Dagur - 24.09.1988, Side 6
6 - DAGUR - 24. september 1988
- Víða leynast
hættur á veg-
ferð manna
enda þótt íbúarnir verði ennþá
að sætta sig við að umheimurinn
viðhaldi þeim orðrómi, sem áður
lá á borginni. Á árinu 1986 gaf
lögreglan út 38.200 vottorð um
óflekkað mannorð til fólks, sem
fá vildi vegabréf vegna náms er-
lendis eða flutnings til annarra
landa. Á sama ári voru 57 bankar
rændir og 43 gullsmiðir.
En Hong Kong á við verulegan
eiturlyfjavanda að stríða. Á skrá
eru 38.310 eiturlyfjaneytendur,
einkum heróínneytendur. Á
árinu 1986 voru 12.494 einstakl-
ingar dæmdir vegna eiturlyfja-
mála, sex sinnum fleiri en í
London.
Þeir, sem ferðast til Hong
hluti
GLÆPUR
OGREFSM
Franskir lögreglumenn að störfum. Lögreglan þar í landi telur sig upplýsa
40% allra glæpamála og þykir það nokkuð hátt hlutfall, miðað við það sem
gerist víða annars staðar. Ekki er þó víst að íslensk lögregluyfirvöld sættu sig
alls kostar við slíkan árangur.
Sá glæpalýður, sem ferðamenn
komast stundum í kynni við, eru
oft sígaunar komnir frá Júgó-
slavíu, og þeir ráðast alveg sér-
staklega að Japönum. Samkvæmt
upplýsingum innanríkisráðuneyt-
isins eru þjófnaðir sígaunanna þó
minnkandi vandamál, en eigi að
síður nóg til þess, að innanríkis-
ráðherrann á tíðförult á fund
júgóslavneska sendiherrans til að
ræða það, hvernig unnt sé að
ráða bót á þessu. Flestir þjófnað-
anna eru framdir í neðanjarðar-
lestunum, einkum á síðkvöldum.
Þaö er ekki gerlegt að vita
nákvæmlega, hversu hátt hlutfall
glæpa er yfirleitt tilkynnt. í Kína-
hverfinu (13. hverfi Parísar) talar
fólk alls ekki við lögreglumenn.
Manndráp eru jafnvel ekki til-
kynnt. Vandamálið kemur til af
því, að þarna búa á milli 30 og 60
þúsund ólöglegir innflytjendur.
Lögreglan kvartar einnig und-
an aröbum frá Norður-Afríku,
og þar á milli er ekkert traust.
Arabar eru í sífellu stöðvaðir og
látnir sýna skilríki sín.
Lögreglan - sem telur sig upp-
lýsa 40 prósent allra glæpamála,
sem er nokkuð hátt hlutfall - er
almennt séð ekki spillt, og enda
þótt lögregluþjónarnir séu vopn-
aðir, skjóta þeir menn ekki til
bana nema í sjálfsvörn.
Los Angeles
í borg englanna er algengast, að
íbúarnir fremji glæpi hver gagn-
vart öðrum. Og flest afbrot (ef
bílþjófnaðir eru frátaldir) eiga
sér stað í þéttbýlustu borgar-
hverfunum - miðborginni og
Austur- og Suður-Los Angeles.
35 prósent manndrápa verða á
þessum svæðum. Öðru hvoru
koma upp glæpamál, sem vekja
mikla athygli, svo sem þegar
glæpaflokkar eru að verki, og
venjulega gerist þetta í austur-
eða suðurhlutanum.
Miðborg LA er að fá á sig
betra orð en áður var. Skipu-
leggjendur borgarinnar segja, að
miðborgin sé í endurnýjun, þar
eru að rísa nýir skýjakljúfar,
miðborgin fær á sig svip við-
skipta- og menningarlífs, og jafn-
vel koma þar risastórar íbúða-
blokkir, ein eða tvær. Um nætur
er miðborgin auð og yfirgefin og
hættuleg umferðar, en fyrir fólk í
viðskiptaerindum er aðalvanda-
málið að degi til umferðaröng-
þveitið. Yfirvöld eru að berjast
við þetta með því að hegna öku-
mönnum, sem loka gatnamótum.
Fótgangandi vegfarendum er
refsað - 49.462 árið 1986 - ekki
aðeins fyrir að brjóta umferðar-
reglur heldur og fyrir að stíga út
af gangstéttarbrún eftir að komið
er merki um að gangbraut sé
lokuð.
Lögreglan segir LA-flugvöllinn
„ekki eins slæman og Kennedy-
flugvöll“ að því er snertir bíl-
þjófnaði og stuld úr bílum. Áætl-
að er, að þangað hafi komið um
tíu milljónir bíla á árinu 1987, en
317 var stolið og brotist inn í
1.207. „Mannþröng á flugvöllum
er heppilegur athafnastaður fyrir
vasaþjófa,“ segir lögreglan, en
aðeins var kært í 75 tilvikum á
síðasta ári, en 45 milljónir far-
þega fóru um völlinn. Þessi at-
hafnasemi mun þó hafa tekið
verulegan fjörkipp á yfirstand-
andi ári.
Lögreglan í Los Angeles getur
ekki haldið mönnum í fangelsi
nema færa rök fyrir sfnu máli, en
grunuðum mönnum, sem ekki
bera persónuskilríki, er þó leyfi-
legt að halda í varðhaldi. Pað
telst ekki saknæmt að vera
drukkinn á almannafæri, en mikil
herferð er í gangi til að berjast
gegn því, að fólk aki undir áhrif-
um áfengis eða eiturlyfja. Ef
áfengi mælist í blóði ökumanns,
má reikna með 15 til 40 þúsund
króna sekt og allt að 6 mánaða
fangelsi.
Hlutfall þeirra mála, sem upp-
lýst verða, er lágt; manndráp
64,5 prósent, nauðganir 40,7
prósent, líkamsárásir 56 prósent
og rán 20,5 prósent.
Hong Kong
Hjá lögreglunni í Hong Kong fer
mestur tími í að fást við mál ólög-
legra innflytjenda. Á árinu 1986
voru 16.832 handteknir, þegar
þeir reyndu að komast inn yfir
landamærin frá Kína. Yfirleitt
hafði þetta fólk greitt milligöngu-
mönnum, sem lofað höfðu að
koma því yfir landamærin, 300-
15.000 HK-dollara. Athyglisvert
er, að helmingur þeirra, sem stóð
að vopnuðum ránum í Hong
Kong 1986, hafði flust til borgar-
innar eftir 1978.
55 prósent allra glæpa eru
framdir á Kowloon-svæðinu, en
Hong Kong-eyja verður að telj-
ast tiltölulega öruggur staður
(aðeins 19 prósent glæpanna voru
framdir þar). Af 67 manndrápum
1986 (sem er lág tala miðað við
heimsmeðaltal) tókst að upplýsa
49. Að meðaltali tókst að upplýsa
48 prósent allra glæpamála (sem
er hátt hlutfall), 36,5 prósent inn-
brota upplýstust og 44,1 prósent
ofbeldisglæpa.
Hong Kong er ekki lengur sú
glæpamiðstöð, sem áður var,
Kong í viðskiptaerindum, verða
að vera vel á verði gagnvart fjár-
svikum og undirferli. Peninga-
fölsun er einnig vandamál.
Fölsuðum 1.000 HK-dollaraseðl-
um hefur verið dreift í miklu
magni á meginlandi Kína. Jafn-
vel eru bandarísk ökuskírteini
fölsuð.
Glæpum, þar sem óaldarflokk-
ar eiga hlut að máli, fer fækk-
andi.
Skráin yfir minniháttar afbrot
er dálítið óvenjuleg: 8.542 voru
dæmdir fyrir fjárhættuspil,
18.801 fyrir fálkaveiðar og 2.180
fyrir að reka nuddstofur í leyfis-
leysi. Þarna starfar góðborgara-
hreyfing, sem hvetur almenning
til að aðstoða lögregluna og 12,6
prósent af öllum handtökum eiga
rót sína að rekja til ábendinga frá
almenningi. Ung kínversk kona
var nýlega verðlaunuð með
sumarleyfisferð til Bandaríkj-
anna eftir að hún hafði með hug-
rekki sínu aflað upplýsinga, sem
leiddu til handtöku og síðar dóms
yfir manni, sem hafði þrjú morð
og 22 rán á samviskunni.
London
Heildartala glæpamála í London
lækkaði um 4 prósent á árinu
1987. Morðmálum fækkaði í 195,
og af þeim tókst að upplýsa 181.
Árið var hins vegar óvenjulegt að
því leyti, að lögreglan skaut þrjá
menn til bana á götum úti, en
aðeins 2.600 lögreglumenn hafa
leyfi til að nota skotvopn og í
I mörgum heimshlutum geta saklausir ferðamenn átt það á hættu að verða
fórnarlömb hryðjuverkamanna.
reyndinni bera aðeins fáir þau á
sér. Hlutfall þeirra mála, sem
tókst að upplýsa, er lágt, aðeins
16 prósent, en þó tókst að upp-
lýsa 49 prósent nauðgunarmála
og 53 prósent mála vegna ann-
arra líkamsárása.
Miðað við heimsmeðaltal eru
innbrot mjög tíð í London, einn-
ig rán á götum úti og vasaþjófn-
aðir. Ferðamannastraumur er
meiri til London en nokkurrar
annarrar borgar, og algengt er,
að stolið sé persónulegum mun-
um þeirra, sem aðeins dvelja
tímabundið í borginni. Pessir
þjófnaðir eru einkum framdir,
þar sem mikil þröng er á þingi.
Að því er smáþjófnaði varðar er
Oxford Circus neðanjarðarstöðin
varasamasti staðurinn, en ólíkt
því, sem víða gerist í borgum, er
glæpastarfsemin ekki sérstaklega
bundin við úthverfi.
Hver sá, sem tekur bíl á leigu í
London, ætti að hafa í huga, að
bílþjófnaðir eru þar mjög tíðir og
þjófnaðir úr vélknúnum farar-
tækjum munu þar algengari en
nokkurs staðar annars staðar
(133.033 kærur 1987). Bifreiðar,
sem skildar eru eftir næturlangt á
almenningsbílastæðum, eru í sér-
stakri hættu.
Ferðamenn bera lögreglunni
það orð, að hún sé ábyggileg og
umhyggjusöm (Lundúnabúar
samþykkja það víst ekki), og hún
tekur ekki við mútum. Hún getur
sektað menn á staðnum fyrir um-
ferðarlagabrot, en önnur mál
verða að ganga til dóms, og
ákærður telst saklaus þar til sekt
hans hefur verið sönnuð. Höfuð-
borgarlögreglan nýtur stuðnings
1500 „varðliða“, sem klæðast
sömu búningum og hafa sama
vald og venjulegir lögregluþjón-
ar, en eru ólaunaðir sjálfboðalið-
ar.
Umdeild lög, sem nýlega voru
sett, heimila lögreglunni að
stöðva menn og leita á þeim, ef
þeir eru grunaðir um að bera
hættuleg vopn. Þessi lög leiddu til
þess, að handtökum fjölgaði um
45 prósent á árinu 1987.
Talið er, að hlutfall þeirra
glæpa, sem tilkynnt er um, sé til-
tölulega hátt, og kemur það m.a.
til af því að lögreglan hefur gott
orð á sér. Kærum vegna nauðg-
ana hefur fjölgað hin síðari ár,
ekki síst vegna þess að komist
hefur á betri samvinna milli lög-
reglunnar og fórnarlambanna.
Bangkok
Bangkok er laus við marga þeirra
glæpa, sem algengastir eru í þró-
aðri stórborgum. Það er t.d. nán-
ast óþekkt, að fólk sé rænt á göt-
um úti, og mjög lítið er um al-
menn skrílslæti eða ribbalda-
skap. Ef við lítum framhjá um-
ferðaröngþveiti og viðvarandi
mengun, þá er Bangkok um
margt öruggari en London.
Svo undarlegt sem það kann að
virðast, þá er minna um morð og
aðra alvarlega glæpi innan borg-
arinnar en í öðrum hlutum
landsins. Algengast er, að morð
tengist ástamálum, og ferðamenn
koma þar sjaldnast við sögu. Til
þess að útlendingar komist í kast
við thailensk lög kemur annað
tveggja til, einstök óheppni - eins
og hjá ensku konunni, sem var
skotin í norðurhluta landsins
snemma á þessu ári - eða, að þeir
fari mjög langt út fyrir þær um-
gengnisreglur, sem ferðamönn-
um ber að fylgja.
Kærur vegna alvarlegra glæpa,
svo sem morða, manndrápa,