Dagur - 01.10.1988, Side 4

Dagur - 01.10.1988, Side 4
4 - DAGUR - 1. október 1988 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 800 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 70 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 530 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON UMSJÓNARMAÐUR HELGARBLAÐS: STEFÁN SÆMUNDSSON BLAÐAMENN: ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir), ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON (Sauðárkróki vs. 95-5960), EGILL H. BRAGASON, FRlMANN HILMARSSON (Blönduósi vs. 95-4070), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON (Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík), MARGRÉT ÞÓRA ÞÓRSDÓTTIR, STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, LJÓSMYNDARAR: GUÐMUNDUR HRAFN BRYNJARSSON, TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON, AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Norðurlands- defldSÁÁ í dag verður haldinn á Akureyri stofnfundur Norðurlandsdeildar Samtaka áhugamanna um áfengisvandamálið. SÁÁ eru tíu ára um þessar mundir og hafa samtökin náð ótrú- legum árangri í baráttunni gegn áfengisböl- inu á þeim skamma tíma. Frá því SÁÁ tók til starfa hafa rúmlega 7000 íslendingar verið lagðir inn á stofnanir til meðferðar vegna óhóflegrar áfengisneyslu og lætur nærri að það séu um 3,6% fullorðinna íslendinga. SÁÁ hefur með starfi sínu átt stóran þátt í því að breyta viðhorfi almennings gagnvart áfengissýki og jafnframt gefið þúsundum íslendinga nýja von um að sigrast á vanda- málinu og losna úr helgreipum Bakkusar. Það segir sína sögu um þá eftirtekt, sem starfsemi SÁÁ hefur vakið, að á annað hundrað einstaklingar frá hinum Norður- löndunum hafa komið hingað til meðferðar. í því felst mikil viðurkennig á því starfi sem unnið er innan vébanda SÁÁ. Félagar í SÁÁ, búsettir á Akureyri og ná- grenni, eru nú um 650 talsins. Frá árinu 1977 til ársins 1984 var starfsmaður á veg- um samtakanna starfandi á Akureyri, en frá því hann hætti störfum hefur ekki verið opin skrifstofa á Norðurlandi á þeirra vegum. Þörfin er þó vissulega fyrir hendi, sem sést best á því að á síðasta ári fóru 83 einstakl- ingar frá Akureyri í meðferð hjá SÁÁ. Þeir sem unnið hafa að því að undirbúa stofnun Norðurlandsdeildar SÁÁ, bentu á það í við- tali í Degi á fimmtudag, að ákveðið tómarúm hafi myndast á Norðurlandi þegar skrifstofa SÁÁ var lögð niður vegna fjárskorts 1984: „Fólk vissi ekki hvert það átti að snúa sér með vanda sinn og það varð til þess að vandinn óx og fólk fór seinna af stað til að leita sér aðstoðar. Tilgangurinn með stofn- un deildar samtakanna hér er því m.a. sá að gefa fólki tækifæri til að leita sér hjálpar fyrr en í óefni er komið, án þess að leggja í lang- ar ferðir frá heimili sínu,“ segir þar m.a. Markmið þeirra sem að stofnun Norður- landsdeildar SÁÁ standa er að opna skrif- stofu á Akureyri og ráða starfsmann til að leiðbeina fólki út úr ógöngum áfengissýk- innar. Áfengisvandamálið er ekki síður tröll- vaxið á Norðurlandi en annars staðar á land- inu og því mjög tímabært að taka á málum með myndarlegum hætti heima í héraði. BB. Verða næstu Ólympíuleikar haldnir í Alþingishúsinu? úr hugskotinu Ólympíuleikar í stjórnmálum Strákarnir okkar hafa aö undanförnu verið að gera það misgott austur í Seoul eða Sól, eins og staðurinn kvað víst heita á máli innfæddra, en ekki mál- farsráðunautar Ríkisútvarpsins. Pangað hélt einnig verktakavin- urinn og samgönguráðherrann úr Hafnarfirði Matthías Á. Mathiesen, sem þarna naut þeirrar sjaldgæfu ánægju að geta horft að soninn keppa, á kostnað skattborgaranna. Eitt- hvað varð sú ánægjan þó enda- slepp, þar sem ráðherrann missti allt í einu undan sér stólinn, og mun það jafnvel hafa verið í annað sinn sem slíkt gerðist í hinni kóreönsku höf- uðborg. Áður var þó ráðherra búinn að tryggja það að ráð- herratíð sinni yrði reistur veg- legur minnisvarði, íþróttahöll ein mikil í Laugardalnum, og svo kaldhæðnislega kann meira að segja að vilja til, að það verði Þórhildur Þorleifsdóttir í stól menntamálaráðherra, sem beit- ir sér fyrir þessari byggingu. Hátíðarstemmning í sláturtíðinni Sem betur fer fyrir fulltrúa íslenskrar íþróttaæsku þarna austurfrá, þá hafa fréttimar af tugmilljónaklúðri þeirra sem hingað hafa borist í misbeinum útsendingum ekki vakið eins mikla athygli og endranær, né heldur skrif einhverra smábæj- arblaða í Danmörku um dæmi- gerða víkingahegðan nýríkra sjóara og gamalríkra forstjóra sem í Austurveg héldu „að hvetja landann”. Islenska þjóð- in hefur nefnilega verið upptek- in af því að halda sína eigin litlu Ólympíuleika - Ólympíuleika í stjórnmálum. Og það hefur svo sannarlega ríkt hátíðarstemmn- ing í þjóðfélaginu mitt í slátur- tfðinni, enda að þessu sinni fleiru slátrað en feitum sauð. Á þessum stjórnmálaleikum hefur að sjálfsögðu verið keppt í flestum þeim greinum sem þessari tegund íþrótta tilheyra, svo sem samningalipurð, fjöl- miðlaframkomu, yfirlýsinga- gleði, einnig undirferli, sveigj- anleika, inn- og útgöngu svo nokkrar vinsælar greinar séu nefndar. Og yfir þessu sjónar- spili hefur þjóðin verið að skemmta sér undanfarna daga, og látið sig litlu skipta þó að atvinnutækin séu að stöðvast vítt og breitt um landið, og ein- staklingar og heimili, jafnt sem fyrirtæki séu að verða gjald- þrota í fjötrum vaxtaokursins, á sama tíma og grái markaðurinn myndar samtök í Reykjavík, kennd við ísland, og kallar sig sparifjáreigendur. Reynir Antonsson skrifar Smátt verður stórt Það hefur svo sannarlega mikið gengið á allt frá því þeir fóst- bræður Steingrímur og Jón Baldvin slátruðu ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar í sögufrægri útsendingu Stöðvar 2, og eitt- hvað er það annað en gúrkur sem fréttasnáparnir hafa lagt sér til munns þessa síðustu daga. Meira að segja Ríkissjón- varpið hætti allt f cinu aö notast við tveggja til þriggja tíma illa lcsnar spólur úr Efstaleitinu sem síðustu fréttir, og tók að vinna þær sjálft. Þykir sumum þetta ótvírætt merki þess að Hallgrímskirkja sé þegar tekin á rás norður í Haganesvík. Og svo sannarlega hafa fréttasnáparnir fengið mikið fyrir sinn snúð. Atburðarásin þessa síðustu daga hefur verið bæði hröð, óvænt og litrík. Svo hratt hafa hlutirnir gerst að dæmi hafa verið þess, að fréttir hafi orðið algjörlega úreltar á einni klukkustund. Og sem f hverri góðri íþróttakeppni hafa úrslitin í einstökum greinum þessara Ólympíuleika í stjórn- málum oft orðið bæði tvísýn og óvænt. Eitt af einkennum þessa grát- broslega sjónarspils, sem loks- ins nú sér fyrir endann á, er það hversu smátt hefur oft á tíðum haft tilhneigingu til að verða stórt. Dæmi um þetta er til að mynda það þegar nokkur símtöl eða kaffiröbb manna urðu þess valdandi að Alþýðubandalagið sprengdi fyrri stjórnarmyndun- arlotu Steingríms. Þeim alla- böllum er það að vísu svo sem ekkert láandi, þótt þeir hafi lítt kært sig um Borgaraflokkinn, sem að minnsta kosti í upphafi hafði skattsvikaákæru að kjöl- festu, í áhöfn skútunnar, auk þess sem Albert verður nú að teljast handhafi gullverðlaun- anna í þeirri grein að skipta um skoðun, en það gerði hann að minnsta kosti fjórum sinnurn á einum og sama sólarhringnum, en lítið er hægt að fullyrða um áhuga hinna flokkanna á sam- vinnu við þá Borgarana. Þó má minna á að innan Alþýðu- flokksins starfar lítil, og líklega áhrifalaus klíka tengd SÁA, sem svo aftur tengist Albert og Borgaraflokknum meðal annars gegnum Hafskipshneykslið, og vera má aö þessar klíkur hafi haft einhvern áhuga á samstarfi. Vinstra öngstræti? En við höfum fengið vinstri stjórn eða félagshyggjustjórn, eins og sumir nefna hana, og því fagna allir sem aðhyllast lausnir félagslegs jöfnuðar á vanda þjóðfélagsins sem er gríðarlegur. En mikið ósköp voru nú fæðingarhríðarnar erf- iðar, og því er ekki að leyna, að menn eru ekki almennt trúaðir á það að hún verði mjög langlíf. Þannig þarf ekki nema eitt við- kvæmt mál til dæmis þetta blessaða álver, en minnstu munaði að kjördæmapot þeirra Hjörleifs og Kjartans út af því kæmi í veg fyrir myndun stjórn- arinnar, þó sem betur fer, báðir hafi borið gæfu til að sýna þjóð- hollustu áður en yfir lauk. Einn- ig gætu ytri ástæður leitt stjórn- ina út í eins konar „vinstra öngstræti“ og má í því sam- bandi nefna, að frystihúsaeig- endur, sem vel að merkja marg- ir eru beinlínis tengdir Sjálf- stæðisflokknum og „fjölskyld- unum þrettán“, hafa látið ófrið- lega þar sem vandamálin á ekki að leysa með einhæfri og flatri kjaraskerðingu. En þó svoþessi stjórn verði ef til vill ekki mjög langlíf, þá gæti hún samt skilið eftir sig merk spor eins og til að mynda „stjórn hinna vinnandi stétta“, á krepputíma fjórða áratugarins gerði. Því hlýtur myndun hennar að gefa fjöl- mörg vænleg fyrirheit.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.