22. september
09.55 Bein útsending - úrslit í
sundi.
12.00 Bein útsending - ísland-
Alsír í handbolta.
21.50 Endursýndur leikur
íslands og Alsírs í handbolta.
23.05 Bein útsending til kl. 08.00
- frjálsar íþróttir, sund og fim-
leikar.
Kúluvarp - Pétur Guðmunds-
son. 400 m frjáls aðferð -
Það mæðir mikið á starfsmönnum íþróttadeildar Ríkisút varpsins meðan á Ólympíuleikunum í Seoul stendur. Bjami
Felixson, Ingólfur Hannesson og Jón Óslcar Sólnes, með einkennisdýr lcikanna á milli sln.