Dagur - 22.09.1988, Side 9
22. september 1988 - DAGUR - 9
„Það er ekki víst að það væri
svo vitlaust.“
- Verður hægt að fækka
gangnamönnum á Auðkúluheiði
þegar hluti hennar verður kom-
inn undir Blöndulónin?
„Alveg örugglega ekki, það
gæti þurft að fjölga þeim fyrst í
stað á meðan er verið að kenna
fénu að renna aðrar leiðir en það
er vant að fara.“
- Nú var samkvæmt samningi
sem gerður var fyrir fjórum árum
bannað að reka hross á heiðina.
Hvað gerist þegar hann rennur
út?
„Samningurinn rennur út nú
um áramótin en um hvað verður
gert vil ég ekkert segja á þess-
ari stundu. Hitt er annað að það
er girðingarhólf hér framan við
Hrafnabjörg sem upprekstur
hrossa hefur verið leyfður í. Það
hefur ekki skeð nema einu sinni á
þessurn árum, það var 1987, að
þetta hólf hafi verið fullnýtt.
Hólfið er 2500 hektarar og allt
graslendi, það hefur alltaf verið
rúmt í því nema þetta eina
sumar.“
- Hver var ástæða þess að
göngum á Auðkúluheiði var flýtt
einhliða nú í haust og heiðin
smöluð viku fyrr en þær heiðar
sem að henni liggja?
„Frá því sem fjallskilareglu-
gerð segir til urn hefur göngum á
svæðinu á milli Blöndu og Mið-
fjarðargirðingar verið flýtt um
viku undanfarin tvö ár, þetta er
þriðja árið sem við flýtum þeim.
Það eru fleiri en ein ástæða sem
ég tel að réttlæti þetta. Sú fyrsta
er að allar rannsóknir benda til
þess að dilkar þyngist lítið á
afréttum eftir ágústlok. Bændur
hafa margir mjög góðar aðstæður
heima til að taka við fénu á þess-
um tíma og ég held að það sé
þeirra hagur. í annan stað hefur
verið reynt að hlíta þeim upp-
rekstrartíma sem gróðurverndar-
nefnd héraðsins og Landgræðslan
hafa komið sér saman um að væri
hentugur. Hvað okkur varðar hér
á Auðkúluheiði þá er fækkun fjár
á heiðinni orðin alveg geipileg.
Það á að nota beitargrösin
á heiðunum á meðan
þau eru kostaríkust
Ég er ekki viss um að féð sem
kom af heiðinni nú um daginn sé
nema þriðjungur þess fjár sem
kom til rétta af henni þegar flest
var.
Það voru á rnilli 11 og 12 þús-
und fjár á fóðrum í upprekstrar-
félagi Auðkúluheiðar en hvað
margt af því er á heiðinni er erfitt
að segja urn. Það er mjög margt
af fé í heimalöndum yfir sumarið
hér í Svínavatnshreppi.
Það er mín skoðun að þessi
upprekstur á vorin sé full seint á
ferðinni. Það er viðurkennt af
öllum aðilum aö Auðkúluheiðin
sé besta afréttin hér um slóðir og
ég er viss urn að óhætt var að
leyfa upprekstur á heiðina viku
fyrr en gert var á síðasta vori,
minnsta kosti ef settar yrðu á
hömlur þannig að menn færu
ekki með allt féð í einu og það
eru bændur tilbúnir að gera.
Það er mikið hagsmunamál
fyrir bændur sem reka stór fjárbú
að losna við féð viku fyrr úr tún-
unum, það getur hreinlega skipt
sköpum með heyskap.
Að þessu samanlögðu er það
mín skoðun og ég ætla að vinna
að því að upprekstri verði heldur
flýtt að vori og féð tekið heim
fyrr að hausti. Ég held að allir
bændur sem nota afréttina hafi
hagnað af því. Það er dýrt fyrir
fjárbændur að nota stórar afréttir
og standa undir kostnaði af því
þess vegna verða þeir að nota
beitargrösin á heiðunum á meðan
þau eru kostaríkust og skila
mestum árangri“, sagði Sigurjón
á Tindum.
Myndir og texti: fh
Það sést einhver hreyfing norður í Arnarbælinu.
hefðu þeir fundið óvenju margt
fé og meðal annars tvö lömb á
algjörri hagleysu við Lyklafell
sem er upp við Langjökul. Biaða-
maðurinn fylgdist með þegar
gangnamenn voru að höndla
ljónstyggar fjallafálur og koma
þeim á bílinn og auðséð var að
bæði menn og hundar kunnu þar
vel til verka.
Gamall gangnaforingi sagði
eitt sinn að allir gangnamenn
þyrftu að vera góðir, sérstaklega
þeir sem færu í seinni göngur, og
ekki þýddi að senda aðra en
úrvalsmenn í eftirleitir.
Samkomulag um
landamerki
Blaðamaður Dags ræddi við Sig-
urjón Lárusson á Tindum,
oddvita Svínavatnshrepps og
spurði hann um nánari tilhögum
á göngum á Auðkúluheiði eins og
þær eru nú og um merki á milli
Auðkúluheiðar og Tungna-
mannaréttar á Kili.
Verður ekki sótt fast að fá það
land aftur sem tilheyrir Auðkúlu-
heiði og er sunnan girðingar á
Kili?
„Það er búið að gera sam-
komulag og ganga endanlega frá
því hvar merkin eru. Þau eru á
vatnaskilum svo við eigum Kjal-
hraunið suður að Strýtum en
Þessar rollur seldu frelsi sitt dýrt.
„Jú það er í þessum svokallaða
Blöndusamningi (samningur við
Landsvirkjun vegna Blönduvirkj-
unar) að það skuli gert. Það er
reyndar ekki árennilegt girðing-
arstæði yfir Kjalhraun og menn
eru svona að velta þessu fyrir sér
og ekki hefur enn verið komist að
neinni niðurstöðu um hvað verð-
ur gert í þessu en rétturinn er fyr-
ir hendi til að láta setja girðing-
una upp á merkjum.“
- Er ekki takmarkað land til
að sækjast eftir í hrauninu fyrst
Þjófadalirnir fylgja ekki með?
Kjalhraun illa farið
vegna ofbeitar
„Það er nú allmikið graslendi í
Kjalhrauni en landið er illa farið
vegna ofbeitar til fjölda ára. Það
er viðurkennt af öllum aðilum og
auðvitað þyrfti að hlífa því um
tíma, meir en gert hefur verið.“
- Kemur til greina að koma
upp þessari merkjagirðingu og
lofa hinni að standa einhvem tíma
og friða landið á milli þeirra?
Fé sett á bíl við gamla skálann við Kúlukvísl.
sunnanmenn eiga Þjófadalina því
allt vatn úr þeim rennur til
suðurs. Nánar til tekið eru þau
merki sem um hefur samist úr
Oddnýjarhnjúk að vestan, það er
hnjúkur í Þjófadalafjöllum sem
er nokkur veginn beint vestur af
Hveravöllum, svo er gnípa
nokkru sunnar í fjöllunum sem
samið var um að yrði hornpunkt-
urinn og var merkt vandlega með
koparskildi frá Landmælingum
ríkisins og þaðan er svo tekin
bein lína á Strýtur. Austan við
Strýturnar er næsta kennileiti
sem miðað er við Grettishellir.
Hann er gríðarlega stór og á hon-
um standa þrjár vörður og það er
svo nákvæmlega að orði komist í
þesari landamerkjagerð að það
skyldi vera syðsta varðan sem
miðað er við. Þaðan er línan á
útsýnisskífuna á Fjórðungsöldu
en merkin í Blágnípu í Hofsjökli
hafa alltaf verið óumdeild og í
hana liggur núverandi varnar-
girðing, hún liggur suður með
Blöndu og í gnípuna og svo hefur
alltaf verið. Það er mjög stutt frá
upptökum syðstu kvíslar Blöndu
að Jökulfallinu.“
- Er ekki stefnt að því að færa
varnargirðinguna á þessi
umsömdu merki?