Dagur - 18.11.1988, Qupperneq 1
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMKNR
SiGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Mörg sjávarútvegsfyrirtæki:
„Geta aldrei staðið
undir skuldbindingum“
- sagði sjávarútvegsráðherra
á þingi LÍÚ í gær
Halldór Ásgrímsson, sjávar-
útvegsráðherra, sagði á þingi
LIU í gær að skuldastaða
margra sjávarútvegsfyrirtækja
sé siík að þau komi aldrei til
með að standa undir greiðslum
á öllum sínum skuldbinding-
um. Ollum aðilum sé til hags-
bóta að horfast í augu við
þessa staðreynd og gefa eftir
hluta af kröfum sínum á hend-
ur þeim fyrirtækjum sem að
öðru leyti hafa rekstrargrund-
völl.
Halldór sagði í ávarpi sínu að
markvisst þurfi að stefna að auk-
inni fullvinnslu afla og megi
einskis láta ófreistað að afla
nýrra og betri markaða fyrir sjáv-
arafurðir íslendinga. Ráðherra
vék einnig að fjárfestingum í
sjávarútvegi og sagði:
„Mikilvægt er að á næstu árurn
verði ekki lagt út í fjárfestingar
vegna kaupa, nýsmíði og meiri-
háttar endurbóta á fiskiskipum. í
fiskvinnslu verði leitast við að
sameina fyrirtæki og auka sam-
vinnu þeirra þannig að fjárfesting
nýtist betur og sérhæfing aukist.
Einungis verði fjárfest í fisk-
vinnslu til að ná þessu markmiði.
JÓH
Sauðaneshreppur:
Bændur keyptu 88
tonn af heyi
Bændur á Langanesi náðu telj-
andi litlu magni af heyi af tún-
um í sumar vegna ótíðar og
urðu þeir því annað hvort að
kaupa hey eða skera niður fé.
Vegna þess að þeir mega ekki
kaupa hey af riðusvæðum var
framboðið minna en ella, en
málið hefur nú hlotið giftusam-
legan endi.
Kristín Kristjánsdóttir, oddviti
í Sauðaneshreppi á Langanesi,
sagði að bændur í hreppnum
hefðu keypt alls 88 tonn af heyi,
sem væri meira en nokkru sinni
fyrr, og raunar sagði hún að
bændur hefðu ekki þurft að
kaupa hey í áraraðir.
„Það er veðráttan sem setti
strik í reikninginn. Hey varð úti á
flest öllum bæjum í hreppnum
vegna þess hve sumarið var rign-
ingasamt. Þess vegna urðum við
að kaup hey eða skera niður öðr-
um kosti. Þetta kemur auðvitað
ekki fyrir nema vegna slæmrar
veðráttu eða kals, því ræktun er
mikil og í venjulegu árferði á
þetta að vera í besta lagi,“ sagði
Kristín.
Hún sagði að bændur litu nú
veturinn bjartari augum. Megnið
af heyinu var keypt af Jóhanni
Helgasyni í Leirhöfn á Sléttu og
einnig var keypt hey frá Klifs-
haga.
Ekki er riða í Sauðaneshreppi
og svæðið sem hægt var að leita
til með kaup á heyi var því ekki
stórt og sagði Kristín að illa hefði
getað farið ef bændur á áður-
nefndum bæjum hefðu ekki verið
aflögufærir. SS
í iðruin Ijallsins. Göngin í Ólafsfjaröarmúla eru nú orðin 180 m löng. Á innfelldu myndinni er Steinar Storeskogen
að sprengja. ' Myndir: TLV
Steinar Storeskogen sprengjusérfræðingur í Ólafs-
íjarðarmúla ýtti á sprengjutakkann í gær
og þar með voru 180 metrar að baki:
Sá sprenger vi!
Framkvæmdir við jarðganga-
gerðina í Olafsfjarðarmúla, á
vegum norsk/íslenska fyrir-
tækisins Krafttaks, ganga sam-
kvæmt áætlun. Nú hefur verið
lokið við að sprengja 180
ems
sem
metra inn í fjallið auk
útskots og hliðarrýmis
áætlað er að verði afdrep fyrir
viðgerðarmenn.
Þegar blaðamann og ljósmynd-
ara Dags bar að garði í gær voru
Stefán Valgeirsson, sem heldur upp á sjötugsafmæli sitt nk. sunnudag,
er ekki af baki dottinn
Segir að kosið verði í vor
og ætlar að gefa kost á sér
sprengjumenn, sem eru fjórir
auk verkstjóra, að Ijúka við að
koma 170-180 kílóum af dína-
míti og öðru tilfallandi sprengi-
efni í bergstálið. Efninu er komið
fyrir í 60-70 holum í basalt- og
sandsteinsmassann sem boraðar
eru eftir kúnstarinnar reglum.
Síðan eru þræðir festir milli
hylkjanna og einn sameiginlegur
þráður tengdur við sprengiþráð
sem liggur út úr göngunum og í
sjálfan sprengikassann. Steinar
yfirsprengjari á fyrripartsvaktinni
í gær varð þess heiðurs aðnjót-
andi að ýta á sprengitakkann. Og
þvílík óskapa læti og titringur.
Atgangurinn minnti frernur á
upphaf Hiroshimasprengju en
vinnu við gerð jarðganga á Fróni!
Stefán Valgeirsson, alþingis-
maður fyrir Samtök jafnréttis
og félagshyggju er þess fullviss
aö ríkisstjórnin sitji einungis til
vors og þá verði efnt til alþing-
iskosninga. Hann segist hafa
hafnað setu í núverandi ríkis-
stjórn vegna þess hve illa
hafi farið saman að sitja í sam-
gönguráðuneytinu og standa í
kosningaundirbúningi. „Auð-
vitað var mikil andstaða hjá
mörgum þingmönnum Fram-
sóknar- og Alþýðuflokks við
að ég settist í stól samgöngu-
ráðherra. En þeir reiknuðu
málið skakkt. Auðvitað er ég
sterkari í þessari aðstöðu en að
vera með eitthvert ráðuneyti,
svelt af fjármagni,“ segir
Stefán Valgeirsson.
Þetta segir hann m.a. í ítarlegu
viðtali sem birtist í Degi á
morgun. í viðtalinu segir Stefán
að slá megi því föstu að boðið
verði fram í öllum kjördæmum í
næstu kosningum með svipuðum
formerkjum og giltu um framboð
Samtaka jafnréttis og félags-
hyggju í síðustu kosningum í
Norðurlandskjördæmi eystra.
Hann segir viðræður vera í gangi
við menn úr öllum flokkum um
slíkt framboð en fullyrðingar um
að Borgaraflokkurinn sé þar
beinn aðili eigi ekki við rök að
styðjast. Stefán neitar því hins
vegar ekki að Þjóðarflokkurinn
hafi verið virkur í viðræðunum.
Varðandi stuðning við þetta
framboð í einstaka kjördæmum
segir Stefán að menn telji ekki
ólíklegt að það hefði stuðning á
Vestfjörðum til þess að fá þar tvo
menn kjörna á þing. Þá segir
hann að málstaður Samtakanna
njóti verulegs fylgis í höfuðborg-
inni og því séu allar líkur á fram-
boði þar í næstu kosningum.
Þá er athyglisvert að aldurs-
forseti starfandi þingmanna gefur
út þá yfirlýsingu í viðtalinu að
hann muni gefa kost á sér í næstu
kosningum. Orðrétt segir Stefán
um þetta: „Ég gerði ráð fyrir
því fyrir ári að ég færi ekki
fram í næstu kosningum en ég er
búinn að segja það að ef fólk tel-
ur að okkar málstað sé betur
komið á framfæri með því að ég
fylgi honum eftir, og ef heilsa
mín leyfir, þá mun aldur minn
ekki hamla því. Ef það fólk
sem leitað hefur eftir mínu fram-
boði verður sama sinnis þegar
þar að kemur, þá held ég að sé
enginn vafi um að ég verði við
óskum þess.“ h
Björn Harðarson, staðarverk-
fræðingur Vegagerðarinnar, segir
að enn sem komið er hafi ekkert
komið mönnum á óvart við jarð-
gangagerðina. Áætlanir hafi í
stórum dráttum staðist. Til dæm-
is væri bergið fyrstu 180 metrana
mjög í takt við það sem mælingar
höfðu gefið til kynna.
Unnið er á tveimur vöktum við
sprengingarnar. Hafist er handa
klukkan 6 á morgnana og vinnur
fyrripartsvakt til 16 á daginn.
Seinni vaktin er síðan að til 2 á
nóttu. Unnið er alla virka daga
og fram til kl. 16 á laugardögum.
óþh